Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 10
10 — LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999
FRÉTTIR
Ólöglegir ársreikn-
iitgar áritaðir?
Samkeppnisráð telur
framsetningu árs-
reikninga Landssím-
ans ófullnægjandi.
Ríkisendurskoðun
segir ekkert athuga-
vert við reikningana.
í margfrægu áliti samkeppnis-
ráðs um Landssímann er m.a.
vikið að upplýsingaskyldu fyrir-
tækisins og gerð ársreikninga
fyrir árin 1997 og 1998. Ráðið
bendir á að framsetningu reikn-
inganna sé að nokkru leyti
ábótavant með tilliti til laga um
ársreikninga. Þar sé um að ræða
atriði sem miklu geti skipt um
samkeppnisstöðu keppinauta
Landssímans við fyrirtækið, sér í
lagi ef engar breytingar verði
gerðar á stjórnskipulagi Lands-
símans. Samkeppnisráð bendir á
að í 46. grein laga um ársreikn-
inga standi að upplýsa skuli um
skiptingu rekstrartekna eftir
starfsþáttum og markaðssvæð-
um ef þessir þættir hafi veruleg
áhrif í rekstri.
„Af ársskýrslu Pósts og sírna
fyrir árið 1997 og ársskýrslu
Landssímans fyrir árið 1998
verður ekki séð að gerð hafi ver-
ið tilraun til að
fullnægja þess-
ari lagaskyldu.
Samkeppnisráð
bendir á að auð-
vitað getur verið
vafamál hvernig
skilgreina eigi
starfsþátt í
rekstri. Hvernig
sem því er farið
almennt telur
samkeppnisráð
einsýnt að
GSM-þjónustu
Landssímans
beri að skil-
greina sem slík-
an starfsþátt. Er
þá haft í huga
það sem áður
greinir að er-
lendis hafi verið
stofnuð sérstök
hlutafélög um slíkan rekstur og
að hér á landi starfar fyrirtæki,
Tal, sem til skamms tíma rak
eingöngu slíka starfsemi," segir
m.a. í áliti samkeppnisráðs.
Samkeppnisráð bendir á að
þetta geri Tali erfitt fyrir þar sem
fyrirtækið verði að skila ársreikn-
ingi til Hlutafé-
Iagaskrár þar
sem greina megi
upplýsingar um
reksturinn.
Landssíminn
hafi því aðgang
að fullkomnari
upplýsingum um
Tal heldur en
Tal um Lands-
símann.
Simdurliðim í
skýringiun
með ársreikn-
ingi ‘98
Arsreikningar
Landssímans
eru endurskoð-
aðir af Ríkisend-
urskoðun og
áritaðir af Sig-
urði Þórðarsyni
ríkisendurskoðanda og Sveini
Arasyni, endurskoðanda hjá
stofnuninni. Sigurður var stadd-
ur erlendis er Dagur kannaði
viðbrögð Ríkisendurskoðunar
við gagnrýni samkeppnisráðs á
ársreikningana. Sveinn varð fyrir
svörum og sagði hann Ríkisend-
urskoðun ekld hafa brotið lög
um gerð ársreikninga. Það væri
af og frá. í skýringum með árs-
reikningnum fyrir 1998 væri t.d.
tekjusundurliðun á veltu þjón-
ustueininga samstæðunnar. Þar
kemur fram að velta almennrar
talsímaþjónustu hafi numið 8,2
milljörðum, 2,7 milljarðar hafi
verið vegna farsímaþjónustu og
1,7 milljarðar af öðrum rekstrar-
tekjum. Jafnframt kemur fram
að hagnaður samstæðunnar á ár-
inu ‘98 hafi numið rúmum 2
milljörðum eftir skatta, þar af
800 milljóna hagnaður af far-
símaþjónustunni. Sveinn sagði
skýringar vera fullgildan hluta af
ársreikningi. Hins vegar er sund-
urliðunar af þessu tagi ekki getið
í árskýrslu fyrir árið 1997.
„Reikningurinn er fyrst og
fremst saminn fyrir fyrirtækið og
eigendur þess til að lýsa starf-
seminni. Það er alls ekki verið að
semja ársreikning fyrir sam-
keppnisaðilann," sagði Sveinn
Arason. — bjb
Halló fær
350.000
Ræjarráð Akureyrar hefur sam-
þykkt að styrkja kynningarstarf-
semi vegna hátíðarinnar Halló
Akureyri með 350 króna fram-
lagi. Jafnframt hefur bæjarráð
orðið við beiðni Ferðamálafélags
Eyjaljarðar um að götu- og torg-
sala í miðbænum verði felld
undir skipulag hátíðarinnar
„Halló Akureyri". Bæjarráð sam-
þykkir að nýta 8. grein sam-
þykktar um götu- og torgsölu og
taka frá alla sölureiti sem ekki
eru í fastri útleigu í göngugöt-
unni í Hafnarstræti og á Ráð-
hústorgi dagana 29. júlí til 2.
ágúst. Jafnframt því er Ferða-
málafélagi Eyjafjarðar heimilt
að ráðstafa þeim til einstakra
söluaðila og fella þá þar með
undir skipulag hátíðarinnar
„Halló Akureyri" 1999.
I heimildinni felst einnig að
Ferðamálafélagið hafi eftirlit
með því að söluaðilar uppfylli
skilyrði þeirra laga og reglugerða
sem við eiga, hafi tilskilin Ieyfi
og þrífi umrædd svæði og um-
hverfi þeirra í lok hvers sölu-
dags. Með þessu má segja að
komið sé skikk á sölumálin í
miðbænum, en þau hefur m.a.
Stefán Gunnlaugsson, veitinga-
maður á Bautanum, gagnrýnt.
- BÞ
Ársreikningar Landssímans eru
endurskoðaðir af Ríkisendurskoð-
un og áritaðir m.a. af Sigurði
Þórðarsyni ríkisendurskoðanda.
Harpa opnar eigin búðir
Leiðrétting
I forsíðufrétt í Degi miðvikudag-
inn 23. júní þar sem sagt var frá
viðræðum um sameiningu sveit-
arfélaga við Eyjaíjörð var rangt
farið með nafn á sveitarfélagi.
Rétt nafn á sveitarfélaginu er
Hálshreppur en ekki Hálsa-
hreppur. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Harpa hf. er að opna
þrjár eigin málning-
arverslanir á Reykja-
víkursvæðinu þessa
dagana.
Málningarverksmiðjan Harpa hf.
er þessa dagana að opna þijár eig-
in málningarverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu og kynnir þetta
framtak sitt m.a. með sendingu
nýrra Hörpufrétta inn á hvert
heimili í Iandinu. Spurður um
ástæður þessarar ákvörðunar
sagði framkvæmdastjórinn, Helgi
Magnússon, að þær væru m.a.
það tómarúm sem myndast hafi á
málningarmarkaðnum að undan-
förnu, þar sem fimm vérslunum,
sem seldu málningu, hafi nú ver-
ið lokað á innan við ári. „Okkur
fannst eins og það vantaði
ákveðnari framsetningu á Hörpu-
vörum á höfuðborgarsvæðinu.
Við erum þarna að opna fyrstu
fagverslanir Hörpu, þar sem við-
skiptavinir fá aukna þjónustu og
ganga að faglegri ráðgjöf vísri.“
Viðbrögðin meira og minna
góð
En óttast menn ekkert hjá Hörpu
að stóru málningarverslanirnar
bregðist misjafnlega við þessari
nýju samkeppni frá framleiðanda
og ýti kannski Hörpu-málningu
heldur til hliðar? „Nei, ég á ekki
von á því. Eg held að þeir sem
starfa á þessum markaði hafi átt
von á einhveijum breytingum og í
sjálfu sér beðið eftir þeim í
nokkurn tíma. Mér þykir ósenni-
legt að menn geti orðið mjög
undrandi á þessu. Og þau við-
brög sem við höfum fengið við
þessu frá endurseljendum okkar
víða um land eru meira og minna
mjög góð.“
Fagleg ráðgjöf
Helgi segir þessa verslunarhætti
algenga meðal grannþjóðanna.
Þannig sé t.d. löng hefð fyrir því í
Danmörku að málningarsala sé
annars vegar í stórmörkuðum,
eins og hér á landi, og hins vegar
í fagverslunum málningarverk-
smiðjanna sjálfra. Með eigin
verslunum vilji Harpa hf. auka
þjónustuna við viðskiptavini sína,
sem margir hafi haldið tryggð við
fyrirtækið í áratugi. Málningar-
verslanir Hörpu veiti faglega ráð-
gjöf fyrir almenning jafnt og mál-
arameistara.
Ný búð verðm' opnuð í dag
Hörpu málningarverslun opnaði í
gær í Bæjarlind 6 í Kópavogi og
önnur í Skeifunni 4 á næstunni.
Þriðja verslunin er í húsnæði
verksmiðjunnar á Stórhöfða 14.
Verslanimar, segir Helgi að muni
hafa til sölu allt sem þarf til mál-
unar, jafnt innan- og utanhúss-
málningu, viðarvarnarefni og öll
stuðningsefni og sömuleiðis öll
nauðsynleg áhöld og verkfæri.
Velkomin á Viknaslóðir!
ýÖHýukiðk UÍÖ VfO^M^jÖ^Ö CtfftH
Frábært, vel merkt göngusvæði og
nýtt vandað göngukort af
Víknaslóðum, svæðinu frá Unaósi til
Seyðisfjarðar. Fimm daga
jarðfræðigönguferð 24. júlí með
Lúðvík Gústafssyni jarðfræðingi og
sex daga gönguferð um Stórurð og
Víkur 3. ágúst. Kynnist svæðinu með
heimafólki. Upplýsingar og skráning
hjá Helga eða Bryndísi í síma 472
9977 og 472 9913 heima og á
www.alfasteinn.is
t' Islenskar steinvörur
Yfir 90% ferðamanna koma
við í Álfasteini.
Opið 10.00-18.00
^llil
Tel: 472 9977 - Fazx 472 9877
www.alfasteinn.is
- HEI
www wisir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR