Dagur - 06.11.1999, Síða 5
LAUGARDAGUR6. NÓVEMBER 1999 - S
FRÉTTIR
„Öfgasjónarmið VG
rauo en ekki græn66
Formaður Framsókn-
arflokksius réðst
harkalega að Vmstri-
grænum við setningu
miðstjómarfunds í
gær. Hann vill breyt-
ingar á RÚV.
„Vinstri græna kalla þeir sig og
enginn efast um vinstrimennsku
þeirra. Hins vegar sjá allir sem
vilja sjá, að það sem þessir vinstri-
menn segja að sé grænt er rautt,
eins og þeir fánar og þær hugsjón-
ir sem liðsmenn þessa flokks hafa
barist fyrir undanfarin ár og ára-
tugi, á móti tímans straumi."
Þetta var meðal þess sem Hall-
dór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði við setn-
ingu miðstjórnarfundar flokksins
í gærkvöld á Hótel Loftleiðum. I
ræðu sinni réðist Halldór harka-
Iega að Vinstri-grænum og telur
hann þann flokk greinilega höf-
uðandstæðing Framsóknarflokks-
ins. Hann gagnrýndi einkum mál-
flutning Vinstri-grænna í um-
hverfis- og virkjunarmálum á
Austurlandi. Hann sagði flokkinn
ekki telja það byggðamál að 500
ný störf sköpuðust vegna álvers á
Austurlandi og 300 störf annars
staðar á Iandinu.
„Er það byggðamál að vera á
móti allri framþróun, öllum um-
bótum og öllum aðgerðum sem
hníga að bætturn Iífsskilyrðum
fólksins í landinu? Flokkast ekki
slíkur hugsunarháttur fremur
undir þröngsýni, afturhald og öfg-
ar? Eða eigum við alltaf að gera
eitthvað annað?! Þessi öfgasjón-
armið eru ekki græn. Þau eru
rauð,“ sagði Halldór. Hann sagði
einnig að virkjunarmálin væru
eitthvert erfiðasta mál sem Fram-
sóknarflokkurinn hefði staðið
frammi fyrir um Ianga hríð. Það
yrði í verkahring Alþingis að taka
ákvarðanir í málinu og Ijóst væri
að skiptar skoðanir væru á Iand-
inu öllu.
Stjómarandstaðan hefnr
sldpt um nótnablöð
Stjórnarandstaðan í heild sinni
fékk einnig föst skot eins og eftir-
farandi orð bera með sér: „Við
munum öll hvernig stjórnarand-
staðan réðist að okkur í kjölfar
kosninganna 1995. Við vorum
gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi og
svikin loforð í atvinnumáium. Við
vorum úthrópuð sem svikarar og
dugleysingjar. I dag er þessi söng-
ur þagnaður. Þeir sem þá höfðu
hæst hafa skipt um nótnablöð og
syngja nú um svikin loforð okkar
vegna fíkniefnavandans."
Um Iausn fíkniefnavandans
sagði Halldór að síðan í sumar
hefði verið unnið að gerð áætlun-
ar um baráttuna gegn þeirri vá.
Fyrstu tillögur yrðu lagðar fyrir
ríkisstjórn á næstunni. Hann
sagði að nú þegar hefðu verið
teknar ákvarðanir um aukið fjár-
magn til baráttunnar. Þannig væri
gert ráð fyrir 300 milljóna króna
hærri framlögum til málaflokks-
ins í Ijáraukalögum en áður var.
„Eg er þannig sannfærður um að
fyrirheit okkar um milljarð í bar-
áttuna gegn fíkniefnum verður
uppfyllt og vel það,“ sagði Hall-
dór.
RÚV losni undan pólitísku
stjómvaldi
Eitt af því sem vakti athygli í
ræðu Halldórs voru orð hans um
RÚV. Hann sagði ekki koma til
greina að selja RÚV en gera þurfi
kröfur um vönduð vinnubrögð og
óhlutdrægni í fréttaflutningi. En
til þess að svo geti orðið þurfi að
gera ákveðnar grundvallarbreyt-
ingar á stjórnskipulaginu og Iosa
RÚV undan „því flokkspólitíska
stjórnvaldi scm því hefur til þessa
verið stýrt af.“ I öðru lagi þurfi að
tryggja RÚV þær tekjur að það
geti rækt lögbundnar skyldur sín-
ar með sóma. Halldór sagði að
RÚV mætti taka breska ríkisút-
varpið, BRC, sér til fyrirmyndar.
„BBC er sannkallað þjóðarútvarp
og það þarf Ríkisútvarpið að
verða í ríkara mæli, - útvarp þjóð-
arinnar." - BJB
Margeir Pétursson.
Margeir í
Sæplasti
MP Verðbréf hf., sem er í eigu
Margeirs Péturssonar verðbréfa-
miðlara og stórmeistara í skák,
hefur keypt ríflega 18% hlut í
Sæplasti hf. á Dalvík. Margeir
keypti bréfin af Dulvin ehf., sem
seldi öll sín 11,83% í Sæplasti,
og Samvinnulífeyrissjóðnum,
sem átti 6,2% í fyrirtækinu.
Nafnvirði þessa hlutar MP Verð-
bréfa er alls 16,9 milljónir
króna. Miðað við gengi
Sæplastsbréfanna á Verðbréfa-
þingi ætti kaupverðið að vera í
kringum 150 milljónir króna.
MP Verðbréf er nú stærsti hlut-
hafinn í Sæplasti og næst
stærsti er Lífeyrissjóður Norður-
lands með 6,5% hlut. Þess má
geta að Dulvin ehf. er í eigu eig-
enda Borgarplasts hf.
Ekki náðist í Margeir í gær
vegna þessara viðskipta en hann
hefur verið að færa út kvíarnar í
fjárfestingum sínum á hluta-
bréfamarkaði. Hann á m.a. stóra
hluti í Jarðborunum, Þróunarfé-
lagi Islands og Lyljaverslun Is-
lands. - BJB
Virkjun óhagkvæm
Sigurður Jóhannesson hagfræð-
ingur heldur því fram í nýju hefti
tímaritsins Frjálsrar verslunar,
að miðað við hefðbundin arð-
semissjónarmið fyrirtækja verði
13 milljarða króna tap af því að
reisa og reka Fljótsdalsvirkjun.
Þetta stangast á við útreikninga
sem ættaðir eru frá Landsvirkj-
un, en munurinn felst í því
hvaða arðsemiskröfur eru gerðar
og hvaða þættir eru teknir inn í
útreikninginn.
Sigurður miðar við að gera eigi
sömu arðsemiskröfur til virkjana
og til fyrirtækja. I arðsemismati
sem dr. Páll Harðarson hagfræð-
ingur gerði fyrir Landsvirkjun,
og sýndi hagnað, var þannig tek-
ið tillit til ávinnings af bættu at-
vinnuástandi, skattgreiðslna og
fleira, auk þess sem gerð er lág
arðsemiskrafa eða „aðeins“ 3,5
til 4 prósent. Þannig útreiknað
fæst sú niðurstaða að stóriðja
hafi fært Landsvirkjun drjúgan
ávinning. Sigurður bendir hins
vegar á að við hefðbundið arð-
semismat sé miðað við 6-7 pró-
senta arðsemi og þá fáist 10 til
13 milljarða tap á Fljótsdalsvirkj-
un einni og þannig megi áfram
fá út að í heild tapi Landsvirkjun
milli 15 og 26 milljörðun á virkj-
unum sínum og orkusölu til stór-
iðju. - FÞG
Sýknuð af „lyfjaakstri66
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur sýknað konu sem
ákærð var fyrir að aka undir
áhrifum \yfja í nóvember 1998.
Konan, sem tók að jafnaði inn
allmörg lyf við ýmsum sjúkdóm-
um sem htjáðu hana, var í nóv-
ember 1998 handtekin vegna
ábendingar um akstur undir
áhrifum Iyljanna. Konan bar við
skýrslutöku og fyrir rétti að hún
hafi ekki fundið fyrir áhrifum
Iyfjanna fyrr en eftir að hún
stöðvaði bifreiðina. Samkvæmt
vitnisburði lögreglumanna var
konan óstöðug í hreyfingu, rugl-
ingsleg í tali, þvoglumælt og
drafandi við handtöku. I greinar-
gerð Þorkels Jóhannessonar pró-
fessors um áhrif þeirra Iyfja sem
fundust við blóðrannsókn á kon-
unni segir að að öllu samanlögðu
verði að teljast mjög líklegt að
konan hafi verið ófær um að
stjórna vélknúnu ökutæki.
Meðal annars með tilliti til
þess að ekkert var athugavert að
sjá við aksturslag konunnar
skömmu fyrir handtöku hennar
og þess að ekki sé einhlýtt
hvenær áhrifa lyfsins klordia-
zepoxid fer að gæta eftir inntöku
er það niðurstaða dómsins að
ákæruvaldinu hafi ekki tekist,
gegn neitun konunnar, að færa
fram alveg nægar sannanir um
sekt hennar samkvæmt þeirri
verknaðarlýsingu sem fram kem-
ur í ákæruskjali.
Forðinn rýmaði um 600 miUjónir
Samkvæmt nýjum efnahags-
reikningi Seðlabankans dróst
gjaldeyrisforði bankans saman
um 600 milljónir króna í október
og nam í lok mánaðarins 34,1
milljarði króna. Frá ársbyrjun
hafði forðinn styrkst um 4,4
milljarða króna. I september sl.
styrktjst gjaldeyrisforðinn vegna
tímabundinna crlendra lána-
hreyfinga ríkissjóðs og gætti
áhrifa þess í stöðu forðans í lok
mánaðarins. Seðlabankinn átti
engin viðskipti á innlendum
millibankamarkaði með gjaldeyri
í október. Gengi íslensku krón-
unnar, mælt með vísitölu gengis-
skráningar, hækkaði um 1,6% í
mánuðinum.
Erlend skammtímalán bank-
ans hækkuðu um 1,1 milljarð
króna í október en lækkuðu um
2,7 milljarða frá áramótum til
Ioka október. I lok október námu
erlend langtímalán bankans 1,1
milljarði króna og höfðu lækkað
um 4 milljarða króna frá ársbyrj-
un.
BanW Kaupþings í Lúx
Verðbréfafyrirtækið Kaupþing Luxemburg S.A. hef-
ur sótt um leyfi til alhliða bankastarfsemi í Lúxem-
borg. Ráðgert er að bankinn taki til starfa í byrjun
næsta árs að fengnum tilskildum leyfum frá yfir-
völdum bankamála f landinu. Auk Magnúsar Guð-
mundssonar, núverandi framkvæmdastjóra Kaup-
þing Luxemburg S.A., hefur Daninn Johnie Brögger
verið ráðinn framkvæmdastjóri að bankanum. Verð-
bréfafyrirtæki Kaupþings í Lúxemborg hefur starfað
síðan 1998 og í beinu framhaldi af hröðum vexti
þess var ákveðið að færa út kvíarnar. - Hl
Sigurður Einars-
son, forstjóri
Kaupþings.
Kona í varðhald
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær tæplega þrítuga konu í
gæsluvarðhald til mánudags, vegna rannsóknar stóra fíkniefnamáls-
ins. Konan var handtekin á fimmtudag og fór efnahagsbrotadeild Rík-
islögreglustjóra fram á gæsluvarðhald yfir henni. Hún er grunuð um
peningaþvætti, um að taka við illa fengnu fé eða verðmætum og koma
því í umferð. Konan býr í Reykjavík en tengist rúmlega fertugum Suð-
urnesjamanni sem úrskurðaður var í frekara gæsluvarðhald f fyrra-
dag. Hún er einnig talin hafa tengsl við höfuðpaurana í málinu.
SS selur í ísfugli
Verðbréfaþingi barst sú tilkynning í gær að SS hefði selt 90% af sínum
eignarhlut í ísfugli ehf. Isfugl keypti bréfin en fýrir átti SS 50% hlut í
fyrirtækinu. Hluturinn nú er 5% af nafnverði hlutafjár. Slétt ár er síð-
an hlutafé Isfugls var aukið um 50% og keypti SS það allt á þeim tíma.
I samtali við Dag sagði Steinþór Skúlason, forstjóri SS, að í Ijós hefði
komið að svo stór eignarhluti í Isfugli hefði ekki hentað Sláturfélaginu.
Því hefði sú ákvörðun verið tekin að selja megnið af hlutanum en
Steinþór vildi ekki nefna neinar tölur í þessum viðskiptum. - BJB
SUS-arar skora á Biöm
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS, hefur sent frá sér
ályktun, þar sem skorað er á Björn Bjarnason menntamálaráðherra að
samþykkja erindi bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og heimila þeim að
gangast fyrir útboði á rekstri grunnskóla í bænum. Telja ungir sjálf-
stæðismenn að rekstur grunnskóla, sem og flestra annarra stofnana á
vegum ríkis og sveitarfélaga, sé betur kominn í höndum einkaaðila og
því beri ráðherra að verða við erindi Hafnfirðinga.
t