Dagur - 02.10.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 02.10.1999, Blaðsíða 7
1**0* KíO- eee.\ aua*aflNauM - ss Sá '.'WJTfffifiWf. *?,.-*. SQffc LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 - 23 LÍFÍÐ í LANDiNU MHfeBBMMlHMM þráðurinn rakinn og leikstjóm og aðalleikarar fá einkunn. Hver ein- asta bíómynd er stór steinn í okk- ar menningarsögu og verðskuldar að mínu mati meiri og ítarlegri umfjöllun." Tinna setur spurningamerki við það hvað þyki fréttnæmt í samfé- laginu og segir afar sérkennilega áherslu í fréttaflutningi hjá Ríkis- sjónvarpinu. „Eg fór til dæmis á tvær málverkasýningar um dag- inn. Það var laugardagur og þeir Daði Guðbjörnsson og Helgi Þor- gils Friðjónsson voru báðir að opna glæsilegar sýningar á verk- um sínum. Þetta er viðburður, af- rakstur margra mánaða vinnu, höfundarverk tveggja einstaklinga sem eiga það fyllilega skilið að þeim sé sýnd athygli af íjölmiðl- um. En, nei, þetta er víst ekki fréttaefni, í mesta lagi á svona efni heima í sérstökum „menn- ingarþáttunT þar sem skautað er á yfirborðslegan hátt yfir það sem ber hæst í menningarlífinu á hveijum tíma. Eg horfði á kvöld- fréttirnar í Ríkissjónvarpinu þetta sama kvöld og það var vissulega ekki eins og fréttastofan væri að drukkna í fréttum það var aug- ljóslega gúrkutíð hjá þeim á fréttastofunni. Til að mynda var heilum fimm mínútum eytt í að skýra ítarlega frá því að tveir menn hefðu villst frá bílnum sín- um í þoku, en annars blíðskapar- veðri, á Landmannaafrétt. Skýrt var nákvæmlega ffá öllum málsat- vikum, en síðan í lokin hnýtt aft- an við fféttina að mennirnir væru reyndar löngu fundnir. Nú svo endaði fféttatíminn auðvitað á því að tíundað var í smáatriðum hvaða Iið vann hvem í öllum hugsanlegum deildum og riðlum í boltanum..." - En hvemig viltu sjá menning- arfréttamennsku hér á landi? Er þetta hara spurning um ítarlegri og meiri umfjöllun? „Já, og þetta er spurning um innbyrðis vægi. Maður stendur gapandi gagnvart því rými sem íþróttir fá í sjónvarpinu, t.d. til móts við það sem listir fá. Það er verið að sýna frá heilu leikjunum, heilu eftirmiðdagamir undirlagðir af allskonar íþróttum, alltaf minnst á íþróttir í fréttatímum, mörg prógrömm á viku á kvöld- tíma, - en frumsýningar í leik- húsunum, opnanir myndlistar- sýninga, stórir tónleikar ... og svona mætti lengi telja - þessu eru gerð ákaflega takmörkuð sldl.“ Samkeppni í listum af hinu góða - Rtkisstjómin hefur lýst yfir vilja til að hyggja 5 menningarhús á landshyggðinni. Nú eru til félags- heimili og ýmiss konar hyggingar undir menningu um allt land. Finnst þér forgangsmál fyrir menningarlíftð í landinu að veita peningum í að hyggja yfir menn- inguna? „Menningarhús er fyrst og fremst sú menning sem fer þar fram.“ - Teldirðu hagkvæmara fyrir menninguna að menningarhúsa- fjámiagninu væri fremur veitt til starfsemi en steypu ? „Já, ég held að það væri í flest- um tilfellum æskilegra. Heima- menn verða líka að fá að hafa eitthvað um þetta að segja enda er menningarlíf úti á landi víða mjög öflugt og ástæða til að efla og styrkja það fólk, sem oft og tið- um leggur á sig ómælda ólaunaða vinnu til þess að halda úti mann- sæmandi menningarlífi í sinni heimabyggð. Svo þarf líka að stuðla að meira flæði, ef svo má segja, gera samfélögum úti á Iandsbyggðinni kleift að laða til sín listamenn." - Leikhúsflóran hefur hreyst tals- Þessi glfma við að setja sig inn í aðstæður og Iíf annarrar mann- eskju. Velta fyrir sér möguleik- unum, víddunum, því sem höf- undurinn er að fara. Hvernig maður á að beita sér til að koma skilaboðunum í gegn. Þetta er mjög spennandi glíma, þar sem spurningin um einlægni er alltaf sú mikilvægasta og trúnað við persónuna sem þú ert að túlka. Þú kynnist ekki „manneskjunni" eins vel í mörgum öðrum störf- um. - Nú hefurðu leikið oftsinnis á sviði og á tjaldi, er mikill munur þar á? „Vinna leikarans er mjög svip- uð. Hann þarf á sömu einlægn- inni að halda í túlkun sinni en í sviðsleik þá standa leikararnir að lokum einir á sviðinu með augnablikið á milli fingur- gómanna. Þeir hafa valdið. En í kvikmynd er þetta öðruvísi. Það er dælt inn svo og svo miklu efni en sfðan eru margir aðrir sem koma að verkinu og velja, hafna, klippa og sníða til. Aherslurnar sem eru valdar í klippingu eru kannski allt aðrar en þær sem leikarinn gerði sér í hugarlund þegar hann lék senuna. Hann er meira verkfæri sem kvikmynda- Ieikari." Með kvikmyndahandrit í tölvunni - Ætlarðu að vera í leiklistinni það sem eftir er staifsævinnar eða ertu með einhver önnur áfomi á prjónunum? Ertu kannski að skrifa hók t tölvunni? „Leiklistin heillar mig í ýms- um myndum og fyrst þú minnist á það, þá hef ég verið að föndra svolítið við það að skrifa og hef meðal annars fehgið handrits- styrk frá Kvikmyndasjóði út á handrit sem ég sendi inn. En ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það í bili. Um níutíu prósent þeirra handrita sem sltrifuð eru í heiminum enda ofan í skúffu, en ekki á hvíta tjaldinu svo lík- urnar eru litlar, en ég hef mjög gaman af þvf að skrifa og ætla að halda því áfram, þegar ég hef tíma.“ - Og þá að lokum. Það fer gjarnan það orð af listamönnum að þeir séu duglegir við að kvarta yfir peningaleysi frá hinu opin- hera en slappari í að sækja sér fjármagn sjálfir, þ.á m. til fyrir- tækjanna í landinu. Hvað finnst þér? „Ef skattalöggjöfin væri rýmri, væri þetta raunhæfur kostur, en eins og sakir standa er fyrirtækj- um heimilt að draga 0,5% frá tekjum og veita í menningu og vísindi. Þessi tala er ákaflega lág og eins þyrfti kerfið að vera meira hvetjandi fyrir lyrirtækin, til dæmis þannig að þeim væri heimilt að draga frá skatti tvö- falda þá upphæð sem veitt er til menningar og vísinda. Hlutirnir hafa breyst mjög mikið á þessari öld. En afstaða fólksins hefur kannski ekki breyst svo mjög. Það er gaman að glugga í heimildir um það þegar Jón Leifs og fleiri voru að stofna Bandalag íslenskra lista- manna. I blaðaviðtali í Morgun- blaðinu 1. sept. 1936 segir hann orðrétt: „til þessa hafa íslenskir listamenn staðið utan síns þjóð- félags, - síðan þeir hættu að forðum að halda uppi heiðri þjóðarinnar \dð hirðir norrænna konunga, nú er frekast litið á þá sem ölmusumenn eða fífl sem ættu eiginlega engan rétt á sér í borgaralegu samfélagi." Eg segi ekki að afstaðan sé sú sama og Jón lýsir, en hversu langt erum við komin frá þessari sýn, núna við aldarlokin? Mér er stundum spurn." Tinrta leikur eitt aðalhlutverkið í Ungfrúnni góðu og húsinu, hina stórlyndu eldri systur Þuríði. Hún er ánægð með þær viðtök- ur sem myndin hefur fengið, en er ósátt við rýra umfjöllun fjölmiðla um menningarmál almennt." leiklistarnámi, en þá varð ekki aftur snúið. Það var óskaplega skemmtilegt og skapandi and- rúmsloft í SÁL-skólanum og ég fann það fljótlega að ég var komin á rétta hillu í lifinu." - En hafðirðu þá liaft mikinn áhuga á líffræðinni? „Já, já, það hafði alltaf blundað í mér að verða læknir eða líffræð- ingur. Eg kláraði reyndar þennan fyrsta vetur í líffræðinni samhliða SÁL-skólanum og á þarna ein- hveija punkta í líffTæði sem ég kem aldrei til með að nota.“ - Var það í SÁL-skúlanum sem þið Egill kynntust? „Já, hann var að vinna við upp- færslu þriðja árs nemenda á Gísl, spilaði á harmoniku o.fl. í sýning- unni. Við kynntumst í partíi eftir jólagleðina. Það er besta partí sem ég hef farið í...“ Ól upp 3 listamenn - Sérðu eftir því í dag að hafafarið út í leiklistina? „Nei,“ svarar Tinna að bragði og segir mömmu sína, Herdísi- Þorvaldsdóttur leikkonu, eldkert hafa tekið því illa þegar hún frétti úti á götu að dóttirin hygðist feta í fótspor hennar. „En hún sagði náttúrulega eins og er að þetta væri harður heimur. Það væru margir sem heltust úr lestinni og maður yrði að vera viðbúinn því.“ - Sagðirðu það sama við elsta son þinn þegar hann sótti um og komst inn í Leiklistarskólann? „Já og nei, ef krakkar vilja eitt- hvað þá held ég að úrtölur dugi ekki til. Hver er ég að ráða hon- um frá því að fara í leiklist? Mér finnst hann eiga erindi þangað. Hann er mjög frjór og skapandi og þetta er mjög þroskandi skóli. Þannig að ég held að hann hafi stóran ávinning af náminu hvort sem hann verður leikari eða ekki. Hinn sonur okkar er reyndar í dansnámi, hann er á síðasta ári í klassískum ballettdansi í Stokk- hólmi þannig að þeir eru báðir í sviðslistum." - Og ætlar ellefu ára dóttir ykkar sem lék lika i Ungfrúnni góðu að feta út á listahrautina lilui? „Já, já, hún heldur því fram í dag. Hún ætlar að verða söng- kona, en ekki á Islandi," segir Tinna og kímir. „Hún er nú rétt að komast yfir Spice-tímabilið og sér þetta í einhveijum hiilingum." Með augnablikið milli fingurgomanna - Hvað var það sem heillaði þig við leiklist? „Það er þetta sköpunarferli. vert hér á undanfömum misserum með tilkomu „markaðsleikhúsa", þ.e. Iðnó og Loftkastalans, sem eru rekin án opinherra styrkja. Finnst þér tilkoma þeirra hafa haft áhrif á leiklistina íhorginni? „Leikhúslífið er íjölbreyttara. Við getum ekki án stóru leikhús- anna verið, þar er í raun sá grundvöllur sem smærri leikhúsin byggja á, þangað sækja þau í flestum tilfellum sfna leikara. I öllum listum þarf að vera svigrúm til þroska. Stóru leikhúsin hafa þetta svigrúm. Þar er hægt að sinna metnaðarfullri leiklist og taka Iistræna áhættu sem mark- aðsrekin leikhús hafa ekki mögu- leika á að gera. Ég held að leik- húslífið í Iandinu yrði ákaflega fá- brotið og einhliða til lengdar, ef við létum markaðsöflin ráða og öll leiklist yrði einkarekin." Læknir. líffræðingur eða leikkona? - Jæja, efvið snúum okkur aðeins að sjálfri þér, fórstu fyrir slysni út í leiklistina eða var hún æsku- draumur? „Já, íjögurra ára gömul sá ég Kardimommubæinn og tilkynnti móður minni, í beinu framhaldi að ég ætlaði að verða „barnaleik- kona“. Ég fékk reyndar ýmis tæki- færi sem barn til að spreyta mig á fjölunum eins og gjarnan er með leikarabörn, en á unglingsárun- um varð ég fráhverf leiklist og hafði uppi yfirlýsingar á heimilinu um að leiklist væri innantóm til- gerð og sú veröld sem hún spegl- aði væri gerviheimur. Það var því heldur vandræðalegt fyrir mig að viðurkenna það f\rir sjálfri mér og öðrum að það væri þrátt fyrir allt þangað sem hugur minn stefndi. Mamma er líka svo raun- sæ og varkár að ég vissi að hún myndi ekkert hoppa hæð sína. Ég innritaði mig í líffræði í Háskól- anum með hálfum hug og fór svo jaftiframt í kvöldskóla í Ieildist, SÁL-skólann. Mér tókst að halda því Ieyndu fyrir íjölskyldunni al- veg fram að jólum að ég væri í Hin frumsýningin hennar Tinnu var í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld en hún leikur titil- hlutverkið í leikritinu Fedra eftir Jean Racine. Þar leikur hún afar dramatískt hlut- verk konu er leggur ofurást á stjúpson sinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.