Dagur - 20.07.1999, Page 2

Dagur - 20.07.1999, Page 2
v p p í \ > \ \ r> s h \\ v\ l n\i uuh<i 2 - ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 FRÉTTIR Steinn Viðar Gunnarsson, l.tv., leikmaður Leifturs, á fuiiri ferð í leik i Ólafsfirði gegn KR-ingum. Holdið saumað á hliðarlinmmi Einstætt atvik þegar læknir rak nálina í knatt- spymumann og saumaði á Ólafsfírði. Leikmannin- um brá þegar haim vissi hvað stóð til. Árekstrar og meiðsl því samfara eru, og hafa verið, ófrávíkjanlegir fylgifiskar knattspyrnunnar þrátt fyrir að reynt sé að taka á ásetningsbrotum, eins og gróf- um tæklingum aftan frá. Fyrir kemur að andstæðingar reyna að ná samtímis til knattarins með því að skalla knöttinn en stundum tekst ekki betur til en svo að höfuðin beijast saman og leikmenn ligg- ja eftir óvígir. I Ieik Leifturs frá Ólafsfirði gegn Breiðablik í Kópavogi í efstu deild knatt- spyrnunnar sl. fimmtudag lágu tveir Ieikmenn eftir blóðugir. Stór skurður hafði myndast á augabrún Steins Viðars Gunnarssonar, leikmanns Leifturs, og því kom til kasta læknis Leiftursliðsins, Þóris V. Þórissonar, héraðslæknis á Ak- ureyri, að gera Stein Viðar leikhæfan að nýju. Þórir segir að að ekki hafi verið um annað að ræða en að taka tvö spor í augabrúnina á leikmanninum ef hann ætti að eiga möguleika á að halda leikn- um áfram. Þórir segir svona „aðgerð“ á hliðarlínunni óvenjulega, jafnvel eins- dæmi. „Bæði þjálfari og aðstoðarþjálfari ætl- uðu að taka hann út af þegar þeir sáu skurðinn, en ég bannaði þeim það, sagði að það kæmi ekki til greina. Strákurinn yrði fullleikfær innan stundar því hann væri ekkert vankaður eftir höggið. Eg skoðaði þetta svo eftir leikinn og sá að skurðurinn lá mjög vel, og hann fékk bara nýjar umbúðir. Þetta grær á viku,“ segir Þórir V. Þórisson. - Er alltafnóg að gera hjá þér á vara- mannabekknum? „Ég fer með Leiftri í alla þeirra leiki og hef verið á heimaleikjum KA og á einum leik hjá Þór. Svo koma mjög margir fót- boltamenn til mín á stofu þegar eitthvað þarf að aðstoða þá, og þá frá íleiri liðum, t.d. Nökkva og Magna.“ - Ertu mikill knattsjr\ muáhugamað- ur? „Ég var sjálfur í boltanum þegar ég var yngri en náði ekki mjög langt, kannski aðallega vegna læknanámsins. Ég spilaði m.a. með liðum á Eyjafjarðarsvæðinu, s.s. Vorboðanum í 4. deild og með Eyja- fjarðarúrvali undir merkjum UMSE fyr- ir landsmót 1984. Tvisvar sinnum varð ég Svíþjóðarmeistari í neðstu deildunum með liði sem hét Svea og var í Eskiltuna. Fyrst í 7. deild og árið eftir urðum við lfka meistarar í 6. deild." „Þetta var í fyrsta sinn sem ég lendi í svona löguðu. Ég hélt fyrst að hann mundi setja plástur á þetta en mér brá svolítið þegar læknirinn sagði mér að hann ætlaði að sauma mig ódeyfðan. Hann sagði að ég væri nógu dofinn og þetta reyndist ekki svo sársaukafullt. Ég kom bara grimmari inn á aftur,“ segir Steinn Viðar Gunnarsson. GG .X^wr Pottverjar eru sammála um að langt sé síðan ákæruvaldið og lægra dóinsstlgið í landinu liafi orðið íyrir jafn miklu áfalli og í Briggsmálinu. Eftir að hafa ákært Briggs sem stórhættulcg- an glæpamaim og fengið héraðs- dóm til aó dæma hann í margra ára fangelsi sem slfkan, er hann nú frjáls maður vegna þess að málatilbúnaður ákæruvaldsins var ekki talinn sannfærandi. Eina sárabótin fyrir saksóknara er að Hæstirétt ur klofnaði í málinu. Kio Briggs Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hélt landsfund í vor starfaði þar land- búnaðamefnd eins og gengur og gerist. Þar var mcðal annars rætt um innflutning á fósturvísum úr norskum kúm. Nefndarinenn voru í miðjum klíðmn að ræða þegar Haraldur Blöndal lögfræð- ingur rak inn hausinn og kvaðst vilja mótmæla slíkum innflutningi liarðlega. Síðan spurði hann: Má þá ekki allt eins ílytja inn erlend hestakyn - og asna fyrir framsóknar- menn? Haraldur Blöndal Eins og sagt var frá í Heita pottinum um þar síð- ustu helgi var einn fréttamaður Ríkissjónvarps- ins skráður ineð netfang í Valhöll, rétt neðan við nafn Kjartans Gunnarssonar framkvæmdastjóra flokksins. Á heimasíðunni þar sem þetta mátti finna (isgatt.is) hefur nú verió teMð mjög vel til. Þar kemur ekM lcngur fram að Magnús Þór Gylfason sé með netfang í Valhöll. Ahugasvið gesta mjög mismunandi Baldvin Bjömsson, framkvæmdastjóri Expo Islandia. Titanic-sýning hefur verð opnuð í húsi Hafnarjjaiðar- leikhúsins í samvinnu Expo Islandia við UlsterFolk and Transport Museum á N-ír- landi og Hafnarfjarðarbæ. - Hver var kveikjan að sýningunni? „Kannski aðalíega hinn augljósi áhugi ís- lendinga á kvikmyndinni, það seldust hér 135.000 miðar á Titanic. Ég vissi Iíka að Titanic-sýningar í Evrópu og Bandaríkjunum voru geysilega vinsælar - enda á þetta skip sér svo stóra og langa sögu. Þegar við höfðum samband við safnið í Belfast - þar sem Titan- ic var smíðað - þá kom upp úr kafinu að þar voru flestar þeirra upprunaíegu mynda sem til eru af skipinu, bæði byggingarsögu þess og innréttingum.Ég fór sfðan til N-Irlands og fór í framhaldi af því að raða saman sýningu, sem er töluvert viðameiri en sýningin í Belfast. Þ\ í inn í hana tengjum við leiðangur Ballards og fund flaksins, kvikmyndina og fleira.“ - Er þetta þá ekki rándýrt og viðamikið verkefni? „Jú, jú. Sýningunni er skipt niður í deildir: Sú fyrsta er smíði skipsins. Næst er „heimur skipsins", sem byggist á ljósmyndum af inn- réttingum þess og hluta postulínsins og krist- allsins sem var um borð. Þeir eru „orginal" að því leiti að þeir eru framleiddir af þeim sömu og framleiddu fyrir Titanic á sfnum tíma - og sú framleiðsla fór í gang aftur vegna kvik- myndar Camerons um Titanic. Síðan förum við í „ferðina", sem við tengj- um svolítið við kvikmyndina. Þar eru t.d. bún- ingar leikkonunnar þegar hún er að stíga um horð. Þá er það „slysið" - sem er í sérstökum bás þar sem sýningargestir upplifa að standa í myrkrinu við rekkverkið í skutnum, á þilfari sem er farið að halla um 15-18% og vita að þetta er að gerast. í síðasta þættinum „úr djúpinu" - er komið að nútímanum. Við kryddum þetta síðan með forsíðum íslensku blaðanna á þessum tíma og myndum frá umhverfinu í Reykjavík. Nýjustu Titanic-tölvuleikjunum. Og fréttamyndum frá fyrstu ferðum Ballards niður á þetta geypilega dýpi þar sem flakið fannst." - Hverjir sýnast þér áhugasamastir um sýninguna? „Það virðist óskaplega misjafnt í hvaða til- gangi fólk er að koma á sýninguna. Sumir koma af því þeir eru svo heillaðir af ljósmynd- unum frá því verið var að smíða skipið og vél- amar upp úr síðustu aldamótum - menn skil- ja ekki hvernig þetta var hægt á þessum tíma. Aðrir eru f ástarsögustemmingu. Enn aðrir með spurninguna; hvernig/hvers vegna/af hverju? Núna um helgina kom líka margt fullorðið fólk. Það virðist sem Titanic-sagan hafi fylgt mörgu fullorðnu fólki alla þeirra ævi. Margt af því hafði ekki séð kvikmyndina heldur kom þarna til þess að kynnast sögu sem það hef- ur haft í minningunni alla sína tíð. Þetta fólk eyddi mjög löngum tíma í að fara í gegnum sýninguna. Margt unga fólkið þekkir svo bara kvikmyndina og tölvuleikina." - Kynnið þið kannski írland í leiðinni? „Borgarstjórinn í Belfast og yfirmaður ferðamála á N-írlandi voru viðstaddir opnun sýningarinnar. Og í tengslum við hana erum við með kynningu á Belfast og N-írlandi í hin- um enda hússins. Þar eru líka seldar veiting- ar, m.a. kökur eins og voru um borð í Titanic. Mig langar að nota tækifærið til að benda væntanlegum sýningargestum á að best er að keyra inn á hafnarsvæðið, við stóru flotkvína - og það má geta þess til gamans að Titanic var næstum þrisvar sinnum lengri en hún.“ -HEI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.