Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 11
FIMMTrUDAGUR 12. ÁG ÚST- .1.9^9 - 11
ry^tr
ERLENDAR FRÉTTIR
Ktrkjan hvetur Milo-
sevic að segja af sér
Stjómarandstöðima í
Serbíu muiiar mjög
iiiii stuðning rétttrún-
aðarkirkjunnar.
Serbneska réttrúnaðarkirkjan,
sem hefur yfirleitt verið treg til
þess að taka pólitíska afstöðu
gegn stjórnvöldum í Júgóslavíu,
sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar
sem Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu og Milan
Milutinovic, forseti Serbíu, eru
hvattir til að láta af embætti.
Þetta er í annað sinn sem kirkj-
an hvetur Milosevic til að segja
af sér.
I yfirlýsingunni segir að Milos-
evic og Milutinovic hafi leitt
hörmungar yfir þjóðina og þeim
beri báðum að segja af sér til að
„gera öðrum kleift að taka að sér
stjórn landsins eins fljótt og
hægt er og leiða þjóðina út úr
blindgötunni.“
Vegna þess hve mikil áhrif
kirkjan hefur í samfélaginu eyk-
ur þessi yfirlýsing mjög þrýsting-
inn á Milosevic um að segja af
sér. Æ fleiri Serbar virðast vera
að hallast á þá skoðun að með
ákvörðun sinni um að standa
gegn NATO frekar en að semja
við Kosovo-Albani hafi hann
kallað sprengjuárásirnar yfir
þjóðina, og stefnt henni í enn
meiri fátækt og einangrun á al-
þjóðavettvangi.
Mótmælaaðgerðir gegn Milos-
evic eru nú haldnar nánast á
hverjum degi víða í Serbíu og
greinilegt að óánægja lands-
manna með valdasetu hans vex
jafnt og þétt. Milosevic hefur
hins vegar Iátið þessi mótmæli
sem vind um eyru þjóta hingað
til og ríkisfjölmiðlarnir hamra
stöðugt á því að leiðtogar stjórn-
arandstöðunnar séu á mála hjá
Bandaríkjunum og NATO.
Pavle patríarki, yfirmaður rétt-
trúnaðarkirkjunnar, fór á mánu-
daginn á fund með helstu leið-
togum stjórnarandstöðunnar þar
sem þeir reyndu að fá hann til að
senda frá sér yfirlýsingu þar sem
hvatt er til afsagnar Milosevic,
sem hann síðan hefur nú gert,
tveimur dögum síðar.
Talið er að einhverjir fulltrúar
kirkjunnar, og hugsanlega Pavle
patríarki sjálfur, muni taka þátt í
mótmælafundi í Belgrað, höfuð-
borg Júgóslavíu, sem efnt verður
til f næstu viku. — GB
Wl
m
Hagnýtt nám til framtíðar í nútímaskóla.
Kennslan í dag byggir á að koma skólanum
og nemendum hans inn í 21. öldina.
Kennslan er í stöðugu endurmati og henni breytt í takt við
þróun tímans. Hin aukna tæknivæðing í sjávarútvegi er
höfð að leiðarljósi.
Markmið skólans er að útskrifa fiskiðnaðarmenn sem
geta tekið að sér gæða- verk- og framleiðslustjórnun.
Nemendum skólans hefur vegnað vel í störfum og margir
hafa unnið sig upp í toppstöður. Allmargir nemendur hafa
haldið áífam námi á háskólastigi.
Inntökuskilyrði hafa verið rýmkuð.
Almennt er gerð krafa um 52 einingar úr framhaldsskóla.
Almennt nám í Fiskvinnsluskólanum er 4 annir.
Námið er lánshæft.
Hvaleyrarbraut 13 220 Hafnarfírði
Sími: 565 2099 Fax: 565 2029 Gsm: 892 0030
Heimasíða: http://rvik.ismennt.is/~fiskvin Netfang: gislier@ismennt.is
Hundruð miUjóna fylgdust með
sólmyrkva
Hundruð milljóna manna í
Evrópu og Asíu fylgdust með
sólmyrkvanum í gær, þótt
reyndar víða hafi verið skýjað
og lítið að sjá. Umferðarteppa
myndaðist á nokkrum stöðum í
Evrópu vegna þess að mikill
fólksfjöldi streymdi á bifreið-
um sfnum og með almennings-
farartækjum þangað sem al-
myrkvinn sást og heiðskírt var.
Meðan almyrkvinn gekk yfir íranir fylgjast með sólmyrkvanum í
stöðvaðist nánast allt mannlíf í gasr.
nokkrar mínútur. I London var
gert stutt hlé á réttarhöldum til
þess að lögmenn og kviðdómarar gætu skroppið út að skoða myrk-
vann, en sakborningar fengu reyndar ekki að fara út. Og Jóhannes
Páll páfi tilkynnti manníjöldanum, sem safnast hafði saman til að
hlýða á vikulegt ávarp hans, að hann myndi stytta mál sitt að þessu
sinni svo fólki gæfist tóm til að fylgjast með myrkvanum.
écbarrte
árPVC-U
011 almenn
verkfæri
og tæki
Áhaldaleig
• Háþrýstidælur
• Jarðvegsborar
• Jarðvegsþjöppur
• Sláttuvélar og orf
• Kerrur
• Rafstöðvar
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is