Dagur - 12.08.1999, Side 5

Dagur - 12.08.1999, Side 5
 FIMMTVDAGUR 12. ÁGÚST 1999 - S FRÉTTIR „Áhyggjur af okkur eru otmiabærar“ Ari Edwald og Firwur Geirsson fyrir utan höfuðstöðvar VSÍ i gær, sem tii að byrja með verður aðsetur Samtaka atvinnulífsins. - mynd: e.úl. Nýráðnir forsvars- menn Samtaka at- vinmilífsins segjast taka spenntir við nýj- uiií störfum og kvíða ekki reynsluleysis í kj aras amningagerð. Formenn aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins samþykktu í gær- morgun að ráða Finn Geirsson, framkvæmdastjóra Nóa-Sfríus, sem formann samtakanna og Ara Edwald, ritstjóra Viðskiptablaðs- ins, sem framkvæmdastjóra. Þeir taka við nýjum störfum á stofn- fundi samtakanna 15. september næstkomandi. Ari er ráðinn í fullt starf en Finnur verður for- maður í hlutastarfi og stýrir Nóa- Síríus áfram. Er Dagur náði tali af þeim fyr- ir utan væntanlegt aðsetur sam- takanna í Garðastrætinu í gær sögðust þeir báðir hlakka til nýrra verkefna. Spennandi tímar væru framundan og fyrsta stóra verkefnið væri að sjálfsögðu næstu kjarasamningar. Aðspurð- ir um reynslu af kjarasamninga- gerð sögðust þeir ekki hafa hana. Finnur sagði þetta hlut sem Iærðist og þeir hefðu aðgang að fólki hjá VSI og öðrum aðildar- samtökum með mikla reynslu. „Eg kvíði þessu ekkert," sagði Finnur og Ari tók undir með honum. „Það er ekkert nýtt að menn komi nýir að kjarasamn- ingagerð. Eg tel ótímabært að hafa áhyggjur af því að þetta gangi ekki upp hjá okkur. Eg hef trú á að þetta muni ganga vel,“ sagði Ari. Hverjir eru þeir? Hverjir eru svo nýir forystumenn Samtaka atvinnulífsins? Finnur hefur sl. 9 ár verið framkvæmda- stjóri Nóa-Síríus. Þar áður var hann ritstjóri Vísbendingar og hagfræðingur Verslunarráðs ís- lands. Finnur er sonur Geirs heitins Hallgrímssonar, fyrrum forsætisráðherra og seðlabanka- stjóra, og Ernu Finnsdóttur, næstyngstur fjögurra systkina. Elstur í þeim hópi er Hallgrímur B. Geirsson, framkvæmdastjóri Morgunblaðsins. Finnur er 46 ára að aldri, með doktorspróf í hagfræði frá háskólanum í Flór- ída og viðskiptafræðipróf frá Há- skóla íslands. Hann er kvæntur Steinunni Þorvaldsdóttur menntaskólakennara. Þau eiga tvo syni og fyrir átti Steinunn dóttur sem Finnur gekk í föður- stað. Ari Edwald er 35 ára, með lög- fræðipróf frá Háskólanum og MBA-gráðu í rekstrarhagfræði frá San Francisco háskóla. For- eldrar hans eru Erling Edwald lyfjafræðingur og Jóhanna Ed- wald ritari. Líkt og Finnur er Ari næstyngstur fjögurra systkina. Hann var aðstoðarmaður Þor- steins Pálssonar í dómsmála- ráðuneytinu tímabilið 1991- 1995 og fylgdi Þorsteini í sjávar- útvegsráðuneytið sem aðstoðar- maður. Ari tók um síðustu ára- mót við ritstjórastöðu hjá Við- skiptablaðinu. Hann er kvæntur Þórunni Pálsdóttur, fjármála- stjóra Istaks, og eiga þau tvö börn. — BJB Afkoma Landsbankans hefur batn- að mikið milli ára. Stórgróði Landsbanka Landsbankinn kynnti í gær milliuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður tíma- bilsins nam alls 722 milljónum króna, samanborið við 489 milljónir eftir sama tíma í fyrra og 911 milljónir allt síðasta ár. Hagnaðurinn hefur því aukist um 233 milljónir, eða tæplega 48% frá sama tímabili í fyrra. Betri afkomu skýrir bankinn m.a. með auknum umsvifum og hagstæðri ytri skilyrðum á fjár- magnsmarkaði. Þá var afkoma dótturfélaga góð. Hreinar vaxtatekjur Lands- bankans fyrstu sex mánuðina námu alls 2,5 milljörðum og jukust um 18% frá sama tímabili árið 1998. Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildar- fjármagns var 3%, en á sama tíma í fyrra nam vaxtamunur 3,6%. Rekstrargjöld bankans námu alls 2,9 milljörðum og hækkuðu þau um 10% milli ára. Launatengd gjöld námu 1,6 milljörðum sem er aukning um 3,4%. - BJB Hefur ekldtm á leið Jóhöimu „Ég tel að þetta tal for- sætisráðherra íim laga- setntngu sé sprottið af því að hann vilji setja lög sem banni Jóni Ólafssyni í Skífunni að kaupa hlutabréf,46 sagði Sighvatur Björg- vinsson, þingmaður. Enn deila menn um hvort raun- hæft sé að setja lög um dreifða eignaraðild þegar Ijármálastofn- anir ríkisins verða seldar. Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson greinir á um það, og nú eru þing- menn Samfylkingarinnar, þau Jó- hönnu Sigurðardóttur og Sighvat- ur Björgvinsson, ósammála um málið. Jóhanna boðar lagafrum- varp til að tryggja dreifða eignar- aðild í upphafi þings en Sighvatur efast um að hægt sé að setja lög sem halda. „Eg hef ekki trú á því að gerlegt sé að setja lög til að tryggja dreifða eignaraðild, sem halda þegar fram í sækir. Eg er alveg viss um að Daríð Oddsson, forsætisráðherra, hefði aldrei orðað þessa Iagasetn- ingu ef þeir sem eru að kaupa fjórðung í FBA væru honum þóknanlegir. Eg tel að þetta tal forsætisráðhérra um lagasetningu sé sprottið af því að hann vilji setja lög sem banni Jóni Ólafssyni í Skífunni að kaupa hlu'abréf,“ Sighvatur Björgvinsson telur laga- setningarleiðina ófæra. sagði Sighvatur Björgvinsson, al- þingismaður, í samtali við Dag um þetta mál. Að framfyljjja lögiumm Sighvatur segist spyrja þá sem tala um þessa lagasetningu hvernig þeir ætli að framfylgja þeim. „Það vita allir að þegar hluta- bréf ganga kaupum og sölum á frjálsum markaði veit engin hver er að kaupa eða selja. Menn vita hveijir stofna hlutafélög en síðan fara þau á markað og hlutabréfin ganga kaupum og sölum og eng- inn sem íylgist með því. Eg veit ekkert um það hvort Jón Jónsson á hlutabréf í Eimskip og hann ekki hvort ég á hlutabréf í einhveiju fyrirtæki," segir Sighvatur. Hann segist líka spyrja í fram- haldinu: Hvað menn ætli að gera Jóhanna Sigurðardóttir boðar laga- frumvarp um dreifða eignaraðild. við íslandsbanka hf. ef þessi lög verða sett. Hver veit hvernig eign- araðild að bankanum skiptist? „Hvað ætla menn að gera ef ein- hver lífeyrissjóðanna á meira en 4% í íslandsbanka. Á að skikka hann til að selja og hverjum má hann selja. Hann má ekki selja hæstbjóðanda ef hann á jafn stór- an hlut. Þetta gengur því ekki upp á frjálsum verðbréfamarkaði," seg- ir Sighvatur. Hann var minntur á að stjórnar- andstaðan hafi viljað svona laga- setningu á síðasta þingi þegar sal- an á hlut ríkisins í FBA var til um- ræðu á Alþingi. „Ég veit það en ég hef bara ekki nokkra trú á að lög af þessu tagi hafi neitt hald þegar fram í sækir,“ segir Sighvatur Björgvinsson. - s.DÓB Aðeins réttindakeimarar í Borgamesi Á sama tíma og fregnir berast af vandræðagangi grunnskólanna með að ráða kennara sendir Grunnskólinn í Borgarnesi frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að allar kennarastöður séu þegar skipaðar og það eingöngu kennurum með réttindi á grunn- og framhaldsskólastigi. Bæj- arstjórn Borgarbyggðar gerði viðbótarsamning við kennara sl. haust og segir Kristján Gíslason, skólastjóri, það, ásamt öðru, vera þátt í að svona vel gangi að halda í og fá nýja kennara. Síðasta vetur voru 330 nemendur við skólann og mun þeim fjölga næsta vetur. Hafin er vinna við endurhönnun skólahússins þannig að hann geti orðið einsetinn innan fárra ára. Ámi vísiterar á Austfjörðum Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, lagði af stað í gær í ferð um Austfirði og lýkur henni í dag. Þetta er þriðja landshlutaheimsókn ráðherrans. I ferðinni hitt- ir hann fulltrúa stéttarfélaga og heimsækir útgerðar- fyrirtæki. I gær var hann á Reyðarfirði og hitti þar verkalýðsforkólfa og útgerðarmenn. I dag verður hann í Breiðdalsvík og á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eski- firði og Seyðisfirði. Athygli vekur að hann fer ekki til Litlu-Moskvu, Norðfjarðar, hvað sem því veldur. Árni M. Mathiesen. Hraðbátur Keikó-samtakauua brauu Tveir drengir, ellefu og tólf ára, voru hætt komnir skömmu eftir hádegi í gær þegar þeir kveiktu af slysni í hraðbát Keikó-samtakanna. Þeir voru að fikta með eldspýtur um borð í bátnum og er talið líklegt að bensín- brúsi hafi sprungið. Þá hafi kviknað í bensíntanki bátsins sem í voru 200 lítrar af bensíni. Drengirnir náðu að forða sér en slökkviliðið var komið á staðinn skömmu síðar og tókst að kæfa eldinn. Báturinn er gjörónýtur, auk tveggja utanborðsmótora, bátskerru og glugga í báta- skýli. Milljónatjón í Straumsvík Það óhapp varð í Álverinu í Straumsvík í gær að gat kom á biðofn og um 30 tonn af áli láku út. Tjón Álversins nemur um 5-10 milljónum króna, ekki síst vegna þess að viðgerð getur tekið hátt í tíu daga og ofn- inn er óvirkur á meðan. Álið var um 700 gráðu heitt en lak í grj'Iju sem ætluð er til að taka við því ef eitthvað kemur fyrir. Gryfjan er í kjallara undir ofninum og ofninn að mestu leyti niðurgrafinn þannig að aldrei var nein hætta á að ál slettist upp úr ofninum og á starfsfólk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.