Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 1
,/TV FERÐAMAIARAÐ ÍSLAMÐS 82. og 83. árgangur- 118. tölublað Rétt að huga að hj álparstamvestra Sveitarstjómir og stjómvöld kasta vand- aniun á milli sín. Pól- verjar fiska í soðið á Þingeyri. Milljón í að- stoð á Bíldudal. Öm- urlegt í Bolungarvík. Guðrún Edda Gunnarsdóttir, sóknarpestur á Þingeyri, segir að það sé að verða tfmabært að huga að því hvað Hjálparstarf kirkjunnar getur gert fyrir þá sem séu bæði atvinnu- og pen- ingalausir vegna vinnslustöðvun- ar Rauða hersins í plássinu. Ef af því verður mundi slík aðstoð lík- lega verða í formi peningaað- stoðar fremur en matvælagjafa. Hún bendir þó á að Pólverjarnir á staðnum reyni hvað þeir geta til að bjarga sér og m.a. hefur þeim orðið nokkuð ágengt að afla sér matar með því að fiska í soðið. Milljón á Bíldudal A sama tíma og sveitar- stjórnir vestra og stjórnvöld kasta vanda- málinu á milli sín hafa verka- lýðsfélögin á Þingeyri, Bíldudal og Bolungarvík reynt að hjálpa félagsmönnum sínum vegna þess ástands sem skapast hefur f atvinnumálum þessara staða. Sem dæmi þá hef- ur verkalýðsfélagið á Bíldudal, með aðstoð Alþýðusambands Vestfjarða, reitt af hendi um eina milljón króna til þessa hjálpar- Pólska fiskvinnslufólkið fyrir vestan gerir hvað það getur til að bjarga sér. starfs. Þar eru 25 íslendingar og 38 útlendingar án vinnu vegna ástandsins hjá fyrirtæki Rauða hersins í plássinu. Haukur Krist- insson for- maður verka- lýðsfélagsins segir að hveij- um og einum af þessu fólki hafi tvisvar sinnum verið greiddar 10 þúsund krón- ur til að bjarga sér með brýn- ustu lífsnauð- ___________ synjar. Alíka sögu er að segja af Þingeyri þar sem um 100 manns bíða þess hvað verða vill í atvinnumálum þess. Þar af eru útlendingar um 50-60 tals- ins, flestir Pólverjar. Þar á bæ hafa menn haft atvinnu hjá fyrir- tæki Rauða hersins í tvö ár, en þar á undan hafði fiskverkafólk verið atvinnulaust í 9 mánuði þegar frystihúsið lokaði. I Bol- ungarvík hafa starfað um 45 manns hjá fyrirtæki Ketils Helgasonar og þar af um 8 út- lendingar að sögn Sigurðar Þor- Ieifssonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvík- ur. Hann segir ástandið ömur- legt. Allt í lausu lofti „Mér sýnist þetta vera allt í lausu lofti og enginn getur sagt neitt né svarað neinu,“ segir Haukur Kristinsson, formaður Verkalýðs- félags Bfldudals. Hann segir að það sé töluvert áfall fyrir verka- fólkið að fá ekki útborgað í sex vikur. Það sé ekki aðeins erfitt fyrir útlendingana heldur einnig fyrir heimamenn. I því sambandi bendir hann á að fyrir stoppið hefði fólkið aðeins unnið í átta tíma á dag. - GRH Foreldrar og börn ræða um sam- kynhneigða og uppeldi í helgar- blaði Dags. ertu nokkuð að Upplýsingamiðstöðin LMl. - þar sem íslenska er líka töiuð Verð t lausasölu 200 kr. „Kýs að tjá mig efckP Uppeldið efcM verra Samkynhneigðir eiga í réttinda- baráttu fyrir sína hönd og barn- anna sinna. Hommar og lesbíur geta fengið sambúð sína stað- festa hjá sýslumanni og blessun" prests, nú vantar bara réttinn til að geta gengist undir tækni- fijóvgun eða fá að ættleiða barn. „Mér finnst verða að koma einhver vitræn rök fyrir því af hverju börn ættu að verða verri einstaklingar eða lifa óhamingju- samara lífi með því að alast upp hjá samkynhneigðu foreldri," segir Jakob Jakobsson veitinga- maður. I Lónkoti í Skagafirði er skemmtilegur áningarstaður þar sem meðal annars stendur yfir sýning á nokkrum höggmyndum Páls Guðmundssonar frá Húsa- felli. Fréttamaðurinn Gísli Mart- einn Baldursson og leikarinn Rúnar Freyr Gíslason segja frá næturspilamennsku um jól og fleiru skemmtilegu. Verkmennta- skólinn á Akureyri er að fá nýjan skólameistara. Hjalti Jón Sveins- son segist hlakka til að takast á við ný verkefni. Hann HJaltl Jón er skólamaður Sveinsson fram í fingurgóma. Systurnar Brynja X. og Valdís Vífilsdætur kynna mat frá Mexíkó. Homfirðingar og eflaust fleiri þekkja Hauk Þorvalds og hljómsveitina hans. Haukur og félagar ræða um ferilinn, sem er orðinn langur. Sumarið er tími brúðkaupanna og dömurnar vilja Díönukjóla. Auk alls þessa má lesa um flugur, dómsmál, kynlíf, bílveiki, bækur, bíó og popp í stútfullu helgarblaði Dags. Góða skemmtun! Guðmundur Björnsson, fyrrum forstjóri Stmans. „Ég hef ákveðið að tjá mig ekki um málið,“ sagði Guð- mundur Björnsson, fráfarandi forstjóri Landssím- ans, við Dag í gærkvöld um starfslok _______ hans sem forstjóra Lands- símans. Aðspurður hvort hann hefði hætt sjálfur eða verið lát- inn hætta sagði Guðmundur: „Það þarf enga sérstaka skyn- semi til að lesa úr þessum spil- um þannig að ég kýs ekki að tjá mig frekar.“ Nánar er fjallað um forstjóra- skipti Landssímans og nýtt skipurit fyrirtækisins á bls. 5 í blaðinu í dag. - RJB Talsvert hefur borið á því síðustu daga að kofar og önnur glæsimannvirki sem krakkar hafa smíðað á smíðavöll- um Akureyrarbæjar séu eyðilögð af „hrekkjusvínum" á kvöldin. Að sögn Sesselíu Sigurðardóttur, umsjónarmanns gæsluvallanna, hefur þessi skemmdarverkastarfsemi valdið litlu krökkunum sorg og reiði. Kofum hefur verið velt við eða hliðarnar slegnar úr þeirn eins og gert hefur verið við kofa þessara krakka á Borgarvelli. Sesselía og krakkarnir hvetja skemmdarvargana til að hætta þessu! mynd: brink

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.