Dagur - 28.07.1999, Blaðsíða 13
MIDVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
Mlkil stemmniiig í Eyjiun
í kvðld fer fram í Eyj-
um fyrri leikur ÍBV
og ungverska liösins
MTK Búdapest í 2.
umferð forkeppni
Meistaradeildar Evr-
ópu.
Eyjamenn, sem slógu út al-
banska Iiðið SK Tirana í 1. um-
ferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu, leika gegn ungverska
liðinu MTK Búdapest í 2. um-
ferð keppninnar á Hásteinsvelli í
kvöld kl. 19:00. Nái Eyjamenn
að slá ungverska liðið út úr
keppninni lenda þeir á móti
króatíska liðinu Croatia Zagreb í
3. umferðinni.
Lítið vitað um styrkleika
liðsins
Dagur ræddi við Bjarna Jóhanns-
son, þjálfara ÍBV, og spurði hvað
hann vissi um ungverska liðið.
„Við vitum mjög lítið um styrk-
leika liðsins, annað en að það
vann ungversku úrvalsdeildina
með miklum yfirburðum á síð-
ustu leiktíð. Eg veit að liðið hef-
ur síðan tekið miklum breyting-
um og því lítið að græða á upp-
tökum frá fyrri leikjum. Þeir eru
að koma beint inn í þessa keppni
núna í aðra umferðina og því
erfitt að gera sér grein fyrir styrk-
leika liðsins. Deildarkeppnin í
Ungverjalandi er heldur ekki
byijuð, þannig að þeir eru á fullu
í undirbúningi og það gæti kom-
ið sér vel fyrir okkur.
Við vitum að þeir hafa verið að
kaupa nýja leikmenn og einn
þeirra er HoIIendingurinn Glenn
Helder, sem m.a. hefur verið f
herbúðum Arsenal. Hann hefur
einnig leikið með liðum eins og
Ajax, Arnheim og Benfica og á að
baki einhverja landsleiki fyrir
Holland. Einnig hafa þeir ráðið
til sfn þekktan hollenskan þjálf-
ara og það sýnir að þarna eru
engir aukvisar á ferðinni.
Víð höfum einnig fengið þær
upplýsingar að þeir hafi nýlega
breytt rekstararformi félagsins f
ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ
RúnarKrist-
insson
knattspymumaður
Rúnar Kristinsson átti
stórleík með Ullestöm á
móti Brann sl. fimmtu-
dag. Klaus Augenthaler,
þjálfarí GrazerAK, var
ánægðurmeð það sem hann
kom tilaðsjá.
hlutafélag, eins og reyndar fleiri
félög í Búdapest hafa gert. Þeir
tóku reyndar forystuna í þeim
málum og skutu þar með fræg-
um liðum eins og Ferencvaros,
ref fyrir rass. Það er því nokkuð
ljóst að staða liðsins hlýtur að
vera sterk og sem dæmi um góða
fjárhagsstöðu þess má nefna að
þeir koma hingað til lands á
einkaþotu, sem á að lenda hér í
Eyjum í dag (í gær), ef veður
leyfir. Það yrði reyndar ekki í
fyrsta skipti sem þeir senda
einkaþotu til Eyja, því njósnari
frá þeim var hér á ferðinni til að
sjá okkur spila við SK Tirana í
fyrstu umferðinni."
Þuifiun að ná hagstæðum úr-
slitum heima
- Telurðu ykkur eiga möguleíka
á að komast áfram í 3. umferð?
„Auðvitað eigum við mögu-
leika, en þá þurfum við líka að
ná hagstæðum úrslitum heima
og síðan mjög góðum leik ytra.
Það er mjög miklvægt fyrir okkur
að fá að leika heimaleikinn hér í
Eyjum, því hér kunnum við best
við okkur. Eins og ég sagði þá
kemur það okkur örugglega til
góða að þeir eru nú á miðju und-
irbúningstímabili og þá væntan-
lega ekki komnir í mikla leikæf-
ingu. Það hefði þó verið betra
fyrir okkur að fá útileikinn á
undan þannig að við hefðum þá
getað skipulagt heimavinnuna
betur, en við því er ekkert að
gera. Við höfum reyndar reynsl-
una frá síðustu umferð, þar sem
við fórum í seinni leikinn til
Tirana með aðeins 1-0 heimasig-
ur i farteskinu. Þar tókst okkur
það sem kannski fáir áttu von á,
að vinna 1-2 útisigur. Ef okkur
tekst að setja verulega pressu á
þá fyrir útileikinn, þá er ég nokk-
uð bjartsýnn á framhaldið."
- Er mikil stemmning fyrir
leiknum í Eyjutn?
„Hér í bænum er rosaleg
stemmning fyrir leiknum. Hann
lendir inni í miðri þjóðhátíðar-
viku og fólk getur rétt ímyndað
sér hvernig stemmningin verður.
Hér eru allir á fullu við að undir-
búa hátíðina og allt að verða
klárt inni í Dal. Leikurinn verður
bara skemmtileg viðbót við há-
tíðina og stuðningsmenn verða
með uppákomur í bænum fyrir
leikinn," sagði Bjarni.
Afgerandi forysta KR og ÍBV
í deildiimi
Eyjamenn eru nú í öðru sæti
Landsímadeildarinnar með 21
stig, tveimur stigum á eftir KR-
ingum, sem eru í efsta sætinu
með 23 stig. Á meðan liðið tekur
þátt í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu fær það frí í deildar-
keppninni, en þar átti það sam-
kvæmt leikskrá að leika gegn Val
í 11. umferðinni, en þeim Ieik
hefur verið frestað til 25. ágúst.
- En hvernig metur Bjarni stöð-
una í deildinni?
„KR og ÍBV hafa nú tekið af-
gerandi forystu í deildinni og ég
á von á því að þau munu berjast
um titilinn. Það má reyndar ekk-
ert út af bera, því þá er þriggja
stiga reglan fljót að hafa áhrif.
Um stöðu næstu liða er mjög
erfitt að spá. Þar koma Framarar
í þriðja sætinu með fjórtán stig
og síðan er stutt á milli Iiða nið-
ur í neðasta sætið. Eg vil engu
liði svo illt að spá því falli, en
raunverulega gætu öll liðin,
nema KR og IBV, lent í þeirri
stöðu miðað við stöðuna í dag.
Næstu leikir munu því skipta
öllu um það hvernig þetta þróast
og eflaust verður sú barátta jöfn
og tvísýn. Eg á þó von á að bæði
Keflvíkingar og Skagamenn eigi
eftir að bæta verulega við sig.
Skagamenn byrjuðu mótið ekki
vel og þess vegna hefur verið
mikil pressa á liðinu. Tveir
frestaðir leikir í deildinni vegna
þátttöku þeirra í lntertoto-
keppninni hafa örugglega líka
haft sín áhrif, en þeir eru reynd-
ar búnir að spila annan þeirra og
unnu þar sigur á Val og geta
einnig unnið hinn gegn Breiða-
bliki og þá eru þeir strax komnir
upp í Ijórða sætið. Mér sýnist
þeir líka vera að sækja í sig veðr-
ið og á von á þeim sterkari með
hverjum leik. Ég á líka von á þvi
að Keflvíkingar muni bæta veru-
lega við sig í seinni umferðinni.“
Spáð í úrslit næstu umferðar
- Hverju viltu spá um leiki
næstu umferðar?
„Ef við byrjum á ieik KR og
Leifturs þá bendir allt til þess að
KR vinni þann leik. Leifturs-
menn áttu frekar dapran dag á
móti okkur í síðasta Ieik og mið-
að við það hvernig KR-ingar hafa
spilað að undanförnu þá á ég
frekar von á KR-sigri.
I Keflavík taka heimamenn á
móti Fram og tefla nú fram nýj-
um þjálfara. Ég tippa á að þeir
vinni þennan leik til að sýna
fram á að þjálfaraskiptin voru
rétt ákvörðun. Það er mikil seigla
í Framliðinu og þeir geta unnið
hvern sem er hvenær sem er. Ég
hef þó trú á að Keflvíkingar hafi
það í þessum leik.
I Kópavoginum á ég von á
mikilum baráttuleik milli Breiða-
bliks og Grindavíkur. Aðeins eitt
stig skilur liðin og hvorugt þeirra
hefur efni á að tapa stigum, því
þá blasir fallbaráttan við. Blik-
arnir byrjuðu vel og sýndu mikla
baráttu í upphafi móts, en hafa
síðan ekki náð sér á strik í und-
anförnum leikjum. Heimavöllur-
inn vegur þungt í þessum leik og
ég tippa á að Blikarnir nái sigri.
I leik Víkings og IA á ég von á
að Skagamenn hafi sigur. Þeir
unnu stórsigur á Víkingum í bik-
arnum fyrr í sumar og það er
gríðarlega mikill stígandi í leik
þeirra. Víldngar berjast aftur á
móti fyrir lífi sínu í deildinni og
falldraugurinn er alltaf erfiður
við að eiga,“ sagði Bjarni.
Verð bara að splla etns
ogmaður
- Það var fullur völlur af er-
lendum njósnurum að fylgjast
með ykliur á fitnmtudaginn,
m.a. Klaus Augenthaler, þjálf-
ari Grazer Ak, sem reynt hefur
að kaupa þig í sumar. Hefurðu
lieyrt eitthvað frá Augenthaler
og félögum eftir leikinn?
„Já, já. Það hefur ýmislegt
komið í ljós. Ég hef heyrt að þeir
hafi verið mjög ánægðir með það
sem þeir sáu. Þeir vilja endilega
fá mig til Austurríkis en
Lilleström vill ekki sleppa mér
eftir því sem mér skilst. Ég hef
ekkert heyrt frá þeim sjálfum en
umboðsmaðurinn minn hefur
sagt mér það.“
- Nú hefur Lilleström verið t
fjárhagserftðleikum þó tnikið
hafi ræst þar úr í vor. Hefurfé-
lagið efni á að halda þér?
„Þeir reikna með því að selja
Runar Norman til Coventry fyrir
hundrað og tuttugu til hundrað
og fimmtíu milljónir. Það breytir
Ijárhagstöðunni mikið sem þýðir
að félagið þarf ekkert að selja
mig. Þá halda þeir mér örugglega
út keppnistímabilið. Það getur
vel verið að þá verði einhverjir
möguleikar fyrir hendi en það
getur líka verið of seint.“
- Þjálfarinn ykkar sagði mér
að sendinginfrá íslandi, þú og
Heiðar, væri einhver hesta sam-
setning sem liðið gæti fengið og
að ekki kæmi til greina að selja
ykkur. Færð þú þá bara ekki
betri samning viðfélagið tfram-
haldinu?
„Þjálfarinn, Arne Erlandsen,
er ánægður með okkur. Hann
hefur nefnt það við mig að um
leið og búið verður að selja Run-
ar Norman ætli hann að setjast
niður með stjórninni og reyna að
búa til nýjan samning fyrir mig
sem gerir það að verkum að ég
yrði kanski þrjú til Ijögur ár í við-
bót hjá Lilleström. Hann vill
gera mér góðan samning en það
er spurning hvort hann yrði eins
góður og ég gæti fengið í Austur-
ríki. En þetta eru hlutir sem
verða bara að skoðast. Ég bfð alla
vega fram yfir áramót með að
skrifa undir nýjan samning við
Lilleström."
- Samningstaða þtn hlýtur að
vera mjög sterk núna, sérstak-
lega eftir að Austurrikismenn-
imir sáu þig leika gegn Brann.
„Ég hef ágæta stöðu. Arne hef-
ur verið mjög ánægður með mig
og félagið líka. Ég hef alveg feng-
ið að heyra það. Ég veit að hann
vill alls ekki missa mig héðan.
En síðan er það náttúrulega
stjórn félagsins sem verður að
hugsa um Ijárhag þess. Ef liðið
býður mér eitthvað sem ég verð
ekki sáttur við þá skrifa ég ekki
undir neitt. Þá þarf ég bara að
spila út næstu Ieikti'ð og get síð-
an farið frjáls allra minna ferða.
Ef ég geri þeim það ljóst verða
þeir að selja mig í haust ætli þeir
að fá eitthvað fyrir mig. En ég
ætla samt ekki að vera með nein-
ar hótanir og vil alls ekki að það
verði nein leiðindi okkar á milli.
En svona er staðan í dag og ég
verð bara að hugsa mína fram-
tíð.“
- Þannig að þú örvæntir ekk-
ert?
„Nei, nei. Ég örvænti ekki
neitt. Haldi ég bara áfram að
spila eins og maður og slepp við
meiðsli og allt slíkt koma önnur
tækifæri. Þetta er ekkert búið
ennþá. Það er spurning hvort
Grazer getur beðið fram að ára-
mótum með að fá mig. Ef það
væri er það ekkert annað en já-
kvætt. En það er ekkert sem ég
er að spá í núna.“ - GÞÖ