Dagur - 02.10.1999, Side 8

Dagur - 02.10.1999, Side 8
LfFÍÐ í LANDINU LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 „Annars get ég sagt þér það til gamans að ég heiti í höfuðið á Haii- dóri í Háteigi sem ég kallaði afa minn. Hann var um áratugi í stjórn Eimskipafélagsins svo það þarfekki að koma á óvart að mér þykir vænt um félagið." mmm < | 1 í 1 1 K* |1§ 15 1 i i 11it' fjll ■ n . i hv ■ 8 Halldór Blöndal for- seti Alþingis kemur víða við, ræðir um skáld- skap og pólitík, Ólaf Thors og Davíð Oddsson, hlut- verk Alþingis og kjör al- þingismanna. - Þú hefur gaman af að kasta fram vísum, varstu Ijóðelskt harn? „Faðir minn og vinir hans voru mjög ljóðelskir og það var oft farið með vísur heima hjá mér þegar ég var lítill drengur. Þetta varð til þess að ég fékk ungur áhuga á skáldskap. Hall- dór Vigfússon, kenndi mér barn- ungum vísuna N« er hlútur nývakinn, nú er grútur tregur. Nú er ég kútur, nafni minn, nú er ég mátulegur. Eg hélt lengi að „nývakinn“ væri kvenkenning í tveimur orð- um, eins og „auðar gná“ eða „silkihlín", og varð satt að segja nokkuð hissa þegar ég loks upp- götvaði rétta merkingu vísunnar. Ég hef Iíklega verið tólf ára þegar ég orti fyrstu vísuna. Þá var ég að fara með mat frá Litlu Sandvík niður á Breiðumýri og sá að kjóinn var að elta kríuna: Sækir hún í hreiðrið björg, í hafið er langt að fara. Fer í kjaft- inn kjóans mörg kræsing fugls- ins snara.“ - Hver finnst þér vera hest orta vísa á íslensku? „Ef ég á að velja eina vísu þá kemur Yfir kaldan eyðisand fyrst upp í hugann. Þessi vísa finnst mér vera Ijóð, og það lýsir kannski best ágæti hennar að sennilega kunna fleiri Islending- ar þessa vísu en nokkra aðra.“ - Hvaða manneskja heldurðu að hafi mótað þig mest? „Móðir mín.“ - Af hverju móðir þin? „Mér finnst þetta skrítin spurning. Ég held að það sé í eðli manneskjunnar að mótast af móður sinni. Það er nokkuð sem er óhjákvæmilegt. Maður býr að því alla ævi að hafa átt góða móður og hún kennir manni hluti sem eru göfugir í eðli sínu og þroskavænlegir." - Þú misstir móður þína sextán ára gamall, hvaða áhrif hafði það á þig? „Það var auðvitað mjög sárt að missa móður sína, en það er nokkuð sem ég vil ekki tala um í viðtali. Ég get þó sagt það að móðir mín var mjög merkileg kona, listræn, skapmikil og þó ljúf. Hún lét sér mjög annt um okkur börnin. Mér hefur alltaf fundist Ragnhildur systir mín mjög Ifk móður sinni.“ - Heldurðu að karlmenn séu yfirleitt mjög ósjálfbjarga án kvenna? „Ég held að reynslan sýni að þeir verða meiri einstæðingar en konur við missi maka. Það er áberandi að margar konur blómstra eftir að eiginmenn þeirra falla frá en ég þekki ekk- ert dæmi þess um karlmenn." - Er það þér mikils virði að vera fjölskyldumaður? „Það er mér mikils virði. Mér finnst mjög gott að vera giftur og það felst mikil lífsfylling í því að vera í góðu hjónabandi. Ég gef fjölskyldu minni þó alls ekki nógan tíma og þess vegna er varla hægt að segja að ég sé mikill fjölskyldumaður, þótt ég finni í vaxandi mæli að ég sé að hneigjast til þeirrar áttar.“ Ólafur Thors og Davíð - Hófust stjórnmálaafskipti þín mjög skyndilega? „Það kom mér á óvart þegar ég var beðinn um að taka þriðja sætið í Norðurlandskjördæmi, af því ég var í raun og veru hættur afskiptum af pólitík þegar þar var komið sögu. Ég tók mér nokkurra daga frest til að íhuga hvort eitthvert vit væri í þessu og þegar ég fékk þær undirtektir sem ég gat sætt mig við þá féllst ég á að taka það.“ - Hefurðu einhvem tt'mann iðrast þess að hafa farið út í póli- tík? „Nei, aldrei, það hefur verið mitt annað líf. Ég byrjaði að sitja þingflokksfundi Sjálfstæðis- flokksins sem pólitískur blaða- maður árið 1961, þannig að ég hef setið á þingflokksfundum með öllum þingflokkum Sjálf- stæðisflokksins sem kosnir hafa verið eftir 1959.“ - Og hver af leiðtogum Sjálf- stæðisflokksins er þér eftirminni- legastur? „Ólafur Thors.“ - Var hann jafn mikill sjarmör og menn hafa sagt? „Hann var meiri sjarmör en talað er um. Það er ekki hægt að lýsa mönnum sem eru svona sjarmerandi og lifandi. Hann var bæði bráðfyndinn og orðhepp- inn en gat líka verið alvörugef- inn. Hann var kjarkmikill og hreif fólk með sér, bæði sam- herja og þjóðina ef á þurfti að halda. Hann var hnyttinn ræðumaður, skorinorður og mjög orðheppinn. A Alþingi var hann eitt sinn að deila við Hall- dór Ásgrfmsson, afa þess sem nú er, og hóf ræðu sína með þess- um orðum: „Herra forseti, hátt- virtur 2. þingmaður Austfirðinga hafði eftir mér ummæli hér áðan. Þau voru rangt höfð eftir." Þá greip Halldór Ásgrímsson fram í: „Ég hef skrifað þau hér niður hjá mér.“ Ólafur svaraði samstundis: „Það er ekki að sök- um að spyija að maður sem hugsar vitlaust, hann skrifar vit- laust.“ Þetta svar lýsir svolítið stíl hans og gleði í ræðustól. Mér finnst erfitt að bera aðra menn saman við hann.“ - Hvernig meturðu Davíð Oddsson sem leiðtoga Sjálfstæðis- flokksins? „Davíð Oddsson er mjög sterkur Ieiðtogi, hefur skýra stefnu og lag á því að samræma sjónarmið. Hann er tvímæla- laust einn af litríkustu stjórn- málamönnum þessarar aldar." - Hvemig myndirðu lýsa hon- um sem manni? „Hann er einarður og ákveð- inn, getur verið mjög hvass en er líka ljúfur og góðviljaður. Þegar þannig liggur á honum er hann hrókur alls fagnaðar og á létt með að Iíkja eftir öðrum mönn- um, rödd þeirra og fasi, þannig að manni sýnist að þeir séu þar lifandi komnir. En það er um Davíð Oddsson eins og aðra mikla leiðtoga, að hann er al- vörumaður þegar nauðsyn ber til.“ - Hvemig meturðu störf ríkis- sjómarinnar? „Ríkisstjórnum Davíðs Ods- sonar hefur tekist að fylgja þjóð- arsáttinni eftir með þeim hætti að Iífskjör eru kannski betri en þau hafa nokkru sinni verið. Það er stöðugleiki í efnahagsmálum og atvinnulífið blómstrar." Vafasöm störf Samkeppnisstofnunar - Vtkjum að umhverfismálum. Það hafa verið deilur um Ktsil- gúrverksmiðjuna við Mývatn. Finnst þér umhverftssinnar hafa gengið ofhartfram þar? „Ég held því fram að kísilgúr- vinnslan hafi ekki valdið neinu tjóni í Mývatnssveit. Þvert á móti hefur vinnslan að mörgu leyti haft góð áhrif á fuglalíf og vatnið sjálft. Mér finnast margir náttúruverndarsinnar sýna ótrú- legt tómlæti gagnvart lífsafkomu og hamingju þess fólks sem býr í Mývatnssveit. Mér finnst mál- flutningur þeirra kaldur, oft hrottalegur og þess vegna ekki trúverðugur." - Hvað segirðu um þá fullyrð- ingu að þú hafir í emhætti sam- gönguráðherra verið hliðhollur Kolbrabbanum? „Með Kolbrabbanum skilst mér að fyrst og fremst sé átt við Eimskipafélag íslands sem vinstri menn hafa reynt að breyta í grýlu. Ég skil ekki þá umræðu. Eimskipafélagið hefur staðið af sér áföll og storma þessarar aldar. Það er nútíma- skipafélag sem vegnar vel og ég fullyrði að flutningskostnaður til íslands sé ótrúlega Iágur ef mið- að er við sambærilega staði í öðrum löndum. Satt að segja

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.