Dagur - 04.03.2000, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 - 27
MATARGA71Ð
Bolludagurinn er á
mánudag. Sá siður að
halda upp á hann í
föstubyrjun hér á íslandi
er um það bil aldargam-
all. Hann er talinn hafa
borist hingað frá Dan-
mörku eins og fleira
gott í bakkelsismálum.
Bolludagurinn er tilhlökkunar-
efni flestra. Þá úða menn í sig
bollum, hver sem betur getur og
margir taka forskot á sæluna og
byrja um helgina. Margar hús-
rnæður (og eflaust húsfeður
líka) kjósa að baka sínar bollur
sjálfar/ir enda mun hagkvæmara
en kaupa þær tilbúnar. Mikið
annríki er þó hjá bökurum
landsins þessa helgi. Einn þeirra
er Þorvaldur Borgar Hauksson
bakari hjá Bjömsbakaríi á Sel-
tjarnarnesi. Þótt hann sé með
tröllauknari uppskriftir í bakarí-
inu en gengur og gerist í heima-
húsum þá var hann ekki í vand-
ræðum með að laga þær að þörf-
um þeirra sem vilja spreyta sig í
heimabakstri og miðla okkur
hugmyndum að nokkrum mis-
munandi fyllingum.
Þorvaldur gaukaði lfka að okk-
ur smá sögu og við látum hana
flakka hér:
Arið 1926 veitti Björnsbakarí
viðskiptavinum sínum verðlaun
fyrir að geta upp á hversu marg-
ar bollur mundu seljast á bollu-
daginn það árið. Átta peninga-
verðlaun voru í boði, frá 25,- kr.
niður í 5.- kr. Glögg kona sem
hlutskörpust varð giskaði á
20.840 og reyndin varð sú að
20.830 bollur seldust. Þarna
skeikaði aðeins 10 bollum og
hin getspaka frú varð að sjálf-
sögðu 25 krónum ríkari.
Hér koma svo uppskriftirnar:
Vatnsdeigsbolliir
4 dl vatn
160 gr. smjör
240 gr. hveiti
_____________5-6 egg___________
hnífsoddur af salti
Bræðið smjörið og yljið
mjólkina. Gerið er sett út í
þurrefnin og þeim blandað
saman við vökvann. Eggin sett
síðust. Hrært vel og hnoðað
létt. Látið standa í tuttugu
mínútur og lyfta sér. Hnoðað
upp aftur og mótaðar bollur
sem látnar eru lyfta sér vel
áður en þær eru bakaðar í 180
gráðu heitum ofni í 8 -12 mín-
útur.
Vatn og smjörlíki er soðið
saman og hveitinu með salti
bætt út í pottinn. Hrært vel þar
til degið losnar við pott og sleif.
Þá er degið kælt og eggjunum
bætt £ einu og einu í senn þeytt
vel á rneðan.
Degið er sett í sprautupoka og
sprautað á plötu sem bökunar-
SænskarbolliiT
100 gr smjör eða sjörlíki
3 dlmjólk
1 bréf þurrger
1/2 salt
1 dl sykur
1 egg
pappír hefur verið
breiddur á. Bakað í
200 gráðu hita í
20 -30 mínút-
ur. Varast skal
að opna ofn-
inn meðan á
bakstri
stendur, að
minnsta kosti
ekki fyrstu 10
mínúturnar, því
þá er hætt við að
bollurnar falli.
Gerbollur
1 kg. hveiti
2 dl mjólk
_____________2 egg
300 dl vatn
1 tesk. salt
100 gr sykur
100 gr ger
kardimommudropar
1/2 tesk. hjartarsalt
1 kg hveiti
Bræðið smjör-
ið og hellið
mjólkinni í.
Velgið upp £37
gráður. Hveiti,
þurrgeri, sykri,
salti og hjartar-
salti blandað sam-
an og það sett út £
vökvann, eggjunum
blandað £. Hrært og hnoðað.
Látið lyfta sér f hálftfma. Síðan
eru bollurnar mótaðar og settar
á plötu. Látnar lyfta sér vel und-
ir hreinu viskastykki. Bollurnar
bakaðar í 8-10 mínútur í 180
gráðu heitum ofni.
Svfar borða bollurnar, eða
„semlorna" eins og þeir nefna
þær, með möndlumassa inni í
ásamt rjóma og strá flórsykri yfir
eða setja glassúr.
Ostabollur
900 gr hveiti (Fimm stjörnu
hveiti frá Kornax)
6 dl vatn (hitastig ca 37 gráður)
1 tsk. sykur
2 tsk. salt
1 dl olía (bragðlaus)
50 gr pressuger (Fæst í
Fjarðarkaupum Hafnarfirði) eða
1 bréf þurrger
ca 1/2 -1 bolli rifinn ostur
Vatn, sykur og ger sett saman í
skál. Ef notað er þurrger má
vatnið vera örlítið heitara. Látið
freyða. Setjið hveiti og salt sam-
an við, hnoðið saman og
bætið olíunni síðast
saman við.
Hnoðið vel.
Látið lyfta
sér þar til
degið hefur
tvöfaldast
að rúm-
máli.
Hnoðið
aftur og
skiptið í ca
20 bollur.
Dýfið hverri
bollu ofan í rifna
ostinn. Látið boll-
urnar lyfta sér á plötu í ca
20 mfnútur. Bakið við 200 gr.
miðjum ofni í 15 - 20 mínútur.
Þessar eru boiðaðar með
smjöri.
Fyllingar
Sherryíylling
Gott er að þeyta saman eggja-
rauður og púðursykur í jöfnum
hlutföllum. Bæta við ögn af
sherryi og mylja makkarónukök-
ur út f. Blanda svo saman við
þeyttan rjóma.
Sólbeijafylling
Einnig fæst góð fylling með
því að setja sólbeijasultu út í
þeyttan rjóma. Gæta þess þó að
gera það varlega og hræra með
sleif en ekki þeyta.
Karamellufylling
Núggat brætt og kælt, þó ekki
meira en svo að hægt sé að
hella því út f rjóma.
Vanillufylling
Upplagt er líka að nota kaldan
búðing í fiyllingarnar, t.d.
vanillubúðing. Bæði má nota
duftið beint út í þeyttan rjóma
og einnig er mjög gott að búa til
búðinginn, setja sultu í botn
bollunnar , búðinginn þar
ofan á og rjóma efst
áður en lokinu er
skellt á.
Ekki má svo
gleyma því
' sem sett er
ofan á, þar
getur verið
um að ræða
bæði þurran
flórsykur,
brætt
súkkulaði eða
glassúr úr flór-
sykri, kakói, smá
smjöri og heitu vatni.
Þorvaldur segir mörg
handtök liggja í gerð einnar
bollu frá því skrúfað er frá kran-
anum og vatnið sett í pott þar til
bollan er komin á borð með fyll-
ingu og súkkulaði ofan á.
„Ég held menn mundu borða
bollurnar með meiri lotningu ef
þeir vissu hvaða vinna liggur á
bak við þetta. Vona bara að allir
geti borðað bollur og fíli það al-
veg í botn,“ sagði Þorvaldur að
lokum.
GUN