Dagur - 12.08.1999, Side 9
Tfsyur'
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 - 9
t eignafólk
Thorsteinsson, Erna Finnsdóttir,
Garðar Halldórsson fv. húsa-
meistari, Harald Sveinsson,
Matthías Jóhannessen, Indriði
Pálsson, Jón Ingvarsson
(Granda), Páll Asgeir Tryggvason,
Sigríður Valdimarsdóttir, Sveinn
Valfells og Sveinn Eyjólfsson. í
þessum 170 manna hóp voru yfir
tveir tugir tekjulausir (útsvars-
lausir) og áttu því ónýttan per-
sónuafslátt upp í eignaksattana.
Tekjur og eignir fara ekki
saman
Hér að framan hefur skattskráin
einkum verið skoðuð út frá sjón-
arhóli eignaskattsins - en ennþá
fróðlegra er að skoða hana út frá
útsvarinu, þ.e. tekjum manna.
Degi telst til að nær 240 borgar-
búum sé gert að standa Reykvík-
urborg skil á 1 milljón í útsvar eða
meira, sem samsvarar 8,9 millj-
óna árstekjum, eða þar yfir, þ.e.
yfir 740 þús.kr. á mánuði. I þess-
um hópi eru aðeins 12 konur svo
karlarnir eru næstum 20-sinnum
fleiri.
Ríflega fjórðungur hópsins
borgar ekki eina krónu í eigna-
skatt. Athyglivert er, að aðeins ein
af konunum eru í þeim hópi, eða
8% borið saman við 28% karl-
anna.
70 yfir milljón á mánuði
Um 70 manns í hópnum höfðu
yfir milljón í tekjur á mánuði í
fyrra, þar af 5 konur. I þessum há-
launahóp ber hvað mest á banka-
stjórum, forstjórum stórfyrirtækja
ásamt nokkrum Iæknum, verktök-
um og skipstjórum. Athygli verkur
að „eignaleysið" grasserar ekki
síður í hópi þessa hátekjuaðals og
jafnvel enn frekar en meðal þeirra
iem aðeins hafa Iítið brot af laun-
inum. þeirra. Fjórðungurinn
borgar engann eignaskatt og að-
eins um fjórðungur virðist hafa
tekist að safna sér meiri eignum
en nemur svona einum árslaun-
um - sem þætti ekki merkilegur
sjóður meðal miðaldra lágtekju-
fólks. Ríflega þriðjungur hópsins
er fólk á sextugsaldri, álíka marg-
ir eldri en það, en tæplega þriðj-
ungur yngri, þeirra á meðal efni-
legur hópur sem enn eru undir
fertugu.
Nokkur þekkt nöfn eignalítilla
úr þessum hátekjuhópi eru rakin
hér annars staðar á síðunni. En
meðal eignamanna eru Gunnar I.
Hafsteinsson (34 m), Guðlaugur
Geirsson (72 m), Hörður Sigur-
gestsson (32 m.), Indriði Pálsson
(46 m) og Sverrir Sigfússon (43
m), en spurning hvort hægt er að
telja Sigurð Gísla Pálmason til
þessa hóps þrátt fyrir tæplega
23ja milljóna eignir.
Læknar fjölmemur í 10-12
m hópmun
Um fjórir tugir komust hérumbil í
milljónarhópinn, þ.e. höfðu tekj-
ur á bilinu 900 þús. - 1 millj. á
mánuði (milli 10,8 og 12 milljón-
ir á árinu). En kannski á hann eft-
ir að komast yfir milljónina, því
þetta er heldur yngra fólk, meiri-
hlutinn enn innan við fimmtugt
og fáir eldri en sextugir. Læknar
eru yfirgnæfandi stétt í þessum
hópi, eða næstum helmingur
þeirra sem Degi tókst að stétt-
greina. Meðal annarra þekktra
nafna eru t.d. Ágúst Einarsson í
Lýsi, Geir A. Gunnlaugsson,
framkv.stj., Gunnar Helgi Hálf-
dánarson (Landsbanka), Jóhann
Már Maríusson, verkfr., Júlíus
Vífill Ingvarsson og Már Elíasson,
hagfræðingur. Fáir þessara
manna virðast loðnir um lófana
og sumir eignalausir. Fjórðungur
þessa tekjuhóps er eignalaus, alls
65% með eignir undir 10 milljón-
um og aðeins tíundi hver á meira
en 20 milljónir.
EignaUtlir/lausir
forystusauðir
Á sjöunda tug manna var með
tekjur á bilinu 800-900 þús.kr. á
mánuði (9,6 til 10,8 milljóna árs-
tekjur). Um 3/4 þessa hóps er á
fimmtugs- og sextugsaldri og að-
eins tíundi hver hefur eignast
meira en 15 milljónir umfram
skuldir í eignum sem taldar eru
fram til eignaskatts. Læknar eru
einnig áberandi fjölmennir í þess-
um bóp, ásamt mörgum við-
skipta/hagfræðingum, slatta af
tækni/verkfræðingum og forstjór-
um og síðast en ekki síst tveim
stjórnmálamönnum; forsætisráð-
herra vorum Davíð Oddssyni
(með 890 þús.kr. mánaðartekjur
og 13,4 milljóna eignir) og Össuri
Skarphéðinssyni (með 848 þús.kr.
mánaðartekjur og eignalaus).
í hvað eyða memi 8-10
milljónum á ári?
Af öðrum frægum má nefna Ás-
mund Stefánsson, hagfræðing
(5,8 milljóna eignir), Daníel
Helgason, hagverkfræðing (eigna-
laus), Eystein Helgason, við-
skiptafr. (8,6 m. eignir), Hallgrím
B. Geirsson (21 m eignir), Hauk
Sævaldsson, tannlækni (18 m
eignir), Heimi V. Hannesson,
endurskoðanda (eignalaus), Jó-
hannes Nordal, fyrrv. seðlabanka-
stjóra (12 m eignir), Kristján
Loftsson (17 m eignir), Kristján
Ragnasson, LÍÚ (11 m eignir),
Ólaf Ragnarsson, útgefanda (13
m), Ólaf B. Thors (7,5 m), Pál
Sigurjónsson, verkfræðing (14 m)
og Þorstein M. Jónsson, fram-
kvæmdastj. (eignalaus).
Milljarðiir af 170 milljarða
eignum
Sem fyrr segir er 22 þúsund Reyk-
víkingum gert að greiða rúmlega 1
milljarð í eignaskatt. Það sam-
svarar skatti af 86 milljarða eign-
um umfram þá 82 milljarða sem
eru skattfrjálsir (3,7 m. á mann),
eða um 170 milljarðar. Gefum við
okkur að 62.000 eignaskattslausir
borgarbúar eigi 1,5 milljónir að
meðaltali (93 milljarða) gætu
nettóeignir borgarbúa numið
kringum 260 milljörðum (3 millj.
að meðaltali á hvern útsvarsgreið-
anda). Til samanburðar má benda
á að m.v. 8 miiljóna meðalverð á
43.000 íbúðum í borginni væru
þær 350 milljarðar að verðmæti.
Og 65 þúsund bílar eru varla
minna en 50 milljarða verðmæti,
en þá eru t.d. ótalin öll hlutabréf-
in og annað.
„Skattaskjól“
Þar erum við einmitt komin að
einu „skattaskjólinu“. Hlutabréf
eru nefnilega talin fram á nafn-
verði þótt raunvirði þeirra sé oft
margfalt (t.d. rúmlega 8-falt í
Eimskip). Húseignir eru líka tald-
ar fram á fasteignamati, en ekki
söluverði sem oft er miklu hærra.
Menn geta líka átt eignaskatt-
frjálsar innistæður í bönkum og
skattfrjáls spariskírteini ríkissjóðs
- sem „skattklókir“ menn kaupa
jafnvel í stórum stíl til að eiga
bara á gamlársdag og nýársdag.
Björgvin VHmundar-
son, 15,3 millj.
árstekjur.
Friðrik Pálsson, 12,5
millj. árstekjur.
Baldvin Tryggvason,
12,4 millj. árstekjur.
Sindri Sindrason, 15,8
miiij. árstekjur.
Sigurður Helgason,
14 millj. árstekjur.
Þórólfur Árnason,
13,2 millj. árstekjur.
„Fátækir6t með
ndlljón á mánuði
Um 70 emstaklingar í Reykjavík höfðu
hærri tekjur en eina milljón á mánuði á síð-
asta ári, flestir á sextugsaldri - 65 karlar og
5 konur. Næstum fjórðungur þessa hóps
horgaði ekki eina krónu í eignaskatt, annar
fjórðungur átti minna en 10 milljónir og 2
af hverjum þrem virðist ekki hafa tekist að
öngla saman einum árslaunum sínum. Nöfn
nokkurra þjóðþekktra úr þeim hópi getum
við séð hér fyrir neðan.
Laun yfir milljón ú múnuði:
Baldvin Tryggvas. fv. sp.sj.stj.
Bergþór Konráðs. Sindrastál
Benedikt B. Jónsson í Genf
Björgvin Vilmundarson
Eggert Þorfínnsson skipstj.
Friðrik Pálsson forstj. SH
Geir Magnússon forstj. Ol.fél.
Guðm. Vikar Einarsson lækn.
Guðm. Örn Hauksson SPRON
Hjörtur Á. Eiríksson VMS
Jón Adolf Guðjónsson bankastj.
Jón Þóroddur Jónsson verkfr.
Júlíus Valsson læknir
Karl Haraldsson læknir
Kristinn Björnsson forstj.
Magnús Skúlason
Óttarr Möller
Pálmar Guðm. húsasm.m.
Pálmi V. Jónsson læknir
Sigurður Helgason Flugleiðum
Sigurður Matthíasson þjálfari
Sigurður Sigurðss. framkv.stj.
Sindri Sindrason Pharmaco
Stefán Pálsson bankastj.
Sverrir Hermannss. fv.bankastj.
Sæmundur Haraldss. læknir
Tómas A. Tómasson hótelstj.
Tómas Sæmundss. skipstj.
Tryggvi Jónss. endurskoðandi
Vilhjálmur Jónsson fv. forstj.
Þorvaldur H. Gissurars. hús.sm.
Þórólfur Árnason verkfr.
Þröstur Sigurðss. viðskiptafr.
Árslaun: Eignir:
12,4 millj. 9,2 millj.
12,9 millj. 9,0 millj.
15,1 millj. eignaskattsl.
15,3 millj. 7,4 millj.
12,6 millj. 7,1 millj.
12,5 millj. 13,1 millj.
18,7 millj. 11,9 millj.
14,4 millj. 9,0 millj.
12,0 millj. eignalaus
13,5 millj. 9,3 millj.
13,3 millj. 9,5 millj.
18,6 millj. eignalaus
12,6 millj. eignalaus
18 millj. eignalaus
19,8 millj. 17,4 millj.
19,8 millj. eignalaus
15,3 millj. 16,6 millj.
17 millj. 13,9 millj.
12,4 millj. 4,8 millj.
14 millj. eignalaus
13,3 millj. eignalaus
19,7 millj. eignalaus
15,8 millj. eignalaus
14,9 millj. 10,4 millj.
15,1 millj. 8,2 millj.
12,7 millj. eignalaus
11,5 millj. 19,3 millj.
14,2 millj. 13,3 millj.
12,4 millj. 13,8 millj.
14,3 millj. 14,3 millj.
15,8 millj. 11,5 millj.
13,2 millj. eignalaus
13,5 millj. eignalaus