Alþýðublaðið - 15.02.1967, Page 9
Slysavarnadeildin
Ingólfur 25 ára
AÐALFUNDUR slysavarnadeild-
arinnar ,,Ingólfs” í Reykjavík,
hinn 25. í rö'ðinni, var haldinn ný-
lega. í skýrslu formanns deild-
arinnar, Baldurs Jónssonar, og
gjaldkera, Geirs Ólafssonar, kom
fram að fjárhagur deildarinnar sl.
ár var góður, og hefur hagnaður
af merkjasölu á lokadaginn, 11.
maí, aldrei verið meiri. Framlag
deildarinnar til SVFÍ á árinu nam
kr. 200.000,00. í skýrslu Jóhann-
esar Briem, formanns björgunar-
sveitar „Ingólfs”, kom fram, að
mikið var að gera hjá sveitinni
á sl. ári við leitir og önnur
skyld störf, svo og voru haldnar
margar æfingar, bæði á landi ,og
sjó. í björgunarsveitinni eru nú
rúmlega 50 manns starfandi, auk
varamanna.
Á fundinum urðu miklar umræð-
ur um öryggis- og slysavarnamál,
baeði á sjó og á landi og margar
ályktanir samþykktar um þau
mál. Um sjóslysavarnir var m. a.
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Aðalfundur slysavarnadeildar-
innar „Ingólfur,” haldinn fimmtu-
daginn 26. janúar, samþykkir að
skora á alla skipstjórnarmenn og
sjómenn almennt að fylgjast vel
með því að allur öryggisútbún-
aður sé í fullkomnu lagi og að
góðrar hirðusemi sé gætt honum
viðkomandi.
Ennfremur vill fundurinn skora
á alla skipstjórnarmenn að gæta
fyllstu varúðar í störfum sínuni
og tefla aldrei á tæpasta vaðið að
ástæðulausu og reyna með því að
draga úr hinum tíðu og hörmu-
legu sjóslysum, sem átt hafa sér
stað hér við land. Þar sem vetrar-.
vertíð fer nú í hönd er eðlilegt
að brýna þetta fyrir skipstjórnar-
mönnum nú sem o>g oft áður.
Auk þess skorar fundurinn á
alla skipstjórnarmenn að kynna
sér og áhöfnum sínum vel alla
meðferð öryggistækja skipanna og
sækja kennslu í þeim efnum, sem
SVFÍ lætur í té og að þeir kynni
sér vel kvikmynd Skipaskoðunar
ríkisins um meðferð gúmmíbjörg-
unarbáta."
Um umferðarmál voru gerðar
svofelldar ályktanir:
„Aðalfundur slysavarnadeild-
arinnar „Ingólfs” haldinn 26.
janúar 1967, minnir á hin tíðu og
ógnvekjandi slys við akstur drátt-
arvéla og telur ólijákvæmilegt að
gerðar verði ráðstafanir, er telj-
ast nauðsynlegar til að afstýra
slíkurn slysum. Einkum vill fund-
urinn benda á nauðsýn þess, að
fyrirskipað verði, að á allar drátt-
arvélar verði sett örugg og sterk
stálgrindahús og eftirlit hert með
því að því verði framfylgt og árí
leg skoðun þessara tækja lögboð-
in. Þá telur fundurinn mjög
hættulegt, að börn og unglingar
stjórni slíkum tækjum og hvetur
til þess, að sett verði í lög
strangari ákvæði um þau efni, en
nú er.”
" --a
Aðalfundur svd. „Ingólfs” tel-
ur, að öryggi gangandi vegfar-
enda í þéttbýli sé ekki nægilega
tryggt og vill einkum benda á
eftirfarandi ráð til að bæta þar
úr:
- t
1. Merktum gangbrautum verði
fjölgað. Jafnframt verði merk-
ingin ger’ð varanlegri en hing-
að til hefur verið og henni
haldið stöðugt við. Gangbraut-
irnar verði einnig lýstar upp
með ljósgeislum, sem séu helzt
með öðrum lit en hin almenna
götulýsing.
2‘. Séð verði til þess á vetrum,
að gangstéttum og -stígum sé
haldið auðum og færum af snjó
og hálku, ekki síður en ak-
brautum.
3. Við miklar umferðargötur,
einkum þar sem er mikil um-
ferð barna til skóla, verði
hafður sérstakur vörður til að-
stoðar gangandi fólki. Fagnar
fundurinn því, sem þegar hef-
ur verið gert á þessu sviði af
hálfu yfirvalda.
Að lokum vill fundurinn hvetja
alla gangandi vegfarendur til að
sýna ýtrustu varkárni í umferð-
inni og hlýða í öllu settum um-
ferðarreglum, leiðbeiningum og
stjórnaraðgerðum lögreglu, er ein-
ungis miða að því að auka örygg-
i'ð í umferðinni.
Framhald á 10. síðu.
Allmörg félög og félagasam-
bönd hafa átt merkisafmæli und-
anfarnar vikur. Má þar til nefna
t. d. íþróttasamband íslands 55
ára, Hlíf í Hafnarfirði 50 ára,
Sláturfélag Suðurlands 60 ára og
vafaláust eru þau fleiri afmælis
börnin. En það var um 100 ára
afmæli I'ðnaðarmannafélagsins,
sém við ætluðum að skrifa svo-
lítið, því að fyrir skömmu síðan,
eða 'árið 1962 kom hús félagsins
— Iðnskólinn — á ísl. frímerkj-
um, — Afmælisdagur félagsins var
3. febrúar síðastliðinn, en þann
dag fyrir réttum 100 árum var
Iðnaðarmannafélagið stofnað. í
tilefni afmælisins hefur félagið
ggfið út sögu sína þessi 100 ár
og hefur Gísli Jónsson mennta-
skólakennari á Akureyri tekið
hana saman.
Stofnfundur félagsins mun hafa
verið haldinn í húsi gömlu Land-
prentsmiðjunnar. en það var eitt
af „innréttingahúsum” Skúla fó-
geta. Má segja, að vel færi á
því, þegar þess er minnst að Skúli
■gamli, sá dugnaðarforkur, ' gerði
virðingarver'ða tilraun til þess að
gera Reykjavík að iðnaðarborg.
Skólastarfsemi fyrir iðnaðar-
menn var frá upphafi mikið á-
hugamál Iðnaðarmannafélagsins
og fljótlega stofnaði það kvöld-
skóla til alþýðufræðslu. Hann
starfaði t nokkur ár, en á ýmsu
valt með þetta skólahald vegna
kennaraskorts og féleysis. Næst er
það, að stofnaður er teikni-skóli
1892—93 og var aðsókn mikil að
honura. Árin líða og alltaf verður
brýnni þörf félagsins fyrir það,
að eignast eigið húsnæði til skóla-
haldsins. Upp úr aldamótunum
1900 hefst. smíði Iðnskólans við
Yonarstræti, en skömmu áður eða
1896' hafði Iðnaðarmannafélagið
byggt Iðnó, sem á þcim tíma var
þri'ðja stærsta hús bæjarins. Iðn-
skólinn við Vonarstræti tók til
starfa árið 1906. — Starfaði skól-
inn þar í árutugi, þar til fyrir
nokkrum árum, að nýtt iðnskóla-
hús leysir gamla Vonarstrætis-
skólann af hólmi. Það hús stendur
í Skólavörðuholtinu, og eins og
áður er sagt, kom mynd af því
húsi á frímerki, sem út var gefið
í „bygginga-settinu” svokallaða
1962. — Iðnaðarmannaféíagið hef-
ur unnið að ýmsum þjóðþrifamál-
um og haldið margar iðnsýning-
ar þessa öld, sem það hefur
starfað. Til dæmis var það 1924,
að félagið gaf íslenzka ríkinu
standmynd af Tngólfi landnáms-
manni Arnarsyni á Arnarhóli.
Iðnskólafrímerltið kom út 6.
júlí 1962. Það er blátt að lit og
teiknað af Þór Sandholt, en hann
er einmitt skólastjóri Iðnskólans
og' mun hann hafa gert teikningu
þá, er liúsið var smíðað eftir. í
sama setti eru frímerki með mynd-
um af Bændahöllini og .Fiskifé-
lagshúsinu. Upplag þessara frí-
merkja er cin milljón og munu tvö
af þeim fáanleg ennþá á frí-
merkjasölunni, þ.á.m, Iðnskóla-
merkið. Verðgildi þess er kr. 2,50
og tökkun gróf, eða 11%.
HÚSBYGGJENDUR
VERKSTÆÐl:
Eik,
M'ahogny
Teak,
Gordia,
Fura, úti og innitimbur
Fiberplötur Ys“
Spónaplötur í loft 4 mm.
Parkett flísar og lím
Eikarparkett, Lamell 13 og 15 mm.
Eikarlistar og lakk
Sorplúgur, sænskar.
BYGGKH HF.
Sími 34069 og 17672.
SKRIFSTOFUSTÚLKA
óskast til vélritunar og símavörzlu.
Enskukunnátta nauðsynleg.
RANNSÓKNASTOFNUN IÐNAÐARINS
Sími: 21320.
PALLBIFREIÐ MEÐ DRIF
Á ÖLLUM HJÓLUM
Torfærupallbifreiðin U.A.Z. 452-D ér fyrir
liggjandi með ýmsum nýjungum. Helztu nýj
ungárnar: Volgavél, gírkassi 4ra gíra,
sambyggður millikassi og framdrifslokur.
Verð kr. 172.380,00.
15. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $