Dagur - 12.08.2000, Side 10
LÍFÍÐ f LANDiNU
mmmmmrnBHiiEEBiEBi
26 - LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
Sætar og finar við tjarn-
arbakkann i Reykjavík.
Líkar systur í góðum
félagsskap með pabba
og Guðrúnu systur á
Skriðuklaustri. Vaia er
tii vinstri á myndinni og
Inga Svaia til hægri.
Skapandi systur
Systurnar Vala og Inga
Svala Þórsdætur eru
víðförulir listamenn af
Iffi og sál sem fylgja eft-
ir sínum hugmyndum.
Vala er leikkona, skrifar
leikritin sín sjálf og hef-
ur sýnt þau víðs vegar
um heiminn. Inga Svala
býr og starfar sem
myndlistarkona og
kennari í Þýskalandi,
ferðast mikið um Evrópu
og tekur þátt í listasýn-
ingum. Litlu sveitastelp-
urnar frá Skriðuklaustri
hafa svo sannarlega lát-
ið til sín taka og lifa líf-
inu lifandi.
Það eru glaðlyndar systur sem
heilsa blaðamanni á kaffihúsinu
Litla Ijóta andarunganum í
Reykjavík og stutt í hláturinn.
Inga Svala er á íslandi í stuttri
heimsókn og það fer greinilega
vel á með systrunum. Það er svo-
lítill galsi í þeim og þegar þær eru
spurðar um ætt og uppruna hefur
Vala upp raustina með rangfærsl-
ur um fjölskylduna. Þær segjast
vera í bulistuði og frásögn af æv-
intýralegri æsku í Úganda hafi
freistað en eftir mikil hlátrasköll
lofa þær að segja satt og rétt frá.
Þær segjast vera fæddar á Sel-
fossi, hafi um tíma búið í Reykja-
vík en flutt að Skriðuklaustri þeg-
ar Inga var sex ára og Vala fjög-
urra ára. Þær ólust upp í stórum
systkinahópi og eiga tvo bræður
og tvær systur. „Foreldrar okkar
eru Þór Þorbergsson og Arnfríður
Margrét Hallvarðsdóttir. Þau eru
bæði Reykvíkingar en þegar við
systurnar erum spurðar hvaðan
við séum þá erum við úr Fljóts-
dal, það er sveitin okkar,“ segir
Inga Svala. Aðspurðar segja þær
að það hafi verið frábært að alast
upp á Skriðuklaustri. „Við
k)uggum 1 mjög stóru húsi,
Gunnarssetri, og siðan þá hefur
mig alltaf langað að eiga heima í
höll,“ segir Vala og Inga Svala
bætir við: „Þetta var tilraunabú
Landbúnaðarins, faðir okkar var
bústjóri og þarna var margt
starfsfólk. A sumrin voru um 20
manns í heimili og mörg böm.“
Ætluðu báðar að verða
leikkonur
Systumar voru í heimavistarskóla
á Hallormsstað, voru báðar í Ieik-
félaginu og léku fyrst saman 9 og
11 ára gamlar. „Það var nútíma-
uppfærsla á Oskubusku, ég lék
mömmuna og hún var skotin í
bakið mjög snemma og dó strax.
Eg fékk ekki að segja neitt og það
var mjög svekkjandi,“ segir Vala.
Að sögn Ingu Svölu léku þær
alltaf saman á jólaböllum, árshá-
tíðum og öðrum hátíðum í sveit-
inni. „Við ætluðum báðar að
verða leikkonur en síðan hætti ég
við að verða leikkona. Eg áttaði
mig á því að Vala var Ieikkonan
en ekki ég þegar við vorum að
leika á sveitasamkomu á Iðavöll-
um. Við vorum tvær á sviðinu og
ég gleymdi mér alveg og horfði
bara á Völu,“ segir Inga Svala og
lítur brosandi á systur sína. Vala
segist hafa fengið leiklistarbakter-
íuna um Ieið og hún fékk hlut-
verk á Hallormsstað þar sem hún
fékk að tala. „Það voru svo margir
á Skriðuklaustri að það var erfitt
að fá að komast að. Svo talar og
hlær fjölskyldan mín mjög mikið.
Það var þess vegna frábært að fá
tækifæri til að tala uppi á sviði og
vita að allir f salnum voru að
hlusta á mann.“
Sveitastelpur í borginni
Vala og Inga Svala fluttu til
Reykjavíkur á unglingsárunum
og hófu þá nám í Hagaskóla.
Rorgarlífið lagðist misvel f þær
og að sögn Ingu Svölu langaði
hana ekki vitund að flytja á möl-
ina. „Mig langaði ekkert að flytja
til Reykjavíkur, ég var mikil
sveitastelpa og mjög púkaleg
langt fram eftir vetri. Ef ég
hefði farið í alþýðuskólann á
Eiðum eins og mig langaði til þá
hefði ég örugglega gifst þar og
orðið bóndi," segir Inga Svala.
Vala segist aftur á móti hafa ver-
ið himinlifandi að flytja og að-
lagast vel. „Eg fór í klippingu
strax eftir fyrsta skóladaginn og
kunni vel við mig í borginni. I
sveitinni stönguðu rollurnar mig
og hestarnir hentu mér af baki,“
segir Vala.
Kennir við
listaakademíuna
Vala og Inga Svala fóru báðar út
að Iæra sínar listgreinar. Vala
stundaði leiklistarnám við listahá-
skólann í Leeds, Bretton Hall
College, og Inga Svala lærði mál-
un í Mynd - og handíðaskólanum
en fór síðan til Hamborgar í
framhaldsnám í myndlist. Inga
hefur búið þar í 9 ár, unnið við
myndlist og kennt samhliða, en í
fyrra fékk hún stöðu við listaaka-
demíuna í Hamborg. Aðspurð
segist Inga Svala kunna rnjög vel
við sig í Þýskalandi. Hún segist
þó koma til Islands eins oft og
hún getur og tekur þá gjarnan
þátt í listasýningum. Inga á það
sameiginlegt með systur sinni að
ferðast mildð á milli landa með
verkin sín. „Mér finnst mikilvægt
að taka þátt í samsýningum, mað-
ur kynnist nýju fólki og ef sýning-
in þeppnast vel þá getur það leitt
til nýrra hugmynda og áfi*amhald-
andi samstarfs," segir Inga Svala.
Aðspurðar hvort ekkert annað
hafi komið til greina en að feta
listabrautina segir Inga: „Mig
langar ekki að gera neitt annað
en myndlistina, ég held að ég geti
ekkert annað. Það koma verk upp
í hugann scm mér finnst að ættu
að vera gerð og ef ég geri þau ekki
þá verða þau ekki til.“
Skrifar einleik
um geðhvörf
Vala er ekki síður skapandi heldur
en Inga og henni er einnig nauð-
synlegt að búa til. „Leiklistin er
það skemmtilegasta sem ég veit
og þar get ég líka komið hug-
myndum mínum, skoðunum eða
lífssýn á framfæri. Síðan ég út-
skrifaðist hef ég mikið verið að
búa til leikhúsverk, annað hvort
ein eða í samstarfi við aðra. Þcgar
maður kemur úr námi að utan þá
þarf maður að vera duglegur að
kynna sig og sanna. Stuttu eftir
að ég kom heim frá námi eða í
apríl 1996 þá frumsýndi ég fyrsta
einleikinn minn, Eða þannig, sem
ég er búin að sýna um 200 sinn-
um um allt lsland, í Lettlandi,
Danmörku, Bretlandi og í Finn-
landi. Núna er ég að skrifa ein-
Ieik, Háaloft, sem Qallar um konu
með geðhvörf. Það er eitt af
tveimur leikverkum sem leikfélag-
ið sem ég er í, The Icelandic Take
Away Theatre, mun sýna á leik-
listarhátfðinni A mörkunum í
haust. Háaloft er einnig sett upp í
samstarfi við einleikjahátíð Kaffi-
leikhússins sem og geðræktar-
verkefnis Geðhjálpar," segir Vala
og bætir við að hitt leikhúsverk
leikfélagsins á hátíðinni, Dóttir
skáldsins, sé eftir Svein Einarsson
og Fjalli um Þorgerði, dóttur Egils
Skallagrímssonar. Að sögn Völu er
þetta er fyrsta leiklistarhátíð sjálf-
stæðra leikhúsa á Islandi en
hennar verk er eitt af sex íslensk-
um leikverkum sem valin voru á
hátíðina. - ELJ
Inga Svala og Vala hafa báðar þörf fyrir að koma hugmyndum sínum á framfæri og
skapa eitthvað nýtt Hér gægjast þær út um gluggann á Litla Ijóta andarunganum.