Dagur - 21.05.1999, Síða 7
Th*ur\
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 - 7
LANDBÚNAÐUR
Smáverkefnasjóður
landbúnaðarins var
stofnaður í árslok
1990. Starfsféhans
kemur úr Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins.
Tilgangur sjóðsins er að styðja
við framtak og þær hugmyndir
fólks í dreifbýli, sem leitt gætu til
atvinnusköpunar t.d. á sviði
handiðna eða minni framleiðslu-
og/eða þjónustuverkefna. Sjóður-
inn veitir styrki en ekki lán.
Arlega kemur fjárveiting í
Smáverkefnasjóð Iandbúnaðar-
ins frá Framleiðnisjóði landbún-
aðarins. Smáverkefnasjóðurinn
hefur ekki fasta fjárveitingu held-
ur er sótt árlega um til Fram-
Ieiðnisjóðs í ljósi þeirrar fjárþarf-
ar sem var árið áður.
„Smáverkefnasjóður sinnir dá-
lítið öðruvísi verkefnum en
Framleiðnisjóður, keimlíkum en
með öðrum áherslum. Smáverk-
efnasjóðurinn er meira í smærri
verkefnum, umfangsminni og
veitir aldrei hærra en 300.000
krónur á verkefni, á meðan
Framleiðnisjóður metur hvert
verkefrii sem um er að ræða. Til-
gangur Smáverkefnasjóðsins er
fyrst og fremst að styrkja atvinnu
og nýsköpun í dreifbýli. Það er
ekki bundið við lögbýli. Það kem-
ur býsna margt til greina, hand-
verk í fjölbreytilegu formi hefur
verið nokkuð ráðandi en þó hef-
Árni Snæbjörnsson er starfsmaður smáverkefnasjóðs landbúnaðarins.
ur sjóðurinn styrkt mjög fjöl-
breytt verkefni í dreifbýli í gegn
um tíðina," segir Arni Snæ-
bjömsson hjá Bændastamtökum
Islands, sem jafnframt er starfs-
maður Smáverkefnasjóðs.
Handverk stærsti flokkurinn
Arni segir erfitt að nefna dæmi
um verkefni sem sjóðurinn hafi
veitt styrkjum til þar sem hann sé
bundinn trúnaði að tíunda ekki
hjá einstökum umsækjendum.
En hann nefnir handverk í fjöl-
breyttu formi, bæði einstaklinga
sem séu að vinna að handverki,
þeirra hópa eða félög sem séu að
koma sér upp aðstöðu og mjög
margt í kring um það. „Þetta er
kannski einna stærsti flokkurinn.
Það er alls konar framleiðsla sem
fólk getur sýnt fram á að það er
mögulegt að eiga við. Fyrst og
fremst ef það sýnir sig að skapa
atvinnu. Það getur verið fram-
leiðsla fyrir almenna sölu eða
koma framleiðslunni á markað í
viðeigandi búðir, hvort sem það
er matvara, fatnaður, áhöld eða
eitthvað slíkt. Það getur verið
ýmis konar þjónusta, nýbreytni í
henni og þannig mætti Iengi
telja. Það kemur allt til greina ef
þetta er í dreifbýli og er ekki al-
veg þetta hefðbundna og skapar
nýja vinnu.“
Um styrk í sjóðnum ber að
sækja á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum sem liggja frammi
hjá öllum búnaðarsamtökum
landsins og hjá Bændasamtökun-
um. Reglur sjóðsins eru á sömu
stöðum. Umsóknir eru afgreidd-
ar fjórum sinnum á ári.
Sjóðurinn hefur eigin stjórn.
Arni er í hlutastarfi sem starfs-
maður sjóðsins, formaður stjórn-
arinnar er skipaður af landbún-
aðarráðuneyti og það eru fulltrú-
ar frá Bændasamtökum Islands
og Framleiðnisjóði landbúnaðar-
ins, einn frá hvorum.
Umsóknir fleiri í upphafl
Það er mjög breytilegt hversu
margar umsóknir sjóðurinn fær
árlega, þær eru nú nokkrir tugir.
„Þær voru fleiri í upphafi. Sjóð-
urinn var stofnaður 1990 og var
kominn til fullra starfa 1991. Á
þeim árum var svolítið annað at-
vinnuástand. Það var nokkuð
mikið veitt úr honum fyrst. Það
eru komnar 462 umsóknir og
fjöldi styrkja er 359 þannig að af
þeim sem hafa sótt hefur tæplega
78% verið veittur styrkur. Þetta
er ekkert eyrnamerkt eftir kynj-
um en það hefur þróast þannig
að konur eru þarna í meirihluta
þannigaðafþessum 359 eru 180
konur, 105 karlar og 74 félög.“
Árni segir að það sé ágætt að
þeir sem séu að velta því fyrir sér
að sækja í sjóðinn hafi samband
við hann hjá Bændasamtökum
Islands. Ef fólk er með ákveðna
hugmyndi þá ræðir Árni við það
og í sameiningu er reynt að kom-
ast nær því hvort hugmyndin sé
Iíkleg eða ekki.
I reglum sjóðsins segir að ekki
sé veittur styrkur nema einu
sinni út á hvert verkefni.
-OHR
GrOtt ástand á nautakjötsmarkaði
þeim sökum hafa bændur óskað
frekar eftir slátrun gripa. Á Suð-
urlandi hefur verið mikil slátrun
undanfarnar vikur og er nánast
hægt að fá gripum slátrað án telj-
andi biðtíma.
Góðar horfur eru á sölu nauta-
kjöts í sumar en gert er ráð fyrir
nokkurri aukningu á framboði
ungneyta til slátrunar upp úr
miðju sumri.
Magnús Stefánsson fv. alþingismaður ræðst á kjötfjaiiið.
Staða á markaði nautakjöts er
góð um þessar mundir og slátrun
með meira móti nú en oft áður.
Frá þessu greinir í Bændablað-
inu.
í mars var heildarsala á naut-
gripakjöti um 312 tonn en það er
7,8% meiri sala en á sama tíma í
fyrra. Aukningin á síðustu tólf
mánuðum er 3,4% miðað við
sama tímabil fyrir ári og nemur
heildarsalan um 3.560 tonnum.
Biðlistar eftir slátrun nautgripa
hjá sláturleyfishöfum eru víðast
stuttir þó einhver bið sé eftir
slátrun norðanlands og austan. Á
nokkrum stöðum á Norðurlandi
er farið að gæta heyleysis og af
HEILDSALA OG SMÁSALA
Osta- og smjörsalan
Bitruhólsi 2. simi 569 1600
Qóðan
dag
Þaö er ekkert slen í
kálfunum sem fá
kálfafóðrið frá okkur. Ef
þú vilt tryggja góða fóðr-
un ungkálfa þá gefur þú
þeim kálfafóður og kraftfóður frá 4ra daga
aldri og fram til 12 vikna aldurs.
Kálfafóðrið er undanrennumjöl, blandað tólg. Eitt kg af kálfafóðri á að hræra út í 8 lítrum
af vatni. Hæfilegt er að gefa kálfum 2,0 til 4,5 li'tra af blöndunni á dag. Það fer eftir aldri og
öðru fóðri.