Dagur - 24.06.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 24.06.1999, Blaðsíða 8
8- FIMMTUDAGUR 2 4 . JÚNÍ1999 FRÉTTASKÝRING ungarvík en lágflug er skilgreint sem flug undir 500 fetum. 18. júní síðastliðinn lauk þyrlu- verkefninu Norður-Nágranni ‘99 en það verkefni hófst fyrst árið 1991. Norður-Nágranni ‘99 tengdist varnaræfingunni Norð- ur-Víkingi ‘99 og var það sam- starfsverkefni varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins og Varnarliðsins, þar sem þær flutn- ingaþyrlur sem taka þátt í Norð- ur-Víkingi ‘99 voru nýttar til borgaralegra flutningsverkefna víðs vegar um landið. Margs kon- ar félög nutu góðs af þessu verk- efni en meðal verkefna voru flutningur jarðvegsefna í göngu- stíga við Þórsmörk og Land- mannalaugar, flutningur vinnu- skúra úr Viðey í Elliðaárdal og flutningur gamals strætisvagns frá Arnarvatni að brotajárnshaug á Hvammstanga-. íslensk lögregla í hemaðax- hlutverk? Friðþór Eydal hjá upplýsinga- skrifstofu Varnarliðsins segir að hingað til hafi æfingin gengið vel og hnökralaust. Æfingin tekur mið af því að það sé verið að veij- ast hryðjuverkum umhverfis- verndarsinna og hafa verið gagn- rýnisraddir um valið á óvininum. Friðþóri finnst þessi gagnrýni út í hött og það sé í raun vísvitandi útúrsnúningur að tengja íslenska umhverfisverndarsinna við mögu- Ieg hryðjuverk. „Það sem um er að ræða er öfgafullur klofningshópur úr al- þjóðlegum umhverfissamtökum sem hefur tekið til vopna. Með þessu er ekki verið að setja nein samasemmerki við íslenska um- hverfisverndarsinna. Aðalatriðið er að æfð séu viðbrögð við hryðju- verkum," segir Friðþór. Jón Bjartmars frá Víkingasveit- inni segir þeirra hlutverk í æfing- unni snerta gíslatöku á Keflavík- urflugvelli. En hins vegar hafi mjög mikið verið að gera hjá Vík- ingasveitinni vegna heimsókna forsætisráðherra Norðurland- anna og Japans undanfarna daga. „Við höfum þó ekki tekið fyrr þátt í æfingunni Norður-Víkingi með eins beinum hætti og við gerum núna. Aður höfum við veitt að- stoð við framkvæmd æfingarinn- ar en nú er þetta í fyrsta skipti sem Víkingasveitin tekur beinan þátt í æfingunni enda er verið að æfa viðbrögð við hryðjuverkum sem eru lögreglulegs eðlis," segir Jón. Hann segist fagna þessu tækifæri sem æfingin er fyrir lög- regluna. Aðspurður um hvort svona æf- ing færi lögregluna í hliðarhlut- verk hersins segir Jón að það sé frekar að æfingin færi herinn í hliðarhlutverk lögreglunnar. „Við vinnum ekki sem hermenn í æf- ingunni né í raunveruleikanum. Almennt séð eru það borgaraleg yfirvöld sem hafa forræði mála sem varða hryðjuverk. Komi til hryðjuverka á íslandi geta íslensk stjórnvöld leitað til Varnarliðsins samkvæmt Varnarsamningnum og hefur herinn því fyrst og fremst stuðningshlutverki að gegna,“ segir Jón. Friðþór Eydal segist ekki held- ur hafa áhyggjur af því að borgar- aleg yfirvöld eins og Landhelgis- gæslan og Víkingasveitin séu að færa sig yfir á hernaðarsviðið enda hafi t.d. Landhelgisgæslan vmsum skvldum að eeena á ófrið- Mótmælendur voru búnir að koma sér fyrir í Hljómskálagarðinum I gær til að r, artímum s.s. tundurduflaeyðingu og björgunarstörfum. „Ömurlegt stríðsleikja- brölt,“ segir Steingrímur Skiptar skoðanir eru á þessum heræfingum í landi sem hefur aldrei haft innlendan her í meira en 1000 ára sögu þess. Vinstri hreyfingin - grænt framboð og hvatt er til friðlýsingar borgarinn- ar og yfirlýsingar um kjarnorku- vopnalaust svæði innan borgar- markanna. Hins vegar fagnar Jón Hákon Magnússon hjá Vestrænni samvinnu þessum æfingum og lítur á þetta sem nauðsynlegan þátt í vígvarnaðarstarfi NATO. „Ef eitthvað er, styrkir þetta okk- ar sterku stöðu innan NATO enn Friðþór Eyda! segir að heræfingin hafi gengið vel. ungir sósíalistar hafa ályktað gegn æfingunum. Einnig hafa herstöðvarandstæðingar mót- mælt þeim en þeir bafa einnig sent borgarstjóra bréf þar sem meira og að auki fáum við íslend- ingar bæði góða þekkingu og þjálfun út úr þessum æfingum," segir Jón Hákon. Steingrími J. Sigfússyni alþing- ismanni finnst hins vegar þessi æfing fráleit og er andvígur henni. „Þetta stríðsleikjabrölt sem er verið að troða upp á okkur er alveg ömurlegt," segir Stein- grímur. Hann telur að þetta skaði án efa ímynd Islands meðal ferðamanna. „Síðan fer það afar mikið í taugarnar á mér þessi fíflagangur með Norður-Ná- granna og furða ég mig á því að ýmsir ís- lenskir borgaralegir aðilar og umhverfis- samtök Iáti misnota sig í svona vitleysu. Það eru varla til um- hverfisljandsamlegri farartæki sem þessar risaherþyrlur eru og síðan á að nota þær í að flytja einhverja skúra út um Það er með ólíkindum að þetta sama NATO sem hef- ur verið að drepa þús- undir manna í Evr- ópu skuli koma hing- að enn eina ferðina undir því yfirskini að hér sé um að ræða einhvern vingjarnleg- — an útivistarklúbb,“ segir Steingrímur. Friðþór Eydal leggur áherslu á að þessi æfinjg sé samstarf Banda- ríkjanna og Islands. „Það er ekki verið að draga neinn aðila nauð- ugan í þetta,“ segir Friðþór. ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON SKRIFAR 3000 inamia heræfíng stendnr nú sem hæst um allt land. SMptar skoðanir eru um æf- iuguua og herstöðvar- audstæðiugar mót- mæltu heræfíugum í höfuðhorgiuui.. Varnaræfingin Norður-Víkingur '99 stendur nú sem hæst en henni lýkur 28. júní. Æfingin er haldin annað hvert ár á grund- velli varnarsamnings Islands og Bandaríkjanna og hafa æfingar af þessu tagi verið haldnar síðan árið 1983. Árið 1997 tóku 3.500 manns þátt en í ár eru þátttakendur færri eða um 3.000 manns. Allir hermenn Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, 2.000 manns, taka þátt í æfingunni. Einnig hafa komið 800 manns frá Bandaríkj- unum, 50 manns frá Þýskalandi og bresk flugsveit til landsins vegna þessa. Komu fyrstu sveit- irnar 12. júní síðastliðinn og fara þær þann 3. júlí. Nokkrir tugir Is- lendinga taka þátt í æfingunni og þá aðallega frá Landhelgisgæsl- unni, Víkingasveit Ríkislögreglu- stjóra, Flugmálastjórn og Varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins. Fjölmargar orrustuflugvélar og þyrlur frá Bandaríkjunum og Bretlandi hafa tekið þátt í æfing- unni. Einnig taka dönsk freigáta og varðskip Landhelgisgæslunnar þátt í æfingunni. Venjulega er grunnhugmynd æfingarinnar Norður-Víkingur árás óvinaríkis á ísland en í ljósi breyttra forsendna í öryggismál- um eftir að kalda stríðinu lauk er grunnhugmyndin alþjóðleg hryðjuverk. Markmið æfingarinn- ar er m.a. að æfa hernaðarleg við- brögð við hryðjuverkum, kynna íslenska staðhætti fyrir erlendum hermönnum og æfa björgunar- og leitarviðbrögð. Að auki skipa liðs- og birgðaflutningar frá Bandaríkj- unum til Islands stóran sess í æf- ingunni. Lent í ffljómskálagarðmiun Reynt hefur verið eftir fremsta megni að æfingin raski sem minnst högum landsmanna og reynt er að takmarka Iágflug flug- véla. Þó hefur mikið verið um að vera um allt land. f gærkvöld átti æfingin að fara fram í hjarta mið- borgarinnar með því að herþyrla lenti í Hljómskálagarðinum og landher bandaríska hersins brun- aði upp í bandaríska sendiráðið við Laufásveg til að bjarga þaðan ónefndu fólki sem síðan yrði flutt í burtu með þyrlunni. Nokkur fjöldi herstöðvarandstæðinga bafði safnast saman í Hljóm- skálagarðinum vegna æfingarinn- ar og taldi sig ekki þurfa að víkja úr almenningsgarði fyrir heræf- ingu. Var þessi aðgerð undirbúin í samvinnu við lögregluna í Reykjavík. í dag er síðan Iág- flugsæfing yfir Bolafjalli við Bol-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.