Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 8
8- l’KIDJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDOR SIGURDÓRSSON sigurdor@ff.is „Við sögðum þó í gríni að við fyrir- gæfum okkur allar syndir fyrir að vinna þennan bik- Kári Steinn Reynis- son Skagamaður um gcngi ÍA-Iiðsins að loknum bikarsigri. Til útskýringar Bréf til tryggingarstofnu nar Eg skrifa hér til að útskýra eft- irfarandi: I reit #3 á slysaskýrsl- unni setti ég „Reyndi að fram- kvæma verkið einn“ sem ástæðu slyss. I bréfi ykkar báðuð þið um nánari skýringar á þessu og vona ég að eftirfarandi bréf veiti nánari upplýsingar. Ég er múrari að at- vinnu. Daginn sem slysið varð var ég að vinna á þaki 3 hæða ný- byggingar. Eftir að hafa lokið verkinu sá ég að um 1 50 kíló af múrsteinum gengu af. Frekar en að bera múrsteinana niður ákvað ég að láta þá síga niður í hjólbör- um nota til þess talíu sem fest var utan á húsið. Ég gekk niður og festi reipið sem tengt var í talíuna tryggi- lcga við jörðina, þarnæst fór ég upp á þak, batt reipið í bjólbörurnar og ýtti þeim fram af brúninni. Síðan fyllti ég hjólbörurnar af múrsteinunum. Síðan fór ég aftur niður, greip í reipið og losaði það. Eins og sjá má í reit #2 á slysa- skýrslu er ég 85 kíló að þyngd. Vegna undrunar á mjög snöggu flugtaki láðist mér að sleppa reipinu. Ekki þarf að taka fram að hraði uppfcrðar minnar var mikill. Um miðja 2. hæð mætti ég hjólbörunum sem voru á niðurleið. Þau kynni útskýra brákaða höfuðkúpuog brotið viðbein. Areksturinn hægði að- eins á ferð minni upp á 3. bæð, sem stöðvaðist þegar hægri hönd mín rakst á kaf inn í talíuna. Ég hélt meðvitund og takinu á reipinu þrátt fyrir meiðsl og gríðarlegan sársauka. A sama tfma féllu hjólbörurnar á jörðina, qg ultu sem olli því að múrsteinarnir féllu úr hjólbörunum. Þyngd þeirra er 20 kíló. Ég vísa aftur til reitar #2. Eðli málsins samkvæmt hóf ég hraða niðurleið mína um leið og þetta hafði gerst. Um miðja 2 hæð rakst ég aftur á hjólbör- urnar sem voru á uppleið. Sá árekstur skýrir brákaða ökkla og skrámur og skurði á neðri hluta líkamans. Við þetta hægði á niðurleið minni og verður það að teljast til happs að áverkar við fallið á múrsteinahrúguna urðu ekki al- varlegri en hrotinn sköflungur og 2 fingur. IVlér þykir leitt að tilkynna að þar scm ég lá á múrsteinshrúgunni, ófær um að hreyfa mig vegna áverka og sárs- auka að ég missti meðvitund og sleppti reipinu. Tómar hjólbörurnar, sem eru þyngri en reipið, komu aftur niður og lentu á mér liggjandi og brutu þar báða Iærleggi. Ég vona að þetta útskýri betur hvað gerðist, og skráning mfn í slysa- skýrslu „Reyndi að framkvæma verkið einn“ varpi Ijósí á málið. FÍNA OG FRÆGA FÓLKIÐ Glaðlyitdur prms Harry Bretaprins varð 16 ára á dögunum. Hann er á góðri leið með að verða kvennagull enda þykir hann einstaklega glaðlegur ungur piltur með mikla persónutöfra og er fullkomlega laus við yfirlæti. Hann er við nám við Eton háskóla og þykir reyndar ekki mikill námsmaður en er mjög vinsæll meðal samnemenda sinna. Bróðir hans Vilhjálmur stundar einnig nám í Eton en þeir bræður eru mjög samrýndir. Aðaláhugamál Harry eru íþróttir og útivera enda vill hann sí- fellt vera á hreyfingu. ÍÞRÓTTIR Fyrsta gullið í höfnhiá Jones Gærdagurinn var eum mest speimandi keppn- isdagurinn í frjálsí- þróttakeppni ólympíu- leikanna í Sydney til þessa, en þá fóru fram úrslit í 100 og 400 m hlaupum karla og kvenna, þar sem marg- ir litríkustu keppend- ur leikanna voru meðal keppenda. Gærdagsins var beðið með mikilli spennu í Sydney, en þá fóru fram úrslit í 100 og 400 m hlaupum karla og kvenna og urðu úrslitin nokkuð eftir bókinni. Bandaríska hlaupadrottnngin, Marion Jones, sem sett hefur stefnuna á fimm gullverðlaun á ólympíuleikunum í Sydney, vann þá sitt fyrsta gull á leikunum þegar hún varð langfyrst í 100 m hlaupi á 10.75 sek. Marion, sem er tvöfaldur heims- meistari í grcininni, sýndi mikla yfirhurði í hlaupinu og kom í mark 0,37 sekúndum á undan næsta keppanda, sem var gríska stúlkan Ekaterini Thanou, sem hljóp á 11,12 sek. og er það annar mesti munur í sögu leikanna. Stuttu eftir úrslitahlaupið í kvennaflokki, kom svo Banda- rískjamaðurin Maurice Greene fyrstur í mark í úrslitum 100 m hlaups karla á tímanum 9,87 sek. og sigraði þar æfingafélaga sinn, Ato Boldon, frá Trinidad, með 0,12 sek. mun. I 400 m hlaupi kvenna vann hin 27 ára gamla Cathy Freeman, frá Astralíu, öruggan sigur á 49.11 sek. sem er 0,47 sek. betri tími en silfurverðlaunahafinn, Lorraine Graham frá Jamaíka, náði. Free- man sem er tvöfaldur heimsmeist- ari í greininni vann þarna sinn fyrsta ólympíusigur, en á síðustu Ieikum varð hún í öðru sæti á eft- ir Marie-Jose Perec frá Frakklandi. Michael Johnson, frá Bandaríkj- unum, gerði eins og hann hafði lofað, að verða fyrstur til að sigra tvo Ieika í röð í 400 m hlaupi, þeg- ar hann hljóp á 43.84 sek. Honum mistókst þó að sprengja 43 sek- úndan múrinn, eins og hann hafði ætlað sér, enda veðurfarið í gær ekki til þess fallið. Úrslit í einstökuin greiniun 20 km ganga ltarla 1. R. Korzeniowski, Póll. 1,18:59 klst. 2. N. Hernande/., Mexíkó 1,19:03 klst. 3. _V. Andreyev, Rússlandi 1,19:27 Idst. (Arangur Kor/.eniovvski cr nýtt OL- met og árangur Hernandez hans besti á ferlinum.) Kúlnvarp karla 1. Arsi Harju, Finnlandi 21.29 m 2. Adam Nelson, Bandar. 21.21 m 3. John Godina, Bandar. 21.20 m 100 m hlaup kvenna 1. Marion Jones, Bandar. 10.75 2. Ekaterini Thanou, Grikkl. 11.12 3. Tanya Lawrence, Jamaica 11.18 100 m hlaup karla 1. Maurice Greene, Bandar. 9.87 2. Ato Boldon,Trinidad 9.99 3. O. Thompson, Barbados 10.04 Spjólkast karla 1. Jan Zelezny, Tékklandi 90.17 2. Steve Backley, Bretlandi 89.85 Marion Jones. 3. Sergey Makarov, Rússlandi 88.67' (Árangur Zelezny er nýtt OL-met) Maraþon kvenna 1. Naoko Takahashi, Japan 2,23:14 2. Lidia Simon, Rúmeníu 2,23:22 3. J. Chepchumba, Kenía - SB 2,24:45 (Árangur Takahashi er nýtt Ol-met og árangur ) Hástökk karla 1. Sergey Kliugin, Rússlandi 2.35 2. Javier Sotomayor, Kúbu 2.32 3. Abderrahmane Hammad, Alsír 2.32 Þrístökk kvenna 1. Tereza Marinova, Búlgaríu 15.20 2. Tatv'ana Lebedeva, Rússlandi 15.00 3. Olena Hovorova, Úkraínu 14.96 Sleggjukast karla 1. Szymon Ziolkowski, Póllandi 80.02 2. Nicola Vizzoni, Ítalíu 79.64 3. Igor Astapkovich, Hv.-Rússl. 79.17 Stangarstökk kvenna 1. Stacy Dragila, Bandar. 4.60 2. Tatiana Grigorieva, Ástraslíu 4.55 3. Vala Flosadottir, íslandi 4.50 (Árangur Dragila er ÓL-mct, enda í fyrsta skipti sem keppt er í stang- arstökki kvenna á ÓL. Grigorieva var að ná sínum besta árangri og einnig Vala sem setti nýtt Islands- og Norðurlandamet.) Kringlukast karla 1. Virgilijus Alekna, Litháen 69.30 2. Lars Riedel, Þýskalandi 68.50 3. Frantz Kruger, S-Afríku 68.19 Þrístökk liarla 1. Jonathan Edward, Bretlandi 17.71 2. Yoel Garcia, Kúbu - SB 17.47 3. Denis Kapustin, Rússlandi 17.46 400 m hlaup kvenna 1. Cathy Freeman, Ástralíu 49.11 2. Lorraine Graham, Jamaica 49.58 3. Katharine Merry, Bretlandi 49.72 400 tn hlaup karla 1. Michael Johnson, Bandar. 43.84 2. Alvin Harrison, Bandar. 44.40 3. Gregory Haughton, Jamaica 44.70 5000 m hlaup kvenna 1. Gabriela Szabo, Rúmeníu 14:40.79 2. Sonia O’Sullivan, írlandi 14:41.02 3. Gete Wami, Eþíópíu 14:42.23 800 m hlaup kvenna 1. Maria Mutola, Mozambique 1:56.15 2. Stephanie Graf, Austurríki 1:56.64 3. Kelly Holmes, Bretlandi 1:56.80 Sjöþraut kvenna (110 ni grínd-hástökk-luíluvarp- 200 m hlaup-langstökk-spjótkast- 800 m hlaup) 1. Denise Lewis, Bretlandi 6584 (13.23-1.75-15.55-24.34- 6.48-50.19-2:16.83) 2. Yelena Prokhorova, Rússlandi 6531 (13.63-1.81-13.21-23.72- 6.59-45.05-02:10.32) 3. N. Sazanovich, Hv.-Rússlandi 6527 (13.45-1.84-14.79-24.12- 6.50-43.97-2:16.41)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.