Dagur - 29.01.2000, Side 4
4- LAUGARDAGVR 29. JANÚAR 2000
FRÉTTIR
Úr Héradsdómi Norðurlands eysrta, en það var þar sem vitnaleiðslur fóru fram í vikunni sem reyndu á hvort þagnarskylda
lögmanns gangvart skjólsstæðingi sínum héldi.
Dæmd til vitnis
en svarar engu
Lögmaður skyldaður til
vitnisburðar en þagiiar
skylda kom í veg fyrir
svör.
Elín Árnadóttir héraðsdómslögmaður
sem Hæstiréttur úrskurðaði þann 13.
janúar að skyldi koma fyrir Héraðsdóm
Norðurlands eystra sem vitni í máli
gegn fyrrum skjólstæðingi sínum kom
fyrir héraðsdóm nú í vikunni. Þar neit-
aði hún að svara spurningum sækjanda
málsins og úrskurðaði héraðsdómari
að henni væri ekki skylt að svara þeim
spurningum á grundvelli þagnarskyldu
við fyrrum skjólstæðing sinn.
Játað ranglega?
Málið snýst um ákæru gegn rúmlega
þrítugum manni sem skráður er til
heimilis í Danmörku. Ríkissaksóknari
höfðaði mál gegn honum með ákæru-
skjali 29. september og er manninum
gefið að sök að hafa endurtekið framið
kynferðisbrot gegn unglingspilti á ár-
unum 1997-1998. Ákærði óskaði eftir
því að Elín yrði skipaður verjandi hans
og var í samræmi við þá ósk gefið út
skipunarbréf. Með bréfi 28. október
tilkynnti lögmaðurinn hins vegar að
hún hefði látið af störfum sem sjálf-
stætt starfandi lögmaður.
Fyrir dómi neitaði ákærði alfarið
sakargiftum en sagðist hafa ranglega
játað að nokkru sakargiftir við yfir-
heyrslu hjá lögreglu þar sem honum
hefði skilist af orðum þáverandi verj-
anda hans, Elínar Árnadóttur, að með
slíkri játningu fengi drengurinn ein-
hverja peningagreiðslu. Þessi fram-
burður ákærða varð til þess að ríkissak-
sóknari taldi nauðsynlegt að lögmaður-
inn yrði leiddur fyrir dóm sem vitni og
úrskurðaði héraðsdómur að það skyldi
heimilt en þeim úrskurði var vísað til
Hæstaréttar.
Þagnarskyldan hélt
Elín krafðist þess fyrir Hæstarétti að
úrskurði héraðsdómara um að hún
skyldi bera vitni yrði hrundið, til vara
að sóknaraðila yrði ekki heimilt að
leggja fyrir hana spurningar sem varða
samtöl hennar og sakbornings á meðan
hún gegndi starfi verjanda hans. Vísaði
hún þar meðal annars til þagnarskyldu
sinnar um það sem á milli hennar og
sakbornings fór þegar hún gegndi
starfi verjanda hans. Hæstiréttur stað-
festi úrskurð héraðsdóms þess efnis að
Elínu væri skylt koma fyrir dóminn
sem vitni þar sem ekki væri hægt að
útiloka fyrirfram að fram kæmu spurn-
ingar sem féllu utan þagnarskyldunn-
ar. Þessi vitnaleiðsla hefur nú farið
fram án þess að ríkissaksóknari fengi
svör við sínum spurningum, þar scm
lögmaðurinn taldist bundinn af þagn-
arskyldu gagnvart skjólstæðingi sínum.
- HI
X^«r
í pottinum var frá þvl sagt að á
mannamóti liafi ástarmál Ólafs
Ragnars Grímssonar borið á
góma og þar sem Kári Stefáns-
son var á staðnum hafi hann
verið spurður um livað honum
fyndist um þessi mál. Sagt er að
Kári hafi ekki verið ákafur þátt-
takandi í umræðunum fram að þessu, en þó ekki
skorast undan þegar athyglm beindist beint að
honum. Sagðist hami mjög fagna þessum ráða-
hag og þá ekki síst því að loksins hafi tekist svo
vel til fyrir íslenskuna, að konan héti nafni sein
rímaði á móti „forrit“!!!..
En það cru fleiri orðheppnir en
Kári. Einar S. Emarsson skoraði
mörg stig hjá pottverjum þegar
hann í sjónvarpsviðtali í vikuimi
var að lýsa álagstímum hjá VISA,
en fyrirtækið getur lylgst með
shku frá klukkutíma til klukku-
tíma. Á ákveðnum tímurii vik-
unnar sagði Einar að raðgreiðslur væru mjög
áberandi og bætti svo við að seint á kvöldin yröu
aftur „graðgreiðslur" áberandi, en það eru
greiðslur inntar af hendi á nektarbúllunum....
Einar S.
Einarsson.
Kári
Stefánsson.
Það vakti athygli hve kröftuglega Morgunblaóið
brást við þegar rekstrarleyfi fyrir gangagrunn á
heilbrigðissviði var úthlutaó en blaðið birti
reglugerðina og ýmis fylgiskjöl í heild sinni.
Undir þetta fóru þó nokkrar síður í blaðinu,
enda málið mikilvægt og umfangsmikið. Eimi
pottverji, sem er dyggur aðdaándi þessa blaðs
allra landsmanna, hugðist kynna sér kjarna
málsins með því að lesa Moggann, en gafst þó
upp heldur fúll, enda reglugerðin á köflum ekki
skemmtilesning. Honum varð hins vegar að orði
í þann mund að hann var að gefast upp að það
yrði fróðlegt að sjá livað gerðist þegar gagna-
grunnuriim yrði tilbúinn - Mogginn hlyti að
birta haim Iíka í heild sirnú!!...
FRÉTTAVIDTALID
Margir leikið betur
Guðmundur
Ingvarsson
formaður HandJtnattleiks-
sambands íslands
íslenska landsliðið erþað
eina afl2þátttökuþjóðum á
Evrópumótinu í Króatíu sem
ekkifékk stig í Æákeppn-
inni. Uðið Jék engan leik vel,
en seinni hálfleikur gegn
Portúgölum varþó sínu verst-
ur. ísland leikur í dag gegn
Úkraníu um 11. sætið.
Undirbúningur liðsins hefur veriö mjög
gagnrýndur. Aðeins tveir leikir gegn Frökk-
um úti og síðan lcikir gegn Hafnarfjarðarúr-
vali og Vestmannaeyingum sem ekki lofuðu
góðu.
- Var undirbúningur liðsins fyrir þetta
mót að þínu mati í algjörum molum?
„Það má alltaf deila um það hvað þarf og
hvað er nóg. Liðið vantar greinilega samæf-
ingu. Við áttum ekki möguleika á fleiri æf-
ingaleikjum gegn öðrum Iandsliðum. Við
fengum í fyrsta Iagi ekki atvinnumennina
sem leika erlendis ti! okkar fýrr en um ára-
mótin og fengum ekki lið til að koma heim
og leika við okkur þar. Við komum það seint
inn í Evrópukeppnina að flestöll liðin voru
búin að gera sínar ráðstafanir. Það er Iíka
skýring að það er búið að færa Evrópu-
keppnina fram til janúar og við erum því að
fá leikmennina til mun skemmri tíma en
áður var þegar keppnin fór fram á sumrin
utan keppnistfmabilsins. Við höfum líka
verið óheppnir, erum að fá lykilmenn beint
úr meiöslum og tveir menn sem voru í
hópnum komast ekki með vegna meiðsla.“
- Þessi árangur hlýtur þrátt fyrir þetta
að vera gríðarleg vonbrigði?
„Jú, mikil vonbrigði. Okkar væntingar
voru allt aðrar en það fá ekki stig í riðla-
keppninni. Eg hvorki get eða vil fara út í þá
sálma að val á leikmönnum hafi að ein-
hverju leyti verið rangt. En það er hægt að
vera vitur eftirá. Við í stjórn HSI treystum
Þorbirni Jenssyni fullkomnlega til þess að
sjá um liðið og þar með velja bestu Ieik-
mennina á hverjum tíma.“
- Hafa einhverjir leikmenn staðið sig
mun ver en þú áttir von á?
„Mér finnst Iiðið í heild hafa fjarri því
staðið undir væntingum í þessari keppni og
margir leikmannanna hafa oft leikið betur
en hér nú og virka þungir."
- Mun stjórn HSÍ fara í einhverja
„naflaskoðun“ þegar heim er komið og
eitis hvort þjálfarittn muni halda áfratn
tneð liðið?
„Það verður að fara fram einhver skoðun
á þessum óförum og meta stöðuna og vænt-
anlega grípa til einhverra aðgerða. Þorbjörn
Jensson er ráðinn fram á þetta ár, en ég get
aðeins sagt að það veit enginn sína framtíð,
hvorki Þorbjörn né nokkur annar. Eg get þó
sagt að hann er ekki að hætta nú og það
verður staðið við alla samninga við hann.
Hann verður því með liðið í aukakeppni um
sæti á næstu heimsmeistarakeppni en það
skýrist á sunnudaginn hverjir andstæðingar
okkar verða. Leikið verður heima og að
heiman.“
- Ski'pti dómgæslau sköpum fyrir ís-
letiska liðið, en htíti hefiir verið tttjög gagn-
trýnd?
„Hún hefur verið mjög upp og ofan í þess-
ari keppni. Við getum ekki kennt henni um
árangur liðsins en það verður þó að segja að
rússnesku dómararnir sem dæmdu leikinn
gegn Slóveníu voru alveg herfilega lélegir og
það sldpti sköpum í þeim leik. við vorum 5
mörkum undir í hálfleik og komust einu
marki yfir, en þá tóku þeir í taumana með
ótímabærum hrottvikningum og voru sann-
kallaðir „heimadómarar".
- Hverjir verða Evróputneistar, Gttð-
mundur?
Svíar. Þeir eru á allt öðru plani en önnur
lið hér í keppninni og þeir mæta Frökkum í
úrslitaleiknum eftir að hafa unnið Spán-
verja í undanúrslitum." - GG