Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 1
Framsókn iiafii- arsoluáRÚV Ágreiningiir milli stjómarflokkanna um sölu RÚV. Vilji sjálf- stæðismauna til að einkavæða RÚV liggur fyrir, segir Kristjáu Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksius. Vegna þess að ríkissjónvarpið Hef- ur farið út í það sama og aðrar sjónvarpsstöðvar hér á landi, að fá sér það sem kallað er kostun ákveðinna þátta, hefur enn á ný vaknað umræðan um hvort selja eigi Ríkisútvarpið allt eða hluta þess. Sjálfstæðismenn hafa hvað eftir annað lagt til að Rás 2 verði seld og jafnvel sjónvarpið líka en að ríkið eigi Rás 1 áfram. Mennta- málaráðherra, Björn Bjarnason hefur verið í hópi þeirra sem vilja einkavæða RÚV. Það kom mjög vel fram þegar hann svaraði fyrir.spi.irn frá Kristjáni Páls- syni þar um á al- þingi síðastliðinn vetur. „Þetta er ofur einfalt. Fram- sóknarflokkurinn hefur ályktað um málið og á þann veg að Ríkisút- varpið sé eign allra landsmanna og verði ekki selt. Einhveijar raddir hafa þó komið upp innan llokksins um hvort Rás 2, sem afþreyingarstöð, gegni því menningarhlutverki sem RÚV ber að gera. Sumir segja dægurmenn- ingu hluta af menningunni en aðr- ir ekki. En um hitt sem ég nefndi hefur flokkurinn ítrekað ályktað um,“ sagði Hjálmar Arnason al- þingismaður. Hann segir að þessi kostun sem menn eru að tala um leiði hugann almennt að fjár- mögnun RÚV. „Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að ég tel að innheimtu- kerfið sé óheppi- legt. Það er bæði mjög dýrt og skapar að auki neikvæða ímynd fyrir þessa mildl- vægu stofnun þegar fólk er að fá mánaðarlega rukkun. Eg tel að við eigum í það minnsta að skoða það hvort ekki væri skynsamlegt að taka upp nefskatt og tryggja þar með fjárhagslegan rekstur og sjálf- stæði RÚV. Þá verða líka fjármun- irnir að renna óskiptir til RÚV en ekki inn í hítina. Eftir það geta menn þá tekið þetta auglýsinga- kapphlaup til endurskoðunar,“ segir Hjálmar Árnason Skýr afstaða „Það hefur fyrir löngu legið fyrir að lang flestir sjálfstæðismenn vilja einkavæða Ríkisútvarpið þannig að það verði ekki þetta niðurnjörv- aða ríkisbákn sem það hefur verið alla tíð. Það hefur ekki staðið á þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hvað þetta varðar heldur á sam- starfsflokkum hans í ríkisstjórn,“ sagði Kristján Pálsson alþingis- maður í samtali við Dag. Hann benti á að í fvrra vetur þegar hann lagði fram fyrirspurn á alþingi um hvort ekki ætti að brey- ta RÚV í hlutafélag hefði mennta- málaráðherra tekið þeirri skoðun ákaflega vel en síðan sagðist hann ekki vita til að neitt nýtt hefði gerst í þessu máli hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Afstaða flokksins væri alveg skýr í þessu máli. — S.DÓIí Hjálmar Árnason alþingismaður: Verður ekki selt. Stálí stál Starfsmenn Byggðastofn- unar funduðu í gær með Kristni H. Gunnarssyni, stjórnarfor- manni Byggðastofn- unar, og for- manni Sam- bands ís- lenskra bankamanna vegna deilunnar sem komin er upp varðandi starfslok. Fram hefur komið að Kristinn telur að þeir sem eldd flytjast með stofnuninni norður til Sauðárkróks, eigi engan rétt á biðlaunum en starfsmenn vísa í álit lögmanna sinna um hið gagnstæða. Engin niðurstaða fékkst á fundinum í gær. „Þeirra álit liggur fyrir og okk- ar álit liggur einnig fyrir. Viðræð- ur munu halda áfram. Þeim er ekki lokið,“ sagði Kristinn að af- loknum fundinum í gærkvöld. Engin ákvörðun hefur hins vegar tekin um hvenær aðilar hittast næst. — BÞ Kristinn H. Gunnarsson. Vala Flosadóttir sló I gegn þegar hún náði bronsinu í stangarstökki á ólympíuleikunum í Sydney. Vala sagðist stolt afþví að vera íslendingur og víst er að íslendingar eru stoltir af þessari íþróttastjörnu. Vésteinn Hafsteinsson fararstjóri ólympíufaranna, brosti einnig breitt í gær eftir að peningurinn góði var I höfn. Sjá leiðarasíðu, íþróttir og lífið í landinu í Degi I dag. - mynd: pjetur Fyrir 54 árum kom upp hugmynd að dýpka Mývatn. Vildu dýpka Mývatn Rykfallin gögn sýna að hluti mý- vetnskra bænda vildi láta kanna það (yrir 54 árum hvort ekki væri hægt að dýpka vatnið með ein- hverjum leiðum. I gögnum aðal- fundar Silungaræktarfélags Mý- vatns í Þinghúsinu á Skútustöð- um árið 1946, kemur þetta fram en skiptar skoðanir virðast hafa verið um málið. Tillagan var borin upp af Gísla Péturssyni og segir í fundargerð: „Fundurinn beinir því til stjórnar- innar, að hún leiti álits sérfræð- inga í því að auka uppeldismögu- leika og Iífsskilyrði bleikju í Mý- vatni með því að dýpka Ytri-Flóa“. Þessi tillaga var borin upp en svo virðist sem hún hafi verið felld. Fylgjendur Kísiliðjunnar við Mývatn hafa sumir hverjir beitt fyrir sig þeirri röksemd að dæling- in úr vatninu væri nauðsynleg ef vatnið ætti ekki að þorna upp inn- an tíðar. Setlög hlaðast upp auk þess sem landris varð á áttunda áratugnum. Sóttí sjukrasjóð Allt að 40% auking hefur orðið á beiðnum um aðstoð úr sjúkrasjóði Eflingar - stéttarfélags miðað sama tíma í fyrra. Talið er að þetta sé af- leiðing af því mikla róti sem er á vinnumarkaðnum um þessar mundir þar sem fólk staldrar stutt við á hverjum stað í þenslunni. Fyrir vikið ávinnur fólk sér lítil sem engin réttindi þegar veikindi eða aðrir erfiðleikar steðja að og leitar því aðstoðar hjá sínu stéttarfélagi. Guðrún Oladóttir hjá Eflingu - stéttarfélagi segir að þar á bæ séu menn dálítið slegnir yfir þessari miklu aukningu hjá sjóðnum í þessu árferði. Þar hafa menn enga skýringu á þessari þróun nema þá að þetta sé afleiðing af því hversu fólk stoppar stutt við á hvetjum vinnustað. I því sambandi bendir hún á að dæmi séu um að fólk skipti allt að því sex sinnum um vinnustað á ári. — GRH K U Mikið úrval af leikjum á verði frá 3.900 kr. NINTENDO B R Æ Ð U R N I Rl # Láamúla 8 • Sími 530 2800 64 ___rfö___ ® __________________ RdDIONftöST Lágmúla 8 • Sirni 530 2800 Qelslagötu 14 • Slml 462 1300 www.ormsson.is Komdu við hjá okkur og prófaðu á staðnum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.