Dagur - 26.06.1999, Síða 10

Dagur - 26.06.1999, Síða 10
10 — LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 FRÉTTIR Ólöglegir ársreikn- iitgar áritaðir? Samkeppnisráð telur framsetningu árs- reikninga Landssím- ans ófullnægjandi. Ríkisendurskoðun segir ekkert athuga- vert við reikningana. í margfrægu áliti samkeppnis- ráðs um Landssímann er m.a. vikið að upplýsingaskyldu fyrir- tækisins og gerð ársreikninga fyrir árin 1997 og 1998. Ráðið bendir á að framsetningu reikn- inganna sé að nokkru leyti ábótavant með tilliti til laga um ársreikninga. Þar sé um að ræða atriði sem miklu geti skipt um samkeppnisstöðu keppinauta Landssímans við fyrirtækið, sér í lagi ef engar breytingar verði gerðar á stjórnskipulagi Lands- símans. Samkeppnisráð bendir á að í 46. grein laga um ársreikn- inga standi að upplýsa skuli um skiptingu rekstrartekna eftir starfsþáttum og markaðssvæð- um ef þessir þættir hafi veruleg áhrif í rekstri. „Af ársskýrslu Pósts og sírna fyrir árið 1997 og ársskýrslu Landssímans fyrir árið 1998 verður ekki séð að gerð hafi ver- ið tilraun til að fullnægja þess- ari lagaskyldu. Samkeppnisráð bendir á að auð- vitað getur verið vafamál hvernig skilgreina eigi starfsþátt í rekstri. Hvernig sem því er farið almennt telur samkeppnisráð einsýnt að GSM-þjónustu Landssímans beri að skil- greina sem slík- an starfsþátt. Er þá haft í huga það sem áður greinir að er- lendis hafi verið stofnuð sérstök hlutafélög um slíkan rekstur og að hér á landi starfar fyrirtæki, Tal, sem til skamms tíma rak eingöngu slíka starfsemi," segir m.a. í áliti samkeppnisráðs. Samkeppnisráð bendir á að þetta geri Tali erfitt fyrir þar sem fyrirtækið verði að skila ársreikn- ingi til Hlutafé- Iagaskrár þar sem greina megi upplýsingar um reksturinn. Landssíminn hafi því aðgang að fullkomnari upplýsingum um Tal heldur en Tal um Lands- símann. Simdurliðim í skýringiun með ársreikn- ingi ‘98 Arsreikningar Landssímans eru endurskoð- aðir af Ríkisend- urskoðun og áritaðir af Sig- urði Þórðarsyni ríkisendurskoðanda og Sveini Arasyni, endurskoðanda hjá stofnuninni. Sigurður var stadd- ur erlendis er Dagur kannaði viðbrögð Ríkisendurskoðunar við gagnrýni samkeppnisráðs á ársreikningana. Sveinn varð fyrir svörum og sagði hann Ríkisend- urskoðun ekld hafa brotið lög um gerð ársreikninga. Það væri af og frá. í skýringum með árs- reikningnum fyrir 1998 væri t.d. tekjusundurliðun á veltu þjón- ustueininga samstæðunnar. Þar kemur fram að velta almennrar talsímaþjónustu hafi numið 8,2 milljörðum, 2,7 milljarðar hafi verið vegna farsímaþjónustu og 1,7 milljarðar af öðrum rekstrar- tekjum. Jafnframt kemur fram að hagnaður samstæðunnar á ár- inu ‘98 hafi numið rúmum 2 milljörðum eftir skatta, þar af 800 milljóna hagnaður af far- símaþjónustunni. Sveinn sagði skýringar vera fullgildan hluta af ársreikningi. Hins vegar er sund- urliðunar af þessu tagi ekki getið í árskýrslu fyrir árið 1997. „Reikningurinn er fyrst og fremst saminn fyrir fyrirtækið og eigendur þess til að lýsa starf- seminni. Það er alls ekki verið að semja ársreikning fyrir sam- keppnisaðilann," sagði Sveinn Arason. — bjb Halló fær 350.000 Ræjarráð Akureyrar hefur sam- þykkt að styrkja kynningarstarf- semi vegna hátíðarinnar Halló Akureyri með 350 króna fram- lagi. Jafnframt hefur bæjarráð orðið við beiðni Ferðamálafélags Eyjaljarðar um að götu- og torg- sala í miðbænum verði felld undir skipulag hátíðarinnar „Halló Akureyri". Bæjarráð sam- þykkir að nýta 8. grein sam- þykktar um götu- og torgsölu og taka frá alla sölureiti sem ekki eru í fastri útleigu í göngugöt- unni í Hafnarstræti og á Ráð- hústorgi dagana 29. júlí til 2. ágúst. Jafnframt því er Ferða- málafélagi Eyjafjarðar heimilt að ráðstafa þeim til einstakra söluaðila og fella þá þar með undir skipulag hátíðarinnar „Halló Akureyri" 1999. I heimildinni felst einnig að Ferðamálafélagið hafi eftirlit með því að söluaðilar uppfylli skilyrði þeirra laga og reglugerða sem við eiga, hafi tilskilin Ieyfi og þrífi umrædd svæði og um- hverfi þeirra í lok hvers sölu- dags. Með þessu má segja að komið sé skikk á sölumálin í miðbænum, en þau hefur m.a. Stefán Gunnlaugsson, veitinga- maður á Bautanum, gagnrýnt. - BÞ Ársreikningar Landssímans eru endurskoðaðir af Ríkisendurskoð- un og áritaðir m.a. af Sigurði Þórðarsyni ríkisendurskoðanda. Harpa opnar eigin búðir Leiðrétting I forsíðufrétt í Degi miðvikudag- inn 23. júní þar sem sagt var frá viðræðum um sameiningu sveit- arfélaga við Eyjaíjörð var rangt farið með nafn á sveitarfélagi. Rétt nafn á sveitarfélaginu er Hálshreppur en ekki Hálsa- hreppur. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Harpa hf. er að opna þrjár eigin málning- arverslanir á Reykja- víkursvæðinu þessa dagana. Málningarverksmiðjan Harpa hf. er þessa dagana að opna þijár eig- in málningarverslanir á höfuð- borgarsvæðinu og kynnir þetta framtak sitt m.a. með sendingu nýrra Hörpufrétta inn á hvert heimili í Iandinu. Spurður um ástæður þessarar ákvörðunar sagði framkvæmdastjórinn, Helgi Magnússon, að þær væru m.a. það tómarúm sem myndast hafi á málningarmarkaðnum að undan- förnu, þar sem fimm vérslunum, sem seldu málningu, hafi nú ver- ið lokað á innan við ári. „Okkur fannst eins og það vantaði ákveðnari framsetningu á Hörpu- vörum á höfuðborgarsvæðinu. Við erum þarna að opna fyrstu fagverslanir Hörpu, þar sem við- skiptavinir fá aukna þjónustu og ganga að faglegri ráðgjöf vísri.“ Viðbrögðin meira og minna góð En óttast menn ekkert hjá Hörpu að stóru málningarverslanirnar bregðist misjafnlega við þessari nýju samkeppni frá framleiðanda og ýti kannski Hörpu-málningu heldur til hliðar? „Nei, ég á ekki von á því. Eg held að þeir sem starfa á þessum markaði hafi átt von á einhveijum breytingum og í sjálfu sér beðið eftir þeim í nokkurn tíma. Mér þykir ósenni- legt að menn geti orðið mjög undrandi á þessu. Og þau við- brög sem við höfum fengið við þessu frá endurseljendum okkar víða um land eru meira og minna mjög góð.“ Fagleg ráðgjöf Helgi segir þessa verslunarhætti algenga meðal grannþjóðanna. Þannig sé t.d. löng hefð fyrir því í Danmörku að málningarsala sé annars vegar í stórmörkuðum, eins og hér á landi, og hins vegar í fagverslunum málningarverk- smiðjanna sjálfra. Með eigin verslunum vilji Harpa hf. auka þjónustuna við viðskiptavini sína, sem margir hafi haldið tryggð við fyrirtækið í áratugi. Málningar- verslanir Hörpu veiti faglega ráð- gjöf fyrir almenning jafnt og mál- arameistara. Ný búð verðm' opnuð í dag Hörpu málningarverslun opnaði í gær í Bæjarlind 6 í Kópavogi og önnur í Skeifunni 4 á næstunni. Þriðja verslunin er í húsnæði verksmiðjunnar á Stórhöfða 14. Verslanimar, segir Helgi að muni hafa til sölu allt sem þarf til mál- unar, jafnt innan- og utanhúss- málningu, viðarvarnarefni og öll stuðningsefni og sömuleiðis öll nauðsynleg áhöld og verkfæri. Velkomin á Viknaslóðir! ýÖHýukiðk UÍÖ VfO^M^jÖ^Ö CtfftH Frábært, vel merkt göngusvæði og nýtt vandað göngukort af Víknaslóðum, svæðinu frá Unaósi til Seyðisfjarðar. Fimm daga jarðfræðigönguferð 24. júlí með Lúðvík Gústafssyni jarðfræðingi og sex daga gönguferð um Stórurð og Víkur 3. ágúst. Kynnist svæðinu með heimafólki. Upplýsingar og skráning hjá Helga eða Bryndísi í síma 472 9977 og 472 9913 heima og á www.alfasteinn.is t' Islenskar steinvörur Yfir 90% ferðamanna koma við í Álfasteini. Opið 10.00-18.00 ^llil Tel: 472 9977 - Fazx 472 9877 www.alfasteinn.is - HEI www wisir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.