Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 13

Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 13
 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 - 13 ÍÞRÓTTIR KR verður að sýna sitt besta gegn Kiluiarnock íkvöldkl. 19:00 mæta KR-ingar skoska liðinu Kilmamock í undaukeppni Evrópu- keppni félagsliða, UEFA-Cup, á Laugar- dalsvelli. Mótherjar KR-inga í fyrstu um- ferð undankeppni Evrópukeppni félagsliða, skoska félagið Kilmarnock, er frá samnefndri borg sem er um miðja vegu milli Glasgow og Prestwick, í um hálf- tíma akstri frá Glasgow. Félagið sem var stofnað árið 1869, hefur Ieikið óslitið í skosku úrvalsdeild- inni síðan árið 1993, en þá vann liðið sig upp undir stjóm Tommy Bums, eftir misjafnt gegni und- anfarinna ára. Arið 1995 tókAlex Totten síðan við liðinu og á sama ári var endurbyggður Ieikvangur liðsins, Rugby Park, sem nú tek- ur 18.128 manns í sæti. Skoskir bikarmeistarar árið 1997 Totten, sem áður starfaði hjá Celtic, sat í hinu heita sæti fram- kvæmdastjóra aðeins íram að jól- um 1996, en þá var Iiðið í næst- neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. Þá var Bobby Williamson, núver- andi framkvæmdastjóri, fenginn til að bjarga liðinu, en hann var fljótur að koma því af botninum og í næstu leikjum kom hann því upp í áttunda sæti deildarinnar. Hann gerði enn betur, því vorið 1997 varð félagið skoskur bikar- meistari undir hans stjórn, eftir 1-0 sigur á Falkirk í úrslitaleikn- um á Ibrox leikvanginum í Glas- gow, þar sem fimmtíu þúsund áhorfendur voru mættir á völl- inn. Áður hafði félagið tvisvar unnið bikarinn, árin 1920 og 1929. I Evrópukeppni þriðja árið í röð Félagið er nú að leika í Evrópu- keppni þriðja árið í röð, en það vann keppnisréttinn í ár með því að ná fjórða sæti í skosku úrvals- deildinni á síðustu leiktíð. Leik- tímabilið 1995-96 tók félagið þátt í Evrópukeppni bikarhafa og komst þá í aðra umferð keppninn- ar, vann írska liðið Shelbourne í fyrstu umferðinni en tapaði fyrir franska liðinu Nice í annarri um- ferð. Á síðustu Ieiktíð tók félagið svo þátt í Evrópukeppni félagsliða og komst þá aftur í aðra umferð, vann NK Zeljeznicar frá Bosnfu í fyrstu umferð en tapaði fyrir tékk- neska Iiðinu Sigma Olomouc í annarri umferð. Ný gullöld Besta árangri í Evrópukeppni náði liðið árið 1967, en þá komst það í undanúrslit „Fair City Cup“, sem nú er hluti af Evrópu- keppni félagsliða, eftir sigur á belgísku liðunum Antwerpen og La Gantoise og austur-þýska lið- inu Lokomotiv Leipzig. Liðið tapaði síðan gegn enska liðinu Leeds í undanúrslitunum. Það má því segja að gengi liðs- ins hafi verið frábært undir stjórn Bobby Williamson og að hann hafi leitt það inn í nýtt gullaldar- tímabil, en síðast skein sól þess hæst á árunum 1964 til 1970. Það varð skoskur meistari í fyrsta og eina skiptið hingað til árið 1965, en hefur eins og flest önn- ur skosk lið staðið í skugga Glas- gow-risanna, Celtic og Rangers. Á nýbyrjuðu keppnistímabili í Skotlandi hefur liðið leikið tvo leiki í úrvalsdeildinni. Tapaði fyrsta leiknum gegn Rangers 2-1 á útivelli og vann Aberdeen 2-0 heima, þar sem ungur bakvörður liðsins, Gary Hay skoraði bæði mörkin. Fimasterkt lið Kilmarnock er að mestu skipað skoskum leikmönnum og hefur innanborðs leikmenn eins og skoska landsliðsmanninn og markamaskínuna Ally McCoist, sem lengst af spilaði með Rangers. Einnig skoska Iands- liðsmanninn Ian Durrant á miðj- unni, sem einnig kom frá Rangers og síðast en ekki síst skoska bakvörðinn Gus MacP- herson, sem spilað hefur yfir 300 leiki fyrir félagið. Einnig má nefna frönsku leikmennina Jer- ome Vareille, framherja, sem kom til félagsins í júlí 1997 og lék áður með Metz og Mulhouse og miðvörðinn Frederick Dindelux sem í sumar var keypt- ur frá Lille í Frakklandi. Það er því Ijóst að liðið er fimasterkt og örugglega spennandi að sjá það leika gegn baráttuglöðum KR- ingum, sem verða að sýna sínar bestu hliðar, ætli þeir sér sigur í Laugardalnum. SKOÐUN GUÐNI Þ. ÖLVERSSON Ofaldir nautkálfar Ruud Gullit hefur nú stillt upp sínu kynþokkafulla knattspyrnu- liði, Newcastle, til tveggja Ieikja í úrvalsdeildinni. Báðir töpuðust og eftir fyrstu vikuna í enska boltanum situr „sexy football" stjórinn í neðsta sæti úrvals- deildarinnar. Eftir fyrra tapið kenndi Gullit dómaranum um ófarirnar. Þó brottrekstur Alan Shearer hafi verið óþarflega strangur var Newcastle einfald- lega ekki nógu gott til að vinna. Alan Shearer hefur mjög sér- stakan leikstíl í návígum og not- ar olnbogana óspart til að skapa sér svæði. Með leikstíl hans í huga er það hreint með ólíkind- um að hann hafi litið sitt fyrsta rauða spjald á ferlinum á laugar- daginn, kominn á efri ár í knatt- spyrnunni. Hæfileikar Shearer eru óumdeildir. En hann er for- ystunautið á vellinum og ein- staklega súr leikmaður. Það kæmi honum til góða að brosa annað slagið út í annað og smita frá sér Ieikgleði í stað ólundar og tuðs. Hverju „sexy“ Gullit kennir um ósigur fyrir Tottenham skal ósagt látið. Leikmenn New- castle voru í upphafi leiks eins og ofaldir nautkálfar sem hleypt er út i vordægrið. Eftir mikinn gusugang, hlaup og verðskuldað mark var eins og næring þeirra væri þrotin. Leikmenn Totten- ham gengu á lagið og sýndu oft á tíðum þann bolta sem Gullit vil sýna. Eftir situr Ruud Gullit með sárt ennið og lið í rjúkandi rúst. Nýju leikmennirnir, Dyer með- talinn, eru staðir og skilja ekki til hvers er ætlast af þeim. Með þessu áframhaldi verður Ruud Gullit fyrsti stjórinn sem fýkur. Hann verður ekkert annað en sporgöngumaður Keégan og Dalglish á St. Jamses’ Park. Lofa hörkuleik í kvöld ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ Atli Eðvaldsson þjálfari KR-inga KR-ingartaka nú fjórða árið í röð þátt í Evrópu- keppni í knattspymu og er það í þrettánda skiptiðsem félagiðermeðál þátttak- enda. AtliEðvaldsson, þjálfariKR, lofarhörkuleik oggóðri stemmningu í Laugardalnum í kvöld,þeg- arKR-ingar mæta skoska Uðinu Kílmamock kl. 19:00 í sínum 31. Evr- ópuleik. - Áttu von á erfidum leik í kvöld og hvetja telurðu möguleikana á sigri? „Þetta verður örugglega hörku- leikur. Ef við náum að sýna okkar besta, eins og við gerðum til dæmis i fyrri hálfleik á móti Watford, þá er allt opið. Eg veit Iíka að bein útsending á Euro- Sport mun virka hvetjandi á liðið og strákamir munu því örugglega leggja sig alla fram og sýna sínar bestu hliðar. Ef við náum góðri byrjun þá er klárt að Skotarnir munu lenda f vandræðum og þá getur allt gerst.“ - Nú sástu Kilmamock spila gegn Rangers í skosku deild- inni. Hver er styrkleiki liðsins? „Kilmarnock-liðið er mjög sterkt og vel skipulagt, það sá ég í leiknum gegn Rangers, þegar þeir spiluðu við þá opnunarleikinn í skosku deildinni í Glasgow. Þó þeir hafi tapað Ieiknum 2-1, þá voru þeir sterkari aðilinn í upp- hafi leiksins gegn öllum stjörnun- um hjá Rangers. Rangers átti í miklum erfiðleikum gegn þeim og Kilmarnock var mun líklegra til að skora áður en Rangers tókst að skora fyrra markið gegn gangi leiksins. Þeir létu samt ekki slá sig út af Iaginu og tókst að jafna leikinn. Rangers tókst síðan strax að bæta við öðru marki og þá var eins og botninn dytti úr þessu hjá Kilmarnock. Þeir unnu síðan Aberdeen 2-0 í næsta Ieik, þannig að það er auðséð að þetta er mjög gott lið á evrópskan mælikvarða." - Spila þeir þennan dæmi- gerða skoska holta og hverjir eru þeirra skæðustu leikmenn? „Þeir spila 4-4-2 og leika þenn- an „týpíska" skoska bolta, sem einkennist af fastri vörn og löng- um sendingum á framherjana. Hinn 33 ára gamli Ian Durrant, sem kom frá Rangers í fyrra, er aðal heilinn á bak við spilið. Hann hefur verið að leggja upp mörkin og byggja upp flestar sóknirnar. Svo er það gamli markahrókurinn, Ally McCoist, sem einnig kom frá Rangers. Hann er svipuð týpa og Þjóðveij- inn Gerd Múller var á sínum tíma og stórhættulegur fyrir framan markið. Alls 355 mörk fyrir Rangers á fimmtán ára ferli með félaginu segja sína sögu. Hann hefur þann eiginleika að týnast í leikjum og þegar minnst varir sprettur hann upp fyrir framan markið." - Hver verður dagskipunin hjá þér? „Við munum eflaust byija á að stilla upp í 4-4-2 og síðan þreifa okkur áfram og sjá hvernig þeir munu Ieggja upp sinn leik. Við munum svo vinna út frá því, en reyna að spila okkar bolta sem við erum vanir og hefur reynst okkur best. Það verður örugglega ekkert gefið eftir og við munum mæta harðir til leiks og spila til sigurs.“ - Áttu von á miklum áhorf- endafjölda og góðri stemmningu á leiknum? „Ef við fáum gott veður eins og útlit er fyrir þá eigum við von á allt að 6000 áhorfendum í Laug- ardalinn. Á Watford-leikinn, sem var spilaður f Ieiðinda veðri, feng- um við rúmlega 4000 manns, svo það er raunhæft að áætla að þeir verði einhvers staðar á bilinu fjög- ur til sex þúsund í kvöld. Eg veit að KR-ingar og aðrir stuðnings- menn hafa mikinn áhuga á Ieikn- um, enda gott tilefni á 100 ára af- mælisárinu að sjá liðið spila í Evr- ópukeppninni. Það verður enginn svikinn af því að mæta á völlinn og ég get lofað hörkuleik. Það sama verður örugglega uppi á ten- ingnum hjá Skotunum, þeir taka þennan leik mjög alvarlega og hafa fjórum sinnum sent njósnara til að fylgjast með okkur spila. Eg á von á dúndurstemmningu á Ieiknum og upphitunin hjá okk- ur KR-ingum fyrir leikinn verður eins og okkur er einum Iagið. KR- klúbburinn verður á sinum stað á Rauða ljóninu bæði fyrir og eftir leik og einnig höfum við gefið út kynningarblað, sem dreift var í allan Vesturbæinn og á Nesið. KR-útvarpið, sem næst um allt Reykjavíkursvæðið, verður einnig með útsendingu, sem hefst þrem- ur tímum fyrir leik, þannig að það verður mikið um að vera.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.