Dagur - 20.07.1999, Síða 5
e e t> t u\\u .os. a .i.aauiu ,
ÞRIÐJUDAGUR 20.JÚLÍ 1999 - S
D^wir---
FRÉTTIR
Þefrænt ofbeldi
hjá Krossanesi
íbúar á Akureyri hafa
kvartað imdan megnri
lykt frá Krossanes-
verksmiðjuimi inii
helgina. Jóhairn
Skímisson, íbúi í
Giljahverfi, segist
hafa þurft að taka inn
þvott svo að lyktin
hærist ekki í hann.
Talsvert fannst mönnum bera á
fylu frá Krossanesverksmiðjunni
síðastliðna helgi. „Þetta er með
alversta móti núna. Þetta er bara
ýldulykt, þeir eru augljóslega að
vinna með mjög lélegt hráefni og
mér finnst þetta í sjálfu sér vera
yfirgangur af þessari verksmiðju.
í rauninni finnst mér þetta ekki
vera neitt annað en „þefrænt" of-
beldi,“ sagði Jóhann Skírnisson,
íbúi í Giljahverfinu á Akureyri.
Jóhann segir að sjaldan beri á
mikilli Iykt í þessu hverfi, en nú
hafi hún verið megn vegna veð-
ursins. „Verksmiðjan segir að
það sé verið að reyna að bæta
ástandið, en það er sama hvað
þeir segja, það er ekki það sem
skiptir máli. Það er fýla úr verk-
smiðjunni og ég get ekki leyft
mér að ausa rusli yfir garð ná-
granna míns og segja svo að ég
ætli að ausa aðeins minna rusli
næsta ár. Það er alveg jafn
angrandi fyrir þann hinn sama.“
Jóhann segir að Iyktin hafi verið
svo slæm að hann hafi þurft að
taka inn þvott af snúrum til þess
að hann kæmi ekki illa þefjandi
inn og sagði það vera algjörlega
óásættanlegt.
Gott hjá Ingibjörgu
„Eg fellst ekki á það, að það gildi
eitthvað annað hérna en í
Reykjavík, þar sem borgarstjóri
hefur nú, af mikilli röggsemi,
hótað verksmiðju þar að hún
verði svipt starfsleyfi, ef að
ástandið ekki lagast. Þar bræddu
þeir Iélegan farm og voru greini-
lega teknir í bakaríið. Hérna
hafa menn verið að bræða allan
Ijandann og öllum þykir gott,“
sagði Jóhann og bætti því að
hann hafi verið á loðnuveiðiskipi
um tíma og þekkti vel ef að farm-
urinn væri ekki góður og lyktina
sem því fylgdi.
Framhvæuidastjóriun fann
lyktina
Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri Krossanesverk-
smiðjunnar, sagðist ekki kannast
við að Iyktin hafi verið neitt verri
en venjulega þessa helgi, en
hann hafi þó fundið hana. Hann
sagði einnig að alltaf væri verið
að standa í einhverjum fram-
kvæmdum við verksmiðjuna til
að bæta ástandið, en menn
mættu ekki búast við því að það
allt yrði í lagi á einni nóttu. „Við
erum að gera þessa hluti í von
um að ástandið batni og þetta
sem við erum að leggja til núna
er langt umfram það sem er í
nokkurri annarri verksmiðju í
landinu,“ sagði Jóhann Pétur.
Hann bætti því hins vegar við
að ef það kæmi Iykt frá verk-
smiðjunni væri það vegna þess
að hráefnið væri eitthvað farið
að eldast. - AÞM
Matthías Eiðsson hefur selt stóð-
hestinn Ofsa fyrir íbúðarverð.
Ofsi seldur
Stóðhesturinn Ofsi frá Akureyri,
sem hefur verið í eigu Matthías-
ar Eiðssonar á Möðrufelli í Eyja-
firði, hefur verið seldur til
Hrossaræktarsamtaka Eyfirð-
inga og Þingeyinga og er sölu-
verðið tæpar 5 milljónir króna.
Ofsi verður afhentur nýjum eig-
endum í lok ágústmánaðar. Ofsi
er 4 vetra, bleikálóttur að lit,
undan hinni frægu hryssu Osk
frá Brún en faðirinn er Þorri frá
Þúfu, sem er sonur Orra frá
Þúfu sem talinn er vera einna
mestur hesta hérlendis í dag.
Hann fékk í dómum á Melgerð-
ismelum í vor 7,95 í einkunn,
8,05 fyrir byggingu og 7,84 fyrir
hæfileika.
„Það eru ekki alhæstu eink-
unnir sem sáust á Ijögurra vetra
hestum en við teljum okkur sjá
mikinn grip í þessum hesti og
hann eigi eftir að bæta sig mikið
í framtíðinni. Við teljum þetta
gott verð fyrir Ofsa,“ segir Guð-
mundur Birkir Þorkelsson, for-
maður Hrossaræktarsamtaka
Eyfirðinga og Þingeyinga. - GG
Landakot sktrkj a
tilnefnd hasilíka
Stjómamefnd helgi-
síða í Róm tilnefndi
nýlega Kristskirkju á
Landakoti „hasilíku“,
en engin önnur kirkja
í N-Evrópu hefur hlot-
ið þann heiður.
„Á næsta ári verður því hátíðlega
lýst yfir að vegsmunum kaþólsku
dómkirkjunnar í Reykjavík verði
Iyft á hærra stig og hún nefnd
„basilica minor“,“ segir Jóhannes
Gijsen, biskup, í Kaþólska
kirkjublaðinu. Stjórnardeild
helgisiða í Róm gaf nýlega út til-
skipun um þetta mál. „Því ber
Kristskirkja í Reykjavík héðan í
frá titilinn „basilica minor“,“ seg-
ir biskup. Einkenni basilíku seg-
ir hann bæði byggingarstílinn og
aðdráttarafi hennar vegna þess
að þar er dýrlingur heiðraður.
Auk þess einkennist hún af
sterkum tengslum við páfann og
stól Péturs postula. Basilíka
megi þess vegna nota opinber-
lega skjaldarmerki páfans.
Lengi sú stærsta á Norður-
löndtun
„Fram að þessu hefur engin
kirkja í Norður-Evrópu hlotið
þann heiður að vera tilnefnd
basilíka," segir biskup. Þær kirkj-
ur sem komið gætu til greina fyr-
ir byggingarstfl sinn, þýðingu út
fyrir sínar heimabyggðir og sér-
staka helgi - t.d. grafarkirkja
heilagrar Birgittu í Vadsena í Sví-
þjóð eða dómkirkjan í Niðarósi í
Noregi - tilheyri ekki Iengur kaþ-
ólsku kirkjunni. „Eina mikilfeng-
lega kaþólska kirkjan af þessu
Kaþótska kirkjan vill heiðra minn-
inguna um að íslendingar gengust
friðsamlega undir vald hennar fyrir
1000 árum. Titillinn „basilíka" á að
tjá á sérstakan hátt tengsl trúar-
samfélags við páfann og Róm.
tagi frá síðari tímum er kaþólska
dómkirkjan í Reykjavík - Krists-
kirkja. Árum saman var hún ekki
aðeins stærsta kirkja landsins
heldur stærsta kaþólska kirkjan á
öllum Norðurlöndunum fimm.
Hún er mikils metin af mörgum
kunnáttumönnum fyrir hinn ný-
gotneska byggingarstíl sem hefur
heppnast svo vel á henni,“ segir
Jóhannes biskup.
Hvað er basilíka?
Upprunalega merkingu orðsins
segir biskup höll konungs eða
keisara, og komið úr grísku.
Heitið hafi síðar verið notað um
musteri og enn síðar um opin-
berar byggingar, einkum dóms-
hús. Þannig „basilíkur11, oft mik-
ilfenglegar byggingar, hafi verið
reistar í mörgum borgum Mið-
jarðarhafslandanna frá 5. öld
f.Kr. til 5. aldar e.Kr. Margar
þeirra hafi síðan verið gerðar að
kirkjum og líka margar nýjar
kirkjur byggðar í þessum gamla
basilíkustíl. í aldanna rás hafi
orðið „basilíka" líka fengið sér-
staka kirkjulega merkingu:
Kirkja sem tengist páfanum
beint. I henni er stóll hans og
altari. Frá lokum 18. aldar veittu
páfarnir titilinn „basilica minor“
(lítil basilíka) ýmsum framúr-
skarandi kirkjum sem höfðu sér-
staka útgeislun og þýðingu sem
náði lengra en til heimabyggðar-
innar (m.a. Sacre Coeur í París).
Reykhóla-Maria
Þann fjölda manna sem oft komi
í Kristkirkju, innlenda sem út-
lenda, segir biskup einkum
vegna þess að þar er gömul Mar-
íustytta, sennilega gerð á 14. öld.
Sú stytta hafi öldum saman ver-
ið geymd á Reykhólum og e.t.v. í
Skarði, en að lokum falin kaþ-
ólsku kirkjunni til varðveislu og
heiðrunar og sé að jafnaði kölluð
„Reykhóla-María“. Við komu
sína til íslands 1989 hafi Jó-
hannes Páll II páfi krýnt stytt-
una, sem síðan hafi haft aðsetur
sem „drottning“ í kaþólsku dóm-
kirkjunni í Reykjavík. - HEI
Samskip hættir með Bruno Bisdioff
Samskip hafa ákveðið að draga sig út úr þýska flutningafyrirtækinu
Bruno Bischoff Reederi, sem félagið eignaðist meirihluta í fyrir rúmu
ári. Um leið hafa Samskip stofnað eigið dótturfélag í Þýskalandi til að
tryggja viðskiptavinum fyrirtækisins áframhaldandi þjónustu, að því
er segir í fréttatilkynningu sem send var út í gær. Dótturfélagið hóf
starfsemi í gær með aðsetur í Bremen og framkvæmdastjóri hefur ver-
ið ráðinn Baldur Guðnason. Hann verður einnig áfram framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs erlendrar starfsemi fyrirtækisins. Oskað
hefur verið eftir greiðslustöðvun fyrir Bruno Bischoff, en Samskip
töpuðu verulegum ljármunum á þeim rekstri. Reiknað er með að
velta Samskipa og dótturfélaga dragist saman um 2 milljarða við
þennan gjörning.
Reglur til höfuðs nektardansinuui
„Þetta vinnst fremur seint vegna sumar-
leyfa, en mér reiknast þó til að síðsumars
eða snemma í haust muni koma í Ijós
hverju viðleitni okkar skilar. I ljósi um-
ræðunnar að undanförnu má segja að það
verði æ brýnna að taka þessi mál til end-
urskoðunar, en það verður að vera tryggt
að nýjar reglur byggi á lagastoð," segir
Gissur Pétursson, forstöðumaður Vinnu-
málastofnunar, í samtali við Dag.
Gissur leiðir vinnu er lýtur að því að
endurskoða veitingu atvinnuleyfa og þá
með nektardansmeyjar í huga. Þær hafa
almennt fengið tímabundið atvinnuleyfi í
skjóli þess að dans þeirra félli undir list-
dans. Þær raddir gerast háværari að
stemma þurfi stigu við vexti þessarar at-
vinnugreinar, ekki síst eftir að tvær nektardansmeyjar voru staðnar að
e-pillusmygli og fréttir um að starfsemi nektardansstaða auki hætt-
una á eyðnismiti.
„Allt styður þetta hvað annað um að endurskoðunin sé brýn og nú
reynum \ið að átta okkur á því hvað hægt sé að gera innan ramma
gildandi laga og hvort nauðsynlegt sé að grípa til lagabreytinga, sem
þá tæld lengri tíma. Við höfum haft reglugerð í smíðum um atvinnu-
leyfi fyrir útlendinga og má búast við því að þessi mál rúmist þar inn-
an, svo fremi sem lagastoðin sé á hreinu," segir Gissur. - FÞG
Gissur Pétursson hjá
Vinnumálastofnun.