Dagur - 26.09.2000, Blaðsíða 2
2 —ÞRIDJUDAGUR 26. SEPTEMBF.R 2000
FRÉTTIR
Höimun nýbygg
ingar gagnrýnd
StofnkostnaðiLr ærinn
vegna Sdiengen-sam-
starfsins. Ýmsu sagt
ábótavant í nýbygg-
ingu Leifsstöðvar.
Nýbyggingin við Leifsstöð á
Keflavíkurflugvelli liggur undir
ámæli aðila í ferðaþjónustu. I
samtölum við Dag hafa fagaðilar
sem þekkja til flugstöðvarmála
lýst yfir vanþóknun sinni á hönn-
un og skipulagi byggingarinnar.
Þessir sömu aðilar gagnrýna
hinn mikla stofnkostnað Islend-
inga vegna Schengen-samstarfs-
ins en drjúgur hluti þess kostn-
aðar fellur til vegna framkvæmd-
anna við Leifsstöð.
Nýbyggingin í Keflavík átti að
kosta 3,6 milljarða króna sam-
kvæmt áætlun en forstjóri Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar segir
þá upphæð varlega áætiaða og
væntanlega verði endanlegur
kostnaður á fimmta milljarð
milljóna. Meðal atriða sem gagn-
rýnd hafa verið má nefna að ráð-
ist er í bygging-
una áður en rani
flugstöðvarbygg-
ingarinnar verð-
ur breikkaður.
Þar með er byrj-
að á öfugum
enda að mati
gagnrýnenda og
gólfpláss er ein-
nig sagt furðu
lítið miðað við
stærð bygging-
arinnar.
Kannast við
alls konar
gagnrýni
Omar Kristjáns-
son, forstjóri
Flugstöðvar
Leifs Eiríksson-
ar staðfestir að margir hafi orðið
til að gagnrýna smíðina. „Eg
kannast við alls konar gagnrýni á
þessa byggingu. Ég hef fengið að
heyra margt í þeim efnum, bæði
hvað varðar hönnun og ekki síð-
ur þennan mikla kostnað sem
hlýst af þessu Schengen sam-
starfi,“ segir Ómar.
Sjálfur bend-
ir hann á að
hann hafi ekki
komið sjálfur
að ákvörðun
um bygginguna
heldur hafi aðr-
ir orðið til þess.
„Ég sit hins
vegar í bygging-
arnefnd sem
ætlað er að Ijal-
la um þættina á
Ieiðinni en ég
hef ekki raðað
saman þessari
byggingu þótt
ég hafi starfað
þama sem for-
stjóri." Ekki er
hægt að segja
að byggingin sé
aðeins tilkomin vegna
Schengen-samstarfsins en Ómar
segir þó: „Það má segja að með
tilliti til hagsýni hefðu menn val-
ið aðrar Ieiðir hefði þetta
Schengen ekki komið til.“
Gríðarleg plássvandræði
Stefán Skjaldarson, formaður
Úmar Krist/ánsson: Ég kannast við aiis
konar gagnrýni á þessa byggingu.
byggingarnefndar, kannast ekki
við plássvandamál enda sé bygg-
ingin gríðarlega stór. „Þessi
bygging er næstum jafn stór að
flatarmáli og öll gamla flugstöð-
in. Það var fyrst og fremst litið til
þess að stækkunin yrði með tilliti
til Schengen en farþegafjöldi
flugstöðvarinnar er þegar orðinn
tvöfaldur miðað við það sem
upphaflegt mannvirki var hann-
að fyrir þannig að plássvandræð-
in eru gríðarleg."
Hvað kostnaðinn varðar segir
Stefán að framkæmdir vegna
stækkaðrar innritunaraðstöðu
verði væntanlega dýrari en upp-
haflega var lagt upp með en suð-
urbyggingin svokallaða sé enn
innan kostnaðarmarka. Suður-
byggingin verður tekin í notkun
25. mars næsta ár þegar
Schengen-samstarfið hefst en
ekki er talið að hún verði fullbú-
in fyrr en ári síðar.
Danskt fyrirtæki hannaði ný-
bygginguna að undangengnu út-
boði. - Bl>
Vonbrigði
Elín Líndal,
formaður
Jafnréttisráðs,
vill ekki ganga
jafn langt og
formaður
Kvenréttinda-
félagsins að
segja að Sól-
veig Péturs-
dóttir dóms-
málaráðherra
hafi brotið
jafnréttislög
þegar hún skipaði karlmann í
stöðu hæstaréttardómara nýver-
ið. Þrjár konur sóttu með karlin-
um en engin fékk. Elín segir
hins vegar að seinagangur ríkis-
stjórnarinnar til að bæta jafn-
rétti valdi vonbrigðum.
„Eg ætla ekki að fullyrða að
svo komnu máli að Sólveig hafi
brotið jafnréttislög. Það er hins
vegar augljóst að það er gengið
gegn bæði framkvæmdaáætlun
ríkisstjórnarinnar í jafnréttis-
málum og þeirri almennu stefnu
að bæta stöðu þess kyns sem er
með lægra hlutfall.
Elín segir að Jafnréttisráð hafi
bundið vonir við aukið jafnrétti
samfara fleiri stjórnunarstöðum
hjá konum. Spurð hvort það séu
þá sérstök vonbrigði að kvenráð-
herra taki karl fram yfir konur
eins og dómsmálaráðherra hefur
verið sökuð um segir Elín:
„Vissulega eru það vonbrigði
að sjá hve hægt gengur."
- BÞ
Elín Líndai, for-
maður Jafnréttis-
ráðs.
„Tortraggileg
vinnuDrögd“
Tekist er á um hvort flugmáiastjóra beri að afhenda lögreglu gögn vegna flug-
slyssins hörmulega í Skerjafirði.
Hugsanleg mistök við
flugumferðarstj dm
segir aðstandandi
fómarlambs í flug-
slysinu í Skerjafirði.
Flugmálastjóri visar
ásökunum á bug.
„Það hefur legið lengi fyrir að
Iögreglan myndi vilja fá þessi
gögn. Flugmálastjóri átti í raun
að vera búinn að afgreiða þetta í
upphafi rannsóknarinnar í stað
þess að tetja framgang hennar
neð þessum hætti. Neítun flug-
málastjóra er á sinn hátt tor-
tryggileg í Ijósi þess að sjálf
stofnunin sem hann stýrir er
undir rannsókn og sem slík í
stöðu grunaðs. Þar á ég við hugs-
anleg mistök við flugumferðar-
stjórn," segir Friðrik Þór Guð-
mundsson, maðurinn sem krafð-
ist opinberrar lögreglurannsókn-
ar vegna flugslyssins í Skerja-
firði.
Sonur Friðriks liggur enn á
gjörgæsludeild eftir slysið, annar
tveggja sem lifðu slysið af en fjór-
ir létust. Tvær rannsóknir hafa
staðið yfir undanfarið. Annars
vegar hefðbundin vinna Rann-
sóknarnefndar flugslysa en hins
vegar sérstök athugun lögregl-
unnar að kröfu Friðriks. Ekki alls
íyrir löngu hafnaði Þorgeir Páls-
son flugmálastjóri að veita lög-
reglunni ákveðin gögn og hefur
því máli verið skotið til dómara.
Friðrik segir: „Neitun flugmála-
stjóra er líka einkennileg í ljósi
þess að meðal annars er um að
ræða samtöl á útvarpsbylgjum
sem allir geta hustað á. Það eru
fagleg samtöl en ekki persónu-
leg-“
Réttarstaða tryggð
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
vísar því hins vegar á bug að
nokkuð sé athugavert við það að
hann hafi ekki skilað lögreglunni
upplýsingunum. Málinu sé skot-
ið til dómstóla til að tryggja rétt-
arstöðu allra aðila. Að öðru leyti
hafi embættið ekkert á móti því
að afhenda upplýsingarnar.
Þorgeir tclur að lög um per-
sónuvernd kunni að vera brotin
með því að afhenda íyrrgreindar
upplýsingar. „Það eru flókin Iög
sem gilda um persónuvernd,
tölvuupplýsingar og aðrar skráð-
ar upplýsingar þannig að við vilj-
um bara hafa það ljóst að ákvörð-
un um afhendingu sé skýlaus og
báðum þess vegna um úrskurð
dómara til að taka af allan vafa,“
segir Þorgeir. Flugmálastjóri tel-
ur að þess sé skammt að bíða að
úrskurðað verði í málinu og sá
dráttur sem hugsanlega verði á
rannsókninni meðan beðið er,
geti varla skipt sköpum. - BÞ
INNLENT
Starfsmenn Símans í fjósinu að Holtseli í gær.
Síminn í fjósimi
Síminn jók þjónustu við viðskiptavini sína um Iand allt með „Þínum
síðum", nýjum og endurbættum þjónustuvef á siminn.is sem opnað-
ur var í dag. Viðskiptavinir geta nú afgreitt sig sjálfir með ýmsa fjar-
skiptaþjónustu, borgað reikninga, samið um greiðslufrest og fengið
margs konar upplýsingar um símnotkun sfna, án þess að þurfa að
mæta í þjónustumiðstöð eða hringja í þjónustuver. Með Þínum síð-
um má segja að þjónustufulltrúinn sé kominn heim í stofu og við-
skiptavinurinn hafi aðgang að honum hvenær sem er í gegnum Inter-
netið. Þessar nýjungar voru kynntar fréttamönnum í gær í fjósinu að
Holtseli í Eyjafjarðarsveit, sem er einn af mörgum nettengdum stöð-
um, þar sem nú er hægt að nálgast þjónustu Símans.
Jarðskjálítar í Mýrdalsjökli
Talsverð skjálftavirkni hefur verið í vestanverðum Mýrdalsjökli und-
anfarnar vikur. Stærsti skjálftinn varð ldukltan 6 að morgni sunnu-
dags, en sá skjálfti mældist 3,1 stig á Richter. Samkvæmt upplýsing-
um frá Veðurstofunni er þarna um að ræða árstíðabundna skjálfta-
virkni, sem yfirleitt er frá júlí og fram að áramótum og tengist hún
því að það léttir á jöklinum vegna bráðnunar sem verður á sumrin.
- GG