Dagur - 04.03.2000, Síða 20
36- LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
VMjfiT
R A Ð AUGLÝSINGAR
Ý M 1 S L E G T TILBOÐ ATVINNA
Kjarvalsstofa í París
Kjarvalsstofa í París er íbúð með aðgengi að
vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir
íslenska listamenn. Stofan er í eigu
Reykjavíkurborgar, Menntamálaráðuneytisins og
Seðlabanka íslands. Kjarvalsstofa er í miðborg
Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir, sem í stofunni dvelja, greiða dvalargjöld sem
ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts
er rekur stofuna, ásamt fleiri listamannaíbúðum
og miðast við kostnað af rekstri hennar. Þessi
gjöld eru lægri en almenn leiga í París og verða á
árinu 2000 1.660 ffr. á mánuði fyrir einstakling en
2.110 ffr. á mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark
tveir mánuðir í senn skv. reglum Cité.Dvalargestir
skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité
Internationale varðandi afnot af húsnæði og
vinnuaðstöðu.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot
Kjarvalsstofu tímabilið 1. ágúst 2000 til 31. júlí
2001.
Umsóknir skulu stílaðar á stjórnarnefnd
Kjarvalsstofu, Ráðhúsi Reykjavíkur, 101
Reykjavík. Tekið er á móti umsóknum til
stjórnarnefndarinnar í upplýsingaþjónustunni á 1.
hæð í Ráðhúsi Reykjavíkur, en þar iiggja einnig
frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim
reglum sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að
koma til greina við þessa úthlutun.
Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 23. mars
2000.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
A T V I N N A
Blaðamennska
Starf blaðamanns á ritstjórn Dags
er laust til umsóknar.
í boði er spennandi starf fyrir þá sem hafa áhuga
á íslenskum þjóðmálum og mannlífi.
Ritstjórn Dags er bæði á Akureyri og í Reykjavík
og skulu umsækjendur taka fram á hvorum staðn-
um þeir vildu frekar starfa.
Umsóknir sendist til ritstjórnar Dags,
Þverholti 14,105 Reykjavík
eða Strandgötu 31,600 Akureyri.
Blaðbera vantar
í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði, bæði í afleysingar og
föst hverfi.
Upplýsingar í síma 800 7080
Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir
tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa
í umferðaróhöppum.
1. Volvo 440 árg. 1995
2. MMC Colt árg. 1992
3. Mazda 323 árg. 1987
4. Mazda 323 árg. 1985
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
VÍS Furuvöllum 11, mánudaginn 6. mars n.k. kl.
9.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00
sama dag.
F U N D I R
Ferðaþjónustuaðilar athugið
Fundir um sérhæfð
ferðamál
Eins og flestir vita höfum við hjá
Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar ákveðið að bjóða
upp á fundi varðandi ferðamál á 3ja vikna fresti.
Þeim verður þannig háttað að fenginn verður
sérfræðingur á ákveðnu sviði ferðamála til að
halda stuttan fyrirlestur, síðan verða umræður og
fyrirspurnir. Þarna gefst mönnum kostur á að
fræðast um ýmsa þætti sem snúa að
ferðamálum. Fundirnir verða haldnir á Stássinu
(Greifanum) frá 12-13.30.
Geta menn þar einnig keypt sér léttan
hádegisverð. Fyrirlesarar voru ákveðnir á fyrstu
þremur fundunum og er einum lokið. Ætlunin er
að eftir það komi ósk frá ferðaþjónustu-aðilum
um hverja þeir vildu fá sem fyrirlesara. Næstu
fundir á Stássinu kl. 12-13.30 eru:
Þriðjudaginn 7. mars.
Erna Hauksdóttir fjallar um Samtök
Ferðaþjónustunnar
(SAF)og það sem er efst á baugi hjá þeim
Þriðjudaginn 28. mars.
Haukur Birgisson Ferðamálaráði fjallar um
markaðsráðið og ráðstefnuskrifstofuna.
Atvinnuþróunarfélag
Kvjaljarðar
Atvinþróunarfélag Eyjafjarðar
Strandgata 29
600 Akureyri
s. 461-2740
24. FEBRÚAR TIL 5. MARS
Vel yfir
r i Irl'j- t r Ífr'p’
P E R L A N ytómalist
Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda
stendur nú yfir í Perlunni, Reykjavik, sími 562 9701 og
Blómalist Hafnarstræti 26, Akureyri, simi 897 6427.
Hjá okkur finnur
þú m.a. ferðabækur
barnabækur • handbækur
Ijóð • hestabækur
spennusögur • ævisögur
myndabækur • ættfræðirit
fræðsluefni • spennuefni
afþreyingu • skáldskap • skemmtun
útivisl • dulspeki • tækni
andkynningarefni • ferðalög • íþróttir
• matreiðslubækur og margt fleira.
Bokamarkaðurinn stendur
aðeins yfir í nokkra daga.
Ekki láta þetta
í einstaka tækifæri
1 framhjá þér fara.
Menningarsjóður íslands
og Finnlands.
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl
Finnlands og íslands. í því skyni veitir sjóðurinn árlega
ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru
fremur veittir einstaklingum, stuðningur við samtök og
stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur
á. Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar
ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir síðari hluta árs
2000 og fyrri hluta árs 2001 skulu berast
sjóðsstjórninni fyrir 31. mars 2000. Ákvörðun um
úthlutun úr sjóðnum verður tekin á fundi sjóðsstjórnar í
lok júní nk.
Áritun á íslandi: Menntamálaráðuneytið, Sölvhólsgötu
4, 150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar
á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Sérstök
umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands,
2. mars 2000.
ORLOFSHÚS
Umsóknarfrestur
fyrir orlofshús um páskana er frá 6. mars til 15.
mars.
Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu félagsins
að Suðurlandsbraut 30, einnig í síma 535-6020
og í bréfsíma 553-9375.
Síðasti umsóknardagur er 15. mars.
Úthlutun verður lokið 20. mars.
Stjórnin
L