Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 20
ÁRll M hTA 1 ÍFIfí í 1 AN fí 1NII ^ 36 - FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
n n /i /K/ u / /i jl f r f i/ # l.r\ #v u # #¥ u i
Hjá íslenskum fyrirtækjum hafa menn ekki miklar áhyggjur afþví að ártaiið breytist úr 1999 i 2000, enda flestir búnir að gera umfangsmikiar prófanir á töivukerfum sínum. En aiiur er varinn gúður og
víða ætla menn að manna aukavakt.
Skálað í kakó
Nú sem
endranær
verður fjöldi
fólks að
vinna yfir
áramótin og
margir
tölvumenn hafa sér-
stakan viðbúnað vegna
hins svokallaða 2000
vanda.
Þegar ártalið breytist úr 1999 í
2000 verður fjöldi tölvumanna á
vakt, en margir hafa kviðið þess-
ari breyttingu frá því að fréttist af
því að til þess að spara minnið var
í árdaga tölvuvæðingar einungis
gert ráð fyrir tveimur táknum fyr-
ir ártal. Hjá mörgum tölvufyrir-
tækjum er sérstakur viðbúnaður
vegna áramótana. Hjá Hewlett
Packard í Danmörku ætla menn
að haga því svo til að bjóða fjöl-
skyldum þeirra sem verða á vakt
um áramótin í veislu. Þeir verða
með kokk á svæðinu og væntan-
lega setja menn þar upp hatta og
skjóta upp flugeldum.
Kostað um
70 milljónir
„Menn óttast ekki að neitt sér-
stakt gerist um áramótin. Það
hefur kostað hátt í 70 milljónir að
uppfæra og prófa búnað þannig
að menn eru ekkcrt sérstaklega
kvíðnir um þessi áramót. Við vit-
um hinsvegar aldrei fyrirfram
hvort að eitthvað gerist. Þess
vegna verðum við með sérstakan
viðbúnað. Menn verða bara að
bíða og sjá hvað tíminn mun leiða
í ljós,“ segir Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi Islenska álfé-
lagsins. Hann segir að það séu
alltaf einhverjir í vinnu hjá fyrir-
tækinu en það verði fleiri en
venjulega í starfi um áramótin.
„Það er alltaf veislumatur hjá
þeim sem þurfa að vinna í kring-
um jól og áramót. Það verða ekki
gerðar neinar undantekningar á
því á gamlárskvöld. í forrét verður
laxadúett. I aðalrétt verður hrein-
dýrasteik og í eftirrétt er ísbomba
og fyrir þá sem eru á næturvakt-
inni og þá sem koma vegna þess-
ara sérstöku áramóta verður kalt
veisluborð sem kallast aldamó-
takabarett. Það er hlaðborð með
hinu og þessu, laxi, þremur teg-
unum af paté, roastbeef, skinku
og einhverju fleiru,“ segir Hrann-
ar.
Óttast panik
„Við Iítum á þetta sem mjög sér-
staka helgi. Andinn hér hefur ver-
ið sá að bregðast við þjónustu-
beiðnum hvenær sem er. Það
verður ekki neitt öðruvísi núna,“
segir Ragnar Marteinsson, þjón-
ustustjóri hjá Opnum kerfum.
Hann segir að fyrirtækið sé búið
undir það versta en eiginlega sé
búist við rólegum áramótum þar
sem langflestir hafi undirbúið ár-
þúsundaskiptin vel.
„Það sem við cigum hugsanlega
von á er einskonar panik-ástand.
Við þykjumst vita að í nokkrum
tilvikum þar sem menn eru gerðir
ábyrgir fyrir tölvurekstri og eiga
að sjá um að allt gangi hnökra-
laust fyrir sig, hafi undirbúningur
ekki verið nægur. Þeir megi
kaupa aðstoð til þess að sjá um að
allt verið í lagi. Vera má að menn
reyni að kaupa sig frá þessari
„Það er alltaf veislumat-
ur hjá þeim sem þurfa að
vinna í kringum jól og
áramót Það verða ekki
gerðar neinar undan-
tekningar á því á
gamlárskvöld. í forrét
verður laxadútett í aðal-
réttverður hrein-
dýrasteik og í eftirrétt er
ísbomba og fyrir þá sem
ern á næturvaktinni og
þá sem koma vegna
þessara sérstöku ára-
móta verður kalt veislu-
borð.“
ábyrgð. Þeir sem ekki hafa gert
neitt f sínum málum vegna ársins
2000 vilja hugsanlega fá þjón-
ustumenn 1, 2 og 3 og mega
kosta til þess. Þetta er svolítið
svipað og með viðvaranir vegna
tölvuvírusa sem enda þannig að
viðvörunin sjálf er versti vírusinn.
Vera má að menn rangtúlki villur
sem upp kunna að koma og allt
verði blásið upp í einhvern alda-
mótavanda. Við ráðleggjum við-
skiptavinum okkar að taka þessu
öllu með ró enda langflestir mjög
vel undirbúnir.“
Kertaljós
og huggulegheit
„Við verðum með sjö til átta
manns hérna hjá okkur í vinnu
um áramótin. Við ætlum að hafa
það huggulegt og það verður
væntanlega kakó og smákökur á
borðum, svo hlustum við á jólalög
og nýársræðuna við kertaljós til
þess að mynda stemmningu,"
segir Olafur Jóhann Olafsson hjá
Tæknivali.
Hann segir að búið sé að prófa
flest tölvukerfi sem fyrirtækið
hefur umsjón með þannig að
hann eigi ekki von á að neitt stór-
kostlegt gerist um áramótin. „Við
erum í raun að búa okkur undir
það ófyrirséða. Þessi vakt hjá okk-
ur er í rauninni öryggsventill. Ef
það væri hægt að prófa allt sem
hugsanlega gæti farið úrskeiðis þá
þyrftum við ekkert að vera á vakt-
inni. Tölvukerfi eru mjög fjöl-
breytt og koma víða við. Kjarnar
kerfanna eru prófaðir og einnig
jaðartilvik þannig að menn hafa
ákveðna tilfinningu fyrir að allt sé
í lagi. Þetta er í rauninni öryggis-
ventill sem við erum að horfa á í
þetta sinn.“
Meirí áhyaqjur
af veðrínu
„Eg hcld að ég geti verið sammála
því sem einhver sagði í útvarpi
um daginn að það væri meiri
hætta af válegum veðrum um
áramótin en bilun í tölvubúnaði.
Það er svo bara að vona að þetta
reynist ekki áhrínisorö," segir
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Eandsvirkjunar.
Þorsteinn segir að hjá Lands-
virkjun verði 50 til 70 manns að
vinna vfða um landið. Þeir sem
eru í virkjunum og stöðvum þar
sem þeir búa. Að sjálfsögðu verði
veislumatur á borðum. „Yfir-
mennirnir á hverjum stað stjórna
því alfarið hvort menn verða með
einhver veisluhöld. Sjálfur verð
ég á vakt í stjórnstöðinni við Bú-
staðaveg í Reykjavík. Þar er nátt-
úrulega unnið allan sólarhringinn
alla daga ársins, en það er hins-
vegar búist við að vaktin verði
Ijölmenn.
Það verður engin stórveisla
þarna, enda verða menn væntan-
lega uppteknir við vinnu sína en
ég geri ráð fýrir að okkur verði
fært eitthvað utan úr bæ, smurt
brauð og kransakökur eða eitt-
hvað svoleiðis. Annars hafa menn
ekki beinlínis legið yfir þessari
hlið á 2000 vandanum."
Bíða og sjá
„Við teljum okkur vera búin að
gera allt sem í okkar valdi stendur
til þess að ekkert komi uppá en
auðvitað útilokum við ekki að
eitthvað geti gerst," segir Olafur
Stephensen, upplýsingafulltrúi
Landssímans. Hann segir að búið
sé að fullprófa allan búnað fýrir-
tækisins, en samt verði að hafa
allan varann á.
„Við verðum með forvöktun frá
hádegi á gamlárdag. Við erum svo