Dagur - 14.08.1999, Blaðsíða 19
‘~£AbáARDÁGUR 14. Á<Gd§? rfa'9 - 35
Mikil óvissa var um
vegna undirskrifta-
söfnunar stuðn-
ingsmanna NATO.
Deilan um dvöl banda-
ríska hersins hér á landi
er ein sú hatrammasta sem íslenskt samfé-
lag hefur lent í og hefur hún tekið á sig
margar myndir, allt frá mótmælendaborð-
um á Almannagjá til gönguferða til Kefla-
víkur. En fólk hefur ekki einungis krafist
þess að herinn færi heldur hefur fólk
einnig krafist þess að herinn yrði kyrr. Sá
hópur sem barðist hvað harðast fyrir því að
herinn yrði kyrr kallaði sig „Varið land“.
Óvissa um NATO aðildina
I upphafi ársins 1974 var mikil óvissa um
framtíð Islands í NATO og dvöl bandaríska
hersins hér á landi þar sem þáverandi ríkis-
stjóm undir forsæti Ólafs Jóhannessonar
var með í stjómarsáttmála sínum að vam-
arsamningurinn við Bandaríkin átti að vera
tekinn til endurskoðunar eða til uppsagnar
í því skyni að herinn hyrfi frá Islandi. Ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna og fram-
kvæmdarstjóri NATO komu m.a. til Iands-
ins til að ræða þessi mál og sýnir það hve
alvara málsins var mikil.
Vegna Jiessarar óvissu sem var í varnar-
málum Islands á umræddum tíma voru
samtökin „Varið Iand“ stofnuð með það í
huga að beijast fyrir dvöl hersins í landinu.
Þeir sem voru m.a. í þessum samtökum
vom Jónatan Þórmundsson, Iagaprófessor,
Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi lagaprófess-
or, Þorsteinn Sæmundsson, stjömufræð-
ingur, Þorvaldur Búason, eðlisffæðingur,
Hreggviður Jónsson, fyrrverandi þingmað-
ur Borgaraflokksins, Ragnar Ingimarsson,
núverandi forstjóri Happdrættis Háskóla
Islands, Stefán Skarphéðinsson, fyrrver-
andi sýslumaður á Patreksfirði og Unnar
Stefánsson, núverandi rítstjóri Sveitar-
stjómarmála.
Víðtæk undirskriftasöfnun
„Varið land“ taldi að ríkisstjómin hefði ekk-
ert umboð ffá þjóðinni til að segja upp
varnarsamningnum við Bandaríkin og
krefjast brottfarar hersins þar sem að
þeirra mati hefði ekki verið kosið um vam-
armálin í kosningunum árið 1971.
Því ákvað „Varið Iand“ í upphafi ársins
NATO aðildina árið
1974 og harðar
deilur spruttu
Fpiörik Þor
Guðmundsson
skrifar
Víðtæk undirskriftasöfnun samtakanna „Varið land“ urðu kveikjan að einu frægasta meiðyrðamál seinni
ára vegna greinaskrifa Þjóðviljans sem þá var undir ritstjórn Svavars Gestssonar. Hér má m.a. sjá Þór
Vilhjálmsson, fyrrverandi lagaprófessor og Þorsteinn Sæmundsson, stjörnufræðing, en þeir voru báðir í
samtökunum „Varið land".
1974 að standa fyrir víðtækri undirskrifta-
söfnun til að mótmæla þeim kröfum sem
vom uppi um uppsögn vamarsamningsins
og brottvísun vamarliðsins. Var öllum ís-
lenskum þegnum 20 ára og eldri boðið að
undirrita áskorunina. Undirskriftasöfnunin
gekk vel og alls undirrituðu 55.522 at-
kvæðisbærir Islendingar áskorunina.
Núverandi ræðismaður
íslands í Kanada var ritstjóri
Stuttu eftir að undirskriftasöfnunin var
hafin birtust þijár greinar í Þjóðviljanum
þar sem söfnunin og aðstandendur hennar
voru gagnrýndir harðlega. Greinarnar skrif-
aði þáverandi blaðamaður Þjóðviljans, Ulf-
ar Þormóðsson, og voru þær merktar með
stöfunum -úþ. Ymislegt í greinunum fór
fyrir brjóstið á mönnunum í samtökunum
„Varið land“ og fóru þeir í meiðyrðarmál
við Ulfar en til vara var farið í mál við Svav-
ar Gestsson, fyrrverandi alþingismann og
núverandi ræðismann Islands í Kanada, en
á þessum tíma var Svavar ritstjóri og
ábyrgðarmaður Þjóðviljans.
Watergatevíxill
og mannvitsbrekkur
Ummælin sem um var deilt voru af ýmsu
tagi en m.a. voru aðstandendur undir-
skriftasöfnunar kallaðir „fallkandidatar“ og
land“
„bittlingameistarar". Þeir voru einnig
nefndir sem „hópur mannvitsbrekkna“ og
„landvamarmenrí'. Askorunin var kölluð
„Watergatevúáir og undirskriftasöfnunin
var nefnd sem „mestu persónunjósnir sem
tíðkast höfðu hérlendis“ þar sem úrvinnsl-
an var unnin í tölvu en tölvuskrá var gerð
eftir heimilisföngum þeirra sem skrifuðu
undir og borin saman við íbúaskrár. Gagn-
rýnt var í greinunum að „næsta ómálga
börn hefðu verið send með Watergatevíxil-
inn milli íbúða“ og „gengið hefði verið
meðal sjúklinga og beðið um uppáskrift á
vmlinn“.
í hita pólitískrar umræðu
Aðstandendum undirskriftasöfnunarínnar
fannst freklega að sér vegið og kröfðust
m.a. ómerkingar á ummælunum, refsingar
og miskabóta. En hinir stefndu, Ulfar og
Svavar, töldu að ummælin hefðu verið við-
höfð í hita pólitískrar baráttu og væru inn-
an tjáningarfrelsis sjómarskráinnar. Einnig
hefði ekki verið sveigt á niðrandi hátt á
persónulegum eiginleikum einstakra
manna heldur aðeins áfellst á tæpitungu-
lausan hátt á hið pólitíska atferli hópsins.
Yrðu að þola harkalegri umræðu
Héraðsdómur byijaði á því að benda á að
ábyrgðin á greinunum væri á Ulfari Þor-
móðssyni þrátt fyrir að aðeins upphafsstafir
hans væm undir greinunum enda sætti
það engum ágreiningi hjá aðilum málsins.
Abyrgð Svavar Gestssonar kom því ekki til
skoðunar í héraðsdóminum.
Héraðsdómur tók fram í forsendum sín-
um að vamarsamningurinn hefði verið eitt
aðalátakamál íslenskra stjómmála allt frá
því hann var gerður árið 1951 og hefðu því
aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar
mátt vita að framtak þeirra hlyti ámæli
andstæðinga herdvalarinnar. Meðal annars
vegna þessa taldi héraðsdómurinn að að-
standendur söfnunarinnar yrðu að þola
harkalegri umræðu en venjulegt mátti telj-
ast og þótti því ekki rétt að sekta Úlfar fyrir
ummælin. Dómurinn taldi ekki heldur vera
gmndvöll lyrir skaðabótum í málinu.
Svavar sekur en Úlfar sýknaður
Hins vegar komst héraðsdómurinn að
þeirri niðurstöðu að flest ummæli bæri að
ómerkja þar sem þau væm notuð á óviður-
kvæmilegan hátt og sum þeirra væru niðr-
andi og móðgandi. Héraðsdómurinn
dæmdi því Úlfar til að greiða 80.000 krón-
ur í málskostnað. Sömuleiðis átti Úlfar að
sjá um að dómurinn yrði birtur í næsta
tölublaði Þjóðviljans eftir dómsuppsöguna.
Hæstiréttur staðfesti héraðsdóminn hvað
varðaði ómerkingu ummælanna en hins
vegar tók hann aðeins öðruvísi á málinu
hvað varðaði aðra þætti þess. Hæstiréttur
taldi að Úlfar Þormóðsson gæti ekki verið
ábyrgur fyrir greinunum, sem hann þó við-
urkenndi að hafa skrifað, því samkvæmt
lögum um prentrétt bar höfundur aðeins
ábyrgð hafi hann nafngreint sig. Skamm-
stöfunin -úþ var ekld talin næg nafngrein-
ing að mati Hæstaréttar og því féll ábyrgð-
in á ritstjórann, sem var Svavar Gestsson,
en Úlfar var algjörlega sýknaður.
Refsing ákveðin
Hæstiréttur var sammála héraðsdóminum
um að ekki væri grundvöllur lyrir miska-
bótum. Olíkt héraðsdómi komst Hæstirétt-
ur hins vegar að því að sum ummælin töld-
ust til refsiverða móðgana. Svavar var því
dæmdur í 20.000 króna sekt. Svavar var
einnig dæmdur til að greiða stefnendunum
25.000 krónur svo þeir gætu kostað birt-
ingu dómsins í opinberum blöðum. Sömu-
leiðis átti Svavar að birta dóminn í næsta
tölublaði Þjóðviljans. Að lokum bar Svavari
að greiða 200.000 krónur í málskostnað. I
sératkvæði með dóminum vildu tveir dóm-
arana af fimm einnig dæma Svavar til að
greiða skaðabætur en þeir tóku ekki af-
stöðu til upphæðarinnar.
Mektarbóndinn. I síðstu viku veittu
Norrænu bændasamtökin sunnlensk-
um mektarbónda verðlaun fyrir að
hafa í senn verið bóndi og starfað
jafnframt að félagsmálum og fræða-
störfum, enda er hann vel þekktur á
þeim vettvangi. Sést Ari Teitsson hér
veita verðlaunin, en hver er bóndinn
sem tekur á móti þeim?
Vilhjálmur. Einn allra dáðasti söngvari
íslendinga fyrr og sfðar er Vilhjálmur
Vilhjálmsson. Með hvaða hljómsveit
söng hann þegar hann hóf sinn feril í
tónlistinni árið 1965?
Togar á hlið. Undarlegir atburðir tóku
að gerast í Hafnarfjarðarhöfn fyrr í vik-
unni þegar torgari fór þar á hliðina og
maraói í hálfu kafi. Hver er togarinn og
í eigu hvaða útgerðarfyrirtækis er
hann?
Fegðarnir. Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra sækir sinn pólítíska
áhuga vafalftið til föður sfns, Matthías-
ar Á. Mathiesen, sem f áratugi var
þingmaður Reyknesinga. Hvaða ráð-
herraembættum gegndi Mattías á sfn-
um pólítíska ferli og hvaða menntun
hefur Árni, sonur hans?
Fulltrúar atvinnulífsins. Nýjir for-
ystumenn Samtaka atvinnulífsins eru
þeir Ari Edvald, sem verður fram-
kvæmdastjóri og Finnur Geirsson, sem
verður formaður samtakanna fyrst um
sinn. Hvaða blaði ritstýrir Ari nú um
stundir og hvaða starfi gegndi Ari þar
áður, - og hverra manna er Finnur
Geirsson og hvaða fyrirtæki stýrir
hann f dag?
LAND OG
ÞJÚD
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
1. Sigurður Einarsson er forstjóri Kaup-
þings. Hver var faðir hans, þjóðþekktur
maður á sinni tíð?
2. Hvaðan af landinu kemur sú fræga
hljómsveit BG, þar sem í fylkingarbrjósti
var söngkonan Ingibjörg, sem frægust
varð fyrir lagið Þín innsta þrá?
3. Hvenær varð síðasta Kötlugos?
4. Við hvaða fjörð vestra er á þremur
stöðum þar sem heitir Kirkjuból?
5. Hvað heitir það leikrit Ragnars Arn-
alds sem á dögunum vann til fyrstu
verðlauna í leikritasamkeppni þeirri
sem Þjóðleikhúsið efndi til?
6. Öll sveitarfélög í Vestur-Húnavatns-
sýslu hafa nú verið sameinuð undir einu
nafni. Hvert er það?
7. Hver var það sem skráði viðtölin í
bókunum Aldnir hafa orðið, sem komu
út í alls átján bindum?
8. Hvað heitir leiðin sem liggur um
þjóðveginn úr Ljósavatnsskarði og
norður í Grýtubakkahrepp?
9. Hvar á landinu eru eru eftirtaldir
bæir; Voðmúlastaðir, Búland, Bólstaður,
Miðhjáleiga og Sel?
10. Hvað heitir staðurinn við utanverðan
Seyðisfjörð eystra þar sem fornleifa-
rannsóknir hafa verið stundaðar síðustu
sumur, með þeim árangri að þar hafa
meðal annars fundist rústir stafkirkju
og nú síðast mannabein?
•jjQBissupBJOc) '01 •iunMapuB'1-jnisnv ] '6 'iuuXujsibq g uos
-spjAea jnGui|J3 l bjisba 6u|cjeunH ’9 uujqqBJiipuBi g ipjjpBunpuo j 'k '6S61 PMB !Ptg[s|BpjX|/\| Jipun qiqjo gsq so6bujs ps jb q!|bj ixibs ss9C| ^ns ‘8161 Púb pJBA so6n|jox bjsbqjs 'E '!PJ!JBS| bjj z 'njpQWUBCI! spuB|S| Bjjaqipuas JBug jba jsb
-P!S '08611!1 296! su!s>p!0|j jnpsujJOjBJBA 6o 626! I!i £961 PJJ su|s>(>íoÍjjbu>(osujbj3 jnpBui6uicj jba uias ‘jBuossjsnGy sjBug jnuos ja uossjBuig jnpjn6(s 'f 'npujauoAs jBUunp|/fo|S|Qfj uag h n6ja i ja !>(æ]p2j pecj ua ‘snpjs-BPN p9fjsBpujæA>|
-uibjj ja ‘Bjjaqppjsijæsjoj ‘jbuossuiij6||bh supiaq J^ag jnuos ja uias ‘uossjjaQ jnuujj 'nu!jAaunpBJsGaAjnjBAp[s jbqÍs Go -B|Buisuiop j jsjAj ‘jBuossiBd sujajsjocj jnpBuuBpojspB iGua| uusq jba jnpp ua ‘su!spB|qBjd!>(sp!A jjofjsjp nu ja p|BApg
MV , 'juuaui qb J|u>(æ|BjAp ja jujy BjjaqpBjnGuoGuJBS 6o -sjjjjjuBjn ‘-BjdiJispjA '-b|buub[j uinuis ipaj uin6uo| p jba sbjcjjjbj/\j , jq edjjjsiejs n6|9 i ja 6o jjuja ja uuub6oi , jBpAg sjeiuj6u| jjaASuipfiH . bqh i xjApuBS-nun j ipuoq uosspAq nBd ,