Dagur - 26.06.1999, Page 1
,/TV
FERÐAMAIARAÐ ÍSLAMÐS
82. og 83. árgangur- 118. tölublað
Rétt að huga að
hj álparstamvestra
Sveitarstjómir og
stjómvöld kasta vand-
aniun á milli sín. Pól-
verjar fiska í soðið á
Þingeyri. Milljón í að-
stoð á Bíldudal. Öm-
urlegt í Bolungarvík.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir,
sóknarpestur á Þingeyri, segir að
það sé að verða tfmabært að
huga að því hvað Hjálparstarf
kirkjunnar getur gert fyrir þá
sem séu bæði atvinnu- og pen-
ingalausir vegna vinnslustöðvun-
ar Rauða hersins í plássinu. Ef af
því verður mundi slík aðstoð lík-
lega verða í formi peningaað-
stoðar fremur en matvælagjafa.
Hún bendir þó á að Pólverjarnir
á staðnum reyni hvað þeir geta
til að bjarga sér og m.a. hefur
þeim orðið nokkuð ágengt að
afla sér matar með því að fiska í
soðið.
Milljón á
Bíldudal
A sama tíma
og sveitar-
stjórnir vestra
og stjórnvöld
kasta vanda-
málinu á milli
sín hafa verka-
lýðsfélögin á
Þingeyri,
Bíldudal og
Bolungarvík
reynt að hjálpa
félagsmönnum
sínum vegna þess ástands sem
skapast hefur f atvinnumálum
þessara staða. Sem dæmi þá hef-
ur verkalýðsfélagið á Bíldudal,
með aðstoð Alþýðusambands
Vestfjarða, reitt af hendi um eina
milljón króna til þessa hjálpar-
Pólska fiskvinnslufólkið fyrir vestan
gerir hvað það getur til að bjarga sér.
starfs. Þar eru 25 íslendingar og
38 útlendingar án vinnu vegna
ástandsins hjá fyrirtæki Rauða
hersins í plássinu. Haukur Krist-
insson for-
maður verka-
lýðsfélagsins
segir að hveij-
um og einum
af þessu fólki
hafi tvisvar
sinnum verið
greiddar 10
þúsund krón-
ur til að bjarga
sér með brýn-
ustu lífsnauð-
___________ synjar. Alíka
sögu er að
segja af Þingeyri þar sem um
100 manns bíða þess hvað verða
vill í atvinnumálum þess. Þar af
eru útlendingar um 50-60 tals-
ins, flestir Pólverjar. Þar á bæ
hafa menn haft atvinnu hjá fyrir-
tæki Rauða hersins í tvö ár, en
þar á undan hafði fiskverkafólk
verið atvinnulaust í 9 mánuði
þegar frystihúsið lokaði. I Bol-
ungarvík hafa starfað um 45
manns hjá fyrirtæki Ketils
Helgasonar og þar af um 8 út-
lendingar að sögn Sigurðar Þor-
Ieifssonar, formanns Verkalýðs-
og sjómannafélags Bolungarvík-
ur. Hann segir ástandið ömur-
legt.
Allt í lausu lofti
„Mér sýnist þetta vera allt í lausu
lofti og enginn getur sagt neitt
né svarað neinu,“ segir Haukur
Kristinsson, formaður Verkalýðs-
félags Bfldudals. Hann segir að
það sé töluvert áfall fyrir verka-
fólkið að fá ekki útborgað í sex
vikur. Það sé ekki aðeins erfitt
fyrir útlendingana heldur einnig
fyrir heimamenn. I því sambandi
bendir hann á að fyrir stoppið
hefði fólkið aðeins unnið í átta
tíma á dag. - GRH
Foreldrar og börn ræða um sam-
kynhneigða og uppeldi í helgar-
blaði Dags.
ertu nokkuð að
Upplýsingamiðstöðin
LMl. - þar sem íslenska er líka töiuð
Verð t lausasölu 200 kr.
„Kýs að tjá
mig efckP
Uppeldið
efcM verra
Samkynhneigðir eiga í réttinda-
baráttu fyrir sína hönd og barn-
anna sinna. Hommar og lesbíur
geta fengið sambúð sína stað-
festa hjá sýslumanni og blessun"
prests, nú vantar bara réttinn til
að geta gengist undir tækni-
fijóvgun eða fá að ættleiða barn.
„Mér finnst verða að koma
einhver vitræn rök fyrir því af
hverju börn ættu að verða verri
einstaklingar eða lifa óhamingju-
samara lífi með því að alast upp
hjá samkynhneigðu foreldri,"
segir Jakob Jakobsson veitinga-
maður.
I Lónkoti í Skagafirði er
skemmtilegur áningarstaður þar
sem meðal annars stendur yfir
sýning á nokkrum höggmyndum
Páls Guðmundssonar frá Húsa-
felli. Fréttamaðurinn Gísli Mart-
einn Baldursson og leikarinn
Rúnar Freyr Gíslason segja frá
næturspilamennsku um jól og
fleiru skemmtilegu.
Verkmennta-
skólinn á Akureyri
er að fá nýjan
skólameistara.
Hjalti Jón Sveins-
son segist hlakka
til að takast á við
ný verkefni. Hann HJaltl Jón
er skólamaður Sveinsson
fram í fingurgóma.
Systurnar Brynja X. og Valdís
Vífilsdætur kynna mat frá
Mexíkó. Homfirðingar og eflaust
fleiri þekkja Hauk Þorvalds og
hljómsveitina hans. Haukur og
félagar ræða um ferilinn, sem er
orðinn langur. Sumarið er tími
brúðkaupanna og dömurnar vilja
Díönukjóla. Auk alls þessa má
lesa um flugur, dómsmál, kynlíf,
bílveiki, bækur, bíó og popp í
stútfullu helgarblaði Dags. Góða
skemmtun!
Guðmundur
Björnsson, fyrrum
forstjóri Stmans.
„Ég hef
ákveðið að
tjá mig ekki
um málið,“
sagði Guð-
mundur
Björnsson,
fráfarandi
forstjóri
Landssím-
ans, við Dag
í gærkvöld
um starfslok _______
hans sem
forstjóra
Lands-
símans. Aðspurður hvort hann
hefði hætt sjálfur eða verið lát-
inn hætta sagði Guðmundur:
„Það þarf enga sérstaka skyn-
semi til að lesa úr þessum spil-
um þannig að ég kýs ekki að tjá
mig frekar.“
Nánar er fjallað um forstjóra-
skipti Landssímans og nýtt
skipurit fyrirtækisins á bls. 5 í
blaðinu í dag. - RJB
Talsvert hefur borið á því síðustu daga að kofar og önnur glæsimannvirki sem krakkar hafa smíðað á smíðavöll-
um Akureyrarbæjar séu eyðilögð af „hrekkjusvínum" á kvöldin. Að sögn Sesselíu Sigurðardóttur, umsjónarmanns
gæsluvallanna, hefur þessi skemmdarverkastarfsemi valdið litlu krökkunum sorg og reiði. Kofum hefur verið velt
við eða hliðarnar slegnar úr þeirn eins og gert hefur verið við kofa þessara krakka á Borgarvelli. Sesselía og
krakkarnir hvetja skemmdarvargana til að hætta þessu! mynd: brink