Dagur - 02.10.1999, Side 10
M
I UWJÐJMU /
26
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999
nda og Sævar heima á
Húsavík-
Sævar ásamt sam-
býliskonu sinni, Ás-
gerði Hildi.
Sævar að skoða
Alcatraz-fangelsið /
Bandaríkjunum í fyrra.
Linda íjöklaferð I Alaska með Kristínu vinkonu sinni í ágúst í
sumar.
Linda og Sævar á árs-
hátíð Baðhússins.
Linda ásamt foreldrum sínum, Ásu og Pétri, Sævari bróður og
ömmunum tveimur, Ragnheiði Jónasdóttur og Sigríði
Sigurbjörnsdóttur.
Astríki systkina
Það er ástríkt og traust vin-
áttusambandið sem ríkir milli
systkinanna Sævars og Lindu
Pétursbarna þó að ýmislegt
hafi gengið á þegar Linda
gætti Sævars í æsku.
„Ætli sambandið milli okkar hafi ekki
bara verið eins og gengur og gerist milli
systkina. Eg var með hann í vist í tvö
sumur. Oftast var hann þægur og góður
en auðvitað var hann stundum óþekkur.
Það var allt í lagi þegar hann var yngri en
þegar hann var orðinn fimm til sex ára
var hann orðinn mikill fjörkálfur. Þegar
ég var að passa hann vorum við vinkon-
urnar oft að búa til karamellur sem við
settum í frysti. Hann borðaði ekki korn-
fleks svo að við settum alltaf kornfleks í
karamellurnar til að hann gæti ekki feng-
ið neitt,“ rifjar Linda Pétursdóttur hlæj-
andi upp um Sævar bróður sinn.
Sævar viðurkennir strax að hafa stund-
um verið uppáþrengjandi. „Eg fór oft í
leyfisleysi inn í hennar herbergi og þá lét
hún mig gjarnan heyra það. Hún var
náttúrulega stóra systirin sem réð öllu.“
Linda bætir við: „Hann var oft atorku-
mikill þegar ég fór utan sem skiptinemi.
Þegar ég kom heim eftir margra ára
ferðalög um heiminn var hann orðinn Iík-
ari því sem hann er í dag, yndislegur,
mjúkur og ljúfur maður, annars hefði
hann ekki getað unnið með og umgengist
okkur konurnar í Baðhúsinu."
Fordæmið í Lindu
Þau eru þrjú Pétursbörnin sem eiga og
vinna saman í Baðhúsinu í Reykjavík
ásamt foreldrum sínum, Asu D. Hólm-
geirsdóttur og Pétri Olgeirssyni. Sigurgeir
skipstjóri er elstur, 34 ára gamali. Hann
er búsettur á Nýja-Sjálandi, starfar þar
sem framkvæmdastjóri á netaverkstæði
Hampiðjunnar og sinnir stjórnarfor-
mennsku sinni í Baðhúsinu gegnum
síma og tölvu. Linda er 29 ára fram-
kvæmdastjóri og andlit fjölskyldufyrirtæk-
isins út á við. Sævar er 25 ára. Hann er
etnn Ijögurra sviðsstjóra Baðhússins og
nánasti samstarfsmaður Lindu innan fyr-
irtækisins.
Hvernig er að vera systkini og nánir
samstarfsmenn í rekstri framsækins fyrir-
tækisr Hvernig er að vera karlmaður og
undirmaður stóru systur? Sævar og Linda
samþykktu viðtal í Degi til að svara þess-
um spurningum og rifja upp æskuminn-
ingar. Sævar segist ávallt hafa litið upp til
systur sinnar og hún hafi verið sér for-
dæmi í ýmsu, til dæmis vali á skóla. Þau
hafa jafnvel neyðst til að standa af sér
kjaftagang um Sævar sem kærastann
hennar Lindu fyrst eftir að hann tók til
starfa í Baðhúsinu.
Ræða hlutina strax
Linda fór 15 ára í framhaldsskólann á
Laugum og 18 ára varð hún ungfrú
Heimur. Hún ferðaðist út um allan heim
í nokkur ár, bæði sem ungfrú Heimur og
síðan sem fyrirsæta. Hún flutti heim þeg-
ar Qölskyldan stofnaði Baðhúsið árið
1994. Sævar kom inn í fyrirtækið rúm-
lega einu ári eftir stofnun þess. Systkin-
unum gengur vel að vinna saman, það
veldur að minnsta kosti engum erfiðleik-
um að vera systkini. „Þegar það þarf að
taka ákvarðanir þá segjum við okkar skoð-
anir. Það þýðir ekki að segja bara já og
amen,“ útskýrir Sævar og Linda bætir við
að það sama gildi um alla starfsmennina.
„Það má ekki taka það persónulega ef
einhver gagnrýni eða ágreiningur kemur
upp í starfi."
- Hefur ykkur einhvem tímann greint
svo mikið á að þið hafið þurft tíma til að
„Oftast var hann þægur og góður en auðvitað var hann stundum óþekkur. Það var allt ílagiþegar hann
varyngri en þegar hann var orðinn fimm til sex ára var hann orðinn mikill fjörkálfur, “ segir Linda um
Sævar bróður sinn. „Þegar ég var að passa hann vorum við vinkonurnar oft að búa til karamellur sem
við settum í frysti. Hann borðaði ekki kornfleks svo að við settum alltaf kornfleks í karamellurnar."
mynd: teitur
leysa ágreininginn?
„Það hefur örugglega einhvern tímann
komið upp ágreiningur en við ræðum
hlutina, hlustum á skoðanir annarra, veg-
um og metum kosti og galla og komumst
að niðurstöðu. Skoðanaágreiningur er
hluti af daglegu lífi. Það er gott fyrir fyrir-
tækið að bæði við og aðrir starfsmenn
skiptumst á skoðunum um málefni fyrir-
tækisins,“ svarar Sævar og Linda tekur
strax upp þráðinn: „Sem betur fer
komumst við yfirleitt þrautalítið að ásætt-
anlegri niðurstöðu. Það væri heldur ekki
gott ef við værum alltaf ósammála. Það er
mottó í fyrirtækinu að ræða málin strax
ef einhver óvissa eða óánægja kemur upp
hvort sem það er hjá yfirmönnum eða
öðrum starfsmönnum."
Munaði mjóu
Að lokum kemur hér minning af Sævari
frá því hann var þriggja ára og lenti í lífs-
hættu: Linda og Sigurgeir voru í barna-
skólanum á Húsavík og biðu eftir að vera
sótt. Þegar ekkert bólaði á mömmu þeirra
hringdu þau heim. Þeim var sagt að það
hefði orðið slys og þau þyrftu að labba
heim. „Þegar við komum heim sáum við
sjúkrabfla og löggubíla fyrir utan húsið.
Sævar hafði verið að leika sér með vin-
konu sinni í næsta húsi og þau höfðu
labbað 500 metra leið að vitanum. Þar
hafði Sævar kastað snjóbolta og farið
með honum fram af bjarginu,“ segir
Linda. Sævar grípur inn í: „Það voru 40
metrar niður. Eg lenti á syllu 10-15 metr-
um fyrir ofan sjávarmál, einu syllunni í
bjarginu." Þar sat hann í tvo tíma eða þar
til faðir vinkonunnar klifraði niður til
hans.
„Það var bara sjór undir. Fyrir utan
hringsólaði trilla sem hafði séð mig. Á
þessum tíma var pabbi á sjó og ég kall-
aði mikið á hann,“ segir Sævar sem man
eftir atvikinu enda munaði þar mjóu.
Sævar fékk ekki eina einustu skrámu,
bara níu kuldablöðrur á puttana. „Tí-
unda puttanum hafði ég stungið ,upp í
mig,“ segir hann og bætir við: „Eg var
hálf ragur við að fara heim því að ég
hafði týnt nýjum vettlingum. Mér
fannst það alveg skelfilegt." - GHS