Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 13

Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 13
Tkypr ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU Svona gerír maður ekki Runólfur var varla sestur aftur þegar síminn hringdi í þriðja skipti og þá fór nú heldur að þykkna upp í Arnarnesinu. Runólfur fór í símann en komst aldrei almennilega að og símtalinu lauk með líflátshótun. Forsætisráðherrahjónin lágu í þungu skapi í hjónarúminu þegar Runólfur fékk hugmynd: „Ég fæ mér leyninúmer og læt taka númerið mitt úr skránni. Það er tímabært að fara að sömu reglum og kollegarnir í útlöndum. ísland er orðið breytt land. Þetta gengur ekki lengur." Smásaga eftir Björn Þorláksson Runólfur var búinn að vera far- sæll sem forsætisráðherra síðan Mikilmennaflokkurinn hafði unnið sögulegan kosningasigur undir hans stjórn. Runólfur þótti alþýðlegur og fyndinn sem þó kom ekki niður á ábyrgum stjórnunarhæfileikum hans. Ilann var dáður leiðtogi þrátt fyrir að ytri aðstæður samfélags- ins færu heldur versnandi. Kjör- tfmabilið hálfnað og heilt yfir gat líf hans ekki verið miklu betra. Alla vikuna hafði Runólfur hlakkað til sunnudagskvöldsins sem hann ætlaði að njóta með fjölskyldu sinni. Sú tilhlökkun átti þátt í orðheppni hans þegar fréttamennirnir spurðu hann út í umdeilda miðstjórnarsamþykkt fyrr um daginn. Hann hafði enn einu sinni náð þeim á sitt band og Runólfur var því léttstígur þegar hann hljóp upp tröppum- ar að heimili sínu á Arnarnes- inu. Elín forsætisráðherrafrú og synirnir tveir biðu hans fagn- andi. Elín hafði útbúið dýrindis kvöldverð og bræðurnir höfðu fengið því framgengt að fjöl- skyldan spilaði vist að loknu borðhaldi. Bræðurnir höfðu erft góðar gáfur foreldra sinna og voru búnir að ná undirtök- unum við spilaborðið þegar heimasíminn hringdi. Elín svaraði og tók við fyrir- spurn frá ungum manni frá Austfjörðum sem vildi fá að ræða virkjunarmál við ráðherr- ann. Hún benti viðkomandi á að heppilegra væri e.t.v. að reyna að koma á fundi síðar, en Runólfur blandaði sér í leikinn og sagðist ræða við manninn. „Alltaf tilbúinn, vakinn og sofinn,“ hvíslaði hann glettnis- lega og tók símann. Elín og synirnir biðu í hálfa klukkustund eftir að Runólfur Iyki samtalinu. Hann baðst af- sökunar þegar hann loks sneri aftur, en gat þess í leiðinni að hann hefði náð að snúa skoðun viðmælanda síns. Margföldun- aráhrif væru vel möguleg af slíku samtali. Hvert tækifæri var dýrmætt. Fjölskyldan fyrirgaf pabba gamla og Runólfur bjó sig und- ir að spila forhandargrand þeg- ar síminn hringdi aftur. Nú var það blaðamaður sem vildi fá viðhorf á mengunarvarnir. Runólfur hugðist afgreiða mál- ið á mínútu, en það tók hann drjúga stund að losna við blaðamanninn, sem bæði reyndist taktlaus og fremur Iít- ið gefinn. Runólfur var varla sestur aft- ur þegar síminn hringdi í þriðja skipti. Heldur var farið að þykkna upp í Arnarnesinu þeg- ar Elín bar manni sínum sam- viskulega þau skilaboð að Ragnar Friðbertsson fram- kvæmdastjóri ætti brýnt erindi. Runólfur kom nafninu ekki fyr- ir sig en stjóratitillinn varð til þess að hann fór í símann. Hann hefði betur látið það ógert. Ragnar þessi sagðist þeg- ar til kom, vera öryrki á barmi gjaldþrots. Hann sakaði Mikil- mennaflokkinn um harðlínu- stefnu sem væri að eyðileggja líf sitt. Runólfur komst aldrei almennilega að og símtalinu lauk með því að öryrkinn hót- aði honum lífláti. „Nú er nóg komið,“ hrópaði Runólfur. Hann hringdi í lög- regluna og gaf allar þær upp- lýsingar um öryrkjann sem honum datt í hug. Ekki var samt af miklu að taka. Hringt hafði verið úr almenningssíma og lögreglan sagðist verða að trufla heimilisfriðinn enn frek- ar með skýrslugerð. Klukkan var langt gengin í eitt þegar lögreglumennirnir kvöddu ásamt loforði um sérstaka ör- yggisvakt um nóttina. Elín hafði þá varið tveimur klukku- stundum í að róa bræðurna. Forsætisráðherrahjónin lágu í þungu skapi í hjónarúminu þegar Runólfur fékk hugmynd: „Eg fæ mér leyninúmer og Iæt taka númerið mitt úr skránni. Það er tímabært að fara að sömu reglum og kollegarnir í útlöndum. Island er orðið breytt land. Þetta gengur ekki lengur.“ Aðstoðarmaður ráðherrans varð ekki hrifinn þegar Runólf- ur bað hann daginn eftir að sjá til þess að hann fengi aukinn frið á heimili sínu. Með jafn- mjúkum hætti og aðstoðar- manninum var unnt, fór hann mörgum orðum um íslensku hefðina f þessum efnum, en Runólfi varð ekki haggað. Aðeins tveimur dögum sfðar voru fréttamiðlarnir búnir að slá því upp að Runólfur Geirs- son hefði svikið íslensku þjóð- ina. Sjónvarpsstöðvarnar birtu gamla viðtalsbúta, þar sem er- lendir þjóðhöfðingjar og önnur mikilmenni lýstu aðdáun á þeirri staðreynd að forsætisráð- herrann væri í símaskránni. Þvílíkur friður. tsland hafði verið félagslegur sælureitur. Hornsteinn opinna samskipta, en ekki lengur. Sú var a.m.k. skoðun fréttamannanna sem reyndar höfðu beinna hags- muna að gæta. Vinstri sinnaðir stjórnmála- leiðtogar voru kallaðir í beina þar sem þeir sögðu atferli for- sætisráðherra fyrsta skrefið f alvarlegri stéttaskiptingu meðal íslensku þjóðarinnar. Akvörð- unin var almennt harðlega for- dæmd en Runólfur gat ekki varið hendur sínar, þar sem hann var staddur í útlöndum. Aðstoðarmaður hans gerði illt verra með því að leka því í pressuna að Runólfur hefði tekið þessa ákvörðun eftir að spilakvöld fjölskyldunnar mis- heppnaðist. Var spilakvöldið mikilvægara en menning ís- Iensku þjóðarinnar? Svo var spurt. Runólfur vann þrekvirki fyrir Ianda sína ásamt utanríkisráð- herra í Brussel'. Hann hlakkaði til að snúa aftur með lagabálk um áunnin sérréttindi í sjávar- útvegsstefnu íslendinga og því varð undrun hans mikil þegar her mótmælenda tók á móti honum í Leifsstöð. Hópurinn lét ekki þar við sitja heldur fylgdu margir alla leið að heim- ili hans með vaxandi reiði. Loks brutust út óeirðir. Lýð- urinn kastaði steinum að hús- inu og braut nokkrar rúður. Lögreglan þótti aðhafast furðu lítið framan af og reyndar segja óstaðfestar heimildir að Höddi lögreglustjóri hafi sagt þegar fyrsti rúðan splundraðist: „Spilaðu nú helvískur." Runólfur og fjölskylda flýðu inn í rammgerða geymslu þar sem þau lokuðu og læstu á eft- ir sér. Þar voru þau í haldi næstu tvær klukkustundir á meðan lögreglan skakkaði leik- inn með semingi og hópurinn leystist smám saman upp. Run- ólfur fékk taugaáfall eftir að hafa prófað árangurslaust að hringja með farsímanum sínum á hjálp. Rafhlöður beggja voru þrotnar. Daginn eftir heimsótti eigin- kona Runólfs hann á Landspít- alann. Hún kom til að segja honum að hjónabandinu væri lokið. Það væri nóg að eyði- Ieggja eitt líf. Hún ætlaði að bjarga þremur. Nokkrum dögum síðar gerði Mikilmennaflokkurinn hallar- byltingu þar sem Runólfi var formlega steypt af stóli. Að- stoðarmaður hans var skipaður forsætisráðherra og er enn í símaskránni en reyndar titlaður rafvirki. Runólfur komst aftur til heilsu en hefur gengið illa að fá þokkalega vinnu. Nú um jól- in tekur hann aukavaktir í nið- ursuðuverksmiðju og þykir harla fáskiptinn. Hermt er að ráðherrann gamli kippist við í hvert skipti sem síminn hringir á vaktinni hans en kannski get- ur hann sjálfum sér um kennt. Svona gerir maður nefnilega ekki. Björn Þorláksson býr í Cardijf á Bretlandseyjum og stundar þar ritstörf. Þessi saga hefur eklii hirst almenningi áður en mun væntanlega verða í smásagna- hefti sem höfundur vinnur nú að.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.