Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 3
YFIRLITSSÝNING Á VERKUM ÞÖRARINS B. ÞORLÁKSSON AR Reykjavík — OÓ Yfirlitssýning á verkum Þórar ins B. Þorlákssonar, listmálara, verður opnuð í Lstasafni íslands í dag. Er sýningin haldin í tilefni 100 ára ártíðar listamannsins, en í dag er öld liðin frá fæðingu hans A sýningunni eru alls 133 mynd ir, Eru nokkrar þeirra í eigu Listasafnsins, en flestar eru fengn ar að láni frá nær 50 aðiium. Eru það myndir sem ýmist eru í einkaeign eða í eigu stofnana. Þau er annast hafa útvegun mynd anna og uppsetningu sýningarinn ar eru dr. Selma Jónsdóf.tir og Þóra Kristjánsdóttir og málararn ir Þorvaldur Skúlason ög Jóhann es Jóhannesson. Kl. fjögur í dag .mun Gylfi Þ. Gíslason menntamálaiáðherra | opna sýninguna að viðstöddum i boðsgestum og klukkutíma síðar verður hún opnuð almenningi. Mikið hefur verið haft fyrir að ná saman svo mörgum myndum. eftir Þórarinn sem þarna eru sýndar og ætti fólk ekki að láta þetta tækifæri til að fá heild arsýn yfir starf þessa merka mál ara fram hjá sér fara. Sýningin verður opin um þriggja vikna skeið og er sýningartími daglega frá kl. 13,30 til kl. 22 að kvöldi. í tilefni afmælisins hafa börn listamannsins gefið Listasafninu mynd eftir föður sinn. Er hún af fánanefndinni sem starfaði á árunum 1913—24, en Þórarinn átti sæti í henni. | Gefin hefur verið út einkar i vönduð sýningarskrá og þar rit ar dr. Selma Jónsdóttir um lista ! manninn. Er þar tekið fram að fyrsta íslenzka málverkið sem Listasafn íslands eignaðist sé Án ing eftir Þórarinn, en nokkrir Reykvíkingar gáfu safninu mynd ina árið 1911. Þá segir m.a í grein Selmu. „Þórarinn gaf okkur eitthvað nýtt. íslenzkt landslag fyrst málað og séð af íslenzkum listamanni. Hann málar íslenzkt landslag, en hann stælir það ekki. Það er oft erfitt að sjá hvaðan mynd ir Þórarins eru, því hann bætir inn fjöllum. múlurn, vötnum og ám, vegna málverksins. Sem sann Framhald á 14. síðu. Stúlka við glugga nefnist þessi mynd eftir Þórarinn. Er hún mál_ uð um aldamótin. — Mér 'þykir sérstaklega vænt um að þessi sýning skuli vera sett upp, sagði Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, þegar hann var að virða fyrir sér yfirlitssýningu á verkum Þórarins B. Þorláksson- ar í Listasafni íslands í gær. rækt við okkur. Flatarmáls og rúmmálsteikningu kenndi hann í stofunum niðri. Tímarnir 'hjá Þórarni voru eina listkennslan sem ég fékk áður en ég hélt ut- an til fr'ekara listnámis og sú Framhald á 15. síðu. — Þórarinn var minn fyrsti teiknikennari og þar með fyrsti kennari minn 'á listabrautinni, og er hann mér ávallt sérstaklega minnisstæður, enda er hann ein- hver skemmtilegasti kennari sem ég hef nokkru sinni haft. Hann kenndi heiðarlega og vildi að við leystum verkefnin og ynnum úr þejm. Nemendurnir komust ekki upp með að skila hálfkláruðum verkum. — Ég byrjaði að læra teikn- ingu hjá Þórarni 1915 og var hjá honum í þrjá vetur. Það var í Iðnskólanum, en þar kenndi hann t-eikningu í fjölmörg ár. Ég var að læra tréskurð og þurfti að læra fríhendisteikningu sér- staklega. Til þeirrar kennslu hafði Þórarinn litla stofu uppi á lofti í skólanum og voru þar fáir nemendur og lagði hann sérstaka ■«- Börn Þórarins B. Þor iákssonar gáfu Lista- safninu mynd eftir föður sinn í tilefni 100 ára ártíðar lians. Myndin eraf fánanefndinni, en lista- maðurinn var einn nefndar- manna. Hér standa dætur Þór arins, Guðrún og Dóra við myndina. Neðri myndin er einnig- af þeim systrum. Nefn ist hún Guðrún og Dóra í heyvinnu og er máluð af föð ur þeirra árið 1909 Myndir Bjarnleifur. ■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■B ; Þórarinn B. Þorláksson er ■ fæddur 14. febrúar 1867 að j Undirfelli í Vatnsdal. Dvaldi : æskuárin hjá Birni bróður ; sínum að Stafholti í Borg- • arfirði. Fór til Reykjavík- ; ur 1885 að nema bókband. ■ Lauk námi í þeirri iðngrein • 1887. Veitti forstöðu bók- ; bandsstofu ísafoldarprent- j smiðju 1887-1895. Fór til ■ Kaupmannahafnar á þeim ; árum í nokkurra mánaða : námsför. Fór síðan aftur til ; Kaupmannahafnar 1 1895 og ; stundaði þar myndlistar- \ nám í 7 ár, fyrst á Listhá- : skólanum, síðan í einka- ■ skóla. Kom heim 1902. f Kvæmtist Sigríði Snæ- : björnsdóttur 1903. Nokkurra : mánaða námsdvöl í Kaup- ; mannahöfn 1904, vegna und ■ irbúnings undir kennslu,- : störf. Teiknikennari við ■ Iðnskólann frá stofnun haiis ; 1904 og forstöðumaður sk<^l Í ans 1916—1923. Rak bóka- ■ og ritfangaverzlun frá 191.2 ; til dauðadags. Stofnaði Lisjt f vinafélagið árið 1916 ásamt : Framhald á 15. síðu. 14. febrúar 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.