Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 10
Um tima leit út fyrir, aö FH myndi slá
Það var oft mikið Ííf á línunni í leik FH og Honved bér horfa margir löngunaraugum til boltans, ekki
vitum við hvort Árni náði honum, '
; 1Q 14. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tekst Fram aö sigra
Honvéd í kvöld ?
í kvöld ki. 20,15 leika Reykja-
víkurmeistarar Fram við ung-
versku meistarana í handknattleik.
Honved frá Búdapest. Leikurinn
verður vafalaust mjög spennandi
og ekki er að efa, að Framarar
gera allt til. að sigra Honved.
Lið Fram i; kvöld skipa: Guð-
jón Jónsson, Gunnlaugur Hjálm-
arsson, Pétur Böðvarsson, Þor-
steinn Björnsson, Halldór Sigurðs
son, Tórnas Tómasson, Sigurður
Einarsson, Sigurhergur Sigurðs-
son, Gylfi Jóhannsson, Ingólfur
Óskarsson, Arnar Guðlaugsson og
Hjnjfik Einarsson,
úrslitaliðið í fyrra út úr keppninni
Sjaldan eða' aldrei hefur ríkt
jafn mikil spenna fyrir nokkrum
kappleik milli íslenzks félagsliðs
annars vegar og erlends liðs hins
vegar, eins og fyrir leik F.H. 0!g
j HONVED í Evrópubikarkeppninni.
jstrax upp úr hádegi á sunnudag
' var uppselt og um það leyti er
, leikurinn átti að hefjast voru fleiri
hundruð manns fyrir utan íþrótta-
höllina í Laugardal í þeirri von
að komast inn. Þeir 3 þús. áhorf-
endur, sem inn komust fengu líka
mikla skemmtun fyrir peningana
sem í miðana var lagt, því þarna
fór fram einn sá bezti leikur sem
sést hefur hér á landi í handknatt
leik. íslandsmeistarar F.H. lyftu
merki íslenzks handknattleiksliðs
hátt á loft og sigur þeirra yfir
þessu ungverska liði, er án efa
langstærsti sigur sem íslenzkt
félagslið hefur unnið. Til þess að
hljóta áfarmhald í Evr.b.keppninni
þurfti F.H. að sigra með átta mörk
um og vissulega munaði ekki
miklu að svo færi, en þrátt fyrir
að F.H. fellur nú úr keppninni,
eru allir sammála um það að fé-
lagið hafi staðið sig með hinni
mestu prýði, því 19:14 sigur yfir
svo sterku liða sem HONVED er
jú ekkert smáræði.
★ Fyrri hálfleikur 11:7
Eftir að fyrirliðar höfðu heils-
ast og skipst á gjöfum hófst leik-
urinn og var það F.H. sem byrj-
aði með knöttinn og ekki leið á
löngu þar til Örn Hallsteinsson
lék á varnarmann Honved oig skor-
aði laglega. Aftur tveim mín síð-
ar er Örn enn að og skorar úr
upphoppi 2:0. Nokkur tími líður
án þess að mark komi en þá skor-
ar hinn ungi VARGA fyrsta mark
HONVED, en á sömu mínútu skor
ar Örn fallega og staðan er 3:1.
Nú líða fimm mín. án þess að
mark verði skorað, en á 12. mín.
skorar Ragnar og stuttu síðar bæt
ir hann öðru við og er nú staðan
5:1 og áhorfendur komnir í igott
skap. En Ádam var ekki lengi í
Paradís og næstu þrjú mörkin
koma frá HONVED, en þau skora
KORVACS 2 og ADORJAN eitt.
Á 20. mín. skorar Jón Gestur úr
hröðu upphlaupi, en FENYÖ, sem
Örn gætti mjög vel er allt í einu
orðinn frír og skorar, brotið er
á Jóni Gesti og úr vítakastinu skor
ar Páll örugglega, VARGA minnk-
ar muninn. Nú kemur góður kafli
hjá F.H. og á fjórum mín. skor-
ar F.H. — fjögur mörk, en þau
igerðu Páll 2 annað úr vítakasti,
er brotið var á Auðunni og svo
skoruðu bræðurnir Örn og Geir
sitt markið hvor og staðan var
11:6. En á síðustu sek. skorar
KOVACS úr vítakasti og var stað-
an þvi 11:7 í hálfleik.
★ Síffari hálfleikur 8:7
Örn byrjar að skora í þessum
hálfleik, en Kovacs minnkar mun
inn, þá skorar Bii-gir úr hröðu
upphlaupi og skömmu síðar skor-
ar hann aftur og nú með því að
leggja sig framhjá varnarmönn-
um HONVED. VARGA skorar
næst úr vítakasti, en Árni Guð-
jónsson bætti marki við fyrir
F.H. Þá er aftur dæmt víti á F.H.
og Varga skorar enn. Næstu tvö
mörkin koma frá Páli annað úr
viti, en hitt skorar hann laglega
úr homi ög er nú staðan 17T0 og
Framhald á 15. síðu.
12 JAFNTEFLI
í 2. DEILD
Þrír leikir fóru fram í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik
fyrir hel'gina. Á föstudag voru
leiknir tveir leikir í Laugardals
höllinni og lauk báðum með jafn-
tefli ÍR-ÍBK 22:22 og KR-Þrótt
k|r .20:20. Á laugardag sigraði
síðan KR ÍBK á Akureyri með
29:14. Staðan í 2. deild er nú þann
ig, að KR hefur 8 stig í 5 leikj-
um, ÍR 5 stig (4), ÍBK 4 (4), Þrótt
ur 3 (3) og ÍBA 0 stig 1 4 leikj-
um. Segja má því, að enn eigi
fjögur lið möguleika á sigri í 2.
deild.