Dagur - 24.08.2000, Síða 5
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 - S
jy^ur.
Guðni reynir á
taugar kuabænda
Kúabændur töldu víst
að landbúnaðarráð-
herra myiitli svara af
eða á um norsku kýrn
ar á aðalfundi þeirra en
mega enn bíða afstöðu
hans til haustdaga.
Fulltrúar á aðalfundi Landssam-
bands kúabænda urðu greinilega
ýmsir fyrir vonbrigðum með ráð-
herrann sinn. Almennt töldu
menn víst að Guðni Agústsson
notaði tækifærið til að taka loksins
af skarið um innflutning fósturvísa
úr norskum kúm. En Guðni lofaði
aðeins að hin erfíða og vandasama
ákvörðun liggi fyrir á haustdögum.
Að sumu leyti sagðist hann taka
undir þá gagnrýni að ekki hafi ver-
ið hugað nóg að möguleikum ís-
lensku kúnna í kynbótastarfí síð-
ustu ára. Staðreyndin væri að
bestu mjólkurframleiðendurnir hér
á landi væru að ná árangri sem nál-
gist það sem norsku kýmar gefa.
Spurður álits á enn frekari
drætti svaraði Þórólfur Sveinsson
form. LK: „Það
segir einhvers
staðar að ekki
muni mikið um
einn kepp í slát-
urtíðinni. Þessi
umsókn er orð-
in 29 mánaða
gömul. Og land-
búnaðarráð-
herra lýsti yfir
að hann ætlaði
að taka ákvörð-
un á haustdög-
um, sem er
meiri árangur en náðst hefur áður
á ferlinum. Þannig að ég held að
við verðum að líta á björtu hliðarn-
ar“.
Kvótinn allt of dýr
Guðni sagi það einkum tvennt sem
hann hefði áhyggjur af. Það fyrra
væri hvað framleiðsluheimildirnar
eru hátt verðlagðar, „að mínu mati
alit of hátt og vandséð hvernig
rekstur búanna getur staðið undir
slíkum Ijárfestingum. Hafa þarf í
huga að þarna er að hluta til verið
að versla með stuðning samfélags-
ins við mjólkurframleiðsluna og ég
óttast að þetta
háa verð kunni
að leiða til þess
að í næstu
samningum
muni ýmsir telja
að greiðslugeta
mjólkurfram-
leiðslunnar sé
slík, að svigrúm
sé til þess að
lækka þann
stuðning. Enn
fremur að yngri
kynslóðir
bænda verði um of skuldsettar og
búi þess vegna við lakari afkomu".
Landbúnaður ekki bara hús og
tæki...
Sú fækkun búa sem við blasir er
hitt áhyggjuefnið. Þótt einhver
samþjöppun væri æskileg séu tak-
mörk fyrir því hvað skynsamlegt sé
og réttlætanlegt að ganga langt í
þeim efnum. Hafa verði í huga að
á bak við hverja einingu í landbún-
aði standa ekki bara byggingar,
dráttarvélar og önnur tæki, heldur
líka fólk, undirstaða mannslegs lífs
í hverju sveitarfélagi. Einblíni
menn svo á hagfræðihliðina að allt
annað gleymist þá verði stærðin
stjórnandinn og bóndinn þrællinn.
„Við skulum ekki láta það gerast að
eftir standi fáir einmana stórbænd-
ur. Um leið og ég dái athafnaþrek
og dugnað þeirra bænda sem byggt
hafa upp stóru alifugla- og svína-
búin, þá er það ekki sú mynd sem
ég sé fyrir mér í framtíð íslensks
landbúnaðar".
Ömurleg lesning
Guðni vék að skýrslu utanríkisráð-
herra um hugsanlega aðild Islands
að ESB, m.a. um áhrif á landbún-
aðinn. „Sá kafli er að mínum dómi
ömurleg lesning frá sjónarhóli okk-
ar, sem viljum veg landbúnaðarins
hér sem mestan“. Tekjur mjólkur-
framleiðenda mundu t.d. lækka
um rúmlega helming og mikil óvis-
sa mundi ríkja um framhald opin-
bers stuðnings við mjólkurfram-
leiðsluna. Erlenda stóriðjan í Mið-
Evrópu myndi að stórum hluta yf-
irtaka matvælagerð íyrir Islend-
inga. „Eg get ekld að því gert að
mér finnst íslenskir bændur furðu-
lega andvaralausir í þessu máli“,
sagði Guðni. — HEI
Meðallaun reykvískra kennara tæp
180.000.
Kennarar mert
179 þúsund
Dagvinnulaun kennara hjá
Reykjavíkurborg voru kringum
128 þúsund krónur á mánuði að
meðaltali árið 1999. Að viðbættri
50-60 þúsund króna yfírvinnu á
mánuði, meðan skólinn starfar, og
11-22 þús.kr. öðrum launum á
mánuði síðustu fimm mánuði árs-
ins urðu heildarlaunin um
179.100 krónur að meðaltali á
mánuði. Heildartekjur á árinu
öllu voru að meðaltali 2.150
þús.kr. á stöðugildi, sem alls voru
um 1.350 talsins á síðasta ári,
samkvæmt fréttabréfi KOS (Kjara-
rannsóknarnefndar opinberra
starfsmanna).
Karlarnir, sem eru aðeins um
fimmtungur kennarastéttarinnar,
voru með um 9 þús.kr. hærri dag-
vinnulaun á mánuði (um 135 þús-
und kr.) en konurnar (um 126
þúsund). — HEI
íslendingar þjóruðu sem aldrei fyrr árið 1999 og var freyðivín, rauðvín og romm einkum í tísku. Langmest er þó
drukkið af bjór og er mjög markviss aukning í neysiu öls.
Meira dnikkiö
en nokkni sinni
Áfengissala 1999 var
ineiri en áður liefur
mælst, rmnir 5,9 alkó-
hóllítrar á íbúa eldri
en 14 ára, eins inikiö
eða meira en í Noregi
og Svíþjóð.
Áfengissala hér á landi jókst í fyrra
um 11% í Iítrum talið í 15,4 millj-
ónir lítra, eða tæpa 73 lítra á hvern
Islending 15 ára og eldri, sam-
kvæmt skýrslum Hagstofunnar.
Umreiknað til hreins alkóhóls
jókst salan um tæp 8% milli ára í
um 1.260 þúsund lítra á síðasta
ári, eða rúmlega 5,9 lítra á hvern
landsmann 15 ára og eldri. Hér er
ekki meðtalið það áfengi sem
áhafnir skipa og flugvéla og
stöðugt stækkandi hópur utanfara
taka mcð sér inn í lancfið við heim-
komuna.
Þriðjiuigs aukning eftir bjór
Sala á mann var rösfdega 6% meiri
en árið áður og var nær þriðjungi
meiri í fyrra heldur en bæði árið
1993 og (síðasta árið fyrir bjór)
1988 þegar salan samsvaraði rúm-
um 4,5 lítrum hreins alkóhóls á
mann 15 ára og eldri. Sala sterkra
drykkja á mann hefur minnkað
um helming á mann síðan bjórinn
kom. Sala léttra vína minnkaði til
að byija með en hefur aftur aukist
verulega, eða yfir 50% síðustu 4
árin. Og bjórsalan hefur tvöfald-
ast frá 1992, upp í 57,5 lítra á
mann 1 5 ára og eldri í fyrra.
Franiúr Norðmnnnnm og
Svíum
Norrænar tölur fyrir síðasta ár eru
enn ekld tiltækar hjá Hagstofunni,
en árið 1998 var sala hreins alkó-
hóls á íbúa 15 ára og eldri um 5,4
lítrar í Noregi og 5,6 í Svíþjóð svo
líkast til höfum við farið frarri úr
þessum frændþjóðum í fyrra.
Sama hlutfall var 8,7 lítrar í Finn-
landi, 11,6 lítrar í Danmökru og
13,3 lítrar í Grænlandi, þar sem
skammturinn hefur þó minnkað úr
21-22 lítrum snemma á 9. ára-
tugnum. A Norðurlöndunum hef-
ur sala á mann breyst mjög Iítið
síðustu áratugi. íslendingar einir
hafa verið að stórauka áfengis-
drykkju að undanförnu.
Tvöfijldiut á freyðivíiii
Líklega hafa margir skálað lyrir
góðærinu í fyrra, því sala á freyði-
víni jókst um 38% frá árinu áður
og hefur næstum tvöfaldast á
fimm árum. Rauðvínssala jókst
um 17% í fyrra (og fór í fyrsta skip-
ti yfir milljón lítrar á einu ári) og
hvítvínssala um 14%. Sala á
rommi tók líka 21% kipp og bjór-
sala jókst um 11% milli ára. A
hinn bóginn keyptu landsmenn 5-
6% minna af brénnivíni og vodka f
fyrra en árið áður. — HEI
Jarðneskar leifar til byggða
Tekist hefur að flytja til byggða jarðneskar leifar þeirra fjögurra
manna sem voru í flugvél breska flughersins sem fórst á hálendi
Tröllaskaga suður af Bakkaseli í maí 1941. Leiðangur björgunarsveit-
armanna frá Akureyri og liðsmenn úr breska hernum hafa síðustu
daga unnið að því að bjarga hinum jarðnesku leifum mannanna sem
fórust með vélinni sem og ýmsum Iausamunum sem í henni voru.
Leiðangur þessi hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og í gær komu
til Akureyrar á annan tug þarlendra blaðamanna sem munu segja frá
þessum leiðangri í fjölmiðlum sínum. Jarðneskar leifar mannanna
sem fórust fyrir bráðum sextíu árum verða um hclgina jarðsettar í
Fossvogskirkjugarði.
Leikskólakennarar tekjulægri
Hjá Reykjavíkurborg voru leikskólakennarar í 406 stöðugiidum í
fyrra og eru dagvinulaun þess hóps í kringum 114 þús.kr. á mánuði
að meðaltali. Að viðbættri yfirvinnu og öðrum launum voru heildar-
tekjurnar 1.703 þús.kr. á stöðugildi yfir árið, eða um 142.000 kr. að
meðaltali á mánuði. Þetta eru töluvert lægri meðallaun en hjá grunn-
skólakennurum eins og sjá má hér á öðrum stað á blaðsíðunni. — HEI
Háskólinn með hugbúnaðarráðstefnu
Háskóli Islands mun á
fimmtudag og föstudag
í næstu viku halda al-
þjóðlega ráðstefnu um
gæði hugbúnaðar og
hugbúnaðarþróun. Alls
munu um tuttugu er-
lendir og innlendir sér-
fræðingar jafnt úr hug-
búnaðariðnaði og
rannsóknageiranum
flytja erindi á ráðstefn-
unni um hvernig megi
endurbæta hugbúnaðarferli og gæði vöru. Vefsíða ráðstefnunnar er:
http://vvvvw.espice.hi.is/rvk en þar má finna upplýsingar um hvar er
hægt að skrá sig á ráðstefnuna, dagskrá ráðstefnunnar ásamt útdrátt-
um fyrirlestra.
Fékk 300 kg steypukliimp ofau á sig
Maður á þrítugsaldri tékk 300 kg þungan steypuklump ofan á bakið
á sér í vinnuslysi við Mávahlíð í Reykjavík í gær. Maðurinn hafði ver-
ið að störfum ofan í skurði. Þá losnaði steypuklumpur undan tröpp-
um og lenti ofan á manninum. Meiðsli hans voru ekki að fullu kunn
f gærkvöld.
Háskóli íslands.