Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 6
6 -ÞKIÐJUDAGVR 26. SEPTEMBER 2000 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjórí: eyjólfur sveinsson RitStjÓri: ELl'flS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir gudmundsson Framkvæmdastjórí: marteinn jónasson Skrífstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 bioo og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði Lausasöluverd: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason CREYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir Sfmbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyrí) 551 6270 creykjavík) Til hamingju, Vala! í fyrsta lagi Allir Islendingar samfagna með Völu Flosadóttur og óska henni innilega til hamingju með þann glæsilega árangur sem hún náði í gær á ólympíuleikjunum í Sydney í Astralíu. Það var mikið afrek hjá Völu Flosadóttur að ná þriðja sætinu í stangarstökkskeppninni í Sydney og hljóta þar með bronsverðlaunin, enda setti hún um Ieið glæsilegt Norðurlandamet í greininni. Dagur tekur heilshug- ar undir einróma ámaðaróskir allra landsmanna til afrekskonunn- ar í Sydney: Til hamingju, Vala! í öðru lagi Vilhjálmur Einarsson. Bjarni Friðriksson. Vala Flosadóttir. Þessi þijú nöfn eru nú samtengd í íþróttasögu Islendinga. Þau ein hafa náð þeim stórkostlega árangri að hljóta verðlaunapening á ólymp- íuleikjum, Vilhjálmur silfur en Bjami og Vala brons. Að baki slík- um affeksverkum Iiggja margra ára þrotlausar æfingar íþrótta- manna sem hafa einbeittan og óbugandi vilja til að komast í frem- stu röð. Það þarf mikinn styrk, bæði líkamlega og andlega, til að ná því Iangþráða og eftirsótta takmarki allra þeirra einstaklinga, sem takast á við þá bestu í íþróttum, að stíga á verðlaunapall á ólympíuleikjum. í þriðja lagi Árangur íslensku keppendanna hefur verið betri á þessum ólymp- íuleikjum en nokkru sinni fyrr. Fyrir utan afrek Völu Flosadóttur ber þar sérstaklega að nefna sundafrek Orns Arnarsonar, en hann varð í fjórða sæti í úrslitakeppni í tvö hundruð metra baksundi og setti Norðurlandamet, og Guðrúnu Amardóttur sem er komin í úrslit í fjögur hundruð metra grindahlaupi. Þessi glæsilegi árang- ur gefur til kynna að um þessar mundir sé veruleg uppsveifla með- al íslenskra íþróttamanna. Arangur þeirra þessa dagana mun vafa- laust hafa veruleg áhrif á þá kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi. Þannig má telja víst að afrek Islendinganna í Sydney verði mörgu ungu fólki hvatning til að feta í fótspor Völu, Arnar og Guðrúnar, enda eru þau öll svo sannarlega glæsilegar fyrirmyndir yfir íslenskt æskufólk. Elt'as Snæland Jónsson. Villutrú Markúsar Það hefur vakið óskipta athygli Garra að Morgunblaðið hund- skammar Markús Orn Antons- son útvarpsstjóra í leiðara sínum um helgina. Það cru ummæli Markúsar um að Ríkisútvarpið ætti erindi í afþreyingariðnaðinn sem valda þessum geðhvörfum Morgunblaðsdeildar Sjálfstæðis- flokksins, en þó sýnist Garra Markúsi vera nokkur vorkunn, því ef hann heldur ekki uppi vörnum fyrir þátttöku RÚV í af- þreyingu þá er hann í raun að höggva ansi nærri sínum eigin valdagrundvelli. RÚV er nefnilega að .verða fremst meðal jafn- inga í því að halda uppi auglýsinga og afþreying- armenningu á Islandi, bæði í gegnum Rás 2 eins og venjulega en eins í gegnum Sjónvarpið þar sem auglýsingar og kostunar- kynningar eru farnar að verða nánast jafnplássfrekar og hin eig- inlega dagskrá. Óvenju beinskeitt En skammir Mogga að þessu sinni eru raunar óvenju skorin- ortar og beinskeyttar. Blaðið vitn- ar í Markús þar sem hann segir að „ríkisrekin afþreying í sjón- varpi allra Iandsmanna standi fyrir sínu.“ Þetta er greinilega meira en Morgunblaðsdeild flokksins er tilbúin til að með- taka og því er niðurstaða leiðar- ans eftirfarandi: „Það getur ekki verið að útvarpsstjóra, með þann pólitíska feril að baki, sem hann á, sé alvara með þessum orðum.“ Hér fer ekkert á milli mála. Markúsi eru send skýr skilaboð, og raunar er langt siðan sést hafa jafn ódulbúin pólitísk fyrirmæli til flokksmanns í flokksblaðinu eins og i þessu tilfelli. En það er ekki bara þessi hvassi tónn gagn- V vart Markúsi sem vekur athygli. heldur er það Iíka tímasetningin því afar sjaldgæft er að Morgun- blaðsdcildin fari út í svona æling- ar nema verið sé að plægja jarð- veginn fyrir eitthvað annað sem er í fan'atninu. Galdurinn er þá bara að finna út hvað þetta „eitt- hvað annað er“. Samhengi hlutanna Og auðvitað vefst það ekki íyrir Garra frekar enn annað að finna samhengi hlutanna. Nokkuð augljóst er að Mogginn skrifar ekki svona leiðara fyrir Kolkrabliaóvin nr. 1, Jón Olafsson aðaleiganda Stöðvar 2 og Norðurljósa, þó svo að hann sé aðal- samkeppnisaðilinn við RÚV í afþreyingunni. Hins vegar vill svo heppi- lega til að Skjár Einn, litla Kolkrabbastöðin þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson er að verða aðaldagskrárefnið, hefur einmitt óskað eftir [iví að fá til afnota ónotuðu rásina sem RÚV er með. Það er jafnframt síðasta almenna sjónvarpsrás sinnar tegundar sem ekki er í notkun. Ríkissjónvarp sem varla á rétt á sér og útvarpsstjóri sem hlýtur að vera grínisti - ef marka má leiðara Morgunblaðsdeildar flokksins - hafa víst Iítið við slíka rás að gera. Og ef útvarpsstjórinn ætlar malda í móinn, þá Iiggur fyrir með óyggjandi hætti að þar er á ferð pólitískur villutrúar- maður - og hvorki hann sjálfur né aðrir þurfa að búast við að hlustað verði á hann. Það kæmi því Garra mjög á óvart ef litla Kolkrabbastöðin fengi ekki Iljót- lega þær góðu fréttir að oröið verði við umsókn hennar um að fá þessa síðustu sjónvarpsrás. - GARRI Markús Úrn Antonsson. S JÓHANNES T ss & SIGURJÓNS SON SKRIFAR Glæstur árangur íslensku kepp- endanna á olympíuleikunum í Sydney hefur yljað mörgum landanum um hjartarætur síð- ustu daga. Aðdáunarverð frammistaða Arnar Arnarsonar í sundinu, fráhær frammistaða Guðrúnar Arnardóttur í 400 metra grindahlaupi og síðast en ekki síst bronsverðlaun Völu Flosadóttur í stangarstökki. Vala var stolt þegar hún stóð brosandi og með tárin í augunum á verð- launapallinum og hún hefði get- að speglað sig í gleðitárum ís- lensku þjóðarinnar ef tæknin hefði leyft beint augnsamband yfir höf og lönd Það gleymist sjálfsagt fáum sem sáu þegar Vala gerði hverja atrennuna af annari að Islands- metum og Norðurlandametum og sveif yfir rána eins og fuglinn fljúgandi, hærra og hærra og alla leið upp á verðlaunapall, þar sem aðeins tveir Islcndingar hafa staðið til þessa á olympíuleikum. Islensldr olympíu-emir Völuspá Það sem er ekki síst athyglisvert við þennan árangur Völu, er að vænt- ingar þjóðarinnar voru í lágmarki fyr- ir þessa leika. Vala var neðar á heimsafrekalistan- um í stangarstökki nú en nokkru sinni fyrr og líkur á verð- launasæti því mun minni en oftast áður á stórmótum. Fyrirfram ríkti því ekki mikil bjartsýni í „Völuspánni" og flest- ir (nema kannski Vala sjálf) töldu það ásættanlegan árangur að komast í úrslit. Og hið sama má auðvitað segja um Órn Arnarson og Guðrúnu, þeirra árangur fór fram úr björtustu vonum bjart- sýnustu manna. Og kannski er þetta ein leiðin til að hjálpa íslenskum íþrótta- mönnum til að ná árangri á stórmót- um. Að stilla kröf- um til þeirra í hóf og hafa væntingar í lágmarki. Það hef- ur nefnilega gjarn- an verið svo að þegar jjjóðin heftur búist við mestu al knattspyrnumönn- um, fótboltamönn- um, frjálsíþrótta- mönnum, sund- mönnum og öðru afreksfólki, þá hef- ur árangurinn oftar en ekki vald- ið vonbrigðum. En jiegar ekki hefur verið búist við miklu, jiá hefur sigurgleðin stundum orðið hvað mest. Og það gefur kanns- ki auknar vonir um að Jón Arnar Magnússon verði nú loksins heppinn á stórmóti og komist klakklaust í gegnum tugþrautina, þvf kröfur til hans eru nú orðnar mun raunhæfari en ( ft áður. Uppskeruhátíð „Örninn flýgur fugla hæst“, sagði skáldið og íslensku keppendurn- ir hafa fJogið hátt á olympíuleik- unum. Og gaman í því samhengi að velta fyrir sér nöfnun jreirra sem Iengst hafa náð. Guðrún er Arnardóttir. Sjálfur Örn er Arn- arson. Og Jón er líka Arnar og Magnússon. Og það er ekki lang- ur vegur frá Völu nafninu yfir í Valinn. Sérkennileg tilviljun? Eða ættu tilvonandi foreldrar sem hafa áhuga á því að börn þeirra verði afreksmenn í íþróttum að f’ara að velja þeim nöfn sem tengjast fuglum himinsins? En auðvitað skila nöfn og stimplar engu í í'þróttum. Þar er byggt á líkamlegu og andlegu at- gervi og þrotlausri vinnu til mar- gra ára. Vala, Örn og Guðrún eru að uppskera eins og þau hafa sáð til. Og vonandi gerir Jón Arnar það einnig. Á aðfitinafélagslegum tbúðum á landsbyggðinni nýtthlutverk? (.Hugmyndirum aó leigja þessaríbúóirtU dæmis listamönnum vom kynntará Fjórðutigsþingi Vesífitðitiga um hdgina.) HaukurMár Sigutðsson, foniuuhirljdrdungssaiiihamh Vestjió- inga. ,Að sjá er þetta mjög skemmtileg hugmynd og vænleg. Framundan er áætlanagerð og forkönnun á þessu verkefni, en ef þetta mun ná fram að ganga tel ég að þetta gæti haft veruleg áhrif á framgang mála varðandi hið félagslega íbúðakerfí á landsbyggð- inni. Auðar íbúðir - minnismerki um fólksflótta - hafa slæm félags- leg áhrif í byggðunum, en með |wí að fínna íbúðunum nýtt hlutverk væru menn að horfa fram á við og hefja nýja sókn.“ Sigbjöm Gunnarssoti, sveitarstjóri i Mývatnssveit. „Ef hægt er að finna einhverja skynsamlega lausn á því að nota jjessar íbúð- ir er það af hinu góða. Hins vegar má velta upp þeirri spurningu hvers eigi að gjal- da jiau sveitarfélög sem héldu að sér höndum og önuðu ekki í að byggja félagslegar íbúðir. Spurning- in hlýtur í öllu falli að snúast um eitthvert jafnræði og hver eigi að borga reikninginn á endanum. Ein- hvern tíma verða menn að taka ábyrgð gjörða sinna.“ Reynir Traustason, hlaða tnaðurfrá Flateyri. „Þetta er ein besta hugmynd í lengri tíma sem hefur komið að vestan, en þá verða Vestfirðing- ar líka að hafa manndóm í sér til þess að klúðra þessu ekki eins og t.d. Islenskri miðlun eða helstu sjávarútvegsfýrirtækjum á svæðinu. Sjálfur á ég mér dvalarstað vestur á íjörðum, Ömmuhús á Flateyri, |)ar sem ég sit gjarnan á sumrin við að skrifa. Hvergi er betra að vera við slíkt en einmitt þar, enda truflar mann ekkert nema kannski kvakið í fuglunum." ÞrösturLeó Gunttarsson, leihari á Bíldudal. „Þetta væri frá- bært. Hér er nóg af húsnæði sem stendur autt og liggur undir skemmdum og hér er frábært að vera í faðmi fjall- anna, bæði vetur, sumar vor og haust. Það væri gott að fá nýtt blóð inn í mannlífíð hér mcð því að fá hingað fólk sem fæst við skapandi störf, og ef til vill myndi þetta fólk svo ílendast hér. I haust helúr fækkað um 20 manns hér á Bíldu- dal, og |ietta hefur slæm áhrif - þó ég trúi (iví að brátt lari hagur þessa byggðarlags að vænkast að nýju.'

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.