Dagur


Dagur - 24.08.2000, Qupperneq 2

Dagur - 24.08.2000, Qupperneq 2
2 - FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 FRÉTTIR Kostnaður stóreykst vegna hælisleitenda ísland æ vmsælli viö komustaður hjá hælis- leitendum. íbuar frá Balkanskaga ráðandi. Svörtu sauðimir skemma fyrir þeim sem raunverulega eiga í vanda. „Það sem er í umræðunni alls staðar í kringum hælisleitendur er það sem kallast á ensku „asyl- um abuse“. Þ.e.a.s. misnotkun hælisréttar. Þetta eiga allir í bransanum við að etja sem stendur og versti fylgifiskurinn er að þeir einstaklingar sem eru að misnota hælisréttinn og þá að- stoð sem hælisleitendum stendur til boða, eru að skemma stórlega fyrir því fólki sem þarf á vernd og aðstoð að halda,“ segir Jóhann Jóhannsson, framkvæmdastjóri Utlendingaeftirlitsins. Mál Rúmenans sem fékk hús- næði hjá Rauða krossinum og misnotaði vernd íslenskra stjórn- valda með stórfelldum skart- griparánum hefur vakið mikla at- hygli. Þessi maður er dæmi um Æ fleiri farþegar lenda á Keflavikurflugvelli og óska eftir hæli. „svarta sauði“, sem eins og fram- kvæmdastjóri Utlendingaeftirlits- ins bendir á, skemma mjög fyrir nauðstöddum. Sumir koma skil- ríkjalausir inn í Iandið og Ijúga til um nafn. Tímafrekt getur verið að rannsaka feril fólksins. Fjölgar mjög Jóhann segir að síðustu misseri hafi æ fleiri leitað til Islands um hæli. „Þá bíður okkar þessi erfiða vinna, að flokka hvaða fólk það er sem verulega þarf á aðstoð og vernd að halda og hverjir eru að misnota þessi dýrmætu réttindi. Það er erfið vinna, reyndar það erfiðasta í þessum bransa," segir Jóhann. Þessi aukna sókn til Iandsins kemur jafnframt við pyngjuna. „Kostnaður hefur aukist umtals- vert. Rauði krossinn hefur tekið á sig umtalsvert meiri kostnað og við líka. Þetta er feiknastórt við- fangefni alls staðar í kringum okkur og það hlaut að koma að því að þróunin bærist til íslands," segir Jóhann. Balkaiiskaginn áberandi Margir hælisleitendur hafa kom- ið frá Balkanskaga og fyrrum Sovétríkjum, að sögn Jóhanns. Gangur afgreiðslu er ólíkur eftir aðstæðum. I fyrsta lagi er mögu- leiki á að veita þeim formlegt hæli. I öðru lagi tímabundið skjól meðan ástand breytist í heima- landi. Einnig er möguleiki að senda viðkomandi til annars rfkis sem ber viðtökuskyldu á honum og í Ijórða lagi kemur til greina að senda viðkomandi til síns heimalands. Það er þó sjaldnast gert að sögn Jóhanns. Breytist viö Schengen Island notast við svipaðar reglur og Norðurlöndin í þessum efnum en næsta ár er svo stefnt að sam- ræmingu við Schengen svæðið, þ.e.a.s. samevrópskar reglur. Jó- hann segir að engin greining liggi fyrir um það hlutfallslega hve margir hafi óhreint mjög í poka- horninu en hann segist skipta fólkinu huglægt upp í þrennt. Fólk sem þarfnast verndar og hefur fullgildar ástæður til. Fólk sem leitar betri efnahagslcgri af- komu og sá hópur sé langstærst- ur. Síðan slæðist alltaf með hóp- ur sem sé að flýja eitthvað mis- jafnt og hafi jafnvel afbrot á sam- viskunni. — BÞ Forsetinn að Hnjóti Söfnin á Hnjóti í Orlygshöfn við Patreksíjörð verða formlega opnuð á sér- stakri hátíð á laugardag. For- seti Islands Ólafur Ragnar Grímsson mun víga Flugminja- safn Egils Ólafs- sonar og opna nýja sýningar- álmu í Minjasafninu. Til samans mynda minjasafnið og flugminja- safnið eina safnaheild. Söfnin eru afrakstur ævistarfs Egils Ólafsson- ar sem lést 25. október síðast liðið haust 75 ára að aldri. Söfnin eru einstæð heimild um þróun ís- lensks samfélags eins og hún birt- ist í þeim hlutum sem þjóðin hef- ur notað í sinni daglegu lífsbar- áttu frá upphafi Iandnáms fram til nútímans. Þótt söfnin beinist fyrst og fremst að sögu og menningu sunnanverðra Vestfjarða er skírskotun þeirra mun víðtækari. Með ótrúlegri ástríðu og innsæi hefur Agli tekist að safna saman á einn stað einstæðri heildarmynd af verklegri menningu íslendinga. Minjasafnið teygir sig aftur að upphafi íslandsbyggðar og inn í upplýsinga- og samskiptasamfélag nútímans. Til viðbótar býr safnið yfir mikilli breidd og með tengsl við Flugminjasafn spanna söfnin til samans flesta þætti þjóðlífsins, frá landnámi til okkar daga. Ólafur Ragnar Grímsson mun víaia söfnin að Hjóti. Fartölvumálin eru ennþá óafgreidd Sigurður Sigur- sveinsson, skóla- meistari Fjölbrauta- skóla Suðurlands, segir að skólinn eigi nú í viðræðum við menntamálaráðu- neytið vegna far- tölvueignar kenn- ara. Fyrir liggur að nemendur og for- ráðamenn þeirra bera kostnaðinn af leigu fartölva en stuðningur ríkisins felst í því að útvega gott verð og að- stöðu. Kennaraþátt- urinn er enn sem komið er óafgreidd- Svo má auðvitað spyrja sig hvort það sé nauðsynlegt að kennarar séu með fartölvur þótt nemendur noti þær, “ segir skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Myndin er af Fjöl- brautaskóla Suðurlands. ur. „Við erum þannig sett hér að 14 kenn- arar sinna ákveðnu sporgönguhlutverki innanhúss. Þeir munu fá þessar tölvur til afnota en það á eftir að leysa eignarhaldsmálin og ann- aðj“ segir Sigurður. I Menntaskólanum á Akureyri hefur náðst sátt um að kennarar Ieggi fram 60.000 króna fjárhæð í hveija fartölvu en ríkið greiði það sem upp á vantar. Sigurður segir það ekki sambærilegt dæmi. „Þar höfðu kennarar frumkvæði að þessu og náðu svo samkomulagi við skólann um að hann borgaði helming á móti. Síðar kom þessi hugmynd um allsherjar fartölvuvæðingu fram- haldsskólanna og þá lítur málið öðruvísi út. Svo má auðvitað spyrja sig hvort það sé nauðsyn- legt að kennarar séu með fartölv- ur þótt nemendur noti þær,“ seg- ir skólameistari. Fartölvur kosta 100.000 kr. - 250.000 kr. — BÞ Nýr prestur á Möðruvölluin Séra Solveig Lára Guðmunds- dóttir mun verða sett inn í emb- ætti sóknarprest í Möðru- vallaklausturskirkjuprestakalli næstkomandi sunnudag. Pró- fastur Eyjaíjarðarprófastdæmis, séra Hannes Örn Blandon, vígir hana til embættis. Athöfriin mun fara fram f Möðruvallaklausturs- kirkju og hefst hún klukkan 20:30. Að lokinni athöfn mun sóknamefnd prestakallsins bjóða upp á veitingar og þá verður séra Gylfi Jónsson, maki séra Solveig- ar Láru, boðinn velkominn í embætti fræðslufulltrúa Eyja- fjarðar og Þingeyjarprófast- dæma. — GJ Alþjóðlegr ráðstefaa um náttáruham- farir Viðbúnaður sveitarfélaga við hamförum er meginefni alþjóðlegrar ráð- stefnu sem haldin verður í Háskólabíói frá mánudegi til miðvikudags í næstu viku. Um Ijörtíu fyrirlesarar, þar af helmingur erlendir, miðla af sérþekkingu sinni og reynslu af hvers kyns hamförum allt frá náttúru- hamförum á borð við snjóflóð og jarðskjálfta til hamfara af mannavöldum eins og umhverfísslysa og hryðjuverka. Tekið er á helstu málaílokkum er varða viðbúnað sveitarfélaga svo sem hættumati, áhættustjórnun og tryggingarmálum og fyrirlesarar styðja mál sitt margir hverjir með tilvísun til stóratburða síðustu ára. Undirbúningur ráðstefnunnar hefur nú stað- ið í eitt og hálft ár, en hún er skipulögð af umhverfísráðuneytinu, Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga og Slysavamarfélaginu Landsbjörgu. Röskun á starfsemi Ljósmyndasafns Reyldavíkur Vegna ótyrirsjáanlegra tafa á fram- kvæmdum við húsakynni Ljós- myndasafns Reykjavíkur, í hinu nýja Grófarhúsi við Tryggvagötu mun af- greiðsla og myndasala safnsins liggja niðri fram til loka september. Sem kunnugt er var hið nýja Grófarhús formlega afhent við hátíðlega athöfti sl. föstudag. í tilkynningu frá starfs- fólki er beðist velvirðingar á þeirri röskun sem þetta veldur á þjónustu stofnunarinnar. Eftir sem áður mun auglýst sýningadagskrá safnsins vera óbreytt. Landsbréf og Iifeyrissjóður Akraneskaupstaðar ísamstarf Fyrr á þessu ári leitaði Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar til helstu banka og verðbréfalyrirtækja um samstarf við rekstur sjóðsins. I framhaldi af því hefur stjóm sjóðsins ákveðið að hefja samstarf við Landsbréf hf. Samn- ingur milli þessara aðila var síðan undirritaður í gær. Landsbréf munu þar með annast stýringu eignasafris sjóðsins sem er að fjárhæð rúmlega 700 milljónir króna. Með samningi þessum vonast Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar eftir því að aukin fjölbreytni fáist í eignasafn sjóðsins og ávöxtun aukist. Jafn- framt er rekstrarkostnaði sjóðsins haldið í lágmarki. Hið nýja Grófarhús við Tryggva- götu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.