Dagur - 20.07.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 20.07.1999, Blaðsíða 1
T Þriðjudagur 20. júlí 1999 82. og 83. árgangur- 134. tölublað Verðstríð fram- imdan í s vínakj öti Míkil uppbyggiug og hagræðing ásamt auk- inui samkeppni gæti leitt til verðstríðs í svínakjötmu á næst- nnni. Búast má við áþreifanlegum verðlækkunum á grísakjöti á næstu mánuðum og árum vegna aukinnar samkeppni, mikillar uppbyggingar og hagræðingar hjá helstu svínaræktendum í landinu. Einkum horfa menn til nýjustu aðgerða Geirs Gunnars Geirssonar á Vallá og Brautar- holtsfeðga á Kjalarnesi í því sam- bandi. Geir á Vallá er að byggja nýtt 8.500 fermetra grísaeldishús skammt frá Vallá og hefur auk þess keypt jörðina Mela í Mela- sveit, þar sem fram mun fara kornrækt fyrir grísaeldið á 400 hekturum. Hann er einnig að byggja upp anda- eldishús. Braut- arholtsfeðgar hafa keypt sig inn í Kjötvinnslu Sigurðar, sem nú heitir Esja og fengu m.a. kjöt- sölu til borgar- innar samkvæmt útboði nýverið. Auk þess hafa þeir keypt Nes- búið og eru þar með komnir á kvótabundinn eggjamarkað. Kunnugir telja að búast megi við því „að það sverfi til stáls milli Jóns og Geirs Gunnars" á næstunni. Auk upp- byggingar og hagræðingar hafa svínaræktendur verið að flytja inn ný svínakyn sem gefa af sér seljanlegri afurð. Akjósanleg stada fyrir neytendur Geir Gunnar segir að Vallá hafi nýlega lækk- að ferska kjöt- vöru varanlega um 6%. „Hvað aukið framboð vegna uppbygg- ingar og hagræð- ingar varðar þá má ekki gleyma því að þetta kemur ekki allt inn á markaðinn í einu, heldur erum við að tala um nokkurra ára þróun. Við vonum auðvitað að markaðurinn aðlagi sig að auknu framboði, en að öðru leyti vil ég ekki spá fyrir um verðstríð og verðlækkun, en ég get ekki ímyndað mér annað en að ef þró- unin heldur áfram sem verið hef- ur þá fari verðið niðurávið. Við vonum að það verði hin ákjósan- legasta staða fyrir neytendur," segir Geir Gunnar. Jón Olafsson í Svfnabúinu Brautarholti segir að vissulega megi búast við verðlækkun á næstunni með aukinni neyslu eftir stækkun búa og árangur með nýja stofna. „Það er mikil samkeppni og menn eru að breyta húsum sínum. Við erum að slátra þyngri gripum en áður og framleiðsluferlið er allt að taka breytingum. Eg vil síður kalla það verðstríð, en vafalaust eiga menn eftir að lækka verðið á svínakjötinu vegna þessa alls,“ segir Jón. - FÞG Búast má við verulegri lækkun á svínakjöti á næstunni. Fyrsta morð- íð 1 tvo ar Það vakti mikinn óhug þegar fregnir bárust af morðinu á Agn- ari W. Agnarssyni. Ymis atriði varðandi þetta morð gera þenn- an atburð afar dularfullan og sérstakan, en Dagur hefur sett atburðarásina upp í tímaröð. Einnig eru skoðuð helstu morð íslandssögunnar og hvernig morðrannsókn er háttað. Morðið á Agnari er hið fyrsta í tæp tvö ár. Aðeins er eitt óupplýst morð frá þessari öld en það er Leigubíl- stjóramorðið frá árinu 1968. Þyngsti dómur Hæstaréttar er 20 ár, en þann dóm hlaut ein- staklingur sem hafði drepið tvær manneskjur á 10 árum. Þórir Oddsson, vararíkislögreglustjóri, segir að mikið hafi breyst í réttar- kerfinu frá tíma Geirfinnsmáls- ins og hann sé ekki viss um að sama niðurstaða fengist í dag fyrst það vantaði Iíkið í því máli. Morðum fer fækkandi hér á landi en árið 1994 voru þau 0,9 á hverja 100.000 íbúa en árið 1999 voru þau orðin 0,33 sem er með því allra lægsta í heiminum. Sjfl' bls. 8-9 Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni lýkur í dag, fjölmennasta skátamóti sem haldið hefur verið hér á landi. Undan- farna viku hafa hátt i 6 þúsund manns komið að Úlfljótsvatni og skemmt sér hið besta. Að sögn Helga Gríms- sonar hefur mótshaldið gengið vel fyrir sig efundan er skilið eitt óhapp er stúlka brenndi sig á heitu vatni. Heitt vatn var hins vegar ekki að angra þessa kátu pilta sem skelltu sér í vatnasafarí um helgina, vinsælasta leiktækið á svæðinu. mynd: helgi grímsson /úlfljútr. Er kynjunum mismunað í erótíkinni? Spjallrás lííg'ð fyrir nyttjafn- réttisráð Fyrirspurnir hafa borist til jafn- réttisráðs um erótíska spjallrás sem auglýst hefur mikið að und- anförnu. Spjallrás þessi auglýsir að karlar þurfi að borga 66,50 krónur á mínútuna, en konur ekkert og finnst mörgum að með því sé verið að mismuna kynjun- um. Elsa Þorkelsdóttir, forstöðu- maður skrifstofu jafnréttisráðs, segir að málið hafi ekki komið til kasta jafnréttisráð eða kæru- nefndar jafnréttismála, en það hafi verið hringt á skrifstofuna út af þessari spjallrás. „Þetta er eitt af því sem ég ætla að ræða við nýtt jafnréttisráð þegar það verður skipað, þar sem umboð hins gamla féll út við kosning- arnar,“ sagði Elsa. Elsa segir að þessi umrædda spjallrás, sé viss þjónusta sem verið sé að bjóða upp á og það sé hiuti af markaðssetningunni að bjóða konum að hringja frítt, það sé hins vegar alls ekki sjálf- gefið að þetta sé ekki brot á jafn- réttislögum. „Jafnréttislögin eru til að tryggja jafnrétti kynja í samfélaginu. Það að einhver láti karla borga en ekki konur, jaðrar frekar við brot á almennu jafn- rétti, það hefur ekki með jafn- rétti kynja sem slíkt að gera. Ef að hins vegar væri um opinbera þjónustu að ræða, þar sem greiðsla væri bundin aðeins öðru kyninu, þá væri það brot á stjómarskrá og jafnréttislögum. Málið sem hér er um að ræða er það, að hér er verið að tala um almenna þjónustu og hún er ekki liður í að koma á jafnrétti kynja og við það takmarkast jafnréttislögin," sagði Elsa að lokum. - AÞM Sigling yfir Breiöafjörö ei ógleymanleg ferö inn í stc náttúru Vestfjaröa. WMU Afgreiddir samdægurs ÍVenjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 WQfHDWtOE EXPRESS EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.