Dagur - 23.10.1999, Síða 6
6 - LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
rD^tr
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Sfmar auglýsingadeildar:
Sfmbréf auglýsingadeildar:
Sfmbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 Gunnar Gunnarsson
460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 6171 (AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Hættuleg stefna
1 íyrsta lagi
Rússneski herinn heldur áfram hryðjuverkum í Tjetjeníu, nú
síðast með því að varpa sprengjum á sjúkrahús og markaðstorg í
höfuðborginni, Grosní, þar sem fórnarlömbin voru einkum kon-
ur og börn. Á sama tíma kom upphafsmaður stríðsins, KGB-for-
inginn fyrrverandi Vladimír Pútin, sem þessa stundina er for-
sætisráðherra Jeltsíns, til fundar við leiðtoga Evrópusambands-
ins sem létu sig hafa það að taka í blóðugar hendur þess manns
sem lagt hefur upp í hefndarstríð gegn heilli þjóð í Kákasus.
í ödru lagi
Þau spilltu öfl sem nú fara með völd í Rússlandi reyna að
stimpla alla Tjetjena sem glæpamenn. Pútín hefur með linnu-
Iausum áróðri reynt að gera Tjetjena og reyndar múslima frá
Kákasus almennt að glæpamönnum í augum rússnesku þjóðar-
innar. Enginn munur er gerður á fámennum hópi skæruliða og
allri alþýðu manna sem vill fyrst og fremst fá að lifa í friði. Kon-
ur og karlar, böm og gamalmenni - allt eru þetta óvinir í augum
rússneska valdsins sem höfðar í áróðri sínum til lægstu hvata
mannskepnunnar og elur á hatri vegna kynþáttar og trúar-
bragða. Allt er þetta gert í pólitískum tilgangi, það er til að tryg-
gja Pútín og félögum aukið fylgi í komandi kosningaslag í Rúss-
landi.
í þriðja lagi
Afleiðingar slíkrar stefnu hljóta að verða hryllilegar, ekki aðeins
fyrir Ttjetjena heldur einnig fyrir Rússa sjálfa. Því verður vart
trúað að forystumenn á Vesturlöndum haldi mikið lengur áfram
að þvo hendur sínar af stríðinu í Tjetjeníu með orðagjálfri. Bein-
ir hagsmunir og mannréttindastefna vestræns samfélags krefjast
þess að reynt verði í alvöru að koma vitinu fyrir rússneska ráða-
menn. Fátt er hættulegra fyrir friðar í heiminum en að leyfa
pólitískum ævintýramönnum að magna upp hatur á milli þjóða
kristinna manna og múslima. Forystumenn á Vesturlöndum
hafa því brýnt tilefni til að beita Rússa þeim beina þrýstingi sem
dugar. Elías Snæland Jónsson.
Logið í átján löndum
og Oliver Lodge fer auðvitað
ekki með neina lygi.
Garri hefur löngum þjáðst af
yfirgripsmikilli trúgirni og þessi
veikleiki hans hefur óspart ver-
ið misnotaður af skelmum og
skaupmönnum, sem hafa logið
Garra fullan við hvert tækifæri.
Að sjálfsögðu hefur Garri reynt
að leyna þessum Ijóði á sínu
ráði með því að þykjast efast
um það sem honum er sagt, en
í raun kokgleypir hann ævin-
lega allt rugl sem fyrir hann er
hent með öngli og
sökku.
En þessa dagana
er Garri hinsvegar
harla kátur því nú
er komið í ljós að
hann á sér marga
þjáningabræður og
miklu fleiri en hann
eru haldnir óheyri-
legri trúgirni. Til
dæmis meira og
minna flestir ráðherrar í ís-
Ienskum ríkisstjórnum allt frá
því á sjötta áratugnum.
Oliver Lodge
Garri er nefnilega enn við sama
kjarnorkuheygarðshornið og
fagnar ógurlega þeim tíðindum
að á Islandi hafi vísast verið
geymd atómvopn um árabil.
Garri hefur nefnilega alltaf trú-
að hinu gagnstæða og skamm-
ast sín fyrir trúgirnina. En nú
vitna þeir í röðum ráðherrarnir,
Björn að Baki Davíðs, Halldór
og allir hinir og segjast alltaf
hafa verið haldnir sömu trú og
Garri og séu það reyndar enn.
Dabbi, Dóri og Bjössi eru sum
sé enn trúgjarnari en Garri og
trúa áfram þó þeir taki á öðru.
Því eins og Davíð sagði:
„Landvarnaráðuneyti, Banda-
ríkjanna, ég endurtek, land-
varnaráðuneytið, sagði mér að
hér hefðu aldrei verið slík
vopn.“ Ja, ekki lýgur sjálft land-
varnaráðuneytið frekar en
Mogginn og annar eins maður
V
í útstrikuðum löndum
Nú er það reyndar skjalfest að
þetta sama ráðuneyti hefur log-
ið í átján útstrikuðum löndun
um tilvist kjarnavopna þar. En
að sjálfsögðu Ijúga þeir ekki að
heimsstórveldinu íslandi. Enda
hafa Kanar staðfest það við
Davíð að á Islandi hafi aldrei
verið atómvopn, en
um Ieið staðfest það
við Björn að þeir
muni aldrei stað-
festa það við
nokkurn mann
hvort slík vopn hafi
verið eða ekki verið
í tilteknum löndum,
nafnkenndum eða
útstrikuðum og
virðist þarna eitt-
hvað hafa skolast til millum
ráðherranna.
Garri er búinn að hugleiða
þetta mál frá öllum hliðum og
komist að þeirri niðurstöðu að
allir málsaðilar hafi í raun á
réttu að standa. Að á Islandi
hafi sem sé aldrei verið kjarn-
orkuvopn, sem slík, en þau hafi
samt verið hér árum saman.
Þarna er bara um skilgreining-
aratriði að ræða. Hér hafi sem
sé ekki verið hægt að þverfóta
fyrir ósamansettum kjarnorku-
vopnum, en slík séu bara ekki
skilgreind sem atómvopn fyrr
en búið að er að setja þau sam-
an, sem tekur víst u.þ.b. tíu
mínútur. Þessvegna er það
laukrétt að hér hafa aldrei verið
staðsett atómvopn, en það er
heldur engin lygi að þau hafi
verið hér í haugum.
Og geta menn nú unað glað-
ir við sitt og sæmilega sáttir,
hafandi allir á réttu að standa.
- GARRl
JOHANNES
\ Wá\f SIGURJÓNS-
SON
ppYV-"* |
V SKRIFAR
Fréttir bárust af því um helgina
að hópi kvenna hafi verið varpað
á dyr skemmtistaðarins Vegasar í
Reykjavík. Ástæðan hefur vænt-
anlega verið sú að konurnar hafa
þótt heldur mikið dúðaðar því á
sama tíma fengu afar fáklæddar
kynsystur þeirra að vcra áfram
inni í hlýjunni á Vegasi.
Fyrir hálfum mánuði eða svo
gerðí annar hópur kvenna til-
raun til að fara inn á nokkra
nektardansstaði í borginni.
Þarna voru á ferð valinkunnar
sómakonur, m.a. séra Auður Eir
og tilgangur heimsóknanna var
sá að huga að aðbúnaði og hög-
um eriendra súlnadansmeyja, en
grunur leikur á að þær séu ekki
allar í starfi af fúsum og frjálsum
vilja. Þessum hópi var úthýst á
nokkurm stöðum og hinum vel
meinandi konum tilkynnt að
nærveru þeirra væri ekki óskað,
m.a. vegna þess að þetta væru
herrakvöld.
Auglýst eftir sparM í
pung pomó-kalla
Hvítra-herrakvöld?
Það hefur sem sé verið frétta-
flutningur af
þessum heim-
sóknum en eft-
irmálar aungvir.
Og það hlýtur
að vekja furðu.
Því hvað var hér
að gerast?
raun og veru
ekkert annað en
það að verið var
að mismuna
fólki vegna kyn-
ferðis. Nú mun
bannað með
lögum á Islandi
að mismuna
fólki vegna kyn-
ferðis, litarháttar eða trúarskoð-
ana. Og hvað hcfði gerst ef lituð-
um karlmönnum hefði verið út-
hýst af skemmtistöðum bogar-
innar vegna þess að nú væri „hví-
tra herrakvöld?" Væntanlega
hefði viðkomandi veitingastöð-
um verið lokað snimmendis, eig-
endur þeirra
kærðir umsvifa-
laust og þeir
jafnvel lokaðir
inni. Og
hneykslunar-
bylgja hefði far-
ið um allt þjóð-
félagið vegna
glórulausra kyn-
þáttafordóma
pornó-hund-
anna í Reykja-
vík.
En með leyfi
að spyrja, er ein-
hver munur á
því að úthýsa
svertingjum vegna lítarháttar eða
henda út konum vegna kynferðis
þeirra? Hvað söng ekki Lennon
heitinn: Woman is the Nigger of
the World. Eru konur tilbúnar til
að sætta sig við það?
Arfleifð Bimu?
Og hvar eru hinar frjálsbornu og
sjálfstæðu og einörðu íslensku
konur sem aldrei láta vaða yfir
sig og sætta sig trauöla við að
réttur sé brotinn á konum, hvor-
ki íslenskum prestum né erlend-
um nektardansmeyjum? Hví hef-
ur enginn þeirra kært þessar sví-
virðilegu trakteringar sem þær
fengu á nektarbúllunum? Þær
hefðu væntanlega aldrei látið
það viðgangast að fólki væri
meinaður aðgangur að skemmti-
stöðum vegna kynþáttafordóma
eigenda, en geta þær sætt sig við
kynferðisfordóma þcirra?
Hvar er Birna Þórðar og arf-
leifð hennar í íslensku samfé-
lagi? Er virkilega engin kona sem
hefur döngun í sér til að sparka í
punginn á pornóköllunum, bein-
línis eða með jiví að kæra þá fyr-
ir mannréttindabrot?
Spyr sá sem ekki veit.
Hvem viltþú helst sjá
sem næsta landsliðs-
þjálfara íslands í knatt-
spymu efGuðjón Þórðar-
son hættir?
Amar Sigurmundsson
formaóur Sa m taka fiskvitmslustöðva
„Óskastaðan
væri sú að
Guðjón Þórðar-
son héldi áfram
sem landsliðs-
þjálfari íslands
en ég geri mér
grein fyrir því
að hann er
hugsanlega á förum. Að honum
frátöldum tel ég að Atli Eðvalds-
son væri hæfasti þjálfarinn til
þess að gegna þessu starfi. Ég sé
það hins vegar ekki fyrir mér að
hann verði jafnframt þjálfari KR.
Ég byggi þetta ekki síst á þeim ár-
angri sem Atli náði á sínum tíma
með Eyjaliðið en hann lagði
grunninn að þeim árangri sem
Iiðið náði síðar."
Jón Siguróarson
framkvæmdastjóri Eskafurða, og KR-
ingur.
„Ég hef mesta
trú á því að það
verði Atli Eð-
valdsson, en
það væri auð-
vitað miður fyr-
ir KR að missa
hann.“
og Eyjamaður.
SteingrímurJ. Sigfússon
álþingismaðurogformaðurVG.
„Það hafa
margir góðir
menn náð frá-
bærum árangri
sem þjálfarar.
Fyrir utan
Guðjón Þórðar-
son dettur
manni í hug
maður eins og Atli Eðvaldsson,
sem náði því loksins að koma KR
í mark. Ég tel einnig að Páll Guð-
laugsson hafi sýnt bæði í Færeyj-
um og hér heima hvaða árangri er
hægt að ná við erfiðar aðstæður
en Atli hafði úrvalsaðstæður,
sterkan leikmannahóp og öflugt
félag. Ég tel einnig þálfara Vest-
mannaeyjaliðsins, Bjarna Jó-
hannsson, koma til greina og ekki
má gleyma Teiti Þórðarsyni, sem
hefur feiknalega reynslu af þjálf-
un. Ég held að það sé gott að
skipta um þjálfara á þessum tíma-
mótum. Guðjón hefur náð svo
góðum árangri að hann er kom-
inn í samanburð við sjálfan sig.“
Svála Stefánsdóttir
formaðuríþróttafélagsins Þórs á Akur-
eyri.
„Ég hef ekki
hundsvit á
íþróttum, þó ég
fari einstöku
sinnum á völl-
inn. Ég tel lík-
legast að KSÍ
ráði Atla Eð-
valdsson sem
landsliðsþjálfara. Það á alltaf að
velja þann sem er hæfastur hver-
ju sinni, niðurstaða sumarsins
sýnir að Atli er sá maður. Ég sé
ekki að aðrir komi til greina."