Dagur - 08.03.2000, Qupperneq 5

Dagur - 08.03.2000, Qupperneq 5
MIDVIKUDAGUR 8. MARS 2000 - S FRÉTTIR Stjómarformaður Byggðastofimnar telur það efla stofininina að fá til sín Nýsköpunar- sjóð. Stjómarformanni sjóðsins líst illa á hug- myndina. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, gagnrýndi Nýsköpunarsjóð töluvert í ræðu um atvinnumál í Óafsfirði um síð- ustu helgi fyrir að standa ekki und- ir nafni. Hún lýsti því þar að hún vildi sjá sjóðinn færðan yfir til Byggðastofnunar. Formaður stjómar Byggðastofnunar er Krist- inn H. Gunnarsson alþingismaður. Hann var í gær spurður hvort ver- ið væri að skoða það að sjóðurinn fari yfir til Byggðastofnunar? „Menn hafa verið að ræða um þetta stofnanaumhverfi í byggða- málunum og bera það saman við Kristinn H. Gunnarsson. það sem hefur gerst í Noregi. Þar hafa ýmsir atvinnuvegatengdir sjóðir verið sameinaðir undir þeirra byggðastofnun, sem bæði er með lánveitingar og styrkveitingar. Nýsköpunarsjóður er auðvitað uppbyggingasjóður í atvinnulífinu eins og hlutverk Byggðastofnunar er líka. Þess vegna er það ekkert óeðlilegt að menn velti því fyrir sér að færa þetta saman og hugsan- lega fleiri sjóði,“ sagði Kristinn H. Arnar Sigurmundsson. Hann sagði of snemmt að segja til um hvort af þessu yrði. Þetta væru hlutir sem yrðu skoðaðir á næstu mánuðum. „Byggðastofnun er tiltölulega veik stofnun til að sinna því hlut- verki sem henni er ætlað. Það myndi efla hana mjög mikið að fá til sin Nýsköpunarsjóðinn og það væri líka alveg í takt við hennar hlutverk," sagði Kristinn H. Gunn- arsson. Lýst illa á Arnar Sigurmundsson er formaður stjórnar Nýsköpunarsjóðs og hann sagði aðspurður um þessar hug- myndir að ef þær yrðu fram- kvæmdar litist sér illa á þær en að hann hefði ekkert af þessu heyrt. „Nýsköpunarsjóður er engin Byggðastofnun og hefur ekki verið. Þetta er sjóður sem settur var á stofn samhliða því að Fjárfestinga- banki atvinnulífsins var settur á stofn. Það byggðist á samkomulagi iðnaðar og sjávarútvegs og ríkis- valdsins. Þessi sjóður er auðvitað eins og annað í stöðugri endur- skoðun sem slíkur, en ég hef engar meldingar heyrt um að gera þarna breytingar á. Eg vil benda á að þetta er sjóður sem er fyrir allt atvinnulíf í landinu og settur á stofn af frumkvæði stjórnvalda, sjávarútvegs og iðnaðar. Og þannig hefur hann starfað með öllum sín- um margbreytileika," sagði Amar Sigurmundsson. — S.DÓR Kaupmeiin gera uppreisn Stjórn Kaupmannafélags Akur- eyrar hefur ákveðið að segja fé- lagið úr Kaupmannasamtöjuim íslands. Til þessa hefur helmingi félagsgjalda Kaupmannafélags Akureyrar verið haldið eftir, en hinn hlutinn greiddur til Kaup- mannasamtaka Islands. Við inn- göngu Kaupmannasamtakanna í Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, höfðu .Norðlendingar lof- orð fyrir því að innheimta og sldl félagsgjalda yrði óbréýtt, en það síðan sríkið. Aðalfundur Kaup- mannasamtaka Islands var hald- inn í gær. Enginn fulltrúi var þar frá Kaupmannafélagi Akureyrar. 1 bréfi Kaupmannafélags Akur- eyrar til Kaupmannasamtak- anna, þar sem úrsögnin er til- kynnt, segir m.a. að félagið hafi stutt eindregið inngöngu Kaup- mannasamtakanna í SVÞ og þá Akureyskir kaupmenn létu sig vanta á adalfund Kaupmannasamtaka Is- lands í gær, enda farnir úr þeim félagsskap. - mynd: teitur hafi forsvarsmenn Kaupmanna- breytingar yrðu gerðar á högum samtaka Islands fullyrt að engar Kaupmannafélags Akureyrar við stofnun þess. Nú hafi hins vegar verið gerð krafa um grundvallar- breytingar að greiðslur til hinna nýju samtaka og Kaupmannafé- lagið verði sviptar eigin tekju- stofni, sjálfstæðið verði skert og þar með gengið á bak fyTri lof- orða. Þetta sé ómaklegt og við slíka framkomu verði ekki unað. „Nú vilja þeir fá allan pening- inn suður og við eigum sfðan að sækja þangað í sjóði vegna ýmissa verkefna sem eru hér fyr- ir norðan. Það getum við alls ekki sætt okkur við, og viljum að þetta verði eins og um var samið, þ.e. óbreytt. Auðvitað veikir þetta okkar félag en við látum ekki ganga á sjálfsögðum rétti okkar,“ segir Ragnar Sverrisson, kaupmaður í Herradeild JMJ og formaður Kaupmannafélags Ak- ureyrar. — GG Skipafélögm herða- reglur gegn smygli Eigendur Humarhússins taka við viðurkenningunni. - mynd: þök Humar- húsið verðlaimað Humarhúsið á Bernhöftstorf- unni var í gær útnefnt veitinga- hús febrúarmánaðar af Klúbbi matreiðslumeistara, í samráði við Visa Island og menningar- borgarverkefni Reykjavíkur árið 2000. Þessir aðilar ætla að út- nefna veitingahús mánaðarins út þetta ár. Bæði Eimskip og Samskip hafa tekið upp strangar vinnureglur til að sporna gegn því að starfs- menn þeirra taki þátt í fíkniefna- og áfengissmygli til landsins. Reglur voru til staðar fyrir, en stórmál undanfarinna mánaða hafa leitt til þess að skipafélögin ganga nú hart eftir því að hert- um reglum sé framfylgt og að vandað sé til verka við manna- ráðningar. „Flutningafyrirtækin eru skot- mörk glæpamanna um heim all- an. Við höfum tekið upp ákveðn- ar vinnuaðferðir í okkar fyrir- tæki, sem ég hvorki get né vil greina frá, en hafa með ráðning- armál og fleira að gera. Bæði hafa reglur okkar verið hertar og sömuleiðis hafa lykilmenn hjá okkur verið sendir á sérstök Óiafur Ólafsson, Þórður forstjóri Sverrisson hjá Samskipa. Eimskip. námskeið," segir Ólafur Ólafs- son forstjóri Samskipa. Reynt að stoppa í götin Ólafur segir þrjár smyglleiðir mögulegar; utan á skipunum, án vitundar áhafnar, í eða á skipum, með vitund áhafnar eða einhvers í henni, eða í farmi skips af hálfu farmeigenda. „Menn hér leggja sig alla fram í að stoppa í götin. Það hefur gengið vel að draga úr áfengissmygli og vonandi gengur hitt jafnvel og til þess höfum við hert eftirlit með starfsfólki og með aðgangi að tólum og tækj- um,“ segir Ölafur. Þórður Sverrisson, fram- kvæmdastjóri flutningasviðs Eimskipafélagsins, tekur í sama streng og Ólafur. „Við höfum uppi ýmsar aðgerðir til þess að ekki komi upp smyglmál eða annað ólöglegt í okkar starfsemi. Hér gilda ákveðnar reglur, bæði fyrir starfsmenn og við ráðningar og við beitum ýmsum öðrum að- ferðum til að reyna að útiloka smygl,“ segir Þórður. — FÞG FólM bjargað í Mýrdal Kalla þurfti til björgunarsveitar- menn frá Vík í Mýrdal í gærkvöldi til að koma fólki á nokkrum bílum til hjálpar er stöðvuðust í ófærð og veðurofsa á þjóðveginum í Mýral. Vindhraði var mikill, 20 til 30 metrar á sekúndu, og skafrenn- ingur og kóf gerði ökumönnum lífið leitt á frekar stuttum l<afla. Veðrið var ekki mikið betra í Eyj- um en þangað féllu flugferðir nið- ur í gær. Ami á Norður- landi vestra Sjávarútvegsráð- herra, Arni M. Mathiesen, hef- ur í dag, mið- vikudag, heim- sóknir til sjávar- útvegsfyrirtækja á Norðurlandi Árni Mathiesen, sjávarútvegsráð- herra. vestra, og er þetta sjöunda heimsókn ráð- herrans í kjör- ____ dæmi landsins á síðustu mánuðum. Heimsóknin hefst hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi á Sauðárkróki og síðan liggur leið- in til fleiri sjávarútvegsfyrirtækja. Almennur fundur um sjávarút- vegsmál verður haldinn í hádeg- inu á Kaffi Krók. Síðdegis fer hann svo til Sigluljarðar, og heim- sækir m.a. Þormóð ramma-Sæ- berg og SR-mjöl, hann mun eiga fund með bæjarstjórn Siglufjarðar og heldur fund í kvöld á Hótel Læk. A fimmtudag heimsækir sjávarútvegsráðherra Skagstrend- ing og fleiri fyrirtæld á Skaga- strönd auk sjávarútvegsfyrirtækja á Blönduósi og Hvammstanga. - GG Tryggvi í Seðlabankaim Tryggvi Pálsson, sem hefur starf- að um áraraðir hjá Islands- banka, fyrst sem bankastjóri og síðar fram- kvæmdastjóri, hefur verið ráð- inn til Seðla- bankans sem ráðgjafi banka- stjórnar um „heilbrigði" fjármála- kerfisins. Tryggvi er einn þeirra sem mest unnu að undirbúningi og stofnun Isiandsbanka á sínum tíma og hefur alla tíð verið einn helsti burðarás Islandsbankasveit- arinnar, eins og bankinn orðaði það í sinni tilkynningu í gær. I stað Tryggva hjá Islandsbanka kemur Guðmundur K. Tómasson sem framkvæmdastjóri F&M, verðbréfamiðlunar bankans. Góður VISA-gróði Á nýlegum aðalfundi Visa Islands kom fram að hagnaður af reglu- legri starfsemi í fyrra nam 162 milljónum króna. Heildarviðskipti með VISA-kortum árið 1999 námu alls 156,7 milljörðum króna, samanborið við 134,3 milljarða 1998 og 110 milljarða árið 1997. Einar S. Einarsson læt- ur af starfi framkvæmdastjóra 1. júlí nk. og tekur Halldór Guð- bjarnason þá við. Sigurður Haf- stein var kjörinn stjórnarformaður VISA á aðalfundinum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.