Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 12

Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 12
12 - FIMMTUDAGVR 12. ÁGÚST 1999 n'jjfi bio Sfi' W!:/' □□ | OOLgYJ DIGITAL RÁÐHÚSTORGI SÍMI 461 4666 ThfX Sýnd kl. 21 ROBERTS RAN1 KomduogKitti lu^/^’íhi'rU o$ Hujli C.mii Motting Hifl Sýnd kl. 16:45,19, 21 og t.23:20 . Sýnd kk 17,19 og 23:10 ÍPRÓTTIR Skaga- inenn í bikar- úslita- leikiim Skagamenn eru komnir í úrslit bikarkeppni KSí eftir sannfaer- andi 3-0 sigur á Eyjamönnum á Akranesi í gærkvöld. Skaga- menn mættu mjög ákveðnir til leiks og voru betra liðið allan leikinn. Leikurinn byrjaði strax með Iátum og sóttu liðin til skiptist í upphafi, án þess þó að skapa sér hættuleg færi fyrsta stundarfjóðunginn. A sextándu mínútu var svo dæmd vítaspyrna á Zoran Milkjovic, er hann braut á Stef- áni Þórðarsyni innan vítateigs. Sturlaugur Haraldsson tók spyrnuna, en Birkir Kristinsson, markvörður Eyjamanna, varði skot hans örugglega út við stöng. Eftir vítaspyrnuna færðist enn meira líf í Skagamenn, sem höfðu verið betri aðilinn framan af leiknum, en Eyjamenn vörð- ust þó vel og beittu skyndisókn- um á meðan Skagamenn réðu lögum og lofum á miðjunni. Það var svo ekki fyrr en á 32. mínútu leiksins sem yfirburða- leikur Skagamanna skiluðu marki, en það var Pálmi Har- aldsson sem þá stýrði boltanum í markið eftir fyrirgjöf frá Jó- hannesi Harðarsyni, en boltinn barst til Pálma eftir misheppnað úthlaup Birkis markvarðar. Eftir 1-0 forystu Skagamanna í hálfleik, reyndu Eyjamenn allt hvað þeir gátu til að snúa leikn- um sér í hag. Skagamenn voru þó ekki á því að gefa eftir og á 58. mínútu bættu þeir við öðru marki. Jóhannes Harðarson, einn besti maður Skagamanna í leiknum fékk sendingu frá Alex- ander Högnasyni inn í teiginn og þrumaði boltanum viðstöðu- laust í stöngina og inn. Eftir markið var allur vindur úr Eyjamönnum og Skagamenn gengu á lagið án þess þó að bæta við öðru marki fyrr en á 80. mín- útu, að Kári Steinn Reynisson bætti við þriðja markinu eftir mikinn einleik og skoraði stöng- in inn með góðu skoti. Úrslit leikta í gærkvðld Bikarkeppni KSÍ Undanúrslit ÍA - ÍBV 3 - 0 Landssímadeild kvenna Fjölnir - KR 0-12 ÍBV - Grindavík 7 - 0 Valur - Stjarnan 2 - 1 ■Enski boltinn Man. United - Sheff. Wed. 4 - 0 Aston Villa - Everton 3 - I Leicester - Coventry 1 - 0 Southampton - Leeds 0 - 3 Leikir í kvöld Landssímadeild kvenna Kl. 19.00 Breiðablik - ÍA 2. deild karla I<I. I9,0pÆgir:r HK KI. 19.00 Tindastóíl - Selfoss Dífc^ur Tore Andre gegn Chris Sutton Tore Andre Flo, hinn 26 ára gamli framherji Chelsea, er enn ekki inni í byrjunarliðinu hjá Gianluca Vialli. Flo var keyptur frá Brann fyrir tveimur árum og kostaði þrjár milljónir punda. Þrátt fyrir að hafa leikið vel fyrir Lundúnaliðið og skorað hlutfallslega flest mörk frá því hann kom til Stamford Bridge, er hann enn ekki traustsins verður af knattspyrnustjóranum. I sumar ákvað Vialli að styrkja framlínu sína enn frekar og til þess keypti hann Blackburnleikmanninn, Chris Sutton, fyrir tíu milljónir punda. Þessi fjárfesting átti að skila árangri á fyrsta Ieik- degi en gerði ekki. Sutton ldúðraði tveimur hundrað prósent færum auk þess sem hann átti afleitan leik. Tore Andre FIo nýtti hinsvegar sitt fyrsta færi, sex mín- útum eftir að hann kom inn fyrir Sutton, þegar hann skallaði boltann í mark Sunderland. Nú er Leeds tilbúið að borga tíu milljónir fyrir Flo en hann vill ekki yfirgefa London. Spurningin er hvor þeirra er betri ef báð- ir kosta tíu millur? Tore Andre Flo. „Ég er engin bjáni“ „Eg er enginn bjáni og veit út á hvað atvinnuknattspyrna gengur. Chris Sutton er eitt af stóru nöfnunum f enska boltanum og Vialli keypti hann fyrir háa upphæð. Þess vegna verður hann auðvitað í bytjunarliðinu í fyrstu umferðunum. Eg hef aldrei komið betur undirbúinn til leiks, bæði andlega og líkamlega og þess vegna hlakka ég bara til að berjast fyrir sæti mfnu í liðinu. Það er líka vegna þess sem ég hef engan áhuga á að yfirgefa Chelsea. Ef ég Ieik vel fæ ég sæti í byrjunarliðinu og þá á ég möguleika á að vinna einhveija titla. Fyrir utan Chelsea eru það bara Manchester United og Arsenal sem geta hoðið upp á slíkt í Englandi nú og þess vegna er ekki eftirsóknarverðara að vera hjá öðrum félögum," sagði Tore Andre FIo. Fjölimðlamir slátra Gullitt Enska pressan er allt annað en blíð við knattspyrnustjóra Newcastle, Ruud Gullit, eftir tvo fyrstu Ieiki liðsins. Bæði Sun og Daily Mirror hafa farið mjög harkalegum orðum um stjórann og segja hann ekki standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. „Gullit hefur keypt fimm leik- menn fyrir 210 milljónir punda til að stykja lið sitt. Eftir tvo leiki er Newcastle komið í neðsta sæti deildarinnar og knattspymu- stjórinn kennir öllum öðrum en sjálfum sér um hvernig staðan er,“ segir Sun. Mirror Ruud Gullit segir að Flollendingurinn geti ekki bara ----------- kennt dómurum og leikmönnum sínum um framgöngu liðsins. Það sé hann sem beri ábyrgðina og ef hinir rándýru leikmenn hans skili ekki lágmarks árangri sé það honum sjálfum að kenna og engum öðrum. Þá fær fyrirliðinn Alan Shearer einnig að finna til tevatnsins í fjölmiðlunum sem segja hann Ieika langt undir getu þessa dagana. Manchester United fær vítaspyrnurar á silfurfati Það eru aðeins elstu menn sem rámar í hvenær síðast var dæmd víta- spyrna á Manchester United á heimavelli þeirra, Old Trafford. Allir muna þó eftir að Manchester United fær fleiri vítaspyrnur dæmdar sér í hag en nokkurt annað enskt lið. Enskir knattspyrnuspekingar eru nú þegar farnir að reikna út hvernig vítaspyrnurnar munu skiptast niður á liðin í vetur. Þeir reikna með því að United fái milli 20 og 25 vítaspyrn- ur á andstæðinga sína á leiktíðinni. Wimbledon er það lið sem kemur til með að fá fæstar vítaspyrnur sér í hag eða aðeins tvær á tímabilinu. Hins vegar fær liðið að öllum líkindum flestar vítaspyrnur dæmdar á sig og þvf til sönnunar er bent á að eftir tvo leiki hafa tvö víti verið dæmd á liðið. Sendi njósnara á fjóra leibi KR-inga Á heimasíðu Kilmarnock kemur fram, að þegar Bobby Williamson, framkvæmdastjóri félagsins, vissi að lið hans hefði dregist á móti íslensku liði í undankeppni Evrópu- keppni félagsliða, hafi hann strax ákveðið að hafa samband við þá Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum Ieikmann Celtic og David Winnie, leikmann síðasta árs á Islandi, til að afla sér upplýsinga um mótheijana. Það sem Williamson vissi ekki, var að Jó- hannes, er bróðir Atla Eðvaldssonar þjálfara KR-inga og Winnie leikmaður með liðinu. Þegar hann var upplýstur um málið var hann fljótur að skipta um skoðun og sendi þess í stað njósnara á fjóra Ieiki KR-inga. Á vefnum kemur einnig fram að stuðningsmenn Kilmarnock hefðu frétt að á Islandi kostaði bjórkannan fjögur pund. Það finnst þeim nokk- uð dýrt, miðað við hvað þeir borguðu fyrir bjórinn í Tékldandi, þegar fé- lagið lék þar í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð. Einnig segir á heimasíðunni að KR-ingar hafi ákveðið að færa heima- , leikipn af Jitja yeljippm^.sínupi í Erpstaskjóli á þjóðarleikvaflgipp í Laug- ardal og búist við allt að 8000 áhorfendum á leikinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.