Dagur - 06.11.1999, Blaðsíða 1
Gengi hótaði að
ganga frá piltmiun
Kerfid brást, segja að-
standendur hníf-
stungupiltsms. 15
mauna geugi hugðist
ráðast á piltinn. For-
stöðumaður Bama-
vemdarstofu segir 20
unglinga vera á brýn-
um bráðabiðlista.
„Kerfið hefur gjörsamlega brugð-
ist. Eg er ekhi í nokkrum vafa um
að hnífstungan hefur á sinn hátt
verið ákall um að fá þá hjálp frá
samfélaginu sem hann og við að-
standendur hans höfum ítrekað
reynt að fá fyrir hann. Einu við-
brögð kerfisins hafa verið þau,
að segja að því miður sé ekkert
meðferðarpláss fyrir hendi," seg-
ir móðursystir 16 ára piltsins
sem nú hefur verið úrskurðaður
í tveggja mánaða gæsluvarðhald
eftir að hafa stungið tvítugan pilt
í magann í Hafnarstræti í vik-
unni.
Eins og fram kom í Degi í gær
hafa aðstandendur drengsins um
langa hríð reynt að fá samfélags-
aðstoð fyrir piltinn, sem sagður
er eiga við erfið
geðræn vanda-
mál að etja.
Móðursystir
piltsins segir
hann ekki hald-
inn vfmu-
efnafíkn, heldur
sé fyrst og fremst
um alvarleg
þunglyndisein-
kenni að ræða frá
unga aldri, frá
þeim tíma að for-
eldrar hans skil-
du og faðir hans
lést voveiflega.
Kerfið hafi átt að
bregðast við þegar
pilturinn varð
uppvís að þátttöku f tveimur
vopnuðum ránum á skömmum
tfma.
Hugðnst jafna um hann
Hnífstungan í Hafnarstræti átti
sér stað þegar þrír ungir menn
tóku piltinn tali og töldu sig eiga
eitthvað sökótt við hann. 18 ára
félagi piltsins varð vitni að at-
burðinum, en er
nú í felum og er
hans leitað af
lögreglu. Kvöldið
eftir atburðinn,
áður en pilturinn
var handtekinn
fyrir hnífstung-
una, mættu um
15 ungmenni, fé-
lagar í vinagengi
fórnarlambsins,
að bráðabirgða-
heimili drengs-
ins, þar sem föð-
urbróðir hans
býr. Kröfðust þeir
þess að pilturinn
yrði sóttur og við-
höfðu líflátshót-
anir, en hurfu frá þegar þeim var
greint frá því að pilturinn væri
ekki á staðnum.
Samkvæmt heimildum Dags
var búið að ákveða að veita pilt-
inum forgang og taka frá með-
ferðarpláss fyrir hann síðar í
nóvembermánuði. Bragi Guð-
brandsson, forstöðumaður
Barnaverndarstofu, segir í sam-
tali við Dag að hann geti ekki
rætt einstök mál.
20 imglingar á bráðalista
„Biðtíminn hjá okkur hefur verið
að rokka á milli 8 og 12 mánaða,
en er nú 6-7 mánuðir. Það eru
ríflega 20 unglingar á lista og þar
er í öllum tilvikum um mjög brýn
tilvik að ræða. Við förum að jafn-
aði eftir aldri umsókna, en for-
gangsröðum þó ef upplýsingar
knýja á um það. Það breytir því
ekki að þótt einstakt mál fái al-
geran forgang þá er biðtíminn
samt nokkrar vikur upp í mánuð.
Það eru einfaldlega svo fá rými í
pottinum," segir Bragi.
Hann segir undirbúning á
fullu við að hrinda í framkvæmd
samþykkt félags- og heilbrigðis-
ráðherra frá í júnf um nýja
bráðamóttöku og langtímameð-
ferðarheimili úti á landi. Nánar
verður vikið að þeim ráðagerðum
í Degi eftir helgina. - FÞG
Bragi Guðbrandsson: Fá rými
í pottinum.
MllljanYur í
Byggðastofniui
Nefnd sem falið var að vinna
frumvarp um flutning Byggða-
stofnunar yfir til iðnaðarráðu-
neytis hefur lagt til við ráðherra
að stofnuninni verði breytt úr
sjálfstæðri ríkisstofnun f stofn-
un sem lúti forræði iðnaðarráð-
herra. Þessi tilflutningur er í
samræmi við ákvæði í stjórnar-
sáttmála og miðað við að hann
fari fram um áramót. Samhliða
er gert ráð fyrir að stofnunin
verði gerð fjárhagslega öflugri.
Milljarður er það sem talað er
um að hún fái í „vöggugjöf*, en
á miðstjórnarfundi Framsóknar-
flokksins í gærkvöld upplýsti
Halldór Asgrímsson að ríkis-
stjórnin hafi ákveðið að verja
hluta af söluhagnaði ríkisins af
ijármálastofnunum til þess að
styrkja byggðir í landinu.
ítarlega erfjallað um þetta mál í
fréttaskýringu á bls. 8-9 og frétt
um miðstjórnarfund framsóknar-
manna má finna á bls. 5.
Lækn
Barnaspítaii Hringsins fékk góða gjöf í gær frá Lionshreyfingunni. Um er að ræða tæki sem mælir sýrustig í vélinda
barna. Eftir að Lionsmenn höfðu afhent tækið slógu læknarnir á deildinni á létta strengi og prófuðu tækið. Farið er
með þráð niður í vélindað um nefið og niður öndunarveginn og getur það kitlað hláturtaugarnar eins og sjá má.
mynd: E.ÓL.
Frjálshyggjan
að verðafjar-
lægmmning
„Það hafa þegjandi og hljóða-
laust orðið algjör umskipti í ís-
lenskum stjórnmálum. Það er
enginn lengur að hrópa báknið
burt. Það er engin eftirspurn eft-
ir niðurskurði, einkavæðingu og
þjónustugjaldasköttum. Kröf-
urnar í samfélaginu eru um betri
Ieikskóla, grunnskóla og fram-
haldsskóla. Þær eru um styttri
biðlista, betri heilbrigðisþjón-
ustu, tónlistarhús, náttúruvernd
og sameign á auðlindum. Félags-
hyggjan er allsráðandi í samfé-
laginu og frjálshyggjan er að
verða Ijarlæg minning." Þetta
segir Helgi Hjörvar, forseti borg-
arstjórnar Reykjavíkur, í helgar-
viðtali Dags, en þar segir hann
tæpitungulaust skoðanir sfnar á
stjórnmálamönnum og flokkum,
ekki síst á Samfylkingunni og
Vinstrihreyfíngunni.
Þorsteinn Pálsson dró sig út úr
stjórnmálunum fyrr á árinu og
gerðist sendi-
herra í London.
„Eg held að ég
geti sagt með
nokkuð góðri
samvisku að það
eina sem ég bein-
línis sakna að
heiman sé að
komast ekki um
helgar f sumarhús fjölskyldunnar
austur á Flúðum,“ segir hann í
viðtali við helgarblað Dags.
Þeir eru ótrúlega líkir tví-
burarnir og húmoristarnir Ás-
mundur og Gunnar Helgasynir.
Þeir ákváðu þó að velja sér ólíkar
brautir. Ásmundur fór í viðskipti
og Gunnar í leiklist. Þegar til
kom urðu viðfangsefnin ekki svo
ólík. Frá þessu segja þeir í helg-
arblaði Dags.
Margt annað skemmtilegt er í
helgarblaði Dags, svo sem
bíórýni, bókahilla, Ieikdómur,
mataruppskriftir, poppsíða,
veiðiþáttur, sönn dómsmál,
spurningaþáttur og fleira og
fleira.
Þorsteinn
Pálsson.
Góða helgi!
namnsHH