Dagur - 10.06.2000, Page 6
6 - LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjaid m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. A MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: creykjavíK)563-1615 Amundi Amundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)A60-6192 Karen Grétarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6i6i
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(Akureyri) 55i 6270 (reykjavík)
Nýtum hvaliiui lifandi
í fyrsta lagi
Ríkisstjórnin er nú að bræða með sér hvort Islendingar eigi að
ganga á nýjan leik í Alþjóða hvalveiðiráðið, en næsti ársfundur
þess verður haldinn í Astralíu í byijun júlí. Slík innganga er
kappsmál þeirra sem vilja að íslendingar gerist hvalveiðiþjóð á
nýjan leik, enda er útilokað að hefja hvalveiðar án þess að vera
í þeim alþjóðasamtökum. Umræðan í ríkisstjórninni byggir á
þingsályktun sem samþykkt var á alþingi rétt fyrir kosningar
vorið 1999, en þar var ríkisstjórninni falið að undirbúa hval-
veiðar. Það er því eðlilegt að málið sé rætt innan stjórnarinnar.
í öðru lagi
Hitt er svo annað mál að ekkert mælir með því að íslendingar
fari að drepa hvali á nýjan leik. Eins og margoft hefur komið
fram er efnahagslegur grundvöllur slíkra veiða enginn. Alþjóð-
leg viðskipti með hvalaafurðir eru bönnuð. Norðmenn sem
veiða nokkur hundruð hrefnur á ári hafa engan raunverulegan
markað fyrir hvalaafurðirnar sem safnast fyrir í birgðageymsl-
um. Það er heldur ekkert útlit fyrir að Alþjóða hvalveiðiráðið
samþykki veiðar í atvinnuskyni á næstu árum, né heldur að al-
þjóðleg viðskipti með hvalaafurðir verði leyfð í fyrirsjáanlegri
framtíð.
1 þriðja lagi
Öllum ætti að vera ljóst að það er enginn fjárhagslegur ávinn-
ingur af því fyrir þjóðarbúið að fara að veiða hval á ný. Þvert á
móti. Tapið af slíkri ráðstöfun getur orðið umtalsvert. Annars
vegar má reikna með neikvæðum áhrifum á útflutning sjávar-
afurða. Hins vegar yrði einn helsti vaxtarbroddurinn í ferða-
þjónustu landsmanna í hættu. Hvalaskoðun hefur reynst þjóð-
inni veruleg tekjulind að undanförnu og vakið jákvæða athygli
á landi og þjóð eins og umhverfisverðlaunin sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa veitt helsta frumkvöðlinum í þessari grein, As-
birni Björgvinssyni frá Húsavík, bera greinilega með sér. Enda
augljóst að þjóðin getur haft mun meira gagn að lifandi hvöl-
um í sjónum en dauðum hvölum í frystigámum.
Elías Snæland Jónsson.
Með aðra hðnd á stýri
Þegar Garri var ungur var hann
um skeið þungt haldinn af
hetjudýrkun. Helstu átrúnaðar-
goð hans voru kappar á borð við
Gretti, Roy, Lone Ranger,
Trigger, Skarphéðinn í Grenn-
unni, Tom Swift, Egill Skalla-
grímsson, Rin
Tin Tin og fleiri
alþjóðlegar
hetjur og ís-
lenskar. En
mest dálæti
hafði Garri þó
á manni sem
reyndar voru
hvorki skrifaðar
bækur né gerð-
ar bíómyndir
um, heldur að-
eins einn
danslagatexti,
og það var að
sjálfsögðu enginn annar en
Bjössi á mjólkurbílnum, sá er
ók eins og Ijón með aðra hönd á
stýri.
Á þessu árum dreymdi sem
sé flesta snáða um að verða bíl-
stjórar þegar þeir yxu úr grasi
og Bjössi á mjólkurbílnum var
náttúrlega nafntogaðastur allra
ökuþóra sem þá brunuðu um
holótta vegi landsins.
Hasar
Af þessum sökum hafa atvinnu-
bílstjórar ætíð átt töluvert rúm í
hjarta Garra, þó hann hafi ekki
beinlínis dýrkað þá hin síðari ár
og veggfóðrar svefnherbergið
sitt ekki með plakötum af
Iandsþekktum rútubílstjórum
og vörubílstjórum. Enda hefur
nokkuð slegið á hetjuímynd bíl-
stjóranna frá dögum Bjössa,
eftir að vegir bötnuðu, veður-
spár skánuðu og fjórhjóladrifið
var fundið upp. En þrátt fyrir
það hefur Garri æfínlega haft
lúmskan grun um að í hveijum
atvinnubílstjóra leyndist kempa
og jafnvel vígamaður, sem
V
Iaumist út úr skápnum um leið
og á reynir.
Og það hefur einmitt gerst
síðustu daga í verkfalli Sleipnis,
þar sem lýsingar blaðanna á
hasarnum minnir helst á at-
burðarás í amerískum bílaelt-
ingjaleikja-
myndum.
Bakkað og
skáskotið
Þar hefur m.a.
komið fram að
illvígir verk-
fallsverðir
hundeltu
meinta verk-
fallsbrjóta Iengi
dags eða allt
þar til þeir leit-
uðu skjóls hjá
ameríska hern-
um og mun það í fyrsta sinn
sem varnarliðið hefur varið
mann og annan á Islandi. Þá
reyndu verkfallsverðir að króa
af rútur en bílstjórarnir, vænt-
anlega með aðra hönd á stýri,
sluppu með því að bakka og
skáskjóta sér. Og þeir sem hafa
reynt að bakka og skáskjóta sér
á rútum vita að slíkt er aðeins á
færi snillinga.
Ennfremur kom til handalög-
mála þar sem verkfallsvörður á
upphækkuðum jeppa ók á dótt-
ur verkfallsbijóts en gerði það
svo snyrtilega að konan slapp
án áverka. Og þeir sem hafa
Ient í því að láta upphækkaðan
jeppa aka á sig, vita að það þarf
einstaka lagni til þess að stunda
slíkan akstur án teljandi lík-
amsmeiðinga.
Bjössi á mjóllkurbílnum er
sem sé enn á meðal vor og það
er algjör óþarfi að fara á
Schvvarzencggcr í bíó til þess að
sjá ósvikinn hasar. — GARRI
ELIAS
SNÆLAND
JÓNSSON
SKRIFAR
Forystumenn Vesturlanda hafa
síðustu daga og vikur keppst við
að klappa forseta Rússlands,
Vladimír Pútin sem árum saman
var foringi í hinni alræmdu
leyniþjónustu Sovétríkjanna,
KGB. Þar hafa farið fremstir
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, og Biíl Clinton sem fljót-
lega lætur af embætti sem forseti
Bandaríkjanna. Vel hefur farið á
með þeim Blair, Clinton og Pút-
in, þótt í reynd skilji himinn og
haf á milli Iífsskoðana gamla.
KGB-foringjans og þessara hel-
stu foringja lýðræðisnkja Vestur-
landa.
Astæðan fyrir þessum kjassa-
gangi er hefðbundin valdapólitík
stórvelda sem vilja hafa valda-
hafana í Moskvu góða í von um
að þeim takist smám saman að
temja þá. Þegar slíkir hagsmunir
ráða ferðinni skipta yfirlýsingar
og loforð um mannréttindi al-
þýðu manna litlu máli. Hvað þá
Pútíii og Téténía
hernaður og hernám í afkimum
eins og Téténíu.
Einræðistilburðir
Enn er lítil reynsla komin á
stjórnarhætti Pútíns í Rússlandi,
en það sem þeg-
ar hefur sést til
hans bendir til
að hvorki lýð-
ræðisást né virð-
ing fyrir mann-
réttindum sé
honum eðlislæg -
enda voru slfkar
dyggðir ekki
kenndar í KGB.
Enda var eitt
fyrsta verk
Pútíns eftir að Clinton hætti að
faðma hann og kyssa að efla her-
námið í Téténíu með því að taka
stjórn landsins algjörlega í sínar
eigin hendur og nánustu undir-
manna sinna. Hann gaf sum sé
út um það tilskipun að héðan í
frá yrði öll borgaraleg stjórn í
Iandinu í höndum skrifstofu for-
setans í Kreml. Þaðan verður
hernáminu stjórnað.
Það hefur ekki borið mikið á
fréttum af átökunum í Téténíu
að undanförnu,
enda Rússar
búnir að lýsa því
yfir fyrir löngu
að þeir hafi unn-
ið stríðið og því
sé lokið. Hið
rétta er að rúss-
neski herinn hef-
ur lagt undir sig
um tvo þriðju
hluta landsins.
Og þótt þeir
hafi eyðilagt allar helstu horgir
og bæi, þannig að alþýða manna
hefur að engu heim að snúa, hef-
ur þeim alls eldd tekist að ráða
algjörlcga niðurlögum téténskra
andófsmanna. Þeir cru að vísu
ekki til stórræða, en beita þess í
stað skæruhernaði sem kann að
reynast rússneska hernum
skeinuhættur þegar frá líður.
Ekki síst þar sem skæruliðarnir
eru reiðubúnir að fórna eigin lífi
einungis ef þeir taka nokkra rúss-
neska hermenn eða erindreka
með sér í leiðinni. Margar slíkar
árásir hafa verið gerðar að und-
anförnu. Hver og ein hefur lítil
áhrif, en til samans munu þær
smám saman draga úr baráttu-
þreki rússneska hernámsliðsins.
Vestrænir stjórnmálamenn
hafa frá upphafi hvatt Rússa til
að Ieita pólitískrar lausnar á deil-
unni um Téténfu, en því hefur
alltaf verið hafnað. Ákvörðun
Pútíns um að taka öll borgaraleg
völd í landinu í eigin hendur er
aðeins enn eitt dæmið um ein-
ræðistilhurði hans. Og enn frek-
ari staðfesting þess að hann mun
láta gagnrýni Vesturlanda sem
vind um eyru þjóta, eins og hann
hcfur alltaf gert.
Vladimír Pútín: stýrir Téténíu frá
forsetaskrifstofunni.
spurt %i
svaraið
llvad ætiar þtí að gera
um hvítasunnuna?
Birkir Jón Jónsson
aðstoðarmaðurfélagsmdlaráðherra.
„Leiðin ligg-
ur vestur á
firði þar
sem ég mun
keppa fyrir
hönd míns
heimahér-
aðs, Norð-
urlands
vestra, á kjördæmamóti í bridge.
Ég kem í bæinn á sunnudaginn -
og á annan í hvítasunnu ætlaði
ég svo að hjálpa frænku minni
sem er að flytja hér á milli íbúða.
Annars virðist mér að um þessa
helgi liggi straumurinn út úr
bænum og út á land - í sæluna
sem þar er.“
Halla Bára Gestsdóttir
„Helgin hjá
mér verður
mjög spenn-
andi. Ég
ætla ásamt
móður
minni, EIsu
Björnsdótt-
ur, hár-
greiðslukonu, að efna til bíl-
skúrsmarkaðar á laugardag fyrir
utan hús foreldra minni í Vana-
byggð 8e hér á Akureyri. Þar ætti
ef veðrið helst gott að myndast
svolítil Kolaportsstemning hér á
Brekkunni. Allir eru velkomnir."
blaðamaðurá Akureyn.
Aáalsteinn Ámi Baldursson
formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur.
„Ég ætla að
vera hér fyr-
ir sunnan
um helgina
og á laugar-
dag verð ég
uppi á
Skaga þar
sem ég ætla
að fylgjast með syni mínum,
Baldri, sem farinn er að æfa og
keppa með IA í knattspyrnu og
næsti Ieikur þeirra er einmitt um
helgina - nú gegn Stjörnunni. Á
sunnudaginn ætla ég vestur á
ísafjörð þar sem ég verð við
fermingarveislu, en síðan flýg ég
strax aftur suður til Reykjavíkur -
og þaðan svo heim til Húsavík-
Sigmar Amórsson
sundlaugarvörður d Aliureyri.
„Það er
vinna alla
helgina,
fýrri vakt á
laugardag-
inn og
seinni vakt á
sunnudag-
inn - þannig
að vinnan klippir helgina svolítið
í sundur fyrir mér. En ég vænti
þess þó að ég geti eitthvað
skemmtilegt um helgina; ég verð
búinn að vinna um kvöldmat á
sunnudaginn og þá var ég að spá
í að renna fram í Eyjafjaröarsveit
þar sem félagi minn Grettir
Hjörleifsson, sem starfaði hér í
sundlauginni um skeið en er nú
stærsti kúahóndi á Islandi, og
hans kona, efna til svolítillar
veislu í tilefni af fermingu dóttur
sinnar."