Dagur - 06.11.1999, Síða 6
6 - LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. A MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
Netföng augiýsingadeiidar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-geslur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAV(K)563-1615 Amundi Amundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Gréta Björnsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAV(K)
Sigtir jafnréttislaga
í fyrsta lagi
Sú rödd hefur jafnan verið hávær í umræðunni um jafnréttismál,
að þrátt fyrir formlegt og lagalegt jafnrétti kynjanna sé raunveru-
leikinn allur annar. Er í því sambandi réttilega bent á takmarkað-
an framgang kvenna til valds og ábyrgðar í þjóðfélaginu og við-
varandi launamun kynjanna. Þetta hefur aftur orðið til þess að
tiltrú á hið formlega eða lagalega jafnrétti - jafnréttislögin og
stofnanir tengdar þeim - hefur verið minni en hún gæti verið.
Jafnréttislögin hafa jafnvel verið afgreidd sem dauður bókstafur
og Jafnréttisráð og Kærunefnd jafnréttismála sem valdalausar
stofhanir. í besta falli geti þær beint tilmælum til þeirra sem telj-
ast brotlegir, en engan varði um hvort farið sé eftir þeim.
í öðru lagi
Héraðsdómur Norðurlands jók hins vegar verulega á vægi hins
formlega jafnréttis með dómi sínum í máli Ragnhildar Vigfús-
dóttur gegn Akureyrarbæ í vikunni. Þar eru tekin af öll tvímæli
um að jafnréttislögin eru síður en svo „dauður bókstafur“ og t.d.
undirstrikar dómurinn að þau setji samningsfrelsi á vinnumark-
aði verulegar skorður. Ljóst er að niðurstaða þess dóms byggir í
öllum aðalatriðum á úrskurði Kærunefndar jafnréttismála og er
tekið undir öll sjónarmið hennar og styrkir það mjög stöðu henn-
ar almennt x samfélaginu.
í þriðja lagi
Skilaboðin eru skýr: Opinberir aðilar verða alltaf að taka ákvæði
jafnréttislaga inn í myndina við mannaráðingar. Það verður ein-
faldlega best gert með því að ríki og sveitarfélög festi í sessi hjá
sér kynhlutlaust launakerfi. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
segir í Degi í gær að tilgangurinn með því að láta reyna á málið
fyrir dómi hafi verið að fá hlutlægan úrskurð um grundvallarregl-
ur. Sá úrskurður liggur nú fyrir frá Héraðsdómi og í ljósi útkom-
unnar er kannski ekki óeðlilegt að bæjarstjóri vilji bíða niðurstöðu
Hæstaréttar líka. En í huga almennings er einsýnt að pólitísk, sið-
ferðileg og lagaleg staða bæjarins hefur versnað á meðan staða
kærunefndar og jafnréttislaganna sem slíkra hefur styrkst.
Birgir Guðmundsson.
Fnunkvæði í Hafnarfirði!!
Arðsemishugsjónin hefur bless-
unarlega verið að ryðja sér til
rúms í íslenskum atvinnurekstri
síðustu misserin eftir áratuga
taprekstur á öllum sviðum. Og
er nú svo komið, góðu heilli, að
nánast allt atvinnulífið er undir-
lagt af hámarksarðsemiskröf-
unni. Aðeins örfáar eftir-
legukindur draga lappirnar í
þessari hugsjónavæðingu, sér-
staklega hafa heilbrigðiskerfið
og menntakerfið
verið treg til að
svara sjálfsögðu
kalli tímans. En allt
þokast þó í rétta átt
og einhvexjar gleði-
legustu fréttir
þessa veru nýverið
eru hugmyndir
Hafnfirðinga um að
bjóða út rekstur
grunnskóla þar í bæ.
Þessi framsýni kemur auðvit-
að út óvæntri átt því Hafnfirð-
ingar hafa eiginlega ekki haft
neitt nýtt til málanna að leggja
frá því að Hallsteinn heitinn
færði Islendingum handbolt-
ann.
Lofsverð jjróðafíkn
Garrri, sem er gamall Gaflari,
gleðst auðvitað manna mest yfir
því að hans gamli heimabær
hefur tekið við forystuhlutverki
í menntamálum á Islandi. Og
hann er staðráðinn í því að
sækja um inngöngu fyrir börnin
sín í nýja útboðsskólann í Hafn-
arfirði, jafnvel þó á milli sveitar-
félaga sé að fara. Börn Garra
hafa einfaldan smekk og velja
aðeins hið besta.
Ráðdeildarsamir skólastjórar,
haldnir lofsverðri gróðafíkn,
munu örugglega margir bjóða í
rekstur útboðsmenntasetursins
sem væntanlega verður sleginn
lægstbjóðanda. Sá mun auðvit-
að verða sér úti um undirverk-
taka í hinum ýmsu kennslu-
V
greinum og þar verður einnig
boðið út. Og ekki að efa að út-
sjónarsamir kennarar munu
standa í röðum og bjóða í landa-
fræði, trúarbragðafræði og önn-
ur fræði við Aslandsskóla, en
svo heitir þessi menntastofnun
nýrrar aldar.
Burt með fuUnægingu
kveirna!
Megintilgangur útboðsskólans
er, að sögn hafn-
firskra að „auka
frjálsræði og mög-
leika á breytingum
og áherslum í
kennslunni." Þessa
á örugglega eftir að
sjá stað í þeim hag-
ræðingar- og spam-
aðartilboðum sem
berast í kennsluna.
Þannig má gera því
skóna að mjög hagstætt tilboð
berist í landafræðikennsluna,
þar sem tilboðsgjafi hefur
ákveðið að sleppa allri kennslu
um þriðja heiminn, enda hvort
sem er allir að drepast þar úr
hungri og hvurgi feitan gölt að
flá. Kostnað við kynfræðslu má
örugglega lækka með því t.d. að
sleppa að fjalla um fuílnægingu
kvenna, sem þæ ku enda upp-
lifa svo sjaldan að það tekur því
varla að minnst á það.
Og að sjálfsögðu er eins víst
að í trúarbragðakennslu verði
tilboð bundin við einstök trúar-
brögð og ef lægra tilboð berst
um kennslu í Nýaldarfræðum
en kristinfræðikennslu, þá verð-
ur því fyrnefnda auðvitað tekið.
Já, Garri er ákveðinn í því að
senda börnin sín í Aslandsskóla.
Þar fá þau í það minnsta að
læra eitthvað allt annað en
nauðgað var upp á hann í gamla
ríkisrekna skólahjallinum í
denn. — GARRI
ELIAS
SNÆLAND
JONSSON
SKRIFAR
Téténía og Víetnam
Merkilegt hefur verið að fylgjast
undanfarið með frásögnum af
stríði rússneska hersins gegn
Téténum. Framsetning frétta og
orðalag er oft á tíðum með þeim
hætti að minnir einna helst á
fréttaflutning af fyrstu árum
strfðsins í Víetnam.
Hér er átt við að nánast í hvert
sinn sem sagt er frá stríðsaðgerð-
um Rússa, sem skemmta sér við
að sprengja almenna borgara, þar
með talin konur og börn, í loft
upp, er sífellt tönglast á þeirri af-
sökun Rússa að þeir séu bara að
herja á hryðjuverkamenn.
Alræmt varð í Víetnamstríðinu
að handarískir talsmenn gáfu á
hverjum degi upp tölu þeirra
óvinahermanna sem þeir töldu
sig hafa drepið. Fréttamenn á
staðnum áttuðu sig fljótlega á
því að þessar tölur voru tómt
rugl, og einnig að við talninguna
var enginn munur gerður á al-
mennum borgurum og her-
mönnum. Samt var haldið áfram
að flytja þessar tölur í fjölmiðl-
um eins og heilagan sannleika.
Það var ekki fyrr
en andstaða gegn
stríðsrekstrinum
fór að gera vart
við sig í Ameríku
að fjölmiðlarnir
hófu að sýna al-
menningi hvað í
raun og veru var
að gerast í þorp-
um og sveitum
Víetnams.
Núna fara
margir fjölmiðlar
gagnrýnislaust
með rússnesku
rulluna þótt öll-
um sé Ijóst að
hún er tómt bull, enda samin af
gömlum KGB-foringjum sem
Vesturlandabúar hafa nú ekki
hingað til talið trúverðuga leit-
endur sannleikans.
Eymdarlegt hlutverk
Það er gamalkunnug reynsla að
sannleikurinn er fyrsta fórnar-
lambið í stríði.
Rússar hafa frá
upphafi logið til
um markmið
hernaðarins gegn
Téténíu. Fyrst var
yfirlýstur tilgang-
ur einungis að
loka landamær-
um. Ekki stóð til
að taka Grosní,
höfuðborg lands-
ins. Smám saman
hefur hið sanna
komið í ljós.
Núna liggur fyrir
að markmiðið er
að hernema alla
Téténíu og stýra henni með rúss-
nesku hernámsliði.
Vestrænir stjórnmálamenn
hafa sýnt klíkunni sem nú ræður
ríkjum í Kreml mikla linkind í
Urí'lllJ /4,1 tliU . t U J .4
þessu máli. Ljóst virðist að eftir
slaginn um Kosovo hafa leiðtog-
ar Vesturlanda fengið sig full-
sadda af harðvítugum átökum.
Eins virðast þeir óttast áfhrif enn
frekari upplausnar í Rússlandi.
Þess vegna hafa peningarnir
haldið áfram að streyma austur,
þótt mikið af þeim fari í spillta
stjórnmálamenn og mafíósa.
Hernaður Rússa gegn Tétén-
um kostar gífurlega fjármuni. Og
þá verður væntanlegt hernám
þeirra í landinu ekki síður dýrt.
Þetta eru peningar sem rússnesk
stjórnvökl eiga ekki. Ef vestræn
rfki halda áfram stórfelldri efna-
hagsaðstoð við Rússland þá er
ljóst að það fjármagn mun að
umtalsverðu leyti fara til þess að
halda uppi stríðsrekstri gegn
múslimum í Téténíu. Það yrði
eymdarlegt hlutskipti Vestur-
landa.
íiíUtJlOl^lJ Jeijx (j'jin lil
Pútín lætur berja á múslimum í
Téténíu.
Dm^ut
snju&i
svarad
Hefur þú fylgst nuú
morgiinsjónvarpi
Stöðvar2?
Þröstur Emilsson
fréttamaðurá Sjónvarpinu.
„Eg hef fylgst
með þessu og
þetta hentar
mér ágætlega
því ég fer
snemma á fætur
á morgnana, á
litla lifandi
vekjaraklukku sem dóttir mín á
öðru ári er. Þetta er útvarpsþáttur
í sjónvarpssal, einsog reyndar er
Iagt upp með, og að því Ieyti klókt
hjá stjórnendum á Lynghálsinum
að fá áhorfendur strax að morgni
dags til að stilla yfir á Stöðina. Eg
vildi að mínir yfirmenn hér á bæ
hefðu haft þann kjark og þor á
sínum tíma til að stíga þetta skref
á undan keppinautunum."
Gréta Bjömsdóttir
auglýsingadama áAliureyri.
„Ég hef í vik-
unni stundum
kíkt á morgun-
sjónvarpið þegar
ég er að koma
strákunum mín-
um í skólann og
fara sjálf í vinn-
una. En einsog gefur að skilja
fylgir því oft erill, þannig að það
gefst ekki mikill tími til að horfa á
sjónvarp á þessum tíma dags.
Þetta Iitla sem ég hef séð finnst
mér gott, efnistökin fjölbreytt og
af umsjónarmönnum er Snorri
Már Skúlason mjög góður enda
öruggur með góða framkomu."
Runólfur Ólafsson
framltvæmdastjóri FÍB.
„Aðeins sá ég
morgunsjón-
varpið fyrsta eða
annan morgun-
inn sem það var
á dagskrá. Efnis-
tökin voru fjöl-
breytt og stjórn-
endurnir öruggir. Morgunsjón-
varp er nokkuð það sem maður
þekkir erlendis frá og á sjálfsagt
eftir að festa sig í sessi í íslensku
fjölmiðlaflórunni. Annars er það
nú svo að morgnarnir eru oft tími
mikils erils hjá fólkinu í landinu;
sjálfur þarf ég að koma strákun-
um mínum í skólann og þó mað-
ur sé með augun vel opin fyrir út-
varpinu þá er ekki þar með sagt
að maður hafi tíma til að hafa
augun á skjánum."
Þórhalla Þórhallsdóttir
verslunarstjóri Hagltaups á Akureyri.
„Mér finnst
þetta gott fram-
tak hjá Stöð 2,
enda þó ég hafi
enn ekki séð
morgunsjón-
varpið. A þess-
um tíma er
gjarnan asi á fólki við að koma
börnum í skóla, fara sjálft til
vinnu og því hefur það ekki tíma
til að setjast niður við sjónvarpið.
Hinsvegar er ég svolítið svekkt út
í Stöðina að hafa vegna þessa fellt
niður fréttatíma sinn kl. 22:30 og
því þætti mér koma til greina hjá
Sjónvarpinu vcgna þess að færa
sinn fréttatíma fram til klukkan
22:00.“
■ • I * - ' !> 'HH'I || >‘l