Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 14
Ekið á hest
Framhald af 1. siðu.
sem var að fara fram úr
þeim. Stökk hann þvert yf-
ir veginn og lenti þá fram-
an á taíl sem kom á móti
Reiðmaðurinn kastaðist
fram af hestinum og lenti
á þaki bílsins og dældaði
það miltið. Þaðan féll hann
aftur fyrir bílinn og á göt-
una. Hesturinn dældaði bíl-
inn mikið að framan, sér-
staklega vélarhlífina. Er bíll
inn brotinn að framan og
dældaður ofan og illa útlit-
andi eftir áreksturinn, en
var þó ökufær eftir.
Varla sá á hestinum eða
manninum sem á honum
sat og reið sá síðarnefndi
hinum fyrrnefnda í bæinn
aftur. Tveir menn voru í
bílnum og meiddist hvorug-
ur þeirra, jafnvel þótt fram
rúðan hafi brotnað af mikl-
um krafti inn á þá.
Mótmælðr
Framhald af 1. síðu.
félagsins, en fundarritarar Hall
grimur Pétursson og Málfríður
Siefánsdóttir
Framsögu hafði Hermann Guð-
mundsson. Formaðgur Hlífar. Auk
haris tóku til máls Vilhjálmur
Skúlason, Hjörleifur Gunnarsson,
Kristinn Gunnarsson, Ár-ni Gunn
Iaugsson, Stefán Jónsson, Rrvnjólf
ur Þorbjarnarson, Markús Þor
geirsson, Sigmundur Björnsson,
Guðlaugur Bjarnason, Sigurrós
Sveinsdótlir og Bjarni Jónsson,
Fundurinn stóð frá kl. 2 síðdeg
is til 8,30. Voru simþykktar ein
róma nokkrar ályktanir þar á með
al þessi.
Sameiginlegur fundur V.K.F.
Framtíðarinnar, Sjómannafélags
Hafnarfjarðar og Vmf. Hlífar
haldinn 12. febrúar 1867, mótmæl
ir eindregið öllum fyrirætlunum
meirihluta bæjarstjórnar um að
loka, leigja eða selja Bæjarútgerð
ina einkaaðilum. Þá mótmælir
fundurinn harðlega fyrirhugaðri
söiu á Maí togara Bæjarútgerð
arinnar svo og þeim aðgerðum
sem valdið hafa því að fr.vstihús
Bæjarútgerðarinnar hefur verið ó
starfhæft og þar með hafnfirskur
verkalýður sviftur virinu samanber
löndun úr togaranum Röðli í
Reykjavík nú fyrir skemmstu og
vinnslu aflans þar.
Itrekar fundúrinn og undirstrik
ar ályktun hins almenna horgara
fundar sem haldinn var í Bæjar
bió 24. okt. sl. þar sem skorað
v:r á meirihluta bæjarstjórnar að
endurskoða ákvarðanir sínar um
að leggja niður Bæjarútgerð Hafn
arfjarðar og í stað slíkra aðgerða
að vinna að eflingu hennar og
f-'-'i'a rekstur hennar í nýtízku horf
þar sém það eitt er í samræmi
V'ð hagsmuni hafnfirskrar alþýðu
og bar með bæiarfélagsins í heild.
Þá var bessi álvktun einnig
gefð: ..Fundur haldinn í verka-
kvennafélaeinu Framtíðin. Sjó-
rrnnnafélagi Hafnarfiarðar og
verkamannaféiaeinn Hlíf skorar á
núverandi siávarútvegsmálaráð-
berrá. Eegert G. Þorsteinsson að
þ-inn sem siávarútvpgsmálaráð-
berrá, beiti ncitunarvaldi sfnu, ef
það skyldi koma fyrir, að núver
andi bæjarstjórnarmeinhluti ósk
aði eftir því við ráðherra að fá
leyfi til að selja bv. Maí úr landi.“
VlðræÓur
Þjónustukönnuninni að Ijúka,
- úrvinnsla hefst innan skamms
Framhald af 1. síðu.
irbúa verði slíka ráðstefnu ræki-
lega.
í yfirlýsingunni segir hins veg-
ar að ráðagerðir séu á prjónun-
um um nánari samskipti Breta og
Rússa í verzlun, visindum og á
fleiri sviðum. Wilson ræðir síðar
við ICosygin í Moskvu, og George
Brown fer í sex daga heimsókn
til Moskvu 19. maí.
í tilkynningunni segir, að brezk
ir og sovézkir embættismenn muni
bráðlega ræðast við til að kanna
möguleika á undirritun vináttu-
og samstarfssamningi en ekki er
minnzt á tillögu Kosygins um
griðarsamning. Fyrsta áþreifan-
lega vísbendingin um bætta sam-
búð Rússa og Breta er sú að tek-
izt hefur að ná samkomulagi um
ýmsar fjárhagskröfur, aðallega í
sambandi við innlimun Eystrasalts
landanna í Sovétríkin. Þá hefjast
bráðlega viðræður um verzlunah-
samninga til langs tíma, aukin
samskipti 'á sviði iðnaðarmála,
tæknimála og menningarmála, svq
og um bættar flugsamgöngur.
Yffírlýsing
Framhald af 3. síðu.
ur listamaður hugsar hann fyrst
og fremst um málverkið og þörf
þess, hann byggir upp myndina
í því augnamiði að hún verði
honum inspírasjón Hann hefur
yndi af heiðríkjunni og kyrrðinni
tæru andrúmslofti og litum jarð
ar. Það má finna að með hverju
ári verður litskynjun Þórarins rík
ari og næmari og hann fer þannig
með litinn, að hvert tilbrigði hans
er notað sem meðal til að ná heild
arverkun í myndina.
Þórarinn hlýtur að lieyra til nat
: uralismans. Það er nafn á lista
I stefnu, en það er hvorki stefnan
eða nafn hennar sem gildir, það
sem skiptir máli, er hvort málar
inn er listamaður eða ekki, og
Þórarinn var listamaður.
Þórarinn var að eðlisfari lilé
drægur. og má vera að það hafi
-'aldið nokkru um að hann varð
ekki í lifenda lífi svo þekktur
sem skyldi Nú hin síðari ár hef
ur hróður hans farið vaxandi og
marigir hinir yngri listamenn okk
ar hafa fengið mikinn áhuga fyrir
list hans. Þórarinn var á. sínum
tíma brautryðjandi í- ísienzkri
rovndlist og áhrif frá list hans eru
raunverulega miklu meiri en menn
hafa almennt gert sér grein fyrir.
íslenzk skáld nítjándu aldar
sungu fegurð íslenzkrar náttúru
inn í okkar þjóðarsál, en Þórarinn
B. Þorláksson varð fyrstur ís-
lenzkra málara til að sýna okkur
þessa sömu fegurð í málverkinu.
L@fffárásir
Framhald af 2. síðu.
sagði hann er hann gerði Neðri
málstofunni grein fyrir viðræðum
sínum við Kosygin.
Hanoiútvarpið hermdi í dag, að
Ho Chi Minh forseti hefði beðið
Pál páfa um aðstoð til að binda
endi á Vietnamstríðið. Hann for-
Þátttaka í þjónustukönnun Neyt
endasamtakanna hefur verið góð,
og mun betri en ýmsir höfðu
spáð. Hefur hún þegar náð því
marki, sem stjórn samtakanna
setti sem lágmark, til þess að
hægt væri að birta niðurstöður
könnunarinnar. Neytendasamtökin
í Bandaríkjunum hafa í áratugi
haft hliðstæðar kannanir árlega.
og hafa svörin orðið flest um
10% af útsendum eyðublöðum.
Það var sett sem lágmark hér,
og liefur það einmitt náðst.
Fleiri svör mjög æskilég,
Þrátt fyrir það eru það ein
dregin tilmæli Neytendasamtak
anna til allra þeirra, sem Neyt
endablaðið hafa með höndum, að
þeir sendi svör sín hið allra
fyrsta, svo að þau nái að styrkja
og breikka enn þann grundvöll,
sem niðurstöðurnar verða byggðar
á. Vegna fámennis þjóðarinnar,
en þó fjölbreytni heimilistækja, er
brýn nauðsyn, að svörin verði
sem flest að tölu. Neytendasam
tökin íslenzku eru margfaidlega
liin fjölmennustu í heimi miðað
við fólksfjölda, en um leið hin
fámennustu að höfðatölu.
Fulltrúar á síðasta þingi Al-
þýðusambandsins og kennarar
um land allt, sem blaðið var
sérstaklega sent til eru eindregið
hvattir til að leggja þessu hags
munamáli alþjóðar lið með þátt
töku sinni en tilgangur þjónustu
könnunarinnar er sá einn að
auka öryggi til handa neytendum
og í þessu tilfelli sérstaklega þeim
sem kaupa og nota heimílistæki,
sem ætlað er að gegna mikilvægu
hlutverki um langt árabil á hverju
heimili.
Þeir sem ekki hafa fengið Neyt
endablaðið en gerast félagsmenn
næstu daga, fá það sent um hæl
í pósti og gætu þá tekið þátt í
könnuninni. Iinnritunarsímar Neyt
endasamtakanna eru: 19722 og 21
666.
Af hverju þessi tími var valinn.
Rétt þykir nú að skýra trá því
af hverju annatíminn fyrir jólin
var valinn Það þótti ýmsum ó-
hyggilegt með tilliti til, þátttöku
Ástæðan var sá, að könnuninni
var ætlað að hafa áhrif þpgar í
VERKFRÆÐIRÁÐUNAITTAR:
. Gísli Guðmundsson mælti í
gær fyrir frumvarpi, sem hann
flytur um verkfræðiráðunauta
ríkisins á Norður- og Austur-
landi. Frumvarp þetta hefur
hann áður flutt á alþingi.
dæmdi Bandaríkjamenn fyrir nap-
almsprengju- og eiturefnahernað-
gegn vietnömsku þjóðinni og sagði-
að áður en friðarviðræður gætu
hafizt yrðu þeir að hætta loftárás
um og öllum stríðsaðgerðum gegn
Norður-Vietnam. Boðskapur Hos-
var svar við friðaráskorun Páls
páfa til forseta Bandaríkjanna og
Norður- og Suður-Vietnam.
upphafi með því að fara fram
einmitt á þeim tíma, sem flest
kaup eru gerð á þessum hlutum
Þess vegna var minnt á þjónustu
könnunina með auglýsingum í út
varpi og á annan liátt nær daglega
allan nóvember og fram að jólum
En það sem nuinað hefur i þátt
töku vegna jólaanna er nú. hægt
að bæta upp næstu viku.
NÝ HLJÓMPLATA:
STEINN STEINAI
LES EIGIN
í dag sendir hljómplötufyrirtæk
ið SG-hljómplötur frá sér nýja
hljómplötu, sem ber heitið
„Steinn Steinarr les eigin ljóð“.
Á hljómplötunni les Steinn öll
ljóðin í bókinni Tíminn og vatnið
eins og hún fór frá honum í fyrstu
útgáfu. Nokkru áður hafði hann
lesið ljóðin inn fyrir Ríkisútvarp
ið og er hljóðritunin á þessari
hljómplötu frá þeim tíma. Þetta
mun hafa verið um 1948. Nokkrum
árum síðar las Steinn fjögur ljóð
inn fyrir Ríkisútvarpið og eru þau
einnig á plötunni, en það eru ljóðin
Landsýn, Columbus, Malbik og í
Kirkjugarði.
Útgáfa hljómplötunnar er hin
vandaðasta. Á framhlið plötuum
slagsins er mynd eftir Kristján
Davíðsson listmálara, en á bak-
hlið er Ijósmynd af Steini, sem
Jón Kaldal tók.
Hinir mörgu aðdáendur Steins
Steinarr og ljóða lians munu vafa
laust fagna þessari merkilegu
hljómplötu.
Samband ísl. sveitarfélaga
heldurverkstjórnarnámskeiö
í dag kl. 13,30 hefst í húsakynn
um Iðnaðarmálastofnunar íslands
verkstjórnarnámskeið, sem sér-
staklega er ætlað verkstjórum
sveitarfélaga. Námskeið þetta er
haldið fyrir frumkvæði Sambands
íslenzkra sveitarfélaga en fram-
kvæmd þess er í höndum stjórn-
ar verkstjórnarnámskeiðanna. Er
þetta annað sérnámskeiðið, sem
efnt er til og ætlað verkstjórum
í tiltekinni starfsgrein. Verulegur
hluti námsefnis er miðaður við
sérþarfir bæjarverkstjóra. Hefur
borgarverkfræðingurinn í Reykja-
vík verið til ráðuneytis um val
námsgreina og munu nokkrir
starfsmenn hans annast kennslu
eða flytja þar erindi. Af slíku efni
má nefna gatnagerð, steinsteypu,
vinnuvélar, vinnuteikningar, halla
mælingar, sprengingar, unglinga- i
vinnu og umgengni á vinnustöð-
um og samskipti við íbúa. Að
auki fer fram kennsla í verk-
stjórn og vinnuhagræðingu og
öðrum venjulegum kennslugrein-
um verkstjórnarnámskeiðanna.
Af 17 þátttakendum á námskeið
inu eru 15 verkstjórar sveitarfé-
laga. Eru þeir frá Kefiavík, Njarð
víkurhreppi, Kópavogi, Akranesi,
Patreksfirði, Bíldudal, Suðureyri,
ísafirði, Siglufirði, Ólafsfirði,
Húsavík, Eskifirði, Vestmanna-
eyjum og Selfossj.
Verkstjórnarnámskeiðið er x
tvennu lagi. Fyrri hluti stendur
yfir frá 13—25. febrúar en síðari
hluti frá 10.—22. apríl n.k.
Þetta er fyrsta námskeiðið, senx
haldið er fyrir vex-kstjóra sveitar-
félaga og nýr þáttur í starfsemi
Sambands íslenzkra sveitarfélaga
að beita sér fyrir námskeiði sem
þessu, en það hefur á síðari ár-
um í vaxandi mæli staðið að ráð-
stefnum og lekið fyrir vei-kefni,
sem miðast við starfsfólk sveitar-
félaga.
ÞAKKARÁVARP
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu á
sextugsafmæli mínu 1. febrúar síðast liðinn.
SIGFÚS JÓELSSON.
/
2L4 14. febrúar 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ