Dagur - 12.06.1999, Side 4

Dagur - 12.06.1999, Side 4
FRÉTTIR I c I. •. j I* ' i x <r j- ;I r , t 4 -LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 Hafnarfjarðarbær með fréttablað Út er komið nýtt Fréttablað Hafn- arfjarðarbæjar, nýjung í upplýs- ingamiðlun sveitarfélagsins. Blað- ið er gefið út í 6 þúsund eintökum og dreift án endurgjalds inn á hvert heimili í Hafnarfirði. Rit- stjóri blaðsins er Jóhann Guðni Reynisson, upplýsingastjóri bæjar- ins. I fyrsta leiðaranum segir Jó- hann Guðni m.a. að áhersla hafi verið lögð á að kynna málefni bæj- arins á heimasíðu hans á Internet- inu, www.hafnarfjordur.is, og svo verði áfram. „Hins vegar nægir Jóhann Guðni Reynisson. ekki að treysta eingöngu á þessa nýjung, hefðbundnar Ieiðir í upp- lýsingatækni verða einnig farnar eins og þetta blað ber með sér,“ seg- ir ritstjórinn sem, auk ýmissa upplýsinga um starfsemi bæjarins, boð- ar Iéttmeti í blaðinu innan um alvöruþrungna umræðu. Fréttablaðið á að koma út fjórum sinnum á ári og næsta blað er væntanlegt í haust. Sendiherrar til viðtals Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að bjóða fyrirtækjum, stofnunum, samtökum og einstaklingum við- talstíma við sendiherra íslands þegar þeir verða staddir hér á landi í sumar til þess að ræða hags- munamál sín erlendis. Fyrstur til viðtals verður Kornelíus Sig- mundsson, sendiherra í Finnlandi, nk. þriðjudag. Fimmtudaginn 24. júní verður hægt að hitta Olaf Eg- ilsson, sendiherra í Kína, og 29. Utanríkisráðuneytið. júní verður Svavar Gestsson, ræð- ismaður í Kanada, staddur í ráðu- neytinu. Þriðjudaginn 13. júlí verða þrír sendiherrar á svæðinu, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi- herra í Bandaríkjunum, Jón Egill Egilsson, sendiherra í Rússlandi, og Þorsteinn Ingóifsson, fastafulltrúi hjá SÞ. Miðvikudaginn 4. ágúst er komið að Helga Agústssyni, sendiherra í Danmörku, og loks verða Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra hjá Evrópusambandinu, og Benedikt Jónsson, fastafulltrúi hjá EFTA, til viðtals þriðjudaginn 17. ágúst. Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í utanríkis- ráðuneytinu. Innflytjendur stofna mannréttindasamtök Innflytjendur á Islandi ætla að stofna mannréttindasamtök í dag, Iaugardag. Stofnfundur verður haldinn í sal Miðstöðvar nýbúa við Skeljanes kl. 14. Samtökin munu m.a. starfa að beinum hagsmuna- málum innflytjenda á Islandi. Stofnfélagar eru þegar orðnir 60 og er öllum einstaklingum og lögaðilum heimilt að skrá sig í samtökin. Einnig má skrá sig á netfangi samtakanna: humanice@hotmail.com Þörungaverksmiðjan vottuð A aðalfundi sínum næstkomandi mánudag fær Þörungaverksmiðjan á Reykhólum afhenta viðurkenningu frá vottunarstofunni Túni um að starfsemin sé lífrænt vottuð. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur sjávargróður og afurðir hans hljóta vottun sem lífræn framleiðsla. Tún er eftirlitsaðili fyrir bandarísku vottunarstofuna Quality Ass- urance International, QAI, sem mun heimila verksmiðjunni að nota vörumerki sitt. Vörumerld QAI er vel þekkt í Bandaríkjunum og víða um heim, að því er fram kemur í tilkynningu frá Þörungaverksmiðj- unni. Byggingarframkvæmdir á Laugum Fyrsta skóflustungan að Tröllasteini við Framhaldsskólann að Laug- um verður tekin í dag, laugardag, kl. 17. Um er að ræða tveggja hæða hús með 28 tveggja manna herbergjum með baði og verður húsið nýtt sem hótel á sumrin en heimavist á veturna. A sama tíma mun Fosshótel ehf. taka formlega við rekstri Hótel Lauga úr höndum skól- ans. Aætlað er að byggingu hússins ljúld um næstu áramót. Réttindi erlendra launþega á íslandi Ráðstefna um réttindi érlendra launþega á Islandi verður haldin á ísafirði í dag. Félagið Fjölbreytni auðgar stendur fyrir ráðstefnunni, sem verður haldin í Framhaldsskóla Vestfjarða. Markmið félagsins er að vinna að jafnrétti á Islandi með því að fyrirbyggja misrétti á grund- velli kynþáttar, litarháttar, þjóðernis, uppruna, trúarbragða eða ann- arra ástæðna. Dæmdur fyrir vsk-s vindl í fyrradag var maður dæmdur í Hæstarétti í 4 mánaða fangelsi fyrir m.a. brot á lögum um virðisaukaskatt en fresta skal fullnustu refsing- ar í tvö ár frá birtingu dómsins og skal hún falla niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð. Maðurinn var dæmdur sekur fyrir að hafa sem framkvæmdastjóri og varastjórnarmaður verktaka- fyrirtækis ekki staðið sldl á virðisaukaskatti, sem innheimtur hafði verið í nafni félagsins, að fjárhæð 5.493.008 krónur og að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins að fjárhæð 2.817.109 krónur. Hæsti- réttur jók fjárhæð sektarinnar sem maðurinn fékk upp í 16.625.000 krónur en í héraðsdómi hafði hann fengið 4.000.000 króna sekt. -AÁ Tilboó í Kísiliðj- una frá Allied EFA Eftir nokkiirra vikna viðræður er nú komið tilboð í hlut World Minerals í Kísiliðj- unni frá Allied EFA, sem Eignarhaldsfélag- ið Alþýðuhankinn á 40% hlut í. Undanfarinn mánuð hafa staðið yfir þríhliða viðræður viðskipta- og iðnaðarráðuneytisins, Allied EFA og World Minerals um hugsanleg kaup Allied EFA á 48,5% hlut World Minerals í Kís- iliðjunni við Mývatn. Að sögn Þórðar Friðjónssonar ráðuneytis- stjóra er tilboð komið frá Allied EFA og hlé hefur verið gert á við- ræðum á meðan afstaða er tekin til tilboðsins. Aðspurður sagði hann fulla alvöru vera í þessum viðræðum, ekki síst þegar tilboð væri komið fram. Allied EFA er í eigu bandaríska fyrirtækisins Allied Resource og Eignarhaldsfélagsins Alþýðu- bankans, sem á 40% hlut. Auk World Minerals eru íslenska rík- ið og sveitarfélög við Mývatn sem kunnugt er eigendur að verk- smiðjunni. Viðræðurnar hafa m.a. snúist um að framleiðsla kísildufts fari fram samhliða vinnslu á kísilgúr en Allied EFA á einmitt hiuti í tveimur kísildufts- verksmiðjum í Noregi ásamt heimamönnum þar. Hákon Björnsson, fram- kvæmdastjóri Allied EFA, var einmitt staddur í Noregi í gær að kynna sér aðstæður í verksmiðju í Bergen þegar Dagur náði tali af honum. Hann fékkst ekki til þess að skýra nánar tilboð Allied EFA í Kísiliðjuna. Samningsaðilar hefðu sammælst um að gæta fyllsta trúnaðar og á meðan við- ræður stæðu yfir væri upplýs- ingaskyldan hjá ráðuneytisstjóra iðnaðarráðuneytisins, Þórði Frið- jónssyni. Kísiliðjan við Mývatn hefur vinnsluleyfi til ársins 2010 en mun fyrr, jafnvel árið 2003, er talið að verksmiðjan verði uppi- skroppa með hráefni til kísilgúrs- framleiðslu. Ef ekki kemur til frekara vinnsluleyfi eða stækkun á hráefnissvæði í náinni framtíð, þá liggur í augum uppi að fram- leiðsla fyrirtækisins stöðvast. Þórður sagði að þau mál væru sett til hliðar í þessum viðræð- um. Tilboðið hefði ekki áhrif á umhverfismat á Mývatni og feril- inn í kringum það. -BJB Hlaðvarpiim fær hæsta húsvemdarstyrkinn í ár Nær 50 hiísdgeiidimi í gamla bæiiimi í Reykja- vík liaia veriö sendar til- kyimmg;ir um styrk nr Húsvenidarsjóði, tæpar 15 miUjónir samtals. Hlaðvarpinn hlaut hæsta styrkinn úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur þetta árið, 900.000 kr., til alhliða endurgervingar. Næst hæsti styrk- urinn, 800.000 kr., fer í Hafnar- stræti 1-3 og sá þriðji hæsti, 600.000 kr., til endurgerðar- á framhlið Laugavegs 58. Alls veitti Húsvemdarsjóður styrki við þessa þriðju styrkjaúthlutun sína, sam- tals að upphæð 14.650.000 kr., en 107 umsóknir bámst. I ár vom ein- ungis veittir styrkir til húsa sem standa innan marka miðborgarinn- ar, þ.e. innan Snorrabrautar og Hringbrautar. Meira en helmingur styrkjanna er veittur til endumýj- unar á gluggum eða umgjörð þeir- ra - einkum glugga á framhlið hús- anna. Margir hinna em veittir til endurbóta á ytra byrði, líka einkum á framhliðinni. Fjórði hluti styrkj- anna kemur til viðbótar styrkjum úr Húsfriðunarsjóði ríldsins, sem nema samtals 4.350.000 krónum. Hlaðvarpshúsið í Reykjavík. Meðalstyrkurmn 30S þúsund Langflestir styrkir Húsverndar- sjóðs eru á bilinu 200 til 400 þúsund krónur, enda meðalupp- hæð þeirra allra um 305 þús.kr. Hvað flestir styrkirnir fara á Hverfisgötu nr. 12, 44, 45, 60a, 64 og 72 og litlu færri á Skóla- vörðustíg 4a og b, 5, 22, 35 og 38. Þrír styrkir fara í Tjarnargötu 18, 22 og 24, aðrir þrír í Austur- stræti 3, 4 og 16 og sömuleiðis á Laugaveg 22a, 28a og 58. Eini „innanhússtyrkurinn" fer til Is- Iensku óperunnar, til endurnýj- unar í anddyri og forsal. Borgað fyrir fleiri pósta Til grundvallar við ákvörðun styrkjanna lágu tillögur Húsa- verndarnefndar Reykjavíkur um friðun og verndun hins reykvíska byggingararfs, segir Nikulás Úlfar Másson, arkitekt og deildarstjóri húsadeildar á Arbæjarsafni. Styrkirnir séu veittir til endur- gerðar eða viðhalds á húsum eða öðrum mannvirkjum, sem hafa sérstakt varðveislugildi af listræn- um eða menningarsögulegum ástæðum. Þeir standi einungis undir litlum hluta þess sem fram- kvæmdirnar kosta, gjarnan á bil- inu 2-8%, enda einkum hugsaðir til að borga þann mismun eða viðbótarkostnað sem verður við að uppfylla þær kröfur sem gerð- ar eru um endurgerð í uppruna- Iegt horf. Til dæmis séu yfirleitt fleiri póstar í gluggum frá gamalli tíð, þannig að sjóðurinn sé kannski að borga fólki fyrir að setja fleiri pósta í glugga en ella. Nýtt jám aíþví gleyiiulist að mála Hvað gríðarlega dýrt það er að gera upp gömul hús segir Niku- lás Úlfar oftast af því að við Is- lendingar séum alveg hræðilega léleg í að halda húsum við. Af því leiði, að þegar fólk fer loks- ins af stað, þá þurfi oft að gera svo mikið - kannski að rífa af því járnið, af því það gleymdist í 1 5- 20 ár að mála húsið. -hei

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.