Dagur - 28.07.1999, Qupperneq 7

Dagur - 28.07.1999, Qupperneq 7
 ÞJÓÐMÁL POH l\ÍM R C n \\ t\ (T ,T u I 7 (\ \U - jö MIÐVIKUDAGUR 2 8. JÚLÍ 19 99 - 7 Opið bréf til Inga Bjömssonar TRYGGVI GISLASON SKÓLAMEISTARI MEN- NTASKÓLANSÁ AKUREYRI SKRIFAR í viðtali í DEGI 20. þ.m. er haft eftir þér að þú vitir ekki til að Menntaskólinn á Akureyri hafi ætlað að leggja neitt meira af mörkum en Verkmenntaskólinn við smíði nýrra heimavista á Ak- ureyri. Vegna þessara ummæla verð ég að endurtaka sumt það sem ég sagði í bréfi til þín í september í fyrra. Gamlar heimavistir Við MA hafa verið reknar heimavistir í meira en heila öld. Undanfarin fimmtíu ár hafa verið reknar heimavistir fyrir um 150 nemendur í 10.000 m3 húsi við Hrafnagilsstræti. Auk 80 herbergja eru í þessu húsi vel búið eldhús með frysti og kæligeymslum, borðsalur fyrir 300 manns, setustofa og þvottahús, sem nýst getur tvö- falt fjölmennari heimavist. Ný- virði þessa húss með búnaði er um 500 milljónir króna. Á sumrin hefur í húsinu verið rekið sumarhótel í samvinnu við Ferðaskrifstofu Islands og Flugleiðahótel. Hefur þetta afl- að Heimavist MA verulegra tekna svo að ríkissjóður hefur ekki þurft að leggja Heimavist MA fé, eins og ella hefði þurft. Sjálfbærar heimavistir Undanfarin ár hefur skóla- nefnd MA rætt áætlun um end- urbætur og stækkun Heimavist- ar MA. Samkvæmt áætluninni er ráðgert að í nýju húsi, sem rísi austan núverandi heima- vistarhúss, yrðu 60 tveggja manna herbergi með baði, sjón- varpi, síma og tölvutengingum. Kostnaður er áætlaður 300 milljónir króna, sem er mun minna en ef reisa þyrfti heima- vistir með eldhúsi, borðsal, þvottahúsi og setustofum. Ráð- gert er að taka lán til smíði hússins en ekki gert ráð fyrir að Sjálfur situr þú sem framkvæmdastjóri hlutafélags þar sem framlag eignaraðila ræður stjórnaraðild. Taldi skólaenfnd VMA að hlutur Verkmennta- skólans yrði fyrir borð borinn og ítrekað að VMA hefði allt til jafns við MA. Krafa löggjafans uni áhyrgö En hvað sem líður skip- un stjórnar rekstrarfé- laga er það krafa lög- gjans, Alþingis íslend- inga, í lögum um fram- haldsskóla að ábyrgð af rekstri heimavista við framhaldsskóla sé í höndum skólameistara - og einungis skóla- meistara, ekki skóla- meistara og skóla- nefndar og því síður í höndum manna úti í bæ, enda má ekki fram- selja þessa ábyrgð. „Það er því með ólíkindum að haft er eftir þér að þú vitir ekki tii að Menntaskólinn hafi ætlað að ieggja neitt meira afmörk- um en Verkmenntaskólinn við smíði nýrra heimavista, “ segir greinarhöfundur í opnu bréfi tii Inga Björnssonar, formanns skólanefndar VMA. rekstraraðiljar skólans, ríkis- sjóður og Héraðsnefnd Eyja- fjarðar, Ieggi fram fé til smíð- innar. Samkvæmt viðskiptaá- ætlun, sem legið hefur fyrir tvö ár, er gert ráð fyrir að greiða lánið niður af rekstri heima- vista og sumarhótels. Þetta yrðu því „sjálfbærar heimavist- ir“, ef svo má að orði komast, fyrstu heimavistir af því tagi hér á landi. Stuðníngur menntamálaráðherra Þessi áætlun um sjálfbærar heimavistir var kynnt mennta- málaráðherra í mars 1996. Taldi hann áætlunina mjög at- hyglisverða og hefur hann stutt málið af eindrægni. Hins vegar óskaði ráðherra eftir því í bréfi í maí 1997 að kannað yrði hvort aðrir skólar á Akureyri ættu samleið með Menntaskólanum í þessu máli. Skölanefnd MA beitti sér því fyrir fundum með skólanefnd VMA. I viðræðun- um var gert ráð fyrir að MA legði fram helming af áætluð- um byggingarkostnaði, 150 milljónir króna, en auk þess gamla heimavistarhúsið með eldhúsi, borðsal, þvottahúsi og setustofu og lóð undir hús og bílastæði svo og reynslu af rek- stri heimavista í 100 ár og við- skiptavild vegna hótelrekstrar hálfa öld. Er hlutur MA metinn á 750 milljónir króna. Hlutur VMA átti hins vegar að vera helmingur af áætluðum bygg- ingarkostnaði nýs húss, þ.e.a.s. um 1 50 milljónir króna. Fram- lag MA hefði því orðið fimmfalt framlag VMA í rekstrarfélagi sem fyrirhugað var að stofna. Ummæli gegn hetri vitund Það er því með ólíkindum að haft er eftir þér að þú vitir ekki til að Menntaskólinn hafi ætlað að Ieggja neitt meira af mörkum en Verkmenntaskólinn við smíði nýrra heimavista. Krafa skólanefndar VMA £ þessum viðræðum var hins vegar að fá allt til jafns við MA. Á það féllst skólanefnd MA ekki og því náð- ist ekki samkomulag um sam- eiginlegar heimavistir. Krafa skólanefndar MA um að skóla- meistari MA yrði framkvæmda- stjóri rekstrarfélags, sem stæði að rekstri nýjum heimavistum, var hins vegar aldrei ófrávíkjan- legt skilyrði heldur tengdist sú krafa umræðum um meirihluta í stjórn rekstrarfélagsins. Taldi skólanefnd MA ekki óeðlilegt að MA tilnefndi annaðhvort formann rekstrarfélagsins eða hefði meirihluta í stjórn. Var sú krafa í samræmi við framlag MA og þá meginreglu í nútíma- viðskiptum og rekstri að fram- lag eða eign ráði stjórn félaga. Efling hyggðar í landiuu Smíði nýrra heimavista við MA er mikilsvert byggðamál fyrir Akureyringa, Eyfirðinga og Norðlendinga alla - jafnframt því að efla skipasmfðar á Akureyri svo og margvíslegan annan iðnað tengdan framleiðslu og þjón- ustu. Þar á hlutur öflugs verk- menntaskóla að vera mikill. Með því hins vegar að stækka heimavistir Menntaskólans á Akureyri verður unnt að bjóða nemendum alls staðar að af landinu - og þá m.a. og ekki síst af höfuðborgarsvæðinu - vist í traustum og framsæknum heima-vistar—menntaskóla úti á Iandi, skóla sem undirbýr nemendur undir háskólanám. Mikil þörf er þegar fyrir að ungt fólk úr þéttbýli eigi þessa kost, og ekki minnkar þörfin þegar örtröð eykst enn á höfuðborgar- svæðinu. Reykjavík, 22. júlí 1999 S annleikurinn smögengiim Guðmimdur Ólsen, Hamarsstíg 38, Sigmundur Þórisson, Mýrvarvegi 114, Svavar Guunarsson, Mýrarvegi 116 og Gísli Pálsson, Mýrarvegi 122 skrifa I Degi þriðjudaginn 13. júlí sl., þar sem fjallað er um fyrirhug- aðar byggingar við Mýrarveg, hefur blaðamaður eftir Gísla Braga Hjartarsyni að hann hafi vikið sæti í málinu á öllum stig- um eftir að mágur hans, Páll Al- freðsson, varð aðili að því. Hið rétta er að 23. maí 1997 sendi Páll bréf til skipulagsyfir- valda og sótti um breytingu á gildandi skipulagi þannig að byggja mætti 5 til 7 hæða hús með bílageymslum við Mýrar- veg á svæðinu norðan Akurgerð- is. Frá þeim tíma og til 10. febr- úar 1999 hefur Gísli Bragi, fyrr- verandi formaður nefndarinnar, setið a.m.k. 15 skipulagsnefnd- arfundi auk funda í bæjarráði og bæjarstjórn, þar sem máefni Fjölbýlishúsin við Mýrarveg eru mjög umdeiid. þessara bygginga hafa verið til umræðu. Um það votta fundar- gerðir. Gísli Bragi talar einnig um pantað lögfræðiálit íbúanna sem svarað hafi verið af lög- manni á vegum bæjarins. Velta má fyrir sér hvaða lögfræðiálit séu pöntuð og hver ekki, því Ak- ureyrarbær valdi til verksins fyrrverandi starfsmann bæjarins og flokksbróður Gísla Braga. Lögmaður íbúanna er hins veg- ar hæstaréttarlögmaður úr Reykjavík, sem enginn íbúanna þekkir persónulega.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.