Dagur - 08.03.2000, Side 9

Dagur - 08.03.2000, Side 9
8- MIDVIKUDAGUR 8. MARS 2000 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 - 9 -Tfc^ur Xk^ur. FRÉTTA SKÝRING Davíð varpar sprengjum IRIK ÞOR GIIÐMUNDS SON SKRIFAR Forsætisrádherra kast- aði sprengjum í um- ræðu um fjármál fiokk- auna - og gekk síðau út. Andleg vaulíðau, segir formaður Öryrkja- baudalagsins. Jóhauna vill lög iiiii fjárreiður fiokka, en nefnd for- sætisráðherra hallast að óhreyttu ástandi. Óhætt er að segja að Davíð Odds- son forsætisráðherra hafi varpað sprengjum inn í umræðuna um starfsemi og fjárreiður stjórn- málaflokka á Alþingi á mánudag. Hann sagði að umræðan, sem Jó- hanna Sigurðardóttir átti frum- kvæðið að því að færi fram, væri hræsnisleikur og síðan hellti hann sér yfir Samfylkinguna, meðal annars með fullyrðingum um að milljónir króna af pening- um öryrkja hefðu verið notaðar til áróðurs tengdum Samfylkingunni í kosningabaráttunni og að í vara- formannstíð Jóhönnu í Alþýðu- flokknum hefði gjaldkeri flokks- ins sagt af sér að því hann hefði ekki fengið að sjá reikninga flokksins. Davíð hellti síðan salti í sárin með því að yfirgefa Alþing- ishúsið þegar Jóhanna leitaðist við að andmæla því sem hún kall- aði dylgjur og ómálefnalegan málflutning forsætisráðherra. Ummæli Davíðs um öryrkja- peningana voru svofelld: Mér fannst einkar ógeðfellt í síðustu kosningabaráttu hvernig peningar öryrkja, milljónir króna afpening- um samtaka öryrkja voru notaðir til að birta áróðursauglýsingar augljóslega tengdar Samfylking- unni. Augljóslega tengdar Sam- fylkingunni. Og ef maður tryði á það, að þessir þingmenn væru virkilega þess sinnis að vilja hafa heiðarledui í þessum málum, þá hefðu þeir fordæmt auglýsingar af því tagi, að taka fjármuni Öryrkja- bandalagsins og nota þá blygðun- arlaust í kosningabaráttu eins og þarna var gert, blygðunarlaust með mjög ósmekklegum hætti, svo ekki sé nú meira sagt. Geðvonska og vanstillmg Jóhanna Sigurðardóttir tók þess- um ummælum Davíðs óstinnt upp í umræðunum og sagði Dav- íð „ráðast með heift að Öryrkja- bandalaginu" og krafðist þess að hann sannaði mál sitt. I samtali við Dag segir Jóhanna að geð- vonskan og vanstillingin í Davíð í umræðunum hafí verið með ólík- indum og ekki sæmandi forsætis- ráðherra. „Hann var þarna með dylgjur og svívirðingar og jós úr skálum reiði sinnar og tilefnið var ein- faldlega það, að ég var að ganga eftir rökum hjá honum fyrir því að nefnd sem fjallaði um fjármál flokkanna í 6 ár hefði skilað auðu. Eg er ekkert óvön því að forsætisráðherra missi stjórn á skapi sínu þegar fjármál stjórn- málaflokkanna eru rædd, það er eins og það gerist alltaf. Eg er búin að leggja þetta frumvarp fram sex sinnum og aldrei hefur hann gengið eins langt og núna, þar sem hann lagðist í algjöra lág- kúru. Hann var með dylgjur í garð Öryrkjabandalagsins og það sérstæða við það er að á Alþingi höfum við oft rætt um málefni öryrkja án þess að hann blandaði sér oft inn í þá umræðu. Hann telur sér sæmandi í alls óskyldu máli að koma fram með þessar dylgjur, sem eiga ekkert skylt við raunveruleikann. Það er eins og hann reyni alltaf að drepa málum á dreif frá staðreyndum og rökum til þess að komast hjá því að ræða kjarna málsins". Jóhanna segir forsætisráðherra skulda öryrkjum skýringu og raunar afsökun á framkomu sinni. „Og þessari umræðu er ekki lokið, því hann kórónaði frammistöðu sína með því að ganga á dyr í fússi eftir að hafa kastað þessu fram á Alþingi". Lýsa „andlegri vanlíðan“ Garðar Sverrisson, formaður Ör- yrkjabandalagsins, hefur ekki dregið af sér við að mótmæla þessum málflutningi Davíðs og í fréttatíma Skjás 1 á mánudags- kvöld sagði hann bert út að Dav- íð hefði augljóslega verið í miklu ójafnvægi og andlega slæmu ástandi. I samtali við Dag segir Garðar að það komi öryrkjum á óvart að forsætisráðherra skuli leggja þessa lykkju á Ieið sína til að koma höggi á Öryrkjabanda- lagið. „Sérstaklega í ljósi þess að hann er nýbúinn að verða sjálfum sér og embætti sínu til minnkun- ar með afar ósmekklegum um- mælum. En í þessum auglýsing- um, sem greinilega hafa sett hann úr jafnvægi, vorum við að vitna til ummæla málsmetandi aðila um kjör öryrkja, ummæla Mæðrastyrksnefndar, Hjálpar- starfs kirkjunnar, Rauða kross Is- lands, forseta ISI, Iandlæknis, biskups Islands, ritstjóra Morg- unblaðsins og Dags. Undir þau sjónarmið sem þarna komu fram tók fólk úr öllum stjórnmála- flokkum og má þar m.a. nefna formann Framsóknarflokksins." Garðar segir að forsætisráð- herra virðist telja að þessi kynn- ingarherferð beindist sérstaklega gegn sér. „Þetta er alveg nýr vink- ill hjá honum, að þarna hafi verið um að ræða stuðning við tiltekinn stjórnmálaflokk. Það væri að minnsta kosti synd að segja að hugur hans væri ekki kvikur og fijór um þessar mundir, þótt ein- hverjum kynni að fínnast að emb- ættis síns vegna mætti hann gefa þjóðinni ögn meiri frið fyrir sínu líflega ímyndunarafli. Það sér hver sæmilega yfirvegaður maður að ummæli Davíðs eru ekki að- eins Ijarstæðukennd, heldur lýsa þau fyrst og fremst andlegri van- Iíðan, sem ekki nokkur maður er öfundsverður af,“ segir Garðar. Davíð Oddsson og frú heilsa öryrkjum við komuna a landsfund Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda síðustu kosninga. Davið segir öryrkja hafa auglýst blygðunarlaust tengt Samfylkingunni i kosningabar- áttunni. Hvorki öryrkjar né Samfylkingin kannast við slíkt. Sekux mn tvöfaldan ragling? Ummæli Davíðs um gjaldkera AI- þýðuflokksins voru svofelld: [Jó- hannaj var íAlþýðuflokknum þeg- ar Alþýðuflokkurinn tilkynnti að hann fyrstur flokka hefði gert fjár- mál sín hrein og Ijós fyrir dyrum. Hann birti einhverjar fáeinar töl- ur. Sex mánuðum seinna eða svo sagði gjaldkeri Alþýðuflokksins af sér, [jóhannaj var þá varaformað- ur Alþýðuflokksins, þessi ágæti þingmaður. Og af hverju sagði gjaldkeri Alþýðuflokksins af sér? Af þvt' að gjaldkerinn fékk ekki að sjá reikningana... hvers konar hræsni er þetta allt saman? Þeir Alþýðuflokksmenn sem Dagur ræddi við áttu bágt með að koma þessum ummælum Davíðs heim og saman. Sighvatur Björg- vinsson, formaður flokksins, seg- ir ekki heila brú í þessum mál- flutningi. „I fyrsta lagi segir hann að flokkurinn hafi birt „einhverj- ar tölur“. Flokkurinn birtir árs- reikning áritaðan af Iöggiltum endurskoðendum og það er nú meira en einhverjar tölur. I öðru Iagi man ég ekki eftir því á mín- um 30 ára ferli að nokkur gjald- keri flokksins hafi sagt af sér.“ Sighvatur segir að eftir vand- lega ígrundun telji hann að Davíð geti aðeins átt við deilur sem komu upp milli Sigurðar Tómas- ar Björgvinssonar, framkvæmda- stjóra flokksins, og Sigurðar Arn- órssonar gjaldkera flokksins 1996. „Þeir deildu hart um launamál framkvæmdastjórans og um málefni Alþýðublaðsins. Þá sagði enginn gjaldkeri af sér, heldur var framkvæmdastjóran- um boðið að segja af sér vegna samskiptaörðugleikanna. Gjald- kerinn ekki einasta sá reikning- ana heldur birti þá í tengslum við flokksþing,“ segir Sighvatur. Samkvæmt þessu hefur forsæt- isráðherra hvoru tveggja ruglast á framkvæmdastjóra og gjaldkera Alþýðuflokksins og einnig ruglast í tímatalinu, því þetta var þó nokkru eftir að Jóhanna var farin úr Alþýðuflokknum og þá að sjálf- sögðu ekki lengur varaformaður floldcsins. Fjármálm verði opin og sýnileg En víkjum þá að því máli sem var til umræðu á Alþingi þegar hin umdeildu ummæli féllu. Sex lög- gjafarþing í röð hefur Jóhanna og meðflutningsmenn hennar beitt sér fyrir lagasetningu um starf- semi og fjárreiður stjórnmála- samtaka. Markmið frumvarps Jó- hönnu er „að gera fjármál stjórn- málaflokka opin og sýnileg, enda er slík leynd einungis til þess fall- in að auka tortryggni almennings í garð stjórnmálasamtaka. Stjórn- málasamtök eru bókhaldsskyld en hér er lagt til að þau verði einnig framtalsskyld og að þau leggi fram endurskoðaða reikn- inga árlega í dómsmálaráðuneyt- inu“. Þess er getið í greinargerð að á Islandi hafi lengi tíðkast að ein- staklingar og fyrirtæki styrki fjár- hagslega þá stjórnmálaflokka sem þeir styðja. „Það getur skapað tor- tryggni að leynd skuli hvíla yfir háum styrkjum frá einstakJingum eða fyrirtækjum, enda er það óeðlilegt. Hætta getur einnig ver- ið á hagsmunaárekstrum". I greinargerðinni er farið yfir hvernig svona málum er háttað á hinum Norðurlöndunum. Þar séu engin heildarlög um stjórnmála- flokka nema í Finnlandi. „I Nor- egi fær stjórnmálaflokkur, sem býður fram til Stórþingsins, fram- Iag af fjárlögum hafi hann boðið fram í a.m.k. helmingi kjördæma og hlotið meira en 2,5% heildarat- kvæða yfir landið. Flokkar, sem bjóða fram til sveitarstjórna, fá einnig ríkisstyrk. í Svíþjóð voru lögfestar reglur um ríkisframlög til stjórnmálaflokka árið 1972. Þar eru þau bundin við þá stjórn- málaflokka sem bjóða fram til þings. Arið 1986 voru samþykkt lög f Danmörku um fjárframlög frá rfkinu til stjórnmálaflokka, hæði í tengslum við lands- og Davíö Oddsson: Fannst „einkar ógeðfellt ísíðustu kosningabaráttu hvernig peningar öryrkja, milljónir króna afpeningum samtaka öryrkja voru notaðir til að birta áróðursauglýsingar augljós- lega tengdar Samfýlkingunni". Jóhanna Sigurðardóttir: Ekki „óvön því að forsætisráðherra missi stjórn á skapi sínu þegar fjár- mál stjórnmálaflokkanna eru rædd... aldrei hefur hann gengið eins langt og núna, þar sem hann lagðist í algjöra lágkúru". Garðar Sverrisson: „Það sér hver sæmilega yfirvegaður maður að ummæli Davíðs eru ekki aðeins fjarstæðukennd, heldur lýsa þau fyrst og fremst andiegri vanlíð- an, sem ekki nokkur maður er öf- undsverður af“. Sighvatur Björgvinsson: „Flokkurinn birti ársreikning áritaðan af löggiltum endurskoðendum og það er nú meira en einhverjar tölur. í öðru lagi man ég ekki eftir því á mínum 30 ára ferli að nokkur gjald- keri flokksins hafi sagt afsér.“ sveitarstjórnarframboð. Framan- greind lög taka ekki til starfsemi stjórnmálaflokka að öðru leyti. í Finnlandi voru lögfest ítarleg ákvæði um starfsemi stjórnmála- flokka árið 1969, svo og fjárfram- lög til þeirra sem bjóða fram til þings“. Jóhanna bendir á að samkvæmt upplýsingum stjórnmálafræðinga við Háskóla íslands sé upplýsinga- skylda stjórnvalda um fjárreiöur undantekingalítið fyrir hendi í ná- grannalöndum okkar. „Innan stjórnmálafræðinnar er talið nauðsynlegt að stjórnmálaflokkar geri grein fyrir fjárreiðum sínum hvort sem um er að ræða ráðstöf- un íjármuna af opinberu fé eða framlög frá fyrirtækjum og ein- staldingum. Slík lagasetning í anda þess sem frumvarpið gerir ráð fyrir er nauðsynleg til að eyða tortryggni og auka tiltrú almenn- ings á stjórnmálaflokkum og lýð- ræðislegum stjórnarháttum". Ríkisskattstjóri tekur fram í um- sögn um frumvarpið að telja verði mjög til bóta að settar séu réttar- reglur um fjárreiður á því sviði sem til umfjöllunar sé í frumvarp- Nefndin vildi óbreytt ástand Inn í umræðuna um frumvarpið blandast niðurstöður í skýrslu nefndar sem forsætisráðherra skipaði með fulltrúum flokltanna árið 1994 um fjármál stjórnmála- flokka, en nefndin var skipuð gegn víðtækum stuðningi við þá breytingu að gera framlög til stjórnmálaflokka frádráttarbær frá tekjuskattsstofni. Eftir nokkurra ára meðgöngu kom skýrslan í des- ember 1998. Davíð og Jóhönnu greinir á um gildi þessara niður- staðna, sem í grundvallaratriðum felast í því að halda óbreyttu fyrir- komulagi gagnvart flokkunum en styrkja forsetaframbjóðendur. Davíð segir þetta niðurstöðu full- trúa allra flokka, en Jóhanna telur þetta eingöngu vera það lágmark sem allir gátu verið sammála um. Jóhanna segir að rök þau sem forsætisráðherra ber fram gegn því að lög verði sett um Ijárreiður flokkanna og koma einnig fram f þessari skýrslu séu þau að hægt sé að fara framhjá slíkum lögum. „Þetta eru auðvitað fráleit rök, því forsætisráðherra er um leið að segja að stjórnmálaflokkarnir muni brjóta lög sem Alþingi setur. Og ef ætti að fara eftir þessum rökum þýddi heldur ekld að setja skattalög, því farið er framhjá skattalögum með skattsvikum. I skýrslunni eru og tefld fram þau rök að nýtt ákvæði stjórnarskrár- innar um félagafrelsi frá 1995 innihaldi einhverja löghelgun og vernd fyrir starfsemi stjórnmála- flokka og því sé ekki hægt að setja lög um fjárreiður þeirra. Með sama hætti má halda því fram að ákvæðið tryggi að ekki sé um neina íhlutun í t.d. starfsemi verkalýðshreyfingarinnar, sem þó hefur aldeilis gerst með lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur, í gífurlegri andstöðu við verkalýðs- hreyfinguna sjálfa. Rökin standast ekki, heldur liggur hitt fyrir að menn vilja ekki þessar upplýsingar upp á borðið,“ segir Jóhanna. Ósk um að fá viðhorf forsætis- ráðherra var ekki svarað f ráðu- neytinu í gær. FRÉTTIR Utgerðarfélag Akureyrínga er eitt þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem eru á hlutabréfamarkaði. Aðeins 10% kvót- ans í bokhaldinu Kvótaeignin hefui' ekki haft afgerandi áhrif á verðlagningu þeirra 20 sjávarútvegs- fyritækja sem eru á hlutabréfamarkaði að mati Seðlabankans. „Greinilegt er að markaðurinn hefur metið verðmæti sjávarút- vegsfyrirtækja mjög varlega miðað við verðmæti kvótaeignar þessara íyrirtækja. Að hámarki hefur um þriðjungur af kvótaverðmæti sjáv- arútvegsfyrirtækjanna verið met- inn inn í markaðsverðið en senni- lega er þetta hlutfall mun lægra. Kvótaeignin hefur þyí ekki haft af- gerandi áhrif á verðlagningu þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem eru á hlutabréfamarkaði," segir í árs- fjórðungsriti Seðlabankans um peningamál. Markaðsvirðið 70 milljarðar Markaðsvirði þeirra 20 sjávarút- vegsfyrirtækja sem eru á hluta- bréfamarkaði nam rúmlega 70 milljörðum í árslok 1999. Á miðju því sama ári var bókfært eigið fé þessara fyrirtækja rúmlega 33 milljarðar. Á sama tíma var bók- fært verðmæti kvóta þeirra, þ.e. kvóti sem fyrirtækin hafa orðið sér úti um með kaupum eða samruna, rúmlega 13 milljarðar, eða um 40% af bókfærðu eigin fé þessara fyrirtækja. Hlutfallið milli mark- aðsvirðis og eigin ljár, þ.e. V/E hlutfallið, var því um 2,1 um síð- ustu áramót, eða lægra en meðal- tal sama gildis allra fyrirtækja á VÞÍ, sem var 3,9 um áramót. Kvótinn 114 milljarðar Verðmæti aflaheimilda eða kvóta þessara 20 fyrirtækja segir Seðla- bankinn hafa numið 114 milljörð- um miðað við kvótaverð um síð- ustu áramót og kvótaeign þeirra á yfirstandandi fiskveiðiári. „Það má því Ijóst vera þegar litið er til markaðsvirðis sjávarútvegsfyri- tækjananna, samanburðar á V/E- hlutfalli fyrirtækja á hlutabtéfa- markaði og kvótaeignar þessara sjávarútvegsfyrirtækja, að kvóta- eignin er að eins að litlum hluta metin inn í markaðsvirði fyrirtækj- anna.“ - HEI Umsdkn í óþökk sveitarstjomar Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) hefur sótt um að halda landsmót UMFÍ árið 2004. Ósk- að var eftir umsóknum frá UMFÍ, og bárust umsóknir frá Héraðssambandi Bolung- arvíkur, Héraðssambandi Vestur-ísfirðinga og Kefla- vík-íþrótta og ungmenna- félagi auk UMSS. Viðræð- ur við þá aðila og þau sveitarfélög sem hlut eiga að máli munu hefjast inn- an tíðar og í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvar mótið verður haldið. Herdís Á. Sæmundardótt- ir, formaður byggðaráðs Skaga- Ijarðar, segir UMSS að sjálfsögðu heimilt að sækja um landsmót án sérstaks samþykkis sveitarstjórn- ar, en ákveðið hafi verið að vera ekki með landsmót á dagskrá, þar sem svo mörg verkefni eru í gangi á vegum sveitarstjórnarinnar sem snerta íþróttamál, svo sem stækk- un íþróttahúss og bygging skíða- svæðis. Það er gert í framhaldi samþykktar menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefndar sveitarfélags- ins, sem ákvað í haust að sækja ekki um það halda Iandsmót að svo stöddu. Herdís A. Sæ- mundardóttir. Meimingarhús í lagi Um þessar mundir er að hefjast vinna við áætlanagerð um svo- kallað menningarhús, en eitt þeirra á að vera á Sauðár- króki samkvæmt sam- þykkt ríkisstjórnarinnar. Nýlega var haldinn fund- ur með menntamálaráð- herra, Birni Bjarnasyni, í framhaldi af þvf er stefnt að því að halda opinn borgarafund um menn- ingarhús á Sauðárkróki. Vonast er til að þar megi safna saman hugmyndum um það hvernig best sé að standa að þessu. - Allt kostar þetta peninga. Er þetta ekki erfill í Ijósi þess að fjár- hagsstaða sveitarfélagsins er mjög erftð? „Við erum á þessu stigi ekki að tala um byggingu á stórhýsi. Menningarhús gæti t.d. tengst þeim íjölmörgu söfnum sem hér eru. Tilgangurinn var sá að styrkja menningu á landsbyggð- inni en heimamenn verða síðan að finna það út hvernig það er best gert,“ segir Herdís. - GG i

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.