Dagur - 29.01.2000, Page 11

Dagur - 29.01.2000, Page 11
X^wr LAU GARDAGU R 29. JANÚAR 2 000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Clinton segir ástandið gott Ekkert fararsnið var að sjá á Clinton Bandarikjaforseta í á miðvikudagskvöld, þótt hann eigi aðeins tæpt ár eftir í emh- ætti. „Við erum lánsöm að vera á lífi á þessu augnabliki sögunnar." Með þessum orðum hóf William Jefferson Ciinton síðustu stefnu- ræðuna á ferli sínum sem forseti Bandaríkjanna og taldi síðan upp allar þær framfarir sem orðið hafa í Bandaríkjunum þau átta ár sem hann hefur gegnt þessu embætti. Atvinnuleysi hefur hefur ekki verið minna í þrjátíu ár. Hagvöxt- ur hefur ekki verið meiri í þrjátíu ár. Glæpum hefur fækkað um 20% og hafa ekki verið færri í ald- arfjórðung. Afgangur hefur verið á fjárlögum ár eftir ár, sem hefur ekki gerst í 42 ár. „Aldrei hefur þjóðin okkar not- ið, á sama tíma, jafn mikillar vel- sældar og félagslegra framfara ásamt með jafn litlum erfiðleik- um innanlands og jafn fáum að- steðjandi hættum að utan,“ sagði Clinton, og stoltið leyndi sér ekki. Hann gat þó ekki annað en tek- ið fram að allt þetta væri ekki honum einum að þakka, heldur bandarísku þjóðinni - „eins og alltaf*. Undirbjó jarðveginn fyrir arftakann Forsetakosningar verða í Banda- ríkjunum í nóvember á þessu ári og meðal þeirra sem sækjast eftir embættinu er A1 Gore, varaforseti Clintons. Clinton notaði tækifær- ið óspart til þess að styrkja Gore í kosningabaráttunni sem eftir- mann sinn með því að tala um þau stefnumál sem þeir báðir hafa barist fyrir og ekki hafa ver- ið leidd til lykta. Sömuleiðis vakti hann athygli á baráttumálum eig- inkonu sinnar, Hilary, sem einnig er að hefja kosningabaráttu, en hún er í framboði til öldunga- deildar sem þingmaður New York ríkis. Raunar var engu líkara en Clinton væri sjálfur að taka þátt í kosningabaráttunni, enda þótt hann láti af embætti í árslok. Stefnuræðan var flutt í sal full- trúadeildar Bandaríkjaþings, og venjan er sú að forseti noti þetta tækifæri til þess að gera grein lyr- ir þeim málum sem hann hyggst vinna að á árinu. Listinn yfir þau málefni sem Clinton ætlar að berjast fyrir var býsna langur. Þetta var lengsta stefnuræðan sem hann hefur flutt á ferli sín- um, en hann talaði í einn og hálf- an klukkutíma yfir þingmönnum fulltrúadeildarinnar, sem voru eins og gefur að skilja mishrifnir af boðskapnum og létu það óspart í ljós. Skattalækkanir og iiit'iri útgjöld Clinton lagði m.a. til að skattar verði lækkaðir um 350 milljarða Bandaríkjadala. Hann lagði ein- nig til að vopnaöryggi verði hert með því að sett verði lög um skráningu á byssum. Hann lagði til að heilbrigðisþjónusta verði bætt og samþykkt verði lög um réttindi sjúklinga. Og hann lagði til að umhverfismál verði tekin fastari tökum. Og er þá fátt eitt talið, því tillögurnar sem hann kom með voru í tugatali. Þar sem Repúblikanar eru í meirihluta á þinginu þykir ólík- legt að þessar tillögur nái fram að ganga, nema ein og ein. Þótt Clinton hafi lagt til skattalækkun upp á 350 milljarða voru repúblikanar fljótir að stimpla ræðuna sem ákall á meiri ríkisút- gjöld. „Skattalækkanir forsetans eru of litlar," sagði George W. Bush, ríkisstjóri í Texas, „og þær hjálpa ekki til við að auka hagvöxtinn né gera skattalögin réttlátari." Bush er sá repúblikani sem virðist Iík- Iegstur til að ctja kappi við A1 Gore varaforseta um forsetaemb- ættið. Kosningabaráttan í Bandaríkj- unum á þessu ári virðist enda ætla að snúast mikið til um rílds- útgjöldin, þannig að Demókratar reyni að koma á framfæri stefnu- málum sem kosta peninga en repúblikanar revni að skera allt niður við nögl. Tony Blair. Blair vill breyta ESB SVISS - Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, skrapp í gær til Davos í Sviss þar sem margir helstu leiðtogar heims eru samankomnir til að ræða heimsmálin, einkum þó efnahagsmál. Blair flutti þarna ræðu þar sem hann skýrði frá hugmyndum sínum um breytingar, sem gera þurfi á Evrópu- sambandinu. Mesta áherslu lagði hann á að fækka þurfi mjög öllum þeim regl- um sem sligað hafa starf bandalagsins. Blair segir að Ieiðtogar Evrópusam- bandsríkjanna verði að átta sig á því að stofnanir þess voru ekki hannaðar til þess að mæta kröfum alþjóðavið- skipta og sífellt hraðari tækniþróunar. Því sé breytinga þörf. Hemaðarsamstarf á ný Bandarísk og kinversk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja á ný hernaðar- samstarf, sem legið hefur niðri frá því bandarískar þotur gerðu „óvart“ árás á kínverska sendiráðið í Belgrað meðan stríðið í Kosovo stóð yfir á síðasta ári. Eftir þá árás var hætt við heimsókn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna til Kína, en nú hefur verið ákveðið að hann skreppi til Peking síðar á þessu ári. Sprengjutilræði í Karadii PAKISTAN - Minnst sex manns létust þegar sprengja sprakk í mosku í hafnarborginni Karachi í Pakistan í gær. Tuttugu manns særðust af völd- urn sprengingarinnar og fjórir hlutu meiðsl af völdum annars sprengju- tilræðis í sömu borg. Sprengjutilræði hafa verið algeng í Pakistan undan- farin ár, og eru oftast liður í innbyrðis átökum pólitískra eða trúarlegra hryðjuverkasamtaka. Fyrir tæpum tíu dögum létust sjö manns í Karachi al’völdum sprengjutilræðis. Ekki nógu fjöluieunt í „Aldamóta- hvelfiuguum64 BRETLAND - „Aldamótahvelfingin" (Millenium Dom) í London, sem opnuð var með pomp og prakt um síðustu áramót hefur ekki verið jafn Ijölsótt og vonast var tii. Til þess að standa undir sér þvrftu 20.000 manns að koma í hvelfinguna á hvcrjum einasta degi, en töluvert vantar upp á það. Reksturinn er því kominn í mikla fjárhagskreppu og hefur lcit- að til stjórnvalda um lán. Að öðrum kosti blasir gjaldþrot við. Breskir Ijöl- miðlar hafa eldd farið miklum lofsorðum um hvelfinguna. Við þökkum af alhug, öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og kærleiksríka vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HERMUNDAR ÞORSTEINSSONAR, bónda, Egilsstaðakoti. Guð blessi ykkur öll. Laufey Guömundsdóttir, Helga E. Hermundardóttir, Halldór Sigurösson, Sigurbjörg Hermundsdóttir, Árni Guömundsson, Guösteinn F. Hermundsson, Krístín Tómasdóttir, Einar Hermundsson, Elín B. Sveinsdóttir og fjölskyldur þeirra. Við þökkum af alhug öllum þeim er veittu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar og tengdamóður, ÓLAFAR PÓRU ÓLAFSDÓTTUR, áður til heimilis að Hafnarstræti 47, Akureyri. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Seli Akureyri, fyrir góða umönnun og vinarhug. Ólafur Haukur Arnarson, Sigurlaug Alda Porvaldsdóttir, Hjördís Arnardóttir, Jón Grétar ingvason, ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLÍNAR KRISTMUNDSDÓTTIR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjaldarvíkur og Dalbæjar fyrir kærleiksríka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Vilborg Friðriksdóttir, Hjálmar Ólafsson og fjölskyldur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÁRA EYFJÖRÐ JÓNSDÓTTIR, Ásgarði, Grenivfk, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 27. janúar sl. Jarðaförin auglýst síöar. Pórhildur Ingólfsdóttir, Áskell Bjarnason, Elísa Ingólfsdóttir, Ásgeir Kristinsson, Heimir Ingólfsson, Sigríöur Sverrisdóttir, Jóhann Ingólfsson, Guöný Sverrisdóttir, Jón Stefán Ingólfsson, Jórlaug Daöadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Sveinseyri, í Tálknafirði, lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri 8. janúar s.l. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri fyrir kærleiksríka umönnun. Sigrún Jóhannsdóttir, Ævar Karl Ólafsson, Jónas Jóhannsson, Guðrún Porsteinsdóttir, Guömundur S. Jóhannsson, Ingibjörg Þórarinsdóttir, Kristín Jóhannsdóttir, Páll Reynisson, Jón Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.