Dagur - 23.10.1999, Page 4

Dagur - 23.10.1999, Page 4
fc frf « tv Al h * -Oagur 5 i) O *' r M 'J (1 6, '1 f* 4- LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 FRÉTTIR Ný lög iun vitamál Lagt hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um vitamál. Frum- varpið er samið af Siglingamálastofnun Islands og samgönguráðuneyt- inu og er því ætiað að leysa af hólmi lög um vitamál frá árinu 1981. Skráð trúfálög Annað stjórnarfrumvarp sem lagt hefur verið fram er frumvarp um skráð trúfélög. Þarna er um að ræða endurskoðun á lögum um trúfélög frá árinu 1975. Nefndinni sem samdi frumvarpið var upp á lagt að at- huga með hvaða hætti væri hægt að setja skýrari reglur um skilgrein- ingu á trúfélögum og hvað greini þau l’rá annars konar félögum með hliðsjón af ákvæðum Iaga um stjórnarskrá. „Það er um mikinn misskilning að ræða hjá framsóknarmönnum ef þeir haida að verið sé að ráðast á ríkisútvarp- ið, “ segir Kristján Pálsson, alþingismaður. Málefni bama og imglinga Þingmenn úr öllum flokkum undir Torystu Jó- hönnu Sigurðardóttur hafa lagt fram þingsálykt- unartillögu um heildarstefnumótun í málefnum barna og unglinga. Bent er á í greinargerð að al- veg frá því embætti umboðsmanns barna var stofnað 1995 hefur umboðsmaður vakið athygli stjórnvalda á því hver brýnt sé að mótuð verði skýr opinber heildarstefna í málefnum barna og Jóhanna unglinga og aðgerðir samræmdar af hálfu Sigurðardóttir. stjórnvalda á ýmsum sviðum er snerta hagi þeirra. Fangelsun Lagt hefur verið fram stjórnarfrumvarp um breytingar á almennum hegningarlögum. Þar er gert ráð fyrir allt að fjögurra ára fangelsi fyrir brot gegn ákvæðum um verndun umhvefis með eftirfarandi verknaði: Mengar loft, jörð, haf eða vatnasvæði. Geymir eða losar úrgang eða skaðleg efni þannig að af hlýst verulegt tjón á umhverfi eða veldur hættu á slíku tjóni. Veldur verulegu jarðraski þannig að landið breytir verulega um svip eða spilli merkum náttúruminjum. Frestun emsetningar grannskóla Menntamálaráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp um að honum sé heimilt að veita sve'tarfélögum sem þess óska frest til 1. september 2004 til að framkvæma lagaákvæðið um einsetningu grunnskóla. Fvrirspumir Jónanna Sigurðardóttir spyr heilbrigðisráðherra um stefnumótun í málefnum langsjúkra barna. Guðrún Ögmundsdóttir spyr forsætisráðherra um ráðstefnuna Konur og lýðræði. Hvað marg- ar umsóknir um þátttöku hafa komið frá ís- lenskum konum eða kvennasamtökum, hvaða erindum hafi verið hafnað og hver hafi verið samþykkt. Einar K. Guðfinsson spyr sjávarút- vegsráðherra um eignir, skuldir og aflaverðmæti í sjávarútvegi. Hann spyr líka menntamálaráð- herra um útsendingar sjónvarpsins, hvar þær nást og hvar ekki. — S.DÓR Guðrún Ögmunds- dóttir. Fjórir teknir med hass Lögreglan á Akureyri handtók fjóra menn um tvítugt aðfaranótt fimmtudags vegna gruns um hassneyslu. Samkvæmt uppýsingum frá Daníel Snorrasyni yfirlögregluþjóni veittu lögreglumenn á eftirlitsferð skammt innan við bæinn eftirtekt bifreið sem í voru fjórir piltar. Þegar þeir urðu lögreglunnar varir hentu þeir einhverju út um bílgluggann og vöknuðu grunsemdir um að þar gæti verið um fíkniefni að ræða. Menn- irnir voru handteknir og við frekari leit fundust 4-5 grömm af hassi. Þeir viðurkenndu að eiga hassið og hafa reykt hass fyrr um kvöldið. Bíl- stjórinn þar með talinn. Piltarnir sátu inni um nóttina en málið telst upplýst og hefur þeim verið sleppt. - HI Súlur fá kjallara að gjöf Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið ao styrkja samruna þriggja björgun- arsveita á Akureyri í eina með því að gcfa hinni sameinuðu Björgunar- sveit kjallara í húseigninni að Galtalæk við Eyjafjarðarbraut. Forsaga málsins er sú að 1976 var gerður kaupsamningur milli bæjarins og Fiugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri um kaup á fasteigninni í skiptum fyrir húseign FBSA við Strandgötu. Þar sem Galtalækur var mun stærri eign en fyrra húsnæði sveitarinnar var ákveðið að undanskilja kjallar- ann en þó þannig að sveitin hefði full afnot af kjallaranum og greiddi af honum skatta og gjöld í staðinn. Ein af meginforsendum samruna Flug- hjörgunarsveitarinnar, I fjálparsveitar skáta á Akureyri og Sjóbjörgunar- sveitarinnar Súlna í eina björgunarsveit, Súlur, var að koma nýrri hjörg- unarsveit í eitt húsnæði. Akveðið hefur verið að selja Galtalæk og ligg- ur fyrir kauptilboð í eignina með því skilyrði að kjallarinn fylgi með í kaupunum. - Hl RÚV má ekki daga uppi eins og þurs Kristjáu Pálsson segir að eitthvað verði að gera til að bjara RÚV og að breyta því í hluta- félag gæti verið íyrsta skrefið. Hann segir að þeir sem séu því and- vígir verði þá að koma með tiUögur til bjargar stofnuninni. Kristján Pálsson alþingismaður spurði menntamálaráðherra um málefni ríkisútvarpsins í fyrir- spurnartíma á Alþingi í vikunni. Menntamálaráðherra sagði þá að unnið væri að gerð frumvarps um ríkisútvarpið og hann sagði vilja hjá starfsmönnum RUV að það verði gert að hlutafélagi. Fram- sóknarmenn hafna hugmyndum menntamálaráðherra um að háeffa ríkisútvarpið. Þeir segja það opna leiðina til að einkavæða það síðar. Hjálmar Arnason hreinlega blés á þetta sjónarmið menntamálaráð- herra í Degi í gær. „Það er um mikinn misskilning að ræða hjá framsóknarmönnum ef þeir halda að verið sé að ráðast á ríkisútvarpið. Þeir sem hlustuðu á umræðurnar á Alþingi um mál- efni ríkisútvarpsins hljóta að hafa skilið það að hugur okkar sem vilj- um breytingar, m.a. háeffun á RUV, er sá að styrkja stofnunina en ekki veikja hana,“ sagði Kristján Pálsson. Úrelt fyrirkomulag Hann segir nauðsynlegt að gera stofnunina rekstrarhæfari en hún er í dag. Hann segir að mörgum finnist skorta á frjálsræði og að boðleiðir í fyrirtækinu séu nógu Ijósar og stuttar til þess að RUV standist þá miklu samkeppni sem er í Ijósvakamiðlun nú til dags. „Eg og fleiri, teljum að núver- andi fyrirkomulag með pólitískt kjörnum eftirlitsmönnum sé Iöngu úrelt og gangi ekki upp,“ segir Kristján. Hann var spurður hvort það væri ekki fyrsta skrefið í að einka- væða ríkisútvarpið að gera það að hlutafélagi? „Við getum ekki Iátið þetta fyrir- tæki daga uppi eins og einhvern þurs bara vegna þess að menn þora engu að breyta. Það eru allir sammála um að eitthvað þurfi að gera til að styrkja þessa stofnun. Þeir sem nú segjast ætla að slá skjaldborg um stofnunina eru ekki að Ieggja fram neinar tillögur til lausnar vanda hennar þótt þeir séu sammála öðrum um að eitthvað þurfi að gera. Það er ekki bæði hægt að eiga kökuna og borða hana. Þess vegna segi ég að ef þeir meina eitthvað með skjaldborgar- talinu verða þeir að koma með til- lögur til lausnar vandanum. Eg tel að sú leið að breyta RÚV í hlutafé- lag muni hjálpa mikið. Þessi leið hefur verið farin hjá Pósti og síma og bönkunum. Póstur og sími var gerður að hlutafélagi til þess að hann væri hæfari að taka þátt í þeirri miklu samkeppni sem hann stendur í,“ segir Kristján. Hann segir að bara það að vera ríkisstofnun nú til dags hamli því að stofnunin nái að þróast með eðlilegum hætti. „Því held ég því fram að háeffun sé leið til að styrkja stofnunina. Hvort svo að einhvern tímann ger- ist eitthvað sem leiðir til þess að einhveijir hlutar RÚV verði seldir verður bara tíminn að leiða í ljós,“ segir Kristján Pálsson. — S.DÓR Önnum k nienii un kafiiir þmg- í kjörda’mavÍKii Þau Guðrún Ögmunds- dóttir, þingmaður Reykjavíkur, og ísólfúr Gylii Pálmason, þing- maður Suðurlandskjör- dæmis, segjaþétt setn- ar dagskrár hjá þing- mönnum á kjördæma- viku. Engir fundir verða á Alþingi í næstu viku vegna þess að þá er svo kölluð kjördæmavika. Þessi siður var upp tekinn fyrir nokkrum árum vegna þess að alþingismenn telja nauðsynlegt fyrir sig að komast í kjördæmin til að hitta þar fólk og ræða málin. Af einskærri forvitni spurðum við tvo alþingismenn hvað þeir gerðu á kjördæmaviku? Störfiun hlaðnir „Oft hafa verið haldnir sameigin- Iegir fundir Reykjavíkurþing- manna og borgarfulltrúa á þessum kjördæmavikum. Meðan ég sat í borgarstjórn tók ég þátt í slíkum fundum og þótti þeir mjög gagn- legir. A þessum fundum hafa þing- menn kynnt sér stofnanir borgar- innar og þá þjónustu sem hún veit- ir,“ segir Guðrún Ogmundsdóttir alþigismaður. Hún segir að svona fundur verði ekki haldinn að þessu sinni. Hins vegar sé búið að hlaða mörgum ráðstefnum og fundum á næstu viku og þar mæti alþingismenn og sumir haldi erindi á þessum fund- um. Sjálf segist hún halda erindi á ráðstefnu Barnaheilla f næstu viku. Guðrún segir að enginn hefð sé fyrir því í Reykjavík að þing- menn borgarinnar boði til al- mennra funda svo kjósendum gef- ist kostur á að hitta þá og ræða málin. „Það hefur því miður verið litið svo á um Iangan tíma að þingmenn Reykjavíkur séu þingmenn alls landsins. Eg er því andvíg og tel meira áríðandi að þingmenn borg- arinnar k)Tini sér það sem er að gerast í þeirra kjördæmi eins og landsbyggðarþingmennirnir gera,“ sagði Guðrún Ögmundsdóttir. Fundahöld „Á kjördæmaviku heimsækjum við, allir þingmenn Suðurlandskjör- dæmis, héraðsnefndir í kjördæm- inu og ýmis hagsmunasamtök. Þar ræðum við málin við heimamenn, tökum á móti kvörtunum en þó að- allega hrósi,“ sagði Isólfur Gylfi Pálmason, þingmaður Suður- landskjördæmis. Hann segir að þeir þingmenn Framsóknarfiokksins haldi síðan fundi með sínum kjósendum í kjördæminu. „Við verðum á nokkrum flokks- fundum í næstu viku meðal annars vegna þess að þá verður haldið kjördæmaþing framsóknarmanna í lok næstu viku. Þannig að það er meira en nóg að gera og þétt skip- uð dagskrá hjá okkur,“ sagði Isólf- ur Gylfi Pálmason. — S.DÓR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.