Dagur - 02.10.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 02.10.1999, Blaðsíða 2
18 - LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 HELGARPOTTURINN ...Qft bregður fjórðungi til fósturs eða einhvern veginn svoleiðis hljómar forn íslensk speki og sannast enn þótt 20. öldin sé í andarslitrunum og við bráðum að skoppa yfir þúsaldamótin margumtöluðu. Flinkur ungur kvik- myndagerðarmaður Dagur Kári Pétursson bjargaði heiðri íslenskra stuttmyndagerðarmanna um síðustu helgi með því að vinna til tvennra verðlauna í keppni nor- rænna stutt- og heimildamynda en íslendingar hafa aldrei áður unnið svo mikið sem ein skitin verðlaun á þessari tíu ára gömlu hátíð. En Dagur.Kári er liú sem sagt ekki úr lausu lofti gripinn né í afdal fæddur því fað- ir hans er enginn.annar en hinn mikils metni punktur- punkturkommastrik höfundur Pétur Gunnarsson... ...Þá vakti nokkra athygli þeirra sem mættu á Rex um síðustu helgi til að fylgjast með út- nefningu fatahönnuða sem fá að taka þátt í T- 21 verkefninu svokallaða [fyrir þá sem ekki skilja þá módernu skammstöfun T-21 skal hér upplýst að hún stendur fyrir fatahönnunar- keppní sem mun fara fram á gamlárskvöld í Perlunnij að meðal útnefndra fatahönnuða var kornung stúlka Hallgerður Guðrún Hallgrímsdóttir að nafni. Aðeins 15 ára gömul. Hún á hins vegar ekki langt að sækja listfengið því faðir hennar er rithöfundurinn, uppistandarinn, málarinn og Hellisbúastaðfærarinn Hallgrímur Helgason... ...Það fór varla framhjá nokkrum aðdáanda íþróttaálfsins að Þjóðleikhúsið frumsýndi á fimmtudaginn nýtt leikrit um Latabæ en auk Sigurðar Sigurjónssonar sem leikstýrir herlegheitunum eru potturinn og pannan f málinu Magnús Scheving og eiginkona hans Ragnheiður Pétursdóttir Melsteð eða eins og Magnús sjálfur segir þá er hann jarðýtan en Ragnheiður sú sem bindur hlutina saman. Þau hjónin gáfu sér þó tfma í sumar til að unga út einu litlu kríli og eiga því nú bæði strák og stelpu. Sonurinn litli er nú orðinn þriggja mánaða en hefur enn ekki hlotið nafn því foreldrarnir hafa hrein- lega ekki haft tíma til að láta skíra barnið! Nú þegar frumsýningin er loks afstaðin gefst loks tóm til að bæta úr nafnleysinu og pilturinn ungi verð- ur skírður nú um helgina... ...f gærkvöld var frumsýnd á Grand rokk ný íslensk bíómynd - Grand rokkthe movie - og var það sjálfur músamyndagerðarmaðurinn Þorfinnur Guðnason sem gerði þessa einstæðu heimildamynd í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar. Þar hella menn á borð við dr. Bjarna sjónháttafræðing úr brunnum speki sinnar. Stóra stjarnan í myndinni, sem er eins konar dagbók er fylgir eftir gríðar- merkum flutningi Grand rokk kráarinnar frá Klapparstíg á Smiðjustíg, er að sjálfsögðu rit- stjórinn og barmaðurinn Hrafn Jökulsson en myndavélin eltir hann um afkima knæpunnar innan um gráa og föla fastakúnna Grandarans. Munu aðstandendur myndarinnar vera að þreifa fyrir sér með mögulega sölu á heimildamyndinni til sjónvarps- stöðvanna en helgarpottarar áttu heldur von á að það yrðu fá og útval- in prósent þjóðarinnar sem kynnu að meta ítarlega heimildamynd um kráarflutning og skákfélag Grand rokks... ...Þetta er helst að frétta af hinum geysivinsælu þáttum Hildar Helgu Sigurðardóttur Þetta helst Það er leikkonan góðkunna, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sem tekur við liðsstjóra- embættinu af Ragnhiidi Sverrisdóttur sem farin ertil náms íVesturheimi. Bjöm Brynjúlfur Bjömsson heldur sínum gamla sessi í þáttun- um sem nú rúlla af stað þriðja haustið í röð og hafa skipað sér sess (þjóðarsálinni. ...Óvenjulegt ástand ríkti hjá Leikfélagi Akur- eyrar meðan á æfingum á leikritinu Klukkustrengjum stóð. Saga Jóns- dóttir sýningarstjóri segir að oft hafi verið mikið fjör á æfingum og leik- ararnir skemmt sér vel. Leikritið var frumsýnt í gærkvöld en á aðalæfingu sprakk öryggi þannig að hluti af sviðinu varð myrkvað í þriðja þættinum. Leikararnir létu það ekkert á sig fá og léku eins og englar... ...Sveinn Einarsson er ekkert að þvælast á láglendinu í sinnir menningarpólitík. Nafnið á nýrri bók hans er til vitnis um það en hún heitir Ellefu ár í efra og fjallar um árin hans sem Þjóðleikhússtjóra, væntanlega full af fróðleik um leikhúslífið. Ekki lætur hann þar við sitja. Auk þess að stýra grískum harmleik frá 17. öld á fjölum Þjóðleikhússins um þess- ar mundir vinnur hann að leiksýningu úr Jobsbók í félagi við Arnar Jónsson leíkara sem sett verður upp þegar á líður veturinn og býr sig einnig undir að stjórna óperu sem Atli Heimir Sveinsson er að semja um kristnitökuna í landinu fyrir eitt þúsund árum... Sveinn Einarsson. Hallgrímur Helgason. iiili ' í HH V 'v' | B \ Jq Dansleikhúsið með ekka rakst á Ijóð eftir 13 ára stúlku sem hafði orðið fyrir einelti. Hópurinn hefur nú samið dansleikhúsverk upp úr Ijóðinu sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói f kvöld. Súrrealískt dansverk gegn einelti Fólki er guðvelkomið að gráta eða skellihlæja á sýningu Dansleikhússins með ekka í Tjarnarbíói jafnvel þótt þar verði dansað gegn einelti... Einn meðlimur Dansleikhússins með ekka rakst á ljóð eftir 13 ára stúlku sem lenti í einelti, heillað- ist og ákváðu stöllurnar 5 í Dans- leikhúsinu að semja dansverk upp úr Ijóðinu. Hópurinn telur bæði leikara og dansara, þær Kolbrúnu Onnu Björnsdóttur, Aino Freyju Járvelá, Ernu Omarsdóttur, Hrefnu Hallgrímsdóttur og Karen Maríu Jónsdóttir en til að setja upp dansleikverk gegn einelti fékk hópurinn til liðs við sig þrjá karl- kyns Iistamenn, Friðrik (Pétur Pan) Friðriksson, Guðmund E. Knudsen og Richard Kolnby. „Ber“ heitir afraksturinn og verður frumsýndur í Tjarnarbíói í kvöld. Einelti til á öllum ævistigum „Það er ekki beinlínis söguþráður í verkinu heldur setjum við upp litl- ar senur sem sýna einelti í ýmsum myndum,“ segir Kolbrún, einn af stofnendum hópsins, en myndirn- ar eru settar saman til að sýna ein- elti á öllum ævistigum. Fyrsta myndin sýnir þegar börn eru lögð í einelti en svo er endað á stríði sem hópurinn segir vera eitt form eineltis. „Allt sem við notum í sýn- ingunni er eitthvað sem einhver í hópnum, eða einhver tengdur hópnum, hefur upplifað," segir Kolbrún og á þá við að hver ein- asta manneskja hafi á einhvern hátt tengst einelti á lífsleiðinni. Ymist verið fórnarlömb, gerendur eða sá hluti af þeim stóra meiri- hluta sem hefur staðið hjá. „Ber“ verður bæði í almennum sýningum en einnig sýnir hópur- inn sérstaklega fyrir skólana. „Við verðum með sérstakar skólasýn- ingar því við vildum fá krakkana inn í leikhúsið bæði af því að þá tökum við þau úr sínu vanalega umhverfi en líka til að þau venjist því að fara í leikhús.“ Ekki fylgir hverri sýningu Frank P. semur tónlistina fyrir sýninguna sem er ekki hefðbundin danssýning heldur blandar saman bæði dansi og leik. „Þetta verður MAÐUR VIKUNNAR ER STJORNARFORMAÐUR Maður vikunnar er stjórnarformaður sem sýnt hefur og sannað að frelsarinn hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði að þeir sem eru síðastir verði fýrstir og hinir fyrstu síðastir. Friðrik Pálsson, sem í vetur þurfti að hverfa úr stól forstjóra SH nauðugur viljugur, hefur síðan náð að snúa taflinu gjörsamlega sér í hag. Mörgum þótti hann góður þegar hann varð stjórnar- formaður Landssímans og í vikunni bætti hann um betur og skákaði sínum gömlu óvinum í SH með því að verða stjórnarformaður í stærsta sjávarútvegsfýrir- tæki íslands, sjálfu SÍF... mjög súrrealískt, þetta er hvorki beinn leikur eða hreinn dans og textarnir sem við notum eru fengnir héðan og þaðan,“ segir Kolbrún en hópurinn notaði texta úr ljóðum eftir Frakkann Jacques Prévert. Prévert var að sjálfsögðu ekki að skrifa um einelti á sínum tíma en að sögn Kolbrúnar má túlka suma texta hans svo - séu þeir skoðaðir eftir óhefðbundnum leiðum. - Að lokutn, af hverju heitir hóp- urinn Dansleikhús með ekka? „Við vorum fjórar sem stofnuð- um þetta, Erna, Karen, Kolbrún og Aina þannig að þetta eru upp- hafsstafirnir okkar. Svo fylgir því líka alltaf einhver ekki að setja upp sýningu. En við vonumst til að þetta geti höfðað til allra. Og það má alveg hlæja eða gráta eða hvað sem fólk vill. Við tökum það ekkert nærri okkur þótt fólk skelli- hlæi á sýningunni..." LÓA Friðrik Pálsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.