Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 10
26 - FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 Tæknin leysir ekki allan okkar vanda Öldin sem er að líða hefur verið líkust vísinda- skáldsögu og ekki sér fyrir endann á framförum í tækni þjóða. Á næstu árum munu framfarir í síma- og fjarskiptatækni lík- lega bera hátt. Lífskjör verða væntanlega góð, haldist sömu skilyrði, en mikilvægt er þó að huga að umhverfismálum enda er bein fýlgni milli þeirra og eðlilegs hag- vaxtar. Sama má segja um menntun. Á engri öld sögunnar en þeirri sem senn er liðin hafa orðið jafn miklar breytingar. Fyrir hundrað árum, þegar menn kváðu hvatningarljóð til þjóðar- innar, skrifuðu engir vísinda- skáldsögur. Þær voru ekki til í bókmenntum. En líkast til má þó segja að öldin tuttugasta hafi í raun verið líkust slíkum skáldskap. Framfarir hafa orðið í öllum veraldlegum efnum og haft í för með sér miklar breyt- ingar á lífsháttum þjóða. Og áfram heldur veruleikinn að breytast. Þannig verður Island eftir hundrað ár orðið allt öðruvísi en við þekkjum það í dag og þarf ekki öldina til. Dagur leitaði til nokkurra málsmetandi einstaklinga og spurði þá um ísland árið 2020. Stórfækkun á landsbyggðinni I dag eru Islendingar um 277 þúsund talsins, en spár Hagstof- unnar gera ráð fyrir að þeir verði orðnir 312 þúsund árið 2020. Þessir spáreíkningar eru þó ýms- um óvissuatriðum undirorpnir, helst þeim að lífsmynstur fólks verði með sama hætti og er nú, tíl dæmis er varðar barneignir og að dánartíðni verði svipuð. Þá gera áætlanir ráð fyrir að íbúum á höfðborgarsvæðinu haldi áfram að fjölga og ef búferla- flutningar fólks verða svipaðir og undanfarinn áratug verða þeir eftir tuttugu ár 236 þús- und. íbúar á Iandsbyggðinni verða aðeins 76 þúsund við lok þessa tfmabils ef svo heldur sem horfir. „Gert er ráð fyrir því að á næsta áratug muni um 12.000 til 13.000 manns flytjast af landsbyggðinni og suður til Reykjavíkur, eða á milli 1.200 til 1.300 manns á ári. Það muni sem sagt hægja lítið eitt á þeim miklu fólksflutningum sem nú eru á höfuðborgarsvæðið utan af Sigunöup Bogi Sævapsson skrifar Iandi, en í dag flytjast að jafnaði um 1.700-1.800 manns þaðan og í borgina," segir Sigurður Guðmundsson, skipulagsfræð- ingur og forstöðumaður byggða- þróunarmála hjá Þjóðhagsstofn- un. Hann segir tölur Hagstofu ekki reikna með flutingum fólks milli landa. Búferlaflutningar milli landa eru heldur meiri á höfuðborgarsvæðinu - en fólk af erlendu bergi brotið flytur nú í töluverðum mæli á landsbyggð- ina. Byggðir grísjast Islendingar voru 78.470 sam- kvæmt manntali sem tekiö var í árslok 1901. Meginhluti þjóðar- innar bjó þá á landsbyggðinni og byggði afkomu sína á landbún- aði eða sjósókn, eða hvoru- tveggja. I Reyka- vík bjuggu þá um 6.900 manns, eða 8,5% þjóðarinn- ar - og þar einsog annars- staðar varð fólk talsvert að treysta á afla- brögð og bú- skap. Það er ekki fyrr en í kringum síðari heimsstyrjöld sem Reykjavík fór að þróast til þess þéttbýlis- samfélags sem við þekkjum í dag. Á sama tíma tók bænda- samfélagið að veikjast. Bændur á Islandi f dag eru um 3.600. „Greinin þarf að laga sig að frjálsu viðskiptaumhverfi í heiminum," segir Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Is- lands. „Gæðakröfur neytenda vaxa og þar koma mér í hug neytendur í Iöndum þar sem misbrestir í gæðamálum hafa komið upp, svo sem í Belgíu, Frakklandi og Bretlandi," segir Ari, sem telur óhjákvæmilegt að byggð í land- inu haldi áfram að grisjast vegna samdráttar í sauðQárbúskap. Neysla á kjúldinga- og svínakjöti haldi hinsvegar áfram að aukast. I þessum breyt- ingum geta þó að mati Ara falist tækifæri. Bændur séu í stað hefðbund- ins búskapar í vaxandi mæli að hasla sér völl á sviði umhverfis- verndar „Bændur hafa almennt áhuga á umhverfismálum og ég tel að þeir muni í framtíðinni verða þar í fararbroddi.“ Öllum sjávarútvegi stýrt með kvóta Bjarni Hafþór Helgason, fram- kvæmdastjóri Útvegsmannafé- Með nýrri tækni þurfa aðeins þeir veikustu að liggja inni á sjúkra- húsum. Tækni við skurðaðgerðir verður sífellt betri, einfaldari í framkvæmd og þurfa ekki endilega að fara fram á sjúkrahúsum. Útgjöld hins opinbera munu ekki dragast saman í náinni framtíð - frekar aukast. „Á vinnumarkað eru mörkin milli vinnu og frítíma sífellt að verða óljósari, ekki síst hjá því fólki sem starfar svo til eingöngu með heilanum. Á sama tíma er mikil þörf á að samþætta betur vinnu og heimilislíf. Þarna þarf að skapast meiri sveigjanleiki"... Iags Norðurlands, velkist ekki í vafa um að sjávarútvegur, ekki síður en landbúnaður, muni á næstu árum ganga í gegnum miklar hreytingar. „Eg tel að öllum sjávarútvegi í heiminum verði innan 20 til 30 ára stýrt með kvótakerfum. Fiskveiðum verður stýrt með kvótun, rétt einsog öðrum þeim gæðum í tilverunni sem eru takmörkuð eða komin að cndimörkum sín- um. Innan kvótakerfanna nýt- ast kostir hins frjálsa markaðar og lögmál hans munu ráða í stærstu dráttum." Bjarni Hafþór telur ennfrem- ur að reglur og lög í þessari at- vinnugrein verði rýmkaðar á næstu árum, til dæmis er varð- ar takmörkun á eignarhaldi á kvóta og eignaraðild útlendinga í íslenskum fyr- irtækjum. Losnað verði um þessi höft, einfaldlega til að mæta þeim veruleika sem ríkjandi sé í viðskiptaum- hverfi heimsins; þar sem nálægð vex og vega- lendir skipta sí- fellt minna máli. Bjarni Hafþór telur jafnframt að þeim sem fást við útgerð muni fækka næstu árin, rétt einsog í mörgum öðr- um atvinnugreinum. Ein- yrkjarnir eigi sér þó vonandi áfram góða framtíð þrátt fyrir smæð, því tækni nútímans opni þeim nýja möguleika inn á er- lenda markaði. Mikill vöxtur í upplýsingaiðnaði Stemning þjóðfélags og mark- aðar á hverjum tíma, framtíðar- horfur og viðhorf, endurspegl- ast oft býsna vel í þeim seiðkatli sam- tímans sem hlutabréfa- markaðurinn er. Sævar Helgason, framkvæmda- stjóri Kaup- þings Norður- lands, segir að í dag sýni mark- aðurinn mestan áhuga á fyrir- tækjum í há- tækniiðnaði, ekki síst á sviði síma-, tölvu-, fjarskipta- og upplýsinga- tækni. Víða séu verðbréfafyrirtæki að setja á laggirnar sjóði sem einbeiti sér að fjárfestingum í fyrirtækjum í þessum geira. Enda séu þar spennandi hlutir að gerast; reyndar þannig að illmögulegt sé að sjá fyrir hver þróunin í tækniframförum verði. „Nær öll fjölgun starfa á ís- „Fólk sér að tæknin leysi ekki öll okkar vandamál, “ segir Stefán Gísla- son, umhverfisstjórnunarfræðingur. „Nær öll fjölgun starfa á íslandi á næstu árum verður í upplýsingaiðn- aði, “ segir Eyþór Arnalds, fram- kvæmdastjóri Íslandssíma. „Meðal efnaðra þjóða verður offita faraldur 21. aldarinnar, “ segir Úlafur Hergill Oddsson, héraðslæknir. „Þjóðfélög þróast oft þannig að nær útilokað er að spá fyrir um það, “ segirÁgúst Einarsson, prófessor. „Lífskjör þjóðarinnar stjórnast mikið afmenntun og því þarfhún að vera góð, “ segir Már Guðmundsson, að- alhagfræðingur Seðlabanka íslands. landi á næstu árum verður í upplýsingaiðnaði,“ segir Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Is- landssíma. Flann segir vél- og hugbúnaðarvæðingu sífellt verða meiri í hinum hefðu- bundnu starfsgreinum og sem leysi mannshöndina af hólmi. Sé fyrirsjáanlegt að mikill skortur geti á næstu árum orð- ið á starfsfólki með menntun og reynslu sem nýtist í upplýs- ingaiðnaði. „Þessi vöxtur verð- ur ekki síst í rekstri símafyrir- tækja, en ýmis einkaleyfi og ríkisrekstur hafa heft vaxtar- möguleika þeirra. Tæknifram- farir eru líka miklar, tölvunar eru ekki lengur einangraðar eyjur heldur eru þær með sítengingu orðnar hluti af stóru samskiptaneti sem nær yfir heiminn allan og opnar okkur mikla möguleika hvort sem er á sviði afþreyingar, fræðslu, menntunar eða viðskipta. Þau eru að vísu ekki mikil í dag, í dag selja Flugleiðir innan um 5% af farmiðum sínum í gegn- um Netið en áætla að salan verði komin upp í 50% innan tveggja ára.“ Umhverfishyggjan breytir svipmoti heims- ins En það er ekki síst á sviði ferðaþjónuslunnar sem menn sjá fyrir sér vöxt og viðgang. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, telur ekki frá- leitt að umfang ferða- þjónstunnar hér á landi muni á næstu árum aukast um aðjafn- aði 6% á ári hverju, en slíkt sé þó mjög bundið efnahagsá- standi í þeim löndum sem ferðamenn hingað koma eru frá. - Vöxtur ferðaþjónstu er þó, í ríku mæli, bundinn þróun umhvérfismála. Þar skiptir máli að hyggja upp skýra ímynd af Iandinu sem umhverfispara- dfs og fyrir þá sem starfa í greinni verði að haga störlum sínum í samræmi við það. Umhverfishyggja sem sífellt er að verða sterkari um alla svipmóti heimsins. Á næstu árum og þegar til lengri tíma er litið, segir Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Sambandi ísl. sveitarlélaga, er líklegt að sú samfélagsgerð sem við lifum í nú gjörbreytist. „Fólk kemst ekki hjá því að sjá hvernig umhverfinu hnignar og náttúruauðlindir ganga til þurrðar. Greið miðlun upplýs- inga á þátt í þessari vakningu. Fólk sér að tæknin leysir ekki öll okkar vandamál og því koma upp ný viðhorf, og Iífsmynstur fólks breytist í samræmi við það,“ segir Stefán, sem telur að horfið verði frá þeirri stefnu Iíðandi stundar sem gengur út á sístækkandi einingar. Lítil samfélög, þar sem hver og einn getur verið sjálfum sér nægur um sem flest og tekur fullt tillit til náttúrunnar, munu eflast. Það er þó á hendi stjórnmála- manna, segir Stefán, að búa til leikreglur sem taka tillit til þessarar umhverfishyggju.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.