Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 16

Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 16
ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU S£ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 Maður ársins Þeir eru margir mennim- ir sem hafa skamð fram úr á árinu á einn eða annan hátt og eflaust eiga þeir allir skilið að vera útnefndir menn árs- ins. Það er þó erfitt í framkvæmd og því bað Dagur nokkra þjóð- þekkta íslendinga að út- nefna sinn mann ársins. Hér kemur það. Ekki skilið þá tortryggni „Kári Stefánsson fær mitt at- kvæði, alveg pottþétt,“ segir Guð- ný Svavarsdóttir, bókavörður á Höfn í Hornafirði. „Mér finnst hann standa sig alveg frábærlega í því sem hann hefur verið að gera og tel hann ekki eiga skilið þá tor- tryggni sem að honum beinist frá ýmsum í þjóðfélaginu. En ef ég fengi að velja mann aldarinnar þá yrði það Jón Olafsson ritstjóri, fyrir áræðni, húmor og andagift." Á heiður skilinn „Eg vel Siv Friðleifsdóttur sem mann ársins," segir Ólafur Sig- urðsson, bæjarstjóri Seyðisfirði. „Hún hefur unnið afar vel í þeim málum sem snerta Austfirðinga, bæði í E1 GriIIó málinu gagnvart okkur Seyðfirðingum og svo í Fljótsdalsvirkjunardæminu, sem er mikilvægt mál fyrir fjölda fólks á Austurlandi. Þannig að hún á heiður skilinn." Grettístak í menningu „Keith Reed á Egilsstöðum er maður ársins að mínu rnati," segir Inga Rósa Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Ferðafélags Islands. „Hann hefur lyft Grettistaki í menningu og tónlist bæði á Aust- urlandi og á landsvísu með því að stofna Óperusmiðju Austurlands. Einnig hefur hann hafið til vegs og virðingar hið ágæta mennta- setur Eiðar með því að staðsetja Óperusmiðjuna þar og sameinar þar tónlistarkrafta af öllu Iandinu. Það finnst mér virðingarvert." Fyrír snilli og stjómkænsku „Eg tel Davíð Oddsson forsætis- ráðherra best að titlinum maður ársins kominn," segir Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. „Einkum fyrir þá snilli og stjórnkænsku að halda saman þessari mislitu hjörð sem hann stýrir þarna niður við Austurvöll. Það þarf foringja í slíkt starf og slíkur foringi er Dav- íð. Hann er þungavigtarmaður í mörgum skilningi." Flutti konungsdrápu „Mér finnst maður ársins vera Hákon Aðalsteinsson Austfirðing- ur og skáld,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðfræðingur. „Hann gerði framúrskarandi góð- an hlut er hann fór til Noregs, gekk á fund konungs og flutti honum drápu. Bæði var drápan góð og þá ekki síður málstaðurinn sem þarna var barist fyrir. Hákon rauf með þessu 800 ára hlé á einni mestu íþrótt Islendinga, því er hann maður ársins 1999.“ Ragnar opnaði umræðuna „I mínum huga er frændi minn séra Ragnar Fjalar Lárusson tví- Ólafur Þórðarson. Óskar Þór Halldórsson. Ómar Smári Ármannsson. Svandís Guðmundsdóttir. Vésteinn Ólason. Eva Marfa Jónsdóttir. mælalaust maður ársins," segir Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrun- arfræðingur og kynlífsdálkahöf- undur Dags. „Með skrifum sínum í Morgunblaðið kom hann af stað röð greina sem vöktu okkur ær- lega til umhugsunar um að marg- ir hópar búa enn í dag við ofsókn- ir vegna kynhneigðar sinnar. Maður hélt að þeir sem væru á móti þessum hópum væru ein- asta menn einsog Gunnar í Krossinum og Snorri í Betel. En þeir eru miklu fleiri einsog grein- arnar í Morgunblaðinu um þetta mál sönnuðu og ég held að Ragn- ar Fjaiar geri sér varla grein fyrir því hve gott starf hann vann með því að opna umræðuna um sam- kynhneigð eða stöðu annarra minnihlutahópa." Fíkniefnalögreglan „Liðsmenn fíkniefnalögreglunnar eru tvímælalaust menn ársins fyr- ir að upplýsa stóra fíkniefnamálið sem upp kom í haust. Ekki var vanþörf á, enda tel ég fíkniefna- neyslu vera einn stærsta bölvald íslensks samfélags," segir Óskar Þór Halldórsson, fréttamaður Stöðvar 2 á Akureyri. „I þessu stóra fíkniefnamáli náði lögreglan til manna sem skipta máli í undir- heimunum og náði einnig að loka fyrir stóra innflutningsleið fikni- efna hingað til lands. Efitir að náðist utan um þetta mál og þeir sem því tengjast voru teknir úr umferð nú snemma í haust hafa fíkniefnasalar og neytendur haft talsvert hægar um sig en áður, sem gefur okkur væntingar um að ástandið í þessum málum sé betra. Eg tel þetta mál skipta tals- verðu máli fyrir framtíð okkar allra og því eru lögreglumenn menn ársins í mínum huga.“ Hefur allt til að bera „Kári Stefánsson hefur allt til þess að bera þannig að ég geti út- nefnt hann sem mann ársins," segir Svandís Guðmundsdóttir, afgreiðslumaður í versluninni Hjá Maríu á Akureyri. „Með fyrirtæki sínu hefur Kári meðal annars gert ungu vel menntuðu fólki mögu- legt að koma heim til starfa eftir nám erlendis og sjálf þekki ég persónulega dæmi þess. Þá hefur Kári líka sýnt þor við að koma ís- Ienskri erfðagreiningu á laggimar, sem hefur Iíka vissulega þurft. Síðan er þetta náttúrlega alveg bráðmyndarlegur maður og ekki spillir það fyrir þannig að ég kjósi að nefna Kára sem mann ársins.“ Forseti í hestaleik „Það eru ekki mjög margir sem koma til greina eða hafa skorið sig úr á einhvem hátt eða unnið ódauðlegt afrek þannig að þeir séu menn ársins," segir Ólafur Þórðarson, tónlistamaður, sem rekur umboðsskrifstofu tónlistar- manna og skemmtikrafta, Þús- und þjalir. „Helst held ég að þeg- ar fram f sæki þá sé Steingrímur J. Sigfússon mesti sigurvegarinn í pólitíkinni. I poppbransanum yrðu það Iíklega strákarnir í hjómsveitinni Sigurrós, þeir hafa gert frumlega hluti og náð eyrum í útlöndum, sem er ekki á færi hvers sem er. I viðskiptalífinu hlýtur það að vera Bjarni Ar- mannsson hjá FBA. Forseti Is- Iands gæti líka orðið maður árs- ins. Hann hefur sjálfstæðar skoð- anir og framkvæmir það sem hann telur best hverju sinni og lætur sig engu skipta hvort ein- hveijir séu að amast út í hann þótt hann sé í hestaleik og bjóði nýrri vinnkonu með sér í reiðtúr. En þegar allt kemur til alls þá held ég að hinn venjulegi íslend- ingur, sem vinnur myrkranna á milli og ber misjafnlega mikið úr býtum, sé maður ársins. Það er jú hann sem heldur þessu öllu uppi.“ Hinn venjulegi Islendingur „Sem mann ársins vil ég tilnefna hinn venjulega Islending í hita og þunga dagsins, sem ber þjóð- félagið uppi með störfum sín- um,“ segir Ómar Smári Ár- mannsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn í Reykjavík. „Hinn venju- íegi Islendinginur hefur, ásamt öllum hinum, lagt sitt af mörk- um til þess að Iífskjör hér séu jafn góð og raun ber vitni. A því ári sem senn er liðið tel ég að hlutir á Islandi hafi á margan hátt þróast til góðs, og lífsskil- yrði margra eru ágæt en það eru einnig margir sem telja sig af- skipta. Þeim einstaklingum þarf að gera það kleift að njóta þess sem í boði er.“ Starfsmaður hjálparstofnunar „Starfsmaður hjálparstofnunar sem fer á vettvang þar sem neyðin ríkir eftir hamfarir er maður ársins í mínum huga,“ segir Vésteinn Ólason, forstöðu- maður Arnastofnunar. „Eg ber mikla virðingu fyrir því fólki sem leggur eigið líf og limi í hættu við að bjarga öðrum mannslífum á jarðskjálftasvæðum, flóða- svæðum, þar sem styrjaldir hafa geisað eða annars staðar þar sem brýnnar hjálpar er þörf. Það eru hetjur sem eiga svo sannar- lega heiður skilið.“ Yfirvegaður málflutningur „Mér finnst Ólafur F. Magnús- son, læknir og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vera maður ársins. Hann hefur haldið á lofti hugsjónum sem margir deila með honum. Málflutning- ur hans um fyrirhugaðar virkj- anaframkvæmdir á hálendinu, hefur alltaf verið skynsamlegur og yfirvegaður. Ég dáist að þrautseigju hans við að tala máli hins almenna Islendings sem ekki hefur annarra hagsmuna að gæta en að verja fósturjörðina fyrir óafturkræfum Iimlestingum í skjóli siðvilltra laga frá gamalli tíð,“ Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarmaður. -SBS/GUN

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.