Dagur - 10.06.2000, Síða 5
X^MT'
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 - 5
FRÉTTIR
L
Sleipnismeim kæra
lögbaim sýslumaims
Formaður Sleipnis, Óskar Stefánsson, tii hægri á myndinni, mætti til sýslu-
manns Reykjavíkur í gær ásamt iögmanni sínum, Jónasi Haraldssyni,
vegna iögbannskröfunnar. Sieipnir ákváð svo og kæra úrskurð sýslu-
manns. - mynd: gva
Lögbanns beiðni Teits
Jónassonar á verkfaU
langferðabílstj óra
herðir enn á verkfalls-
hnútnum. Spái því að
við séum að sigla inn í
langt verkfall segir for-
maður Sleipnis.
Sýslumaðurinn í Reykjavík tók í
gær til greina lögbannsbeiðni Teits
Jónassonar hf. og Austurleiðar á
verkfall Sleipnis. Lögbannið tekur
til þess að Sleipnismenn megi ekki
stöðva bifreiðar sem ákveðnir
nafngreindir menn hjá þessum
tveimur fyrirtækjum aka. Lög-
bannið kvað upp Ulfar Lúðvíks-
son, deildarstjóri hjá sýslumannin-
um í Reykjavík.
Eftir fund í gærkvöldi með Iög-
mönnum ákváðu Sleipnismenn að
kæra úrskurð sýslumanns og verð-
ur sú kæra lögð inn strax eftir
helgi.
Oskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagðist vera mjög svart-
sýnn á að verkfall langferðabíl-
stjóra leysist í bráð. Hann sagði að
bara Iögbannsbeiðnin á verkfallið
hefði enn hert á hnútnum. Ekki
hefði verið annað hægt að gera en
að kæra úrskurð sýslumannsemb-
ættisins.
„I raun sé ég enga Ijóstýru
framundan og ég held að deilan sé
komin í enn harðari hnút en
nokkru sinni hefur verið vegna lög-
bannsbeiðninnar. Ég spái því að
við séum að sigla inn í mjög langt
verkfall,“ sagði Óskar.
Hann sagði að það væru einstak-
ir aðilar að keyra sem Sleipnis-
menn hefðu litið svo á að væru að
ganga í störf sem Sleipnir semur
um við fyrirtækin. Það hafi þeir
túlkað sem verkfallsbrot.
„Við erum að semja við þessi fyr-
irtæki og enda þótt að þessi bif-
reiðarstjórar séu ekki í Sleipni þá
verða þeir að leggja niður störf,“
sagði Óskar.
Ileíur hægst utti
Hann sagði að mest hafi gengið á
fyrsta verkfallsdaginn en síðan hafi
þetta allt verið rólegra. í gær voru
samt tvær rútur stöðvaðar í Vík í
Mýrdal en annars hefði allt verið
frekar rólegt.
Óskar var spurður hvað mikið
hefði borið í milli þegar slitnaði
upp úr samningaviðræðum.
Sleipnismenn hefðu krafist 90
þúsund króna í byijunarlaun en
viðsemjendur þeirra boðið Flóa-
bandalagssamninga sem gera ráð
fyrir að lægstu laun fari upp í 90
þúsund krónur á þremur árum.
„Við vorum líka að gefa annað
eftir í kjarasamningunum því við
samþykktum að þeir mættu setja á
sólarhringsvaktir og þess vegna er
erfitt að bera þetta saman bara í
krónum," sagði Óskar.
I gærkveldi var boðað til fundar
hjá sáttasemjara. „Þetta er nú bara
venjulegt kaffispjall að frumkvæði
sáttasemjara en ekki formlegur
samningafundur," sagði Óskar
Stefánsson. — S.DÓR
_* • •«,g
Goshverinn heimsfrægi, Geysir í Haukadal, iét bíða svolítið eftir sér í fyrradag þegar 40 kílóum af sápu var skellt
ofan í hann til að koma honum af stað. Náttúruverndarráð og Orkustofnun stóðu fyrir uppákomunni í rannsókna-
skyni. Eins og kemur fram hér tii hiiðar í opnunni í viðtali við jarðfræðing hjá Orkustofnun þá er vonast tii að
þetta sé ekki síðasta Geysisgosið. Fjöldi fólks fylgdist með bununum upp úr hvernum, eins og sjá má.
- mynd: njörður helgason.
Valnefnd samhljóma
Sr. Flóki Kristinsson hefur verið
valinn sóknarprestur í Hvann-
eyrarprestakalli í Rorgarfirði, og
tekur hann við brauðinu af sr.
Sigríði Guðmundsdóttur. Sr.
Flóki verður einnig sr. Eðvarði
Ingólfssyni, presti á Akranesi til
aðstoðar. Ákvörðun valnefndar
var samhljóma, þ.e. enginn grei-
ddi atkvæði gegn þessari ákvörð-
un en hjáseta, ef einhver hefur
verið, telst ekki með. Fundi val-
net’ndar stjórnaði vígslubiskup,
sr. Sigurður Sigurðarson, en pró-
fasturinn, sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason á Borg
sat einnig fund-
inn. Sr. Flóki
tekur við emb-
ætti I. júlí nk.,
en hann hefur
gegnt embætti í
Luxembourg
sem verður lagt
niður, en áður
var hann í
prestur í Lang-
holtssöfnuði sem kunnugt er.
Umsækjendur voru sjö. Þeir
voru sr. Carlos Ferrer á Kol-
freyjustað, sr. Hannes Björnsson
á Patreksfirði, sr. Bjarni Þór
Bjarnason fyrrv. héraðsprestur í
Kjalarnesprófastdæmi en hefur
starfað í Englandi og guðfræði-
kandidatarnir Elínborg Gísla-
dóttir, Leifur Ragnar Jónsson og
Magnús Magnússon. Sr. Þor-
björn Hlynur Arnason segir að
ekki séu fleiri prestaköll laus í
Borgarfirði, enda losni ekki oft
prestembætti ( Borgarfirði, t.d.
sé hann sjálfur þriðji presturinn
þar á síðustu 100 árum. — GG
Sýkna í hnífsstimgumáli
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað 20 ára gamlan mann eft-
ir hnífstungumál á Þórshöfn 20. júní sl. Hnífur stakkst í nára 21 árs gam-
als manns í átökum og skarst slagæð í sundur sem olli miklum blóðmissi.
Akærði var ásamt fleira fólki staddur í gleðskap á Þórshöfn og var ölv-
aður eins og flestir viðstaddra samkvæmt lögregluskýrslu. Eftir atvikið
hringdi ákærði á Neyðarlínuna og komu læknir og Iögregla á staðinn inn-
an skamms. Akærði hélt sig staðfastlega við það að atvikið hefði orðið
vegna slysni en hann kannaðist við að hafa ógnað nærstöddum með
hnífnum.
„Héraðsdómur telur að ekki hafi komið fram nægjanlegar líkur fyrir
því, að ástæða þess, að ákærði hafi gripið til hnífsins, hafi verið deilur
hans rið einhvem eða einhverja í eldhúsinu. Lýst athæfi ákærða, sem
virðist af framburði vitna fyrir dómi ekki hafa verið í neinu samræmi \ið
ástandið í eldhúsinu umrætt sinn, verður að meta ákærða til gáleysis í
skilningi 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940,“ segir í dómnum.
- BÞ
Landsvirkjim hækkar gjaldskrá
Stjórn Landsvirkjunar hefur ákveðið að nækka heildsölugjaldskrá fyrir-
tækisins um 2,9% frá og með 1. júlí nk. til þess að mæta að hluta til al-
mennum kostnaðarhækkunum. Landsvirkjun segir að miðað við verð-
lagsþróun hefði þurft til 5% hækkun til að „halda raunverðinu stöðugu á
árinu í samræmi við ákvörðun eigenda. Raunverðslækkun hefst því ári
fyrr en áformað var samkvæmt stefnumörkun eigenda Landsvirkjunar
um 2-3% raunlækkun árlega 2001 til 2010. Ráðgert er að raunlækkun á
gjaldskrá fyrirtækisins verði í samræmi við stefnumörkunina þegar til
lengri tíma er Iitið," segir í tilkynningu fVá fyrirtækinu.
Stórsöngvurum fagnað
Stórsöngvurunum Kristjáni Jóhannssyni, Sigrúnu Hjáimtýsdóttur, Kristni
Sigmundssyni og Rannveigu Fríðu Bragadóttur var fagnað með dúndrandi
lófaklappi í lok tónieika i Laugardaishöii í fyrrakvöid. Voru tónleikarnir einn
af lokaatriðum Listahátíðar í Reykjavík. Tónleikarnir þóttu glæsilegir sem
og frammistaða söngvaranna. - mynd: e.ól.